Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 20

Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR BRYNHILDUR Björnsdóttir í hlutverki móður Margrétar miklu: „Þetta verk fjallar ekki bara um konur, það fjallar miklu frekar um mannlegt samfé- lag í heild sinni.“ Morgunblaðið/Ámi Sæberg „MARGRÉT mikla er öfgakennd", segir Drífa Arnþórsdóttir sem liggur hér í undarlegri púlstöku hjá Agústu Skúladóttur, „í henni er bæði allt það versta og allt það besta; í henni snúast líka öll gildi við; það besta verður það versta og öfugt.“ Hræðilegur ærslaleikur Margrét mikla er nýtt leikrit eftir Kristínu ~-----—----------------------------—— Omarsdóttur sem Lundúnaleikhópurinn frum- sýnir annað kvöld í Tjamarbíói. Aðstandend- ur sýningarinnar sögðu Þresti Helgasyni að verkið væri eins konar skopstæling eða viðsnúningur á kvenímynd nútímans. Sigurlaug Guðlaug Rósinkrans Rósinkrans Nýir geisla- diskar Sigur- laugar og Guðlaugar Rósinkrans SIGURLAUG Rósinkrans er landsmönnum vel kunn síðan hún var virkur þátttakandi I óperusöng í Þjóðleikhúsinu. Síðar fluttu þau hjón, Guðlaug- ur Rósinkrans fyrrverandi Þjóðleikhússstjóri og Sigur- laug, til Svíþjóðar, en nokkru eftir lát Guðlaugs flutti Sigur- laug til Kaliforníu ásamt börn- um sínum, Guðlaugu og Ragn- ari, sem bæði hafa lagt fyrir sig tónlist. Sigurlaug, sem tók upp nafn- ið Sally Rosinkranz fyrir vest- an, hefur haft næg verkefni i söng og syngur nú í Messu I C-Minor eftir Mozart með Sin- fóníuhljómsveit Los Angeles. Hún er auk þess að vinna að upptökum á tveimur geisladisk- um og tveir hafa þegar komið út, annar undir heitinu „Sally“, þar sem Sigurlaug syngur jöfn- um höndum óperuaríur og ís- lenzk sönglög, og hinn undir heitinu „Forever with Love“. Jafnframt er nú kominn út fyrsti hljómdiskur Guðlaugar, sem nefnir sig Gully og yfir- skriftin á diskinum er „Shine again“. Gully er tónskáld og á diskinum er eingöngu tónlist eftir hana. Hljómsveitarútsetn- ingar gerði hún sjálf ásamt Ragnari bróður sínum. Þau systkinin léku einnig á öll hljóðfærin, nema hvað cellóleikari og flautuleikari, komu til liðs við þau í einu lag- inu. MARGRÉT MIKLA er hræði- legur ærslaleikur um konu sem er afskaplega hjálp- söm og góð“, segir. Björn Gunn- laugsson, leikstjóri, „hún lætur sig ekki muna um að leysa mestu vandamál á augabragði með ýmsum meðuium; hún býður fólki sólarlanda- ferð ef það er með krabbamein og sýkir það af eyðni ef það lendir í fram- hjáhaldi og þar fram eftir götunum. Og á einhvem óskiljanlegan hátt þá reddast alitaf allt, Margrét bjargar alltaf málunum hvað sem gengur á en það getur reyndar brugðið til beggja vona um afleiðingar reddinga hennar til langs tíma litið.“ Lundúnaleikhópurinn frumsýnir Margréti miklu í Tjarnarbíói annað kvöld en höfundur verksins er Krist- ín Ómarsdóttir. Eins og i mörgum fyrri verka sinna ieikur Kristín sér að mörkum raunveruleika og fant- asíu og er reynt að birta samspii þeirra á sviðinu. í verkinu er öllu því sem „almennt" er talið til kosta kvenna; gjafmildinni, örlætinu og hugulseminni, snúið upp í andhverfu sína með kaldhæðni undir sakleysis- legu yfirborðinu. Margrét mikla vekur fólk til umhugsunar um mannlega breyskleika um leið og hún sýnir háalvarlega hluti í grát- broslegu ljósi. Kvenímynd nútímans „Margrét er öfgakennd," segir Drífa Arnþórsdóttir sem leikur titil- hlutverkið, „í henni er bæði allt það versta og allt það besta; í henni snúast líka öll gildi við; það besta verður það versta og öfugt. Ég hugsa að margir geti séð sjálfa sig í Margréti." Þijár aðrar leikkonur taka þátt í sýningunni, Vala Þórsdóttir, Bryn- hildur Björnsdóttir og Ágústa Skúladóttir, en ekkert karlhlutverk er í henni. „Þetta er kannski eins konar skopstæling eða viðsnúningur á kvenímynd nútímans", segir Vaia, „þar sem konan á að vera allt í öllu, á að geta allt, vera allt. Hún þarf ekki á karlmanni að halda, hún jafn- vel þolir ekki karla, hatar þá eins og lesa má úr orðum og athöfnum Margrétar miklu í verkinu." „Þetta er samt ekki feminískt verk“, segir Björn, „að minnsta kosti ekki í þeim skilningi að það reki áróður fyrir ágæti kvenna eða sér- kennum þeirra.“ „Þetta verk fjallar ekki bara um konur,“ bætir Brynhildur við, „það fjallar miklu frekar um mannlegt samfélag í heild sinni.“ Bjöm segir að Margrét mikla sé mjög mikið leikhúsverk. „Það er mikið að gerast á sviðinu allan tím- ann. Og þetta er líka langt frá því að vera hefðbundið ieikhúsverk. Hér gerast mjög skringilegir hlutir; leik- arar skipta um hlutverk á auga- bragði inni á sviðinu, ein persóna birtist ítrekað án þess að nokkur maður viti hver hún er eða hvers vegna hún er þarna og sífellt er verið að rífa niður það sem hefur verið byggt upp í sýningunni, ijúfa mörkin á milli ólíkra heima.“ Sett upp á Bretlandi Lundúnaleikhópurinn var stofn- aður að frumkvæði Önnu Hildar Hildibrandsdóttur síðastliðið haust og samanstendur af íslensku leik- húsfólki sem á það sameiginlegt að hafa sótt menntun sína til Bretlands en þetta er sennilega í fyrsta skipti sem íslenskur atvinnuleikhópur er starfræktur í útlöndum. Flestir í hópnum eru jafnframt starfandi á Bretlandi en sumir eru enn í námi. Ágústa segir að þessi hópur sé að sumu leyti afsprengi þess að Evrópa er að opnast meira. „Við höfum fundið mjög mikið fyrir því í Bret- landi að það er orðið auðveldara fyrir erlent leikhúsfólk að komast að. Bretar sjálfir eru opnari fyrir ýmsu framandi listafólki og það er auðveldara að komast í hús, það eina sem þarf er vilji og kannski dulítið af peningum.“ Að sögn Björns hefur leikhópur- inn í huga að setja Margréti miklu upp á Bretlandi. „Við höfum líka verið að vinna í því að setja upp leikgerð af einni íslendingasagn- anna þarna úti en þetta er allt á viðræðustiginu ennþá. Við vitum að uppsetning Sveins Einarssonar á Bandamanna sögu tókst mjög vel og ég hef starfað í leikhúsi út í London þar sem enn er verið að tala um þá sýningu. Menn eru því opnir fyrir þessu þar.“ IÐNAÐARHURÐIR - BILSKURSHURÐIR ÞAK- OG VEGGSTÁL ISVAi-ÖORGA H/r HÖFÐABAKKA 9-112 REYKJAVÍK - SÍMI. 587 8750 - FAX: 587 8751 Flísar, parkett, þiljur, eldhúsinnréttingar, Ijós, hurðir, baðvörur, baðinnréttingar, blöndunartœki, salerni, baðkör, sturtuklefar, fataskápar, Ariston heimilistœki, dúkar og margt, margt fleira.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.