Morgunblaðið - 04.01.1996, Side 18

Morgunblaðið - 04.01.1996, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Reuter Riddaramennska Eldflaug- um rigndi yfir Kabúl AFGANSKIR skæruliðar héldu uppi eldflauga- og sprengjuárás á höfuðborgina Kabúl í gær- morgun með þeim afleiðingum, að a.m.k. 20 manns biðu bana og um 45 slösuðust. Talsmenn vamarmálaráðuneytisins skelltu skuldinni á skæruliðasamtökin Taleban en liðsmenn þeirra hafa setið um Kabúl og freista þeir þess að fella stjóm Burhanudd- ins Rabbanis forseta. Árásin var gerð á sama tíma og hann hafði boðist til að hitta alla stjómar- andstöðuleiðtoga að máli, þar á meðal Abdul Dostum leiðtoga Taleban. Ný stjórn í Egyptalandi TALIÐ er að stjórnarskipti í Egyptalandi geti orðið til þess að blása nýjum krafti í efna- hagsumbætur þar í landi. Að öðm leyti er ekki búist við neinni stefnubreytingu af henn- ar hálfu. Kamal Ganzouri, skipulagsmálaráðherra frá 1986, var falin myndun nýrrar stjórnar eftir afsögn stjórnar Atefs Sedkis. Morðingi Rabins ritar bók í fangelsi YIGAL Amir, morðingi Yitzh- aks Rabins forsætisráðherra Israels, stundar ritstörf í fang- elsi og gaf lögmaður hans til kynna að hann sé að semja bók. Amir er 25 ára strangtrú- aður Gyðingur. Hann myrti Rabin við friðarathöfn í Tel Aviv 4. nóvember sl. Frakkar for- dæma tilræði í Arnhem FRANSKA stjórnin fordæmdi í gær sprengjuárás á byggingu í borginni Amhem í Hollandi þar sem frönsk ræðismannsskrif- stofa er til húsa og einnig útibú fransks banka, Parisbas. Hol- lenska lögreglan gat sér þess til, að tilræðið væri liður í mót- mælaaðgerðum gegn kjarnork- utilraunum Frakka. Segja gísla lausa úr haldi í Kashmír SKÆRULIÐAR sem haldið hafa fjóra Vesturlandabúum í gíslingu frá í fyrrasumar í Kas- hmír sögðu í gær, að indverskir hermenn hefðu bjargað fjór- menningunum úr prísundinni í gær. Af hálfu hersins var því vísað á bug. Skæruliðarnir gáfu sambærilega yfirlýsingu út fyr- ir mánuði. ÞESSIR tveir miðaldariddar- ar áttu leið um götur Kiev eða Kænugarðs í Ukraínu í gær London. Reuter. TALSMENN Verkamannaflokksins breska hétu í gær að nota hvert tækifæri, sem gæfist, til að þjarma að John Major, forsætisráðherra Bretlands, en íhaldsflokkurinn hefur nú aðeins fimm sæta meirihluta á þingi eftir að einn þingmaður hans, Emma Nicholson, gekk til liðs við fijálslynda demókrata. Michael Port- illo, sem hefur verið sakaður um að hafa leitt íhaldsflokkinn til hægri, sagði í gær, að engin ástæða væri til að breyta um stefnu fyrir kosning- amar 1997. „Ihaldsmenn eru endaniega klofn- ir, jafnt á þingi sem úti í þjóðfélag- inu, og við ætlum að auka þrýsting- inn á Major og stjórnina um allan helming,11 sagði John Prescott, að- stoðarleiðtogi Verkamannaflokksins, Washington. Reuter. STJÓRN Bandaríkjanna kveðst ánægð með að Abdullah krónprins skuli taka við völdunum í Saudi- Arabíu um stundarsakir vegna veik- inda Fahds konungs, hálfbróður hans, sem fékk heilablóðfall í nóv- ember. Bandarískir embættismenn sögðust ekki hafa áhyggjur af því að Abdullah krónprins yrði ekki jafn hliðhollur Vesturlöndum og Fahd. „Við teljum ríkið og stjómina í góðum og styrkum höndum,“ sagði Glyn Davies, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins við frétta- menn í fyrrakvöld. Hann sagði að Bandaríkjastjórn teldi að valdaaf- eftir að hafa skemmt börnum í nýársfagnaði. Eru þeir félagar í klúbbi, sem í Tamworth í Mið-Englandi en þar verða aukakosningar á næstu vikum vegna fráfalls Sir Davids Light- bowns, þingmanns íhaldsflokksins. Aukakosningar Lightbown, sem var þingmaður fyrir South East Staffordshire, sigr- aði í kosningunum 1992 með 7.192 atkvæða meirihluta en talið er víst, að Verkamannaflokkurinn hreppi þingsætið nú. Aðrar aukakosningar í Hemsworth í Yorkshire eru aðeins formsatriði fyrir Verkamannaflokk- inn því að þingmaður hans, Derek Enright, sem iést í október, fékk 70% atkvæða í síðustu kosningum. Fái Verkamannaflokkurinn báða þingmennina eins og allt bendir til, þá er meirihluti Majors kominn í salið til Abdullah væri til bráða- birgða og að svipað valdaafsal hefði átt sér stað í Saudi-Arabíu seint á síðasta áratug. „Engin andstaða við Abdullah“ Bandarískir embættismenn sögðu á mánudag að Fahd konung- leggur sig eftir sögulegum fróðleik og að viðhalda göml- um hefðum. þijú atkvæði og í raun í tvö vegna þess, að íhaldsþingmaðurinn Sir Ric- hard Body sagði sig úr þingflokknum sl. haust vegna ágreinings um Evr- ópumálin. Michael Portillo, varnarmálaráð- herra Bretlands, sagði á Filippseyjum í gær, að það væri rangt, að þeir, sem hefðu yfirgefið íhaldsflokkinn, hefðu gert vegna þess, að hann hefði færst til hægri. Þeir hefðu sínar eig- in ástæður fyrir því og ættu ekki að kenna flokknum um. Emma Nicholson sagði sl. föstu- dag, að hún ætlaði að ganga til liðs við fijálslynda demókrata vegna þess, að íhaldsflokkurinn hefði færst til hægri og tekið upp stefnu andsn- úna Evrópu en Portillo sakaði hana um að bregðast trúnaði við flokkinn ur, sem er 73 ára, virtist á bata- vegi og hefði ekki lamast af völdum heilablóðfallsins. Bandarískur emb- ættismaður viðurkenndi þó í gær að mikil óvissa ríkti um ástand konungsins. Hann sagði að ef Fahd félli frá yrði „minna umrót í Saudi- Arabíu en við forsetaskipti í Banda- Hafa ekki orðið goss- ins varir „HÉR er allt í stakasta lagi og við höfum ekki orðið varir við neitt eld- gos,“ sagði Jörundur Ragnarsson, starfsmaður íslenskra sjávarafurða (ÍS), í borginni Petropavlovsk-Kamt- sjatskíj á Kamtsjatka á Kyrrahafs- strönd Rússlands, í samtali við Morgunblaðið. Eldgos hófst í fjallinu Karímskíj í fyrradag að undangengnum öflug- um jarðskjálfta, sem mældist 7,2 stig á Richter-kvarða. Reið hann yfir klukkan 10 að morgni að ís- lenskum tíma, eða 22 að staðartíma að kvöldi nýjársdags. „Við fundum hann ekki, en fund- um hins vegar rækilega fyrir snörp- um skjálfta á sjötta tímanum síðdeg- is á gamlársdag. Þá hristist hér allt og skókst en engar skemmdir urðu og það sakaði heldur engan,“ sagði Jörundur. „Það eina sem við vitum um eld- gosið, sem er býsna langt í burtu, eru þær fréttir sem verið hafa í sjón- varpi," sagði Jörundur að lokum. Hann starfar ásamt fjölda Islend- inga að útgerð í Petropavlovsk. og kjósendur sína. Jafnframt lýsti hann yfír fullum stuðningi við John Major. Nýtt áfall í febrúar Breska dagblaðið Independent sagði í fyrradag, að gagnrýni Portill- os á Nicholson hljómaði „eins og Machiavelli væri að fordæma tvö- feldni" og sakaði hann um að hafa gert meira en nokkur annar í því að grafa undan forystu Majors. Á þessu kjörtímabili hafa ýmis kynlífs- og fjármálahneyksli leikið íhaldsflokkinn illa og búist er við, að hann fái heldur slæma útreið í febrúar þegar birt verður skýrsla um vopnasölu til Iraks fyrir Persaflóa- stríð. Talið er, að þar verði ýmsir ráðherrar átaldir harðlega. ríkjunum". „Það er engin andstaða við Abdullah og valdatöku hans.“ Abdullah krónprins hefur verið yfirmaður þjóðvarðliðsins og stjórn- að landinu að mestu frá því konung- urinn fékk heilablóðfall. Bandarísk- ir embættismenn segja krónprins- inn ólíkan konungnum en engin ástæða sé til að ætla að hann verði ekki jafn hlynntur nánum tengslum við Bandaríkin og Fahd. Þeir viður- kenna þó að hann hafí „íhaldsam- ari skoðanir“ á friðarumleitunum araba og ísraela en Fahd og segja að hann kunni að verða sveigjan- legri þegar á reynir sem leiðtogi landsins. Forystumenn breska Verkamannafiokksins blása í herlúðrana Ætla að herða róðurinn gegn Major og stjóminni Viðbrögð Bandaríkjastjórnar við valdatöku Abdullah krónprins „Saudi-Arabía í góðum höndum“ Útsalan hefst í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.