Morgunblaðið - 04.01.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.01.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 39 _______________________________FRETTIR_________________ Úthlutun úr Minmngarsjóði Gunnars Thoroddsens í tíunda sinn Á MYNDINNI eru frá vinstri: Valgarð Briem, Steinar Gunnarsson, Benta Briem, Ingimundur Magnússon, Hermann Þorsteinsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Sólveig Smith, Vala Thoroddsen, Erla Strand og Halldór Halldórsson. Björgunar- hundasveit Islands hlaut styrkinn FÖSTUDAGINN 29. desember fór fram í tiunda sinn styrkveit- ing úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsens. Sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985, þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu borgarsljórans í Reykja- vík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði við frú Völu Thoroddsen. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, eða veita verðlaun eða lán i sambandi við rannsóknir, tilraunir eða skylda starfsemi á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningar- mála, sem Gunnar Thoroddsen lét sérstaklega til sín taka sem borgarstjóri. Að þessu sinni hlaut Björgun- arhundasveit íslands styrkinn fyrir störf að björgunarmálum. Frú Vala Thoroddsen afhenti styrkinn, sem að þessu sinni var að fjárhæð 250.000 kr., við at- höfn sem fram fór í Höfða. í frétt frá borgarsljóra segir: „Björgunarhundasveit íslands var stofnuð þann 8. desember 1980 að tilhlutun Landssambands hjálparsveita skáta og var Tryggvi Páll Friðriksson aðal- hvatamaður að stofnun sveitar- innar. Megintilgangur sveitar- innar hefur frá upphafi verið að þjálfa hunda til leitarstarfa. Frá 6. nóvember 1981 en þá komu hingað fulltrúar Forening Norsk Lavinehunder (nú Norsk Redningshunder) og héldu nám- skeið og fyrirlestra fyrir BHSÍ o.fl., hefur Björgunarhundasveit Islands stefnt að reglubundinni þjálfun hunda, en það var svo árið 1984 að haldið var fyrsta skipulagða námskeiðið í vetrar- leit með leiðbeinendum frá NRH. Þar voru útskrifaðir fyrstu hund- arnir til leitar í snjóflóðum, en sömu hundar höfðu farið til Pat- reksfjarðar 1983. Það var sam- dóma álit manna þar fyrir vestan að mikil hjálp hafi verið að fá hundana. Allt frá árinu 1984 hafa verið haldin námskeið á hverju ári með norskum leiðbeinendum þar sem hundar og menn hafa verið metn- ir og veitt viðurkenning sem hæfir til leitar í snjóflóðum. Fyrsta námskeiðið var þrjár helgar í röð, en síðan 1985 hafa þessi námskeið staðið yfir í sjö daga. Námskeið þessi hafa verið haldin á Akureyri, í Aðaldal, á Egilsstöðum, á ísafirði að Gufu- skálum og við Hrauneyjarfoss- virlg'un. Árið 1992 urðu þáttaskil í starfi björgunarhundasveitar- innar þegar hún hóf markvissa þjálfun hunda til leitar á auðri jörð. Frá þeim tíma hafa árlega verið haldin námskeið með leið- beinendum frá Noregi og Skot- landi þar sem hundar og menn hafa verið metnir og veitt viður- kenning sem hæfir til leitar á auðri jörð. Þátttakendur á þess- um námskeiðum hafa frá upp- hafi verið úr öllumsamtökum björgunarmanna. Öll vinna við þessi námskeið hefur verið unnin í sjálfboðavinnu og þátttakendur hafa notað sumarleyfi sín til að geta verið með. Fyrir tilstuðlan Almannavarna ríkisins var farið með hund á snjóflóðanámskeið á Egilsstöðum árið 1985, og var það upphafið að hundaþjálfun á Neskaupsstað nokkru seinna og ári seinna frá leiðbeinandi frá BHSÍ til ísa- fjarðar á helgarnámskeið þar sem hundur var kynntur sem björgunartæki og mikilvægi þess að hundar væru tiltækir á Vest- fjörðum. Þetta varð kveikjan að því að hundar voru þjálfaðir á vegum BHSÍ á ísafirði og í Bol- ungarvík. Leiðbeinendur frá BHSÍ hafa farið víðar um landið og aðstoðað menn við frekari hundaþjálfun. Björgunarhundasveit íslands hefur eftir því sem möguleikar hafa verið á aðstoðað félaga sveitarinnar við að fara á nám- skeið til Noregs og Skotlands, en vegna mikils kostnaðar hafa ferðirnar orðið færri en menn hefðu kosið. Á árunum 1989-1994 tóku 87 aðilar þátt í vetrarnámskeiðum BHSÍ og þar af skiluðu 50 ein- hveijum árangri. Það er mat þeirra sem unnið hafa að þess- um málum að það þurfi að vera þjálfaðir hundar á þeim svæð- um þar sem snjóflóðahætta er viðvarandi. Að því verði best staðið á þann hátt að farið verði á þá staði sem teljast hættu- svæði með hund og mönnum sýnt hvernig hundur vinnur og hvað hann getur gert. í fram- haldi af því yrði reynt að fá heimamenn til að taka að sér hund og aðstoð veitt til að koma þjálfun af stað með heimsókn- um nokkrum sinnum á vetri og síðan kæmu menn og hundar á námskeið BHSÍ. Þær reglur um mat á hundum og mönnum sem BHSÍ styðst við eru að mestu fengnar frá Noregi en hafa í tímans rás verið aðlag- aðar að aðstæðum hér á landi. Þessar reglur sem viðurkenndar eru af Almannavörnum ríkisins hafa reynst vel og eru leitirnar í Súðavík og á Flateyri til marks um það.“ Púkar og vættir á þrettándagleði í Garðinum ÞRETTÁNDAFAGNAÐUR verður í Garðinum laugardaginn 6. janúar 1996. Brenna verður á íþrótta- vellinum við Háteig og verður kveikt í bálkestinum kl. 18. Kl. 17 verður tekið á móti bömum í Sæ- borgu, þar sem hægt verður að fá andlitsmálningu og skikkjur. Lagt verður í skrúðgöngu kl. 18, frá Pósthúsinu, út á íþróttavöll með kóng og drottningu í fararbroddi. Þegar þangað verður komið ætti að vera farið að loga glatt í brenn- unni. Við hana verða ýmsir púkar og vættir, jólasveinarnir þrettán verða mættir, einnig grýlugengið og tröll. Kiwanisklúbburinn Hof verður með flugeldasýningu og selur blys á staðnum. Allir Suðurnesjamenn eru vel- komnir á þennan þrettándafagnað sem öll félög í Garðinum standa að. Þrettándadansleikur verður í samkomuhúsinu frá kl. 23-03. Grænir vinir spila. Aldurstakmark 18 ára. Aðgangseyrir kr. 700. Forsala í Sæbjörgu föstudaginn 5. janúar kl. 20-22. Krabbameinsfélag Reykjavíkur Fyrsta reykbindind- isnámskeið ársins FYRSTA reykbindindisnámskeið Krabbameinsfélags Reykjavíkur á nýbyijuðu ári hefst 11. janúar og stendur til 8. febrúar. Fundirn- ir, sex talsins, verða haldnir á fimmtudagskvöldum og miðviku- dagskvöldið 24. janúar en þann dag eiga allir þátttakendur að vera hættir að reykja (H.-dagur). Námskeiðið verður haldið í húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð. Leiðbeinandi er Valdimar Helgason kennari og að auki er von góðra gesta til að fræða um áhrif reykinga á heilsu og umhverfi. Námskeiðs- gjald er 6000 kr. SIGURLAUG Eðvaldsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir og Richard Talkowsky. Tónleikar í Vídalínskirkju í TILEFNI af tuttugu ára kaupstað- arréttinda Garðabæjar gengst Menningarmálanefnd Garðabæjar fyrir tónleikum föstudaginn 5. jan- úar 1996 kl. 20. Á efnisskránni verða strengjakvarettar eftir Ludvig van Beethoven, Franz Schubert og Johannes Brahms. Flytjendur verða Sigrún Eðvaldsdóttir sem leikur á fiðlu, Sigurlaug Eðvaldsdóttir á fiðlu, Helga Þórarinsdóttir á lágfiðlu og Richard Talkowsky sem leikur á knéfiðlu. Tónleikarnir verða haldnir í hinni nýju kirkju Garðbæinga, Vídalíns- kirkju. Er mikill fengur að þvi að fá þessa ágætu listamenn til að hef|a flutning á kammertónlist í kirkjunni og reyna hljómburð hennar. Kvenfé- lag Garðabæjar mun sjá um veit- ingasölu i safnaðarheimilinu í Kirkjuhvoli i hléi á tónleikunum. Aðgöngumiðar á kr. 500 verða seld- ir við innganginn en börn undir 14 ára aldri fá ókeypis aðgang. Garðabær fékk kaupstaðarrétt- indi 1. janúar 1976. Menningarmála- nefnd bæjarins minnist þessara tímamóta með þrennum hætti. Hinn 2. desember 1995 var opnuð yfirlits- sýning á myndlistarverkum í eigu bæjarins í Sparisjóðsnum, Garðat- orgi 1. Sýningin er opin alla virka daga á opnunartíma Sparisjóðsins kl. 8.30-16 og stendur yfir til 19. janúar 1996. I öðru lagi stendur nefndin fyrir samkeppni um skóla- söng fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Hefur þegar verið auglýst eftir tillögum um lag við texta Bjarka Bjarnasonar og er skilafrest- ur til 15. janúar. Að lokum er fram- angreindur tónlistarviðburður í Víd- alínskirkju i lok jólahátíðar. Námskeið í líföndun SKRÁNING á námskeið í líf- öndun hjá Sálfræðiþjónustu Gunnars Gunnarssonar, Laugavegi 43, stendur nú yfir en nýtt námskeið hefst miðvikudaginn 10. janúar næstkomandi. í fréttatilkynningu kemur fram að markmið námskeiðs- ins sé að auka sjálfsöryggi þátttakenda og efla þor og þol þeirra til að takast á við erfiðleika og bera ábyrgð á fullnægju þarfa sinna líkam- legra jafnt sem tilfinninga- legra. Á námskeiðinu verður farið í lykilatriði sem tengjast lífeflisæfíngum Alexanders Lovens en unnið verður í anda Gestalt-meðferðar. Leiðbeinandi á námskeið- inu er Gunnar Gunnarsson sálfræðingur en hann hefur um alllangt skeið sérhæft sig í úrvinnslu sál-líkamlegs vanda. Undankeppni fyrir Norður- landamótið í skólaskák UNDANKEPPNI fyrir yngsta flokk Norðurlanda- mótsins í skólaskák verður haldin 5. og 6. janúar næst- komandi. Mótið hefst föstudaginn 5. janúar kl. 19 og verður síðan framhaldið laugardaginn 6. janúar kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfí og er umhugsunartími 25 mínútur á skák. Teflt verður í Skákmiðstöðinni í Faxafeni 12, Reykjavík. Rétt til þátttöku hafa allir krakkar fæddir 1985 eða síð- ar. Sigurvegarinn öðlast síð- an rétt til þátttöku á Norður- landamótinu í skólaskák sem verður haldið í Danmörku í byijun febrúar. Skráning er á skákstað en allar nánari upplýsingar má fá hjá Skáksambandinu. Þrettánda- gleði í Mos- fellsbæ EINS OG undanfarin ár verð- ur álfabrenna á þrettándan- um, laugardaginn 6. janúar 1996. Blysför frá Nóatúni klukkan 20. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur, fjölda- söngur undir stjórn kirkju- kórs Lágafellssóknar. Álfa- kóngur, álfadrottning, Grýla, Leppalúði og þeirra hyski koma í heimsókn. Einnig verður flugeldasýning. Þrettándagleði verður í Hlégarði laugardaginn 6. jan- úar, strax að lokinni álfa- brennu. Dúóið 66 leikur fyrir dansi. Aldurstakmark er 20 ár. Aðgangseyrir kr. 1.200. KIN -leikur að l<eral Vmningstölur 3. jan. 1996 9*10*12 * 20*22 *23 * 25 Eldri úrslit é símsvara 568 1511

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.