Morgunblaðið - 03.12.1995, Qupperneq 30
30 B SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
| A I \r~^l V'Q/K A P
Aðstoðar-
deildarstjóri
Hjúkrunarfræðingar
Staða aðstoðardeildarstjóra á deild A-3 er
laus til umsóknar. Um er að ræða starf á
hjúkrunardeild með góðri vinnuaðstöðu.
Unnið er eftir hjúkrunarskráningu. Hjúkrunar-
fræðingur með reynslu af hjúkrun aldraðra
er æskilegur í starfið.
Hjúkrunarfræðingur óskast á kvöldvaktir.
Möguleiki á leikskólaplássi.
Upplýsingar um þessi störf veita ída Atla-
dóttir, hjúkrunarforstjóri og Þórunn A. Svein-
bjarnar, hjúrkunarframkvæmdastjóri, í sím-
um 553 5262 og 568 9500.
Yfirskatianeínd
Umsóknarfrestur um stöðu nefndarmanns í
yfirskattanefnd hefur verið framlengdur til
12. desember 1995.
Um er að ræða stöðu nefndarmanns sem
skal hafa starfið að aðalstarfi, sbr. 9. gr. laga
nr. 30/1992, um yfirskattanefnd. Skipað er
í stöðuna frá 1. janúar 1996 og er skipunar-
tími til og með 30. júní 1998.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lög-
fræði, hagfræði, viðskiptafræði eða hlotið
löggildingu í endurskoðun. Æskilegt er að
umsækjendur hafi jafnframt góða þekkingu
á skattalögum og skattframkvæmd.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu-
neytinu fyrir 12. desember 1995.
Fjármálaráðuneytið,
30. nóvember 1995.
Barngóð manneskja
Óskum eftir barngóðri manneskju ti! pGSS
að gæta tveggja barna og sjá um létt hús-
verk ca 25 tíma á viku.
Upplýsingum skal skilað inn á afgreiðslu
Mbl., ásamt meðmælum, merktum:
„Kópavogur - 15556“.
IÐNSKÓLINN f REYKJAVfK
Tölvunar-, verk- og
tæknifræðingar
Kennara vantar til kennslu í tölvufræði.
Umsóknir berist skrifstofu skólans fyrir 16.
desember.
OSKASTKEYPT
Yfirfæranlegt tap
Óska eftir að kaupa fyrirtæki í rafeinda- eða
rafiðnaði með yfirfæranlegt tap sem er nýt-
anlegt til skattafrádráttar.
Upplýsingarsendisttil afgreiðslu Mbl. merkt-
ar: „Tap - 17640“.
Upplýsingar og skráning
á tónleikahaldi
Félag íslenskra hljómlistarmanna tekur að
sér að skrá tónleikahald í Reykjavík og ná-
grenni. Einnig annars staðar ef óskað er.
Félagið mun dreifa þessum upplýsingum til
fjölmiðla.
Nauðsynlegt er að fram komi:
Flytjendur, dagsetning, staður, tími og höf-
undar verka sem flutt eru.
Hringið í síma 588 8252 og lesið þessar
upplýsingar inn á símsvara, ásamt nafni og
símanúmeri, og við munum hafa samband
ef dagsetning er ásett.
Félag íslenskra hljómlistarmanna.
Húsafriðunarsjóður
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir um-
sóknum til Húsafriðunarsjóðs, sbr. ákvæði í
þjóðminjalögum nr. 88/1989, sbr. lög nr.
43/1991 og 98/1994 og reglugerð um Húsa-
friðunarsjóð nr. 479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnað-
ar vegna:
- Undirbúnings framkvæmda, áætlanagerð-
ar og tæknilegrar ráðgjafar og til fram-
kvæmda vegna viðhalds og endurbóta á
friðuðum húsum og húsum, sem hafa
menningarsögulegt og listrænt gildi.
- Byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu
þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á
að leita eftir áliti Húsafriðunarnefndar ríkisins
og sækja um styrk áður en framkvæmdir
hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrú-
ar 1996 til Húsafriðunarnefndar ríkisins,
Þjóðminjasafni íslands, Suðurgötu 41, 101
Reykjavík, á umsóknareyðublöðum sem þar
fást.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma
562 2475 milli kl. 10.30 og 12.00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins.
AUGLYSINGAR
1x1
Eftirtalin sveitarfélög hafa
ákveðið að greiða húsa-
leigubætur á árinu 1996:
Aðaldælahreppur, Bárðdælahreppur, Borg-
arfjarðarhreppur, Dalvíkurbær, Egilsstaða-
bær, Eyrarbakki, Fellahreppur, Garðabær,
Gnúpverjahreppur, Grindavíkurbær, Hafnar-
fjarðarbær, Hálsahreppur, ísafjörður, Kaldr-
ananeshreppur, Lýtingsstaðahreppur, Mos-
fellsbær, Neskaupstaður, Raufarhafnar-
hreppur, Reyðarfjarðarhreppur, Reykholts-
dalshreppur, Reykjavík, Sauðárkrókskaup-
staður, Selfoss, Seltjarnarnes, Skaftárhrepp-
ur, Stokkseyrarhreppur, Súðavík, Sveins-
staðahreppur, Tálknafjarðarhreppur, Tprfu-
lækjarhreppur, Vopnafjarðarhreppur, Öxar-
fjarðarhreppur.
Félagsmálaráðuneytið.
mm
Kynning á skýrslu nefndar
um atvinnumál fatlaðra
Kynning fer fram á skýrslu nefndar um at-
vinnumál fatlaðra í Borgartúni 6 mánudaginn
4. desember nk. kl. 13.00.
Ráðstefnustjóri: Guðrún Hannesdóttir,
forstöðumaður Starfsþjálfunar fatlaðra.
Dagskrá:
13.00 Setning: Páll Pétursson, félagsmálaráðherra.
13.15 Kynning á skýrslu nefndarinnar:
Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri, formaður
nefndarinnar.
13.45-15.00 Gagnrýni og efnisleg umfjöllun:
13.45 María Hreiðarsdóttir, ritari Átaks, Félags þroskraheftra
og fatlaðra.
14.00 Jón Björnsson, framkvæmdastjóri menningar-, uppeldis-
og félagsmálasviðs Reykjavíkurborgar.
14.15 Grétar Pétur Geirsson, starfsmaður Amicó hf.
14.30 Ómar Kristmundsson, stjórnsýslufræðingur, Hagsýslu
ríkisins.
14.45 Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri, Svæðisskrifstofu
Austurlanþs.
15.00-15.30 Kaffi.
15.30-17.00 Pallborðs- og almennar umsræður.
Stjórnandi: Sveinn Allan Morthens, framkvæmdastjóri.
Þátttakendur:
Kristján Valdimarsson, forstöðumaður ÖRVA.
Elísabet Guttormsdóttir, deildarstjóri Vinnumiðlunar
Reykjavíkurborgar.
Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur VSÍ.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Sóknar.
Kristín Jónsdóttir, starfsmaður ÖBÍ.
Gunnar Sigurðsson, deildarstjóri, Vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins.
Kynningin er öllum opinn.
Félagsmálaráðuneytið.
HUSNÆÐi OSKAST
íbúð eða sérhæð
Óskum eftir 3.-4. herb. íbúð eða sérhæð
miðsvæðis í Reykjavík sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband í síma
551 9015 eða 896 3192.
Skrifstofuhúsnæði
Hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki óskar eftir
snyrtilegu húsnæði, ca 50 fm, í Reykjavík.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á
afgreiðslu Mbl. merkt: „Strax - 15555“ fyrir
kl. 18.00, 5. desember.
Til sölu togbátur
Til sölu er mb. Sléttunúpur ÞH-272 sem er
180 BT togbátur smíðaður í Finnlandi 1979,
með 1001 hestafla Wartsila Vasa aðalvél
sem er nýupptekin. Báturinn var endur-
byggður verulega 1987 og búnaður og tæki
endurnýjuð. Báturinn er með þrjú togspil og
búinn til veiða með tvö troll samtímis. Bátur-
inn selst með veiðleyfi en án aflahlutdeildar.
Til greina koma skipti á stærra eða minna
skipi.
LM skipamiðlun,
Friðrik J. Arngrímsson hdi.,
löggiltur skipasali,
Skólavörðustíg 12, Reykjavík.
Sími 562-1018.
Innanstokksmunir 1960
og eldri
Okkur bráðvantar innanstokksmuni (mega
vera í slæmu ástandi), frá 1960 eða fyrr
vegna kvikmyndarinnar Djöflaeyjunnar. Állt
vel þegið, sérílagi gamlareldhúsinnréttingar.
Vinsamlegast hafið samband við íslensku
kvikmyndasamsteypuna í símum 896 2308
eða á skrifstofu 551 2260.