Morgunblaðið - 04.01.1996, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGAR
Atvinna
Kennarar
Fyrirtæki óskar að ráða starfsfólk sem allra
fyrst í silkiprent- og bróderingsdeild.
Um er að ræða fjölbreytt störf við merkingar
á fatnað fyrir fyrirtæki og á eigin framleiðslu-
vörum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum, sendist til
afgreiðslu Mbl., merktar: „Merking - 123“,
fyrir 8. janúar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara til starfa
í eftirtalda leikskóla:
Fálkaborg v/Fálkabakka.
Upplýsingar gefur Lilja Oddsdóttir,
leikskólastjóri, í síma 557 8230.
Fífuborg v/Fífurima.
Upplýsingar gefur Elín Ásgrímsdóttir,
leikskólastjóri, í síma 587 4515.
Klettaborg v/Dyrhamra.
Upplýsingar gefur Lilja Eyþórsdóttir,
leikskólastóri, í síma 567 5970.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277.
Vegna forfalla vantar kennara við Andakíls-
skóla á Hvanneyri.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
437-0009 og í heimasíma 437-0033.
Veitingastaður
Starfskraftur óskast á lítinn veitingastað.
Verður að geta hafið störf strax.
Skriflegar umsóknir sendist til afgreiðslu
Mbl. fyrir 7. janúar, merktar: „Veitinga-
staður - 1197“.
SjÚKRAHÚS
REYKJAVÍKUR
Sótthreinsunardeild
Hjúkrunarfræðing vantar nú þegar til afleys-
inga á sótthreinsunardeild Borgarspítalans í
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Um er að ræða dag-
vinnu á vistlegri þjónustudeild við dauð-
hreinsun fyrir skurðstofur og aðrar deildir
spítalans.
Nánari upplýsingar um vinnufyrirkomulag og
fleira veitir Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, í síma 569 6357.
Svæfingadeild
Hjúkrunarfræðing vantar nú þegar til starfa
á svæfingadeild Borgarspítalans í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur. Um er að ræða stöðu almenns
hjúkrunarfræðings í dagvinnu virka daga
við undirbúning fyrir aðgerðir, vöknun barna
og fleira.
Ennfremur vantar svæfingahjúkrunarfræð-
inga í vinnu virka daga og tilheyrandi vaktir.
Boðið er upp á góða aðlögun í aðlaðandi
vinnuumhveríi við fjölbreytt og krefjandi
starí.
Nánari upplýsingar um vinnufyrirkomulag og
fleira veita Ásgerður Tryggvadóttir, deildar-
stjóri svæfingadeildar, í síma 569 6348, og
Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í síma 569 6357.
Öldrunarlækningadeild
Á öldrunarlækingadeild B-4 bráðvantar
hjúkrunarfræðinga til starfa. Ýmsir vakta-
möguleikar koma til greina. Á deildinni er
rými fyrir 25 sjúklinga. Starfsemi deildarinnar
er margþætt og byggist á bráðainnlögn aldr-
aðra, rannsóknum, greiningu vandamála og
endurhæfingu.
Unnið er í þverfaglegu teymi hjúkrunarfræð-
ings, læknis, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og
félagsráðgjafa. Góð aðlögun í boði.
Upplýsingar veita Anna Birna Jensdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 569 6358
og Gyða Þorgeirsdóttir, deildarstjóri,
í síma 569 6545.
t*.AW>AUGLYSINGAR
Kiwanisfélagar
Nýársfagnaður kiwanisklúbbanna verður
haldinn laugardaginn 6. janúar.
Forsala aðgöngumiða verður fimmtudaginn
4. janúar á Engjateigi 11.
Upplýsingar í síma 588 4460.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtaldri eign verður háð á henni sjálfri sem
hér segir:
Akurey SF-52, krókabátur, Tvistur GK-268, sknr. 7177, þingl. eig.
Jón Haukur Hauksson, gerðarbeiöandi Landsbanki Islands, 9. janúar
1996 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Höfn, 3. janúar 1996.
KENNSLA
Frá Hótel- og veitinga-
skóia íslands
Orðsending til nemenda
Nemendur mæti föstudaginn 5. janúar
kl. 09.00.
Skólameistari.
Söngsmiðjan
Nú geta allir lært að syngja,
lagvísir sem laglausir
Innritun er hafin.
★ Byrjenda- og framhaldsnámskeið.
★ Söngleikja-/gospelnámskeið.
★ Unglinganámskeið (aldursskipt).
★ Barnanámskeið (aldursskipt).
★ Einsöngsnám.
Innritun í síma 561 2455 eða á skrifstofu
skólans, Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík, alla
virka daga milli kl. 10-18.
Hafnarfjörður
Eigendur verslunar-
og skrifstofuhúsnæðis
íHafnarfirði
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 90/1990 um tekju-
stofna sveitarfélaga, eins og þeim var breytt
20. desember 1993, skulu eigendur verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæðis senda því sveitar-
félagi, sem eign er í, skrá yfir eignirnar ásamt
upplýsingum um síðasta heildarfasteigna-
matsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðar-
verð. Ennfremur skal skrá þar upplýsingar
um notkun eignanna, svo og úpplýsingar um
rúmmál þeirra eigna, sem einnig eru notaðar
til annars en verslunarreksturs og skrifstofu-
halds. '
Upplýsingar skulu hafa borist fasteigna-
skráningu Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6,
fyrir miðvikudaginn 10. janúar 1996.
Vanræki húseigandi að senda skrá yfir greind-
ar eignir er sveitarstjórn heimilt að nota aðr-
ar upplýsingar til viðmiðunar við álagningu
þar til húseigandi bætir úr.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Fiskverkun óskast til leigu
100-150 fm húsnæði fyrir fiskverkun óskast
til leigu.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 11. janúar,
merkt: „R - 30“.
Vegmúli - Suðurlandsbraut
- nýtt hús
Til leigu er 60-300 fm skrifstofuhúsnæði í
nýju lyftuhúsnæði við Vegmúla í Reykjavík.
Húsið er allt hið vandaðasta og verða innrétt-
ingar í samráði við leigutaka.
Upplýsingar í síma 893 4628.
Mannaskipti í Hæstarétti
Nú, þegar nýr forseti Hæstaréttar íslands,
Haraldur Henrýsson, tekur til staría, vakna
spurningar: Hvað verður gert við leyndarbréf
Hæstaréttar, sem bókin Skýrsla um sam-
félag upplýsir um? Standa þau óhögguð?
Verða þau ómerkt? Sendir Hæstiréttur fleiri
leyndarbréf?
Útg.
Líföndun
Námskeið í losun og stjórn til-
finninga. Tekist á við ótta og
kvíða. Sjö miðvikudagskvöld.
Hefst 10. janúar.
fGS SáHnaftlMómnta,
Qunnars Gunnarss.,
símj 564 1803
AGLOW í Reykjavík,
þvérkirkjulegt kristið
kvennastarf
heldui\janúarfundinn sinn í kvöld
kl. 20 í kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58-60. Ræðumaður
kvöldsins er Ragnar Gunnars-
son, framkvæmdastjóri KFUM
og K. Hefjum nýtt ár með því
að hlusta á Guðsorð.
Konur, þið eruð hjartanlega
velkomnar.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Laugardagur 6. jan. kl. 17
Þrettándaganga og blysför um
álfabyggðir i' Oskjuhlfð.
Mæting við Perluna.
Sunnudagur 7. jan kl. 10
Nýársferð í Herdi'sarvfk.
Við fögnum nýju ári með heim-
sókn á þennan stórbrotna stað,
þar sem Einar Benediktsson,
skáld, eyddi síðustu æviárum
sínum. Leyfi hefur fengist til að
skoða hús skáldsins og dvelja
þar um stund. Fjörubál. Tilvalin
fjölskylduferð. Heimkoma kl. 17.
Nánar auglýst síðar. Brottför frá
BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6.
Gleðilegt nýtt ferðaár!
Ferðafélag Islands.
Blab allra
landsmanna!
- kjarni málsins!