Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 13
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
ELSA Guðný Björgvinsdóttir,
íþróttamaður ársins, með far-
andbikar sem fylgir nafnbót-
inni ásamt eignarbikar.
Ungmennafélag
Jökuldæla
Iþróttamað-
ur ársins
valinn
Vaðbrekku, Jökuldal - Árleg upp-
skeruhátíð Ungmennafélags Jökul-
dæla var haldin milli jóla og nýárs,
28. desember. Hátíðin hófst með
félagsvist þar sem veitt voru vegleg
bókaverðlaun, bæði fyrir fullorðna
og börn.
íþróttamaður ársins er valinn úr
hópi íþróttamanna 14 ára og yngri
hjá féíaginu, en verðlaunagripir eru
veittir strák og stelpu undir 15 ára,
og pilti og stúlku í flokki 15 ára og
eldri.
í flokki 14 ára og yngri fengu
viðurkenningu fyrir góðan árangur
Elsa Guðný Björgvinsdóttir og Aðal-
steinn Sigurðarson, en í flokki 15
ára og eldri Henný Rósa Aðalsteins-
dóttir og Snæþór Vernharðsson.
Elsa Guðný Björgvinsdóttir var
síðan kjörin íþróttamaður ársins hjá
Ungmennafélagi Jökuldæla fyrir
góðan árangur í keppni á liðnu ári.
---------------------
Stillt o g fag-
urt veður um
hátíðarnar
Mývatnssveit - Hér í Mývatnssveit
var bjart, stillt og fagurt veður um
jól og áramót, en allmikið frost, jafn-
vel milli 20 og 30 stig. Eftir svo
langan frostakafla var mikið frost-
hrím á öllum tijám og jafnvel meira
en menn minnast áður, sem gerði
umhverfið vissulega jólalegra.
Annars var jólahald hér með hefð-
bundnum hætti. Messað var í báðum
kirkjum, bæði um jól og áramót, og
fjölmenni. Jólatrésskemmtun fyrir
börn á vegum kvenfélagsins var
haldin í Skjólbrekku 28. desember.
Sótti mikill fjöldi þá skemmtun. Þar
var einnig jólafundur á vegum Ung-
mennafélagsins Mývetnings 29. des-
ember.
Á gamlárskvöld voru tvær ára-
mótabrennur, önnur á Ytri-Höfða
en hin í suðursveitinni. Mikið var
um flugeldaskot og margskonar
stjörnublys sem sáust víða á lofti
enda heiðskírt veður og stjörnubjart-
ur himinn. Færð á vegum hefur ver-
ið nánast eins og á sumardegi og
allir því getað komist til síns heima.
Leikhmi
húsi lundlaugar Sfltjarnarnus
Danshöllin Drafnarlelli 2
Upplýsmgar i sima SS2 6266
Miklar endurbætur
á Hrepphólakirkju
Syðra-Langholti - Undanfarin fjögur ár, en með
hléum þó, hafa farið fram miklar endurbætur á
Hrepphólakirkju og er þeim nú nýlega lokið.
Mest hafa þetta verið fúaviðgerðir en einnig
hefur verið skipt um járnklæðningu. Nú síðari-
hluta nýliðins árs var gafl kirkjunnar endur-
byggður og einnig settur nýr kirkjuturn. Núver-
andi kirkja er byggð upp úr þeirri kirkju sem
reist var í Hrepphólum árið 1902. Sú kirkja fauk
í miklu aftakaveðri þann 29. desember 1908 en
var endurbyggð og minnkuð sumarið eftir.
Við endurbygginguna undanfarin misseri hef-
ur verið leitast við að kirkjan beri svipmót þeirr-
ar kirkju er fauk í byrjun aldarinnar sem þótti
glæsilegra mannvirki. Umsjón með verkinu hafði
Hjörleifur Stefánsson, tilnefndur af Húsafriðun-
arnefnd ríkisins, yfirsmiður var Óðinn Sigur-
geirsson tæknifræðingur. Hrepphólakirkja tekur
um 100 manns í sæti en söfnuðurinn byggði
safnaðarheimili fyrir 12 árum sem einnig er
notað við allar stærri athafnir og tekur það um
50 manns í sæti.
Séra Eiríkur Jóhannsson, sem verið hefur
prestur á Skinnastað og tók við Hrunapresta-
kalli nú um áramótin, verður settur formlega inn
í embætti 14. janúar að Hruna. Fyrsta embættis-
verk hans í prestakallinu verður þó að messa í
Hrepphólum á sunnudaginn kemur, 7. janúar.
Þess má að lokum geta að meðal góðra kirkju-
muna er Hrepphólakirkja hefur að geyma eru
einhveijar elstu kirkjuklukkur landsins og eru
að sögn þjóðminjavarðar frá elleftu eða tólftu
öld. Formaður sóknarnefndar Hrepphólakirkju
er Ágúst Sigurðsson í Birtingaholti.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson.
BREYTT útlit Hrepphólakirkju.