Morgunblaðið - 04.01.1996, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
BRYNHILDUR Björnsdóttir í hlutverki móður
Margrétar miklu: „Þetta verk fjallar ekki bara um
konur, það fjallar miklu frekar um mannlegt samfé-
lag í heild sinni.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
„MARGRÉT mikla er öfgakennd", segir Drífa Arnþórsdóttir sem liggur hér í
undarlegri púlstöku hjá Agústu Skúladóttur, „í henni er bæði allt það versta og
allt það besta; í henni snúast líka öll gildi við; það besta verður það versta og öfugt.“
Hræðilegur
ærslaleikur
Margrét mikla er nýtt leikrit eftir Kristínu
~-----—----------------------------——
Omarsdóttur sem Lundúnaleikhópurinn frum-
sýnir annað kvöld í Tjamarbíói. Aðstandend-
ur sýningarinnar sögðu Þresti Helgasyni
að verkið væri eins konar skopstæling eða
viðsnúningur á kvenímynd nútímans.
Sigurlaug Guðlaug
Rósinkrans Rósinkrans
Nýir geisla-
diskar Sigur-
laugar og
Guðlaugar
Rósinkrans
SIGURLAUG Rósinkrans er
landsmönnum vel kunn síðan
hún var virkur þátttakandi I
óperusöng í Þjóðleikhúsinu.
Síðar fluttu þau hjón, Guðlaug-
ur Rósinkrans fyrrverandi
Þjóðleikhússstjóri og Sigur-
laug, til Svíþjóðar, en nokkru
eftir lát Guðlaugs flutti Sigur-
laug til Kaliforníu ásamt börn-
um sínum, Guðlaugu og Ragn-
ari, sem bæði hafa lagt fyrir
sig tónlist.
Sigurlaug, sem tók upp nafn-
ið Sally Rosinkranz fyrir vest-
an, hefur haft næg verkefni i
söng og syngur nú í Messu I
C-Minor eftir Mozart með Sin-
fóníuhljómsveit Los Angeles.
Hún er auk þess að vinna að
upptökum á tveimur geisladisk-
um og tveir hafa þegar komið
út, annar undir heitinu „Sally“,
þar sem Sigurlaug syngur jöfn-
um höndum óperuaríur og ís-
lenzk sönglög, og hinn undir
heitinu „Forever with Love“.
Jafnframt er nú kominn út
fyrsti hljómdiskur Guðlaugar,
sem nefnir sig Gully og yfir-
skriftin á diskinum er „Shine
again“. Gully er tónskáld og á
diskinum er eingöngu tónlist
eftir hana. Hljómsveitarútsetn-
ingar gerði hún sjálf ásamt
Ragnari bróður sínum.
Þau systkinin léku einnig á öll
hljóðfærin, nema hvað
cellóleikari og flautuleikari,
komu til liðs við þau í einu lag-
inu.
MARGRÉT MIKLA er hræði-
legur ærslaleikur um konu
sem er afskaplega hjálp-
söm og góð“, segir. Björn Gunn-
laugsson, leikstjóri, „hún lætur sig
ekki muna um að leysa mestu
vandamál á augabragði með ýmsum
meðuium; hún býður fólki sólarlanda-
ferð ef það er með krabbamein og
sýkir það af eyðni ef það lendir í fram-
hjáhaldi og þar fram eftir götunum.
Og á einhvem óskiljanlegan hátt þá
reddast alitaf allt, Margrét bjargar
alltaf málunum hvað sem gengur á
en það getur reyndar brugðið til
beggja vona um afleiðingar reddinga
hennar til langs tíma litið.“
Lundúnaleikhópurinn frumsýnir
Margréti miklu í Tjarnarbíói annað
kvöld en höfundur verksins er Krist-
ín Ómarsdóttir. Eins og i mörgum
fyrri verka sinna ieikur Kristín sér
að mörkum raunveruleika og fant-
asíu og er reynt að birta samspii
þeirra á sviðinu. í verkinu er öllu
því sem „almennt" er talið til kosta
kvenna; gjafmildinni, örlætinu og
hugulseminni, snúið upp í andhverfu
sína með kaldhæðni undir sakleysis-
legu yfirborðinu. Margrét mikla
vekur fólk til umhugsunar um
mannlega breyskleika um leið og
hún sýnir háalvarlega hluti í grát-
broslegu ljósi.
Kvenímynd nútímans
„Margrét er öfgakennd," segir
Drífa Arnþórsdóttir sem leikur titil-
hlutverkið, „í henni er bæði allt það
versta og allt það besta; í henni
snúast líka öll gildi við; það besta
verður það versta og öfugt. Ég
hugsa að margir geti séð sjálfa sig
í Margréti."
Þijár aðrar leikkonur taka þátt í
sýningunni, Vala Þórsdóttir, Bryn-
hildur Björnsdóttir og Ágústa
Skúladóttir, en ekkert karlhlutverk
er í henni. „Þetta er kannski eins
konar skopstæling eða viðsnúningur
á kvenímynd nútímans", segir Vaia,
„þar sem konan á að vera allt í öllu,
á að geta allt, vera allt. Hún þarf
ekki á karlmanni að halda, hún jafn-
vel þolir ekki karla, hatar þá eins
og lesa má úr orðum og athöfnum
Margrétar miklu í verkinu."
„Þetta er samt ekki feminískt
verk“, segir Björn, „að minnsta kosti
ekki í þeim skilningi að það reki
áróður fyrir ágæti kvenna eða sér-
kennum þeirra.“
„Þetta verk fjallar ekki bara um
konur,“ bætir Brynhildur við, „það
fjallar miklu frekar um mannlegt
samfélag í heild sinni.“
Bjöm segir að Margrét mikla sé
mjög mikið leikhúsverk. „Það er
mikið að gerast á sviðinu allan tím-
ann. Og þetta er líka langt frá því
að vera hefðbundið ieikhúsverk. Hér
gerast mjög skringilegir hlutir; leik-
arar skipta um hlutverk á auga-
bragði inni á sviðinu, ein persóna
birtist ítrekað án þess að nokkur
maður viti hver hún er eða hvers
vegna hún er þarna og sífellt er
verið að rífa niður það sem hefur
verið byggt upp í sýningunni, ijúfa
mörkin á milli ólíkra heima.“
Sett upp
á Bretlandi
Lundúnaleikhópurinn var stofn-
aður að frumkvæði Önnu Hildar
Hildibrandsdóttur síðastliðið haust
og samanstendur af íslensku leik-
húsfólki sem á það sameiginlegt að
hafa sótt menntun sína til Bretlands
en þetta er sennilega í fyrsta skipti
sem íslenskur atvinnuleikhópur er
starfræktur í útlöndum. Flestir í
hópnum eru jafnframt starfandi á
Bretlandi en sumir eru enn í námi.
Ágústa segir að þessi hópur sé að
sumu leyti afsprengi þess að Evrópa
er að opnast meira. „Við höfum
fundið mjög mikið fyrir því í Bret-
landi að það er orðið auðveldara
fyrir erlent leikhúsfólk að komast
að. Bretar sjálfir eru opnari fyrir
ýmsu framandi listafólki og það er
auðveldara að komast í hús, það
eina sem þarf er vilji og kannski
dulítið af peningum.“
Að sögn Björns hefur leikhópur-
inn í huga að setja Margréti miklu
upp á Bretlandi. „Við höfum líka
verið að vinna í því að setja upp
leikgerð af einni íslendingasagn-
anna þarna úti en þetta er allt á
viðræðustiginu ennþá. Við vitum að
uppsetning Sveins Einarssonar á
Bandamanna sögu tókst mjög vel
og ég hef starfað í leikhúsi út í
London þar sem enn er verið að
tala um þá sýningu. Menn eru því
opnir fyrir þessu þar.“
IÐNAÐARHURÐIR - BILSKURSHURÐIR
ÞAK- OG VEGGSTÁL
ISVAi-ÖORGA H/r
HÖFÐABAKKA 9-112 REYKJAVÍK - SÍMI. 587 8750 - FAX: 587 8751
Flísar, parkett, þiljur, eldhúsinnréttingar, Ijós, hurðir, baðvörur, baðinnréttingar, blöndunartœki, salerni,
baðkör, sturtuklefar, fataskápar, Ariston heimilistœki, dúkar og margt, margt fleira.