Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 19
LISTIR
Komar og Melamid sýna
Eftirsóttasta
málverk bandarísku
þjóðarinnar
Á MOKKA verður opnuð á
mánudaginn sýning á silki-
þrykkjum af Eftirsóttasta og
Síst eftirsótta málverki banda-
risku þjóðarinnar eftir rúss-
nesku myndlistarmennina Kom-
ar og Melamid. Um næstu helgi,
laugardaginn 13. janúar, hefst
svo á Kjarvalsstöðum sýning á
Eftirsóttasta og Síst eftirsótta
málverki íslensku þjóðarinnar,
sem Komar og Melamid unnu
út frá ítarlegri skoðanakönnun
Hagvangs hf. á viðhorfi almenn-
ings til myndlistar og því hvað
landinn vill helst sjá í málverki.
Sýningarnar eru samvinnuverk-
efni Mokka og Kjarvalsstaða,
en íslenska könnunin var gerð
fyrir tilstilli Hannesar Sigurðs-
sonar listfræðings sem jafn-
framt sér um sýningarstjórn á
báðum stöðum.
I kynningu segir: „Komar og
Melamid hafa tekið sér ýmislegt
furðulegt fyrir hendur í gegn-
um tíðina og stuðlað að fjöl-
mörgum uppákomum er vakið
hafa óskipta athygli listaheims-
ins en þeir urðu stórstjörnur í
myndlistinni í byrjun áttunda
áratugarins með ádeilumál-
verkum sínum á kommúnism-
ann og ráðamenn hans. Nokkru
fyrir fall Berlínarmúrsins og
lok kalda stríðsins sneru þeir
hins vegar blaðinu við og tóku
óspart að hæðast að neyslusam-
félaginu og hinu vestræna
sljórnkerfi, lýðræðinu okkar.
Val fólksins, eins og Komar og
Melamid kalla þetta rannsókn-
arverkefni sitt á myndlistar-
menn fjöldans, hefur sennilega
vakið meira umtal úti í hinum
stóra heimi en nokkur annar
nútímalistaviðburður að undan-
förnu.“
í sýningarskrá frá Kjarvals-
stöðum er að finna ítarlegt við-
tal við Melamid um forsendur
könnunarinnar, greinar um
bakgrunn félaganna og hug-
myndafræðilega merkingu
verksins eftir Hannes Sigurðs-
son, auk helstu niðurstaðna
Hagvangskönnunarinnar. Kom-
ar og Melamid koma bráðlega
til landsins í boði Kjarvalsstaða
og munu þeir halda opinn fund
„með fólkinu" á Kjarvalsstöðum
föstudaginn 12. janúar kl. 17.
EFTIRSÓTTASTA mál-
verk bandarísku þjóðarinn-
ar (1994) eftir Komar og
Melamid.
Er sá fundur skipulagður af
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands í samvinnu við Mokka og
Kjarvalsstaði. Þá má einnig
geta, að í framhaldi af sýningu
Kolmars og Melamids í Mokka
mun myndlistarkonan Borg-
hildur Anna Jónsdóttir, sem
búsett er í London, koma til
landsins og mála samkvæmt
óskum kaffihúsagesta frá 12. -
24. febrúar.
Dansleik-
hússpuninn
„Leitin að
Rómeó“
í BOÐI Listaklúbbsins verður
frumflutt dansleikhúsverkið „Leit-
in að Rómeó“ í Þjóðleikhúskjallar-
anum í kvöld fimmtudagskvöld kl.
21.
„Leitin að Rómeó“ er dansleik-
húsverk samið og flutt af þrem
fyrrverandi nemum úr Listdans-
skóla íslands sem allir stunda nú
nám í erlendum listaháskólum.
Allar í námi erlendis
Þeir eru Aino Freyja Jarvela,
og stundar hún leiklistarnám í
Bretton Hall University College í
Bretlandi, Erna Ómarsdóttir sem
stundar nám í nútímadansi í
P.A.R.T.S í Belgíu og Karen Mar-
ía Jónsdóttir sem stundar dans í
Hogeschool voor het Kunsten í
Hollandi.
Aðeins verður um þessa einu
sýningu að ræða þar sem þær
fljúga út í áframhaldandi nám
strax að loknu jólaleyfi.
AINO Freyja, Erna og Karen María munu frumflytja dansleikhús-
verkið „Leitin að Rómeó" í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.
Rosenthal _ þégíir pii ^lur gj’°f
• Brúðkaupsgjafir (7) '^Q/\ Á\
• Tímamótagjafir
• Vcrð við allra hæfi
Hönmm oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244.
ELDSTEIKTUR
VIBON HAMBORCARI
OGANNAREINS
ÓKEYPIS
ALLA VIRKA DACA í JANÚAR
MILLI KL. 14 0C17
TILBOÐIÐ CILDIR FYRIR ALLARTECUNDIR
ELDSTEIKTRA HAMBORCARA
ELDHRESS * FERSKUR • SAFARIKUR
BÖSTAOAVECI1S3 • SÍMI S68 8088
Veistu...
POSTUR OG SÍMI
r... að dagblað í Bretlandi kostar
30 kr. í lausasölu. Fyrir það verð fæst
símtal í 8 mín. innanbæjar í Bretlandi.
L... að dagblað á íslandi kostar 125 kr. í
lausasölu. Fyrir það verð fæst símtal í
2 klst. og 26 mín. innanbæjar á íslandi.