Morgunblaðið - 04.01.1996, Page 22

Morgunblaðið - 04.01.1996, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 4. JÁNÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Listaklúbbur Leikhússkjallarans Ymsar hliðar harmoníkunnar REYNIR Jónasson harmoníku- leikari heldur tónleika í Lista- klúbbi Leikhússkjallarans, næsta mánudagskvöld, þann 8. janúar kl. 20.30. Reynir gefur tónleikum sínum yfirskriftina „Hinar ýmsu hliðar harmon- íkunnar". Þessi dagskrá Lista- klúbbsins er sú fyrsta á nýhöfnu ári. Dagskráin á tónleikum Reyn- is verður tvískipt. Annars vegar leikur hann einleik franska, ít- alska o g skandínavíska harmon- íkutónlist og hinsvegar leikur hann jazz á harmoníkuna og fær þá til liðs við sig Edwin Kaaber gítarleikara, Bjarna Sveinbjarn- arson bassaleikara og Svein Ola Jónsson trommuleikara. Reuter Pavarotti í Suður- Afríku ÍTALSKI tenórsöngvarinn Luc- iano Pavarotti hóf nýja árið á því að stíga dans með börnum sem syngja í suður-afrískum kór. Pavarotti er á stuttri tónleika- ferð í Suður-Afríku, en það er í fyrsta sinn sem hann kemur til landsins. Af Pavarotti er það annars helst að frétta að hann hyggst setja upp miðstöð í „mús- ík-therapíu“ fyrir börn í Mostar í Bosníu. Söngvarinn var tíu ára er heimsstyrjöldinni lauk og seg- ist vita hvað bosnísku börnin hafi mátt þola. Bókakápur eru í aukahlutverki „INNIHALD bókar er ennþá að- alátriðið," segir Micheline de Bell- efroid í viðtali við International Herald Tríbune en hún er kunnur bókbindari og bókakápuhönnuður. Micheline segir að nokkurs mis- skilnings gæti í stétt sinni um hlut- verk bókbindara. „Sumir þeirra eru farnir að líta á umbúðirnar sem aðalatriði en textann sem aukaatriði. Bráðum kemur að því að menn fara að binda inn auðar blaðsíður. Bók- bindarar verða að gera sér grein fyrir því að þótt iðn þeirra geti orðið að list í einstaka tilfellum verður hún alltaf í aukahlut- verki.“ Bestu bókbindararnir kunna að þræða einstigið á milli eigin sköpunarþarfar og sköpunar ann- arra, segir Micheline. Þeir verða að gera sér grein fyrir því að þeir eru að vinna með listaverk og þurfa að beygja sig undir vilja þess. „Þeir bestu hafa hins vegar sinn stíl sem einkennir hvetja bók. Góður kápuhönnuður verður líka að skilja textann og hafa gaman af honum; að öðrum kosti getur bókin ekki heppnast vel. Utgangspunktur minn er alltaf virðing fyrir textanum", segir Micheline, „ég reyni að ná anda verksins, stíl þess. Ég vil ekki reyna að lýsa innihaldi bókarinnar beinlínis, heldur byggja undir það. Með þessum hætti hef ég mótað minn eigin stíl.“ Morgunblaðið/Þorkell „GÓÐUR kápuhönnuður verður að skilja bókina og hafa gaman af henni.“ Þóra og Gyrðir hlutu út- varpsstyrkinn Morgunblaðið/Ámi Sæberg EIRIKUR Hreinn Finnbogason, formaður Rithöfundasjóðs ríkisútvarpsins, ásamt höfundunum Gyrði Elíassyni og Þóru Jónsdóttir, sem hlutu rithöfundastyrkinn í ár. RITHÖFUNDASTYRK Ríkisút- varpsins var að venju úthlutað á gamlársdag, að viðstöddum forseta Islands, menntamálaráðherra og fleiri gestum. Styrkinn hlutu að þessu sinni Þóra Jónsdóttir og Gyrðir Elíasson. Eiríkur Hreinn Finnbogason, formaður Rithöfundasjóðsi, afhenti rithöfundastyrkinn, sem nú er 400 þúsund kr. til hvors höfundar. Hann kvað þetta fertugustu út- hlutun og hefðu 75 íslenskir höf- undar hlotið styrkinn frá því til hans var stofnað 1956. Er hann skv. skipulagsskrá veittur til rit- starfa eða undirbúnings undir þau, einkum með utanlandsferðum. í sjóðinn renna greiðslur frá Ríkisútvarpinu fyrir efni, sem höf- undar fundust ekki að'og'er sjóður- inn allvel staddur. Því var ákveðið að veita hann tveimur höfundum nú. í sjóðsstjórn sitja auk Eiríks Hreins, sem er skipaður af mennta- málaráðherra, Jón Karl Helgason og Sveinbjörn I. Baldvinsson frá Ríkisútvarpinu og Oddur Bjarna- son og ísak Harðarson frá Rithöf- undasambandinu. Og var alger ein- hugur um þess úthlutun. Þóra þakkaði fyrir hönd þeirra Gyrðis og sagði m.a.: „Ætti ég að líkja skáldskaparviðleitni við útgerð sem er nærtækt hérlendis, er það áþekkt því að róa einn á báti útá óþekkt mið og varpa flöskuskeyt- um í djúpið. Þau velkjast lengi í hafi. Sum lenda í vörpum togara af öðru málsvæði. Önnur grafast í sand í einhverri rekavík. En svo vill þó til að einhveijir ganga fjör- ur og fínna flöskuskeyti, hirða það, lesa og segja við sjálfa sig: Þetta er til mín.“ Á liðnu ári kom út eftir Þóru ljóðabókin Lesnætur, en hún hefur á sl. 20 árum gefíð út ljóðabækurn- ar Leit að tjaldstæði, Leiðin norð- ur, Horft í birtuna, Höfðalag að hraðbraut, Á hvítri verönd og Lín- ur í lófa, auk Ijóðaþýðina eftir Agneta Pleiel 1985. Hún kvað þennan styrk vera sér mikla upp- örvun. Þegar hún var spurð um vinnulag, kvaðst Þóra setjast niður við skrifborðið að morgunlagi. Ef ekki sé sest niður við skrifborð verði ekkért til. Hún sagðist líka lesa mikið, bæði ljóð á íslensku og á þeim erlendu málum sem hún kann skil á, einkum á ensku og Norðurlandamálunum. Eftir Gyrði Elíasson kom út á árinu 1995 smásagnasafnið Kvöld í ljóstuminum. Hann hefur á und- anförnum árum gefið út stutta skáldsögu Svefnhjólið og tvö smá- sagnasöfn, Heykvísl á gúmmískóm 1991 og Tregahornið 1993, auk ljóðabókarinnar Mold í skuggadal 1992. Hann sagði að sér þætti gott skrifa jöfnum höndum sögur og ljóð. Gyrðir vakti fyrst athygli fyrir nýjan tón í ljóðabók sinni Svarthvít axlabönd 1983 og komu á næstu árum út eftir hann ljóðabækurnar Tvíbreitt (svig)rúm, Bakvið maríuglerið og Blind- fugl/Svartflug og skáldsögurnar Gangandi íkorni og Bréfbátarign- ingin. Hann kvaðst ekki vera með neitt ákveðið í takinu i framhaldi. Gyrðir býr á Akranesi og kvaðst vinna þar svona jafnt og þétt. Hann sé þó frekar í ljóðagerðinni nú. Hann kvaðst meta þessa viður- kenningu mikils. „Mér hefur alltaf fundist þessi styrkveiting úr Rit- höfundasjóði ríkisútvarpsins hafa yfír sér þann blæ að mér þykir mjög vænt um að hafa nú hlotið hana“, sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.