Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 17 ERLENT Konan sem býður Arafat birginn Samiha Khalil, 72 ára, býður sig fram gegn leiðtoga Palestínumanna í kosningunum sem fram fara þann 20. janúar nk. Fullvíst er talið að Khalil tapi kosningunum en framboð hennar er engu síður athyglisvert Ramallah. The Daily Telegraph. YASSER Arafat er einn fárra leið- toga í arabaheiminum sem leyfir andstæðingum sínum að bjóða fram gegn sér. Lítill vafi leikur á því að Arafat muni bera sigur úr býtum í kosningum Palestínumanna sem fram fara síðar í mánuðinum. Mönnum leikur hins vegar forvitni á að vita hversu mörg atkvæði falla í skaut konunni sem hefur boðið sig fram gegn Arafat, hinni 72 ára gömlu Samiha Khalil. Kosningabaráttan hófst form- lega á þriðjudag. Yfir 700 frambjóð- endur sækjast eftir hinum 88 sæt- um í ráðinu sem mun fara með stjórn á sjálfstjórnarsvæðum Pal- estínumanna. Hanan Ashrawi, fyrr- verandi talsmaður Frelsissamtaka Palestínu (PLO) er ein þeirra. Þá verður kosið sérstaklega um fram- kvæmdastjóra ráðsins, eða „for- seta“ og stendur valið á milli Ara- fats og Khalil. Full reiði Frú Khalil, sem hefur stýrt fjöl- sóttum verknámsskóla fyrir konur, segist bjóða sig fram í nafni þeirra fjölmörgu sem séu óánægðir með sjálfstjómarsamningana sem Arafat gerði við Ísraela. Þá vill hún hafa áhrif á samninga i maí nk. þar sem rædd verða viðkvæm málefni á borð við landamæri, stöðu Jerúsalems, flóttamanna og landnema. „Ég gleðst yfir því að fáni okkar hefur leyst ísraelska fánann af hólmi, en ríki okkar er ekki full- valda.“ Khalil segir Palestínumenn fulla reiði vegna samninganna um sjálfstjómarsvæðin og að þeir muni ekki verða langlífír. Aðeins stofnun palestínsks ríkis á Vesturbakkanum, Gaza-svæðinu og í Austur-Jerúsal- em geti komið í veg fyrir stríð. „Land okkar er enn gert upptækt fyrir landnema, fangar eru enn á bak við lás og slá, fólk frá Vestur- bakkanum má enn ekki fara til Jerúsalems, nemendur frá Gaza mega ekki stunda nám á Vestur- bakkanum," segir hún. „Hver dagur er verri en sá á undan.“ Sakar karlana um linku Khalil hefur til að bera móðurleg- an strangleik konu sem hefur búið við tvöfalda kúgun, af hendi ísra- elska hersins og karla, sem ráða flestu í palestínsku þjóðfélagi. Hún minnir eilítið á járnfrúna Margaret Thatcher þegar hún sakar karl- mennina um linku. Á skrifstofu hennar er mikið um að vera, þangað streyma blaða- menn, m.a. frá ísrael, til að hitta konuna sem þorði að bjóða Arafat birginn. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég hleypi ísraelum inn. Ég vil segja þeim að snúa heim með þau skila- boð til stjórnvalda að koma í veg fyrir annað stríð og meiri blóðsút- hellingar.“ Útvarps- og sjónvarpsstöðvar Pal- estínumanna hafa hins vegar ekki enn minnst á framboð hennar gegn Arafat og blöðin aðeins í framhjá- hlaupi. Khalil kippir sér ekki upp við það og hún er ekki eins harðorð í garð andstæðings síns og vænta mátti. „Arafat gerir eins og hann getur. Hann hefur trú á því að best- ur árangur náist með því að fara skref fyrir skref en ég er ekki sama sinnis. Sá er munurinn á okkur en hann er vinur minn og forseti minn.“ Breytingar á framboðum Hart hefur verið deilt um kosn- ingarnar og hafa vinstrisinnar í stjórnarandstöðunni hvatt til þess þær verði hunsaðar. Afstaða íslömsku hreyfingarinnar Hamas hefur verið ruglingsleg, um tíma hugðist hún ekki taka þátt í kosn- ingunum en svo ákváðu háttsettir meðlimir í Hamas að bjóða sig fram sem „óháða“ en afturkölluðu flestir framboð sitt á þriðjudag vegna al- þjóðlegs þrýsting. Ætlunin var að kosningabarátt- an hæfist um síðustu helgi en henni var frestað um fímm daga, fram á föstudag. En frambjóðendurnir hunsuðu þá ákvörðun og yfírkjör- stjórn féllst á þriðjudag á að barátt- an mætti hefjast. Dráttur varð á að kosningabar- áttan hæfist vegna þeirrar ákvörð- unar að leyfa fleiri framboð í kjöl- far þeirrar ákvörðunar ísraels- manna að heimila Arafat að fjölga sætum í ráðinu úr 83 í 88. Arafat hefur lýst því yfir að hann voni að kosningarnar verði fýrir- mynd annarra kosninga í araba- löndum. Enginn vafi leikur á því að Palestínumenn búa við meira frelsi til að gagnrýna en t.d. írakar og Sýrlendingar. En ljóst er að Arafat vill hafa fulla stjórn á stjórn- arandstöðunni í ráðinu og hætt við því að markmið kosninga Palestínu- manna sé ekki að leyfa kjósendum að tjá hug sinn, heldur að auka lagalegan rétt og völd eins leiðtoga. FJÁRMÁLA UNGL GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR 1983 ÁRGANGINN Vaxtalína Búnaðarbankans veitir frábæra fjármálaþjónustu Gangið í Vaxtalínuna og þið eruð komin á góða braut í fjármálum. Nú er rétta tækifærið fyrir þá sem eru fæddir árið 1983 að gerast félagar í Vaxtalínu Búnaðarbankans. Vaxtalínan er fjármálaþjónusta fyrir alla unglinga á aldrinum 13 til 18 ára. Við skráningu geta félagar stofnað Vaxtalínureikning og fengið Vaxtalínukort. Við inngöngu í Vaxtalínuna stendur félögum til boða: ítarleg skipulagsbók og dagbók ásamt ýmsuin fróðleik. Með kortinu er hægt að taka út peninga í bönkum og spari- sjóðum hérlendis og í hraðbönkum hér heima og erlendis. Hægt er að fylgjast með stöðu bankareiknings. Veitir afslátt af vöru og þjónustu á matsölustöðum, mynd- bandaleigum, í sportvöruverslunum, hljómplötuverslunum, tískuverslunum o.fl. Ókeypis fjármálanámskeið og fjármálahandbók. 30% afsláttur af áskrift að Interneti hjá Miðheimum*. ÞJONUSTA INGA Skipulagsbók Vaxtalínukort Færslubók Afslát tarkort Námskeið og handbók Internet BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Háð samþykki foreldris/forráðamanns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.