Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 11 Sigrún Magnúsdóttir um niðurfellingu verslunarhúsnæðisgjalda Var sagt að útkoman í krónutölu yrði óbreytt Morgunblaðið/Kristján Fæðingin gekk hratt og vel FYRSTI Norðlendingur ársins fæddist á fæðingadeild Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri laust eftir miðnætti 2. janúar sl. Barnið var drengur, tæpar 14 merkur og 53 cm. Foreldrar hans eru Magnea Guðrún Bergþórs- dóttir og Jón Magnússon og með þeim og litla snáðanum á mynd- inni er eldri sonur þeirra, Berg- þór Steinn, sem er 5 ára. Magnea Guðrún segir að fæðingin hafi gengið hratt og vel fyrir sig og heilsast þeim báðum vel. Magnea Guðrún og Jón eru Akureyringar en þau eru nýflutt aftur til bæjar- ins, eftir að hafa búið í Reykja- vík í ein 13 ár. Það má því segja að endurkoma þeirra til Akur- eyrar hafi verið glæsileg. SIGRÚN Magnúsdóttir borgarfull- trúi, sem er í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, kveðst hafa setið fund sambandsins, þar sem kynnt var frumvarp um að fella niður sérstakan skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, sem mun hafa 130 til 160 milljóna króna tekjur af Reykjavíkurborg, en hún sagði að það breytti engu um gagn- rýni Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra á vinnubrögð Alþingis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á fundinum sam- þykkti stjórn sambandsins sam- hljóða að mæla með samþykkt frumvarpsins. Sigrún sagði að af þessu máli hefði hún lært að fylgj- ast þyrfti grannt með vinnslu mála meðan þau væru í meðferð nefnda. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga og borgarfulltrúi, sat í nefnd félagsmálaráðuneytis, sem ætlað var að skoða hvernig leggja mætti niður skatt á skrifstofu- og verslun- arhúsnæði, sem lagður var á þegar aðstöðugjald var lagt niður. Gagnrýndi Samband sveitarfélaga sérstaklega Ingibjörg Sólrún sagði á fundi borgarstjórnar 28. desember að Reykjavíkurborg hefði aldrei verið beðin um að koma nálægt þessu Segir gagnrýni borgarstjóra á vinnubrögð Alþingis og Sam- bands sveitar- félaga standa máli og aldrei hefði verið leitað eftir upplýsingum til borgarinnar. Að hennar hyggju hefði hvorki Alþingi né Samband íslenskra sveitarfélaga tryggt hagsmuni Reykjavíkur. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins á föstudag gagn- rýndi borgarstjóri sérstaklega Samband íslenskra sveitarfélaga, en var einnig ósáttur við að frum- varp, sem hefði verið tvö ár í vinnslu, hefði farið gegnum þingið á einni viku. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vís- aði gagnrýninni á bug og benti sérstaklega á að tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar, hann og Sigrún Magnúsdóttir, í stjórn sambandsins hefðu setið stjórnarfund 11. desem- ber, þar sem „stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga mælti sam- hljóða með samþykkt frumvarps- ins“. „Mun læra af þessu máli“ Sigrún kvaðst hafa setið fund- inn, en sagði að þar hefði málið einungis verið kynnt. „Þegar sagt var að útkoman fyrir sveitarfélögin yrði óbreytt í krónutölu uggði ég ekki að mér,“ sagði Sigrún. „Ég mun læra af þessu máli eins og aðrir og æskja upplýsinga um mál meðan þau eru í nefndum.“ Að sögn Sigrúnar hefði litlu breytt þótt hún hefði lagt fram fyrirspurn á fundinum 11. desem- ber. Málið hefði þegar verið lagt fram á Alþingi og samþykkt tveim- ur eða þremur dögum síðar. Nefnd- in hefði ekki kynnt málið áður en það var lagt fram á Alþingi og það væri „nokkuð, sem við í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga ættum að taka til athugunar". Sigrún tók undir „vonbrigði borgarstjóra“ og sagði að orð Ingi- bjargar Sólrúnar hefðu einnig verið „varnaðarorð fyrir framtíðina“. Hún sagði einnig að hún hefði ekki viljað skipta sér af þessu máli þar sem það væri á vegum ráðuneytis eiginmanns síns, Páls Péturssonar. Gert er ráð fyrir að skatturinn á skrifstofu- og verslunarhúsnæði verði lagður af í áföngum fram til ársins 1999. Laga á skattinn að almennum skatti á atvinnuhús- næði. ^ltsala tV GLASGOW 3 nætur frá föstudegi til mánudags allar helgar í janúar, febrúar og mars. Valið stendur um Úrvalshótelin Hospitality Inn og Central Hotel sem bjóða farþega Úrvals Útsýnar velkomna á árinu 1996. Verð frá 740, Innifalið flug. gisting í 3 nætur og skattar. 4 4 ^MRVAL-UTSÝN Lágmúla 4: sími 569 9300, Haftiarfirði: sími 565 2366, Keflavík: stmi 421 1353, Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000 - og hjá umboðsmönnum um lattd allt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.