Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 19 LISTIR Komar og Melamid sýna Eftirsóttasta málverk bandarísku þjóðarinnar Á MOKKA verður opnuð á mánudaginn sýning á silki- þrykkjum af Eftirsóttasta og Síst eftirsótta málverki banda- risku þjóðarinnar eftir rúss- nesku myndlistarmennina Kom- ar og Melamid. Um næstu helgi, laugardaginn 13. janúar, hefst svo á Kjarvalsstöðum sýning á Eftirsóttasta og Síst eftirsótta málverki íslensku þjóðarinnar, sem Komar og Melamid unnu út frá ítarlegri skoðanakönnun Hagvangs hf. á viðhorfi almenn- ings til myndlistar og því hvað landinn vill helst sjá í málverki. Sýningarnar eru samvinnuverk- efni Mokka og Kjarvalsstaða, en íslenska könnunin var gerð fyrir tilstilli Hannesar Sigurðs- sonar listfræðings sem jafn- framt sér um sýningarstjórn á báðum stöðum. I kynningu segir: „Komar og Melamid hafa tekið sér ýmislegt furðulegt fyrir hendur í gegn- um tíðina og stuðlað að fjöl- mörgum uppákomum er vakið hafa óskipta athygli listaheims- ins en þeir urðu stórstjörnur í myndlistinni í byrjun áttunda áratugarins með ádeilumál- verkum sínum á kommúnism- ann og ráðamenn hans. Nokkru fyrir fall Berlínarmúrsins og lok kalda stríðsins sneru þeir hins vegar blaðinu við og tóku óspart að hæðast að neyslusam- félaginu og hinu vestræna sljórnkerfi, lýðræðinu okkar. Val fólksins, eins og Komar og Melamid kalla þetta rannsókn- arverkefni sitt á myndlistar- menn fjöldans, hefur sennilega vakið meira umtal úti í hinum stóra heimi en nokkur annar nútímalistaviðburður að undan- förnu.“ í sýningarskrá frá Kjarvals- stöðum er að finna ítarlegt við- tal við Melamid um forsendur könnunarinnar, greinar um bakgrunn félaganna og hug- myndafræðilega merkingu verksins eftir Hannes Sigurðs- son, auk helstu niðurstaðna Hagvangskönnunarinnar. Kom- ar og Melamid koma bráðlega til landsins í boði Kjarvalsstaða og munu þeir halda opinn fund „með fólkinu" á Kjarvalsstöðum föstudaginn 12. janúar kl. 17. EFTIRSÓTTASTA mál- verk bandarísku þjóðarinn- ar (1994) eftir Komar og Melamid. Er sá fundur skipulagður af Myndlista- og handíðaskóla ís- lands í samvinnu við Mokka og Kjarvalsstaði. Þá má einnig geta, að í framhaldi af sýningu Kolmars og Melamids í Mokka mun myndlistarkonan Borg- hildur Anna Jónsdóttir, sem búsett er í London, koma til landsins og mála samkvæmt óskum kaffihúsagesta frá 12. - 24. febrúar. Dansleik- hússpuninn „Leitin að Rómeó“ í BOÐI Listaklúbbsins verður frumflutt dansleikhúsverkið „Leit- in að Rómeó“ í Þjóðleikhúskjallar- anum í kvöld fimmtudagskvöld kl. 21. „Leitin að Rómeó“ er dansleik- húsverk samið og flutt af þrem fyrrverandi nemum úr Listdans- skóla íslands sem allir stunda nú nám í erlendum listaháskólum. Allar í námi erlendis Þeir eru Aino Freyja Jarvela, og stundar hún leiklistarnám í Bretton Hall University College í Bretlandi, Erna Ómarsdóttir sem stundar nám í nútímadansi í P.A.R.T.S í Belgíu og Karen Mar- ía Jónsdóttir sem stundar dans í Hogeschool voor het Kunsten í Hollandi. Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða þar sem þær fljúga út í áframhaldandi nám strax að loknu jólaleyfi. AINO Freyja, Erna og Karen María munu frumflytja dansleikhús- verkið „Leitin að Rómeó" í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Rosenthal _ þégíir pii ^lur gj’°f • Brúðkaupsgjafir (7) '^Q/\ Á\ • Tímamótagjafir • Vcrð við allra hæfi Hönmm oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244. ELDSTEIKTUR VIBON HAMBORCARI OGANNAREINS ÓKEYPIS ALLA VIRKA DACA í JANÚAR MILLI KL. 14 0C17 TILBOÐIÐ CILDIR FYRIR ALLARTECUNDIR ELDSTEIKTRA HAMBORCARA ELDHRESS * FERSKUR • SAFARIKUR BÖSTAOAVECI1S3 • SÍMI S68 8088 Veistu... POSTUR OG SÍMI r... að dagblað í Bretlandi kostar 30 kr. í lausasölu. Fyrir það verð fæst símtal í 8 mín. innanbæjar í Bretlandi. L... að dagblað á íslandi kostar 125 kr. í lausasölu. Fyrir það verð fæst símtal í 2 klst. og 26 mín. innanbæjar á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.