Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 23

Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 23 LISTIR Rushdie Gunther Grass NOKKUR dönsk ljóðskáld hafa tekið sig til og samið ljóð í nýja ljóðabók sem ætluð er yngstu lesendunum. Bókin nefnist „Eitt ljóð á dag“ og inniheldur 366 lj’óð eftir mörg helstu ljóðskáld Dana, svo sem Benny Andersen, Piet Hein, Henrik Nordbrandt, Dorrit Willumsen, Soren Ulrik Thomsen, Per Hojholt, Hanne Marie Svendsen og Klaus Rifbj- erg. MUNKARNIR frá Silos-klaustr- inu á Spáni hafa nú eignast keppinauta. Það eru munkar frá Sant’Antimo-klaustrinu ítalska sem er í Toscana-héraði. Hafa þeir sungið 25 gregoríanska sálma inn á geisladisk. Einn ít- ölsku munkanna, bróðir Emanuele, gerði lítið úr söng spænsku munkanna í ítölskum fjölmiðlum. Sagði um gamlar upptökur að ræða frá því að 80 munkar voru í Silos-klaustri. Nú séu þeir hins vegar aðeins 30. Verði einhver gróði af út- gáfu itölsku munkanna, verður honum varið til að gera klaust- urbygginguna upp og hjálpa nauðstöddum. ÞÝSKI rithöfundurinn Giinther Grass hlýtur dönsku Sonning- verðlaunin í ár. Það eru verð- laun sem Kaupmannahafnarhá- skóli veitir árlega fyrir merkt framlag til evrópskrar menn- ingar. A meðal þeirra sem áður hafa hlotið þau eru Krzysztof Kieslowski, Vaclav Havel, Dario Fo, Simone de Beauvoir, Will- iam Heinesen og Halldór Lax- ness. Grass hlýtur verðlaunin fyrir þjóðfélagsgagnrýni og -greiningu. RITHÖFUNDURINN Salman Rushdie fær á næstunni afhent hús fjölskyldu sinnar, sem ind- verska ríkið gerði upptækt árið 1947, og svo aftur árið 1992. Húsið er í Himachal Pradesh- héraði á Norður-Indlandi og er rúmir 2.300 fm. Það var gert upptækt 1947 er fregnir bárust af því faðir Rushdies hefði flust til Pakistan. Hann fékk húsið eftir mikið stapp en fluttist síð- ar til Bretlands og lést þar árið 1987. Fimm árum síðar var það aftur gert upptækt þar sem ekki hafði verið greiddur eignarskattur af því. Rushdie höfðaði mál og fullyrða lagasér- fræðingar að hann muni fá hús- ið aftur. Hins vegar þykir ólík- Iegt að hann muni nokkru sinni flytja til Indlands. Allt fallega gert IQNLIST IHjónidiskar FÍFILBREKKA REYKJA- VÍK WIND QUINTET Bemharður Wilkinson (flauta), Daði Kolbeinsson (óbó), Einar Jóhannes- son (klarinett), Joseph Ognibene (hom), Hafsteinn Guðmundsson (bás- úna). Hljóðritað í All Saints’ Church, Petersham, Surrey. Styrkt af Hljóm- diskasjóði FÍT og Menningarsjóði FÍH. 1995 Marlin Records MRFD95115. BLÁSARAKVINTETT Reykja- víkur leikur hér tónlist víðsvegar að, „ailt frá elsta þekkta lagi á íslandi til vinsælla perlna úr tón- bókmenntunum fram til okkar daga“. Diskurinn hefði bara mátt vera aðeins fyrr á ferðinni, svo maður hefði getið glatt sig við hann í jólaundirbúningnum. Þetta er m.ö.o. „létt“ og ljúf tónlist (líka Bach!), sem fer afar vel í tauga- kerfið og sálartötrið, fjölbreytt, stundum fyndin, stundum með dýpri undirtónum — og alltaf áheyrileg. Höfundar eru úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum, eins og komið hefur fram. Páll P. Pálsson á hér svítu, sem er raunar útsetn- ing á sex íslenskum sönglögum, sem allir þekkja. Ungverska tón- skáldið Ferenc Farkas fimm litla ungverska dansa, Mozart And- ante úr Divertimento K.270, Bach fjóra þætti úr hljómsveitarsvítum (þ.á m. hina frægu Aríu úr no 3 og lokakaflann úr no. 2), Berlioz Næturljóð heilagrar Maríu og Brahms unaðslega serenöðu Op. 16. Sibelius og Grieg koma svolít- ið við sögu með lýrísku smástykki og Norskum dansi. Ungverskætt- aða tónskáldið Denis Agay er hér með þijá dansa, Scott Jopon með hnyttinn Ragtime-dans, Rimsky Korsakov með býfluguna sína, Tchaikovsky með söng án orða, Shostakovich með kíminn polka úr Gullöldinni og Mussorgsky Dans hænuunganna í eggjaskurn- um úr Myndum á sýningu í skemmtilegri útsetningu meðlima kvintettsins. Þarna er m.a. Schu- bert (Hver er Sylvía?) og Shubert and the Saints(!) — skemmtilegt og einstaklega fallega leikið; Jón Múli og Sigfús Halldórsson o.fl. Allt fallega gert. Maður er alltaf að hrósa þessum blásarakvintett — fer að verða þreyttur á því, þó ég þreytist ekki á að hlusta á hann. Þetta eru snill- ingar. Mjög skemmtilegur hljómdisk- ur, indæll — og „alþýðlegur". Oddur Björnsson -kjarni málsins! -kjarni málsins! JOGA GEGN KUIÐA 9. jan. (8 skipti) þri. og fim. kl. 20.00-22.00 Námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. . . Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Leiðb.: Asmundur Gunnlaugsson, Upplýsingar og skráning: YOGfl STUDI0, HÁTÚNI 6A, REYKJAVÍK. jógakennari. S. 552-8550 og 552-1033 Hiimar Bjömason, íþróttafræðingur Ólafur Sæmundssson, næringarfræðingur Elias Níelsson, þjálfunarlifeólisfræðingur Hlynur Jónasson, iþróttafræðingur Björg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur Guðný Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur Magnús Ólafsson, sjúkraþj. og vinnuvistfræðingur íþróttalæknamóttaka: Stefán Carlsson, læknir Agúst Kárason, læknir Brynjólfur Jónsson, læknir Sigurður Kristinsson, læknir íþróttakennarar: Ása Fönn Friðbjarnardóttir, Guðmundur Helgason, Rannveig Sæmundsdóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir, Ósk Víðisdóttir og Rósa Björk Karlsdóttir Sjúkraþjálfun: Valinn hópur sjúkraþjálfara pallar þrekhringur leikfimi tæki Ijósabekkir Máttur Faxafeni 14 • Slmi 568 9915* Máttur kvenna Skipholti 50a • Sími 581 4522 • Fax 588 9297

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.