Morgunblaðið - 04.01.1996, Síða 52
Afl þegar þörf krefur!
FISKARS
|| RAFBAKHJARL
OPIN KERFI HF
Sími: 567 1000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINCLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 II00, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mikil ásókn í
hlutabréfasjóðina
Eignir
jukust um
1.200
milljónir
HEILDAREIGN hlutabréfasjóða
verðbréfafyrirtækjanna jókst um
rúmar 1.200 milljónir, eða rösklega
40% í desember síðastliðnum. Jafn-
framt fjölgaði hluthöfum í sjóðunum
um rúmlega 3.200 á sama tíma.
Ekki er þó gert ráð fyrir því að
— þ'Stta nýja fjármagn skili sér strax
inn á hlutabréfamarkað, m.a. vegna
lítils framboðs af hlutabréfum um
þessar mundir. Því er reiknað með
að sjóðirnir muni leita í skamm-
tímafjárfestingar til að byija með
en hið nýja hlutafé muni síðan skila
sé að nokkru leyti inn á hlutabréfa-
markaðinn á næstu mánuðum.
Helmingur í hlutabréfum
Hlutabréfasjóðimir fjárfesta yf-
irleitt um helming heildareignar
^—siftnar í hlutabréfum fyrirtækja, en
afgangnum er varið í kaup á skulda-
bréfum og erlendum verðbréfum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins em málefni hlutabréfasjóð-
anna nú til umfjöllunar hjá fjármála-
ráðuneytinu með hliðsjón af því, að
kaupverð hlutabréfa er frádráttar-
bært frá tekjuskatti. í því sambandi
hefur m.a. verið bent á að fullur
skattaafsláttur hafi verið veittur
vegna hlutabréfakaupa í sjóðunum,
þrátt fyrir að einungis um helming-
ur eigna þeirra sé bundinn í innlend-
um hlutabréfum.
Forsvarsmenn þeirra hlutabréfa-
. sjóða sem Morgunblaðið ræddi við
í gær segja að vissulega kunni að
*4^'a þörf á endurskoðun þeirra
Ýeglna sem um hlutabréfasjóðina
gilda. Slíkar breytingar þurfi þó að
eiga sér stað í nokkmm skrefum
þar sem sjóðirnir hafi varið miklum
tíma og íjármunum í að byggja upp
traust meðal almennings og því
verði að gæta þess að breytingarnar
skaði ekki það traust.
■ Heildareign .../Bl
Lagaprófessor
skoðar Langholts-
kirkjudeilu
Organisti
og kór til
starfa á ný
EIRÍKUR Tómasson, hæstaréttar-
lögmaður og lagaprófessor, hefur
tekið að sér að skoða ágreining
prests og organista í Langholts-
kirkju og skila hr. Ólafi Skúlasyni,
biskupi Islands, skýrslu um hann.
Jón Stefánsson organisti segist
ánægður með þessa ákvörðun bisk-
upsins.
„Ég ber mikla virðingu fyrir bisk-
upi fyrir að setja utanaðkomandi
aðila inn í málið. Sú ákvörðun skap-
ar nýjan flöt og uppfyllir skilyrði
yfirlýsingar minnar um að aðstæður
þyrftu að breytast til að ég kæmi
til baka að loknu fríi 15. janúar.
Yfirlýsing kórsins um að hann stæði
með mér stendur og hann fylgir
mér,“ sagði Jón Stefánsson.
Séra Flóki Kristinsson, sóknar-
prestur í Langholtskirkju, sagði í
gærkvöldi að eftir það sem á undan
væri gengið hlytu allir að sjá að frá-
leitt væri að Jón Stefánsson kæmi
aftur til starfa. „Ég óskaði eftir því
að hann yrði látinn leika við hátíðirn-
ar og það var ekkert því til fyrir-
stöðu af minni hálfu. En það sem á
eftir kom er þess eðlis að það getur
ekki gengið að ég sé með samstarfs-
mann í helgiþjónustu sem stendur í
stríði við mig.“
■ Biskup vísar/6
Félagsdómur dæmir uppsagnir fjögurra verkalýðsfélaga ógildar
Útsölumar
hafnar
Morgunblaðið/Ásdis
ÚTSÖLUR eru nú hafnar í nokkr-
um verslunum og fleiri fylgja í
kjölfarið á næstunni. Búast má við
að víða verði handagangur í öskj-
unni þegar viðskiptavinir hyggj-
ast gera góð kaup og verða sér
úti um varning sem þeim stendur
til boða á niðursettu verði.
Ekkí sýnt fram á brostn-
ar forsendur samnínga
Mat launanefndar var ekki
bindandi fyrir Dagsbrún
Olíumengun
við Alftanes
Sennilega
svartolía
frá skipi
TALIÐ er að svartolía frá
skipi hafi valdið olíumengun-
inni sem vart varð út af Álfta-
nesi sl. laugardag, en ekki
hefur enn tekist að komast
að því hvemig olían fór í sjó-
inn. Ekki er álitið að um
umtalsvert magn af olíu sé
að ræða.
Samkvæmt dagbók Hafn-
arfjarðarhafnar voru fá skip
á ferð um höfnina dagana
fyrir óhappið, en kannað
verður hvort eitthvert þeirra
'eigi hlut að máli.
FÉLAGSDÓMUR dæmdi í gær
ógildar uppsagnir kjarasamninga
Dagsbrúnar, Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, Einingar
og Hlífar. Málskostnaður í máli VSÍ
og Dagsbrúnar var felldur niður en
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur, Eining og Hlíf voru hvert um
sig dæmd til að greiða VSÍ 100.000
kr. í málskostnað.
í dómi Félagsdóms í máli Hlífar,
Einingar og Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur segir m.a.
að það hafi verið hlutverk launa-
nefndar að meta forsendur fyrir
uppsögn kjarasamninga og fellst
dómurinn ekki á að félögin geti á
sitt eindæmi metið, hvort samnings-
forsendur hafi staðist. Þá hafi félög-
in ekki sýnt fram á að forsendur
samninga hafi brostið.
Rökstuðningur Félagsdóms í máli
Dagsbrúnar er annar en í málum
hinna félaganna. Dómurinn bendir á
að engin tilvísun sé í kjarasamningi
Dagsbrúnar til samnings vinnuveit-
enda og Verkamannasambandsins.
Vinnuveitendur hafi ekki sýnt fram
á að launanefnd hafi haft heimild
til að meta hvort forsendur samn-
ingsins væru brostnar þannig að
bindandi væri fyrir verkalýðsfélagið.
Einnig vitnar Félagsdómur í umdeilt
ákvæði kjarasamnings Dagsbrúnar
um launaþróun sem vinnuveitendur
hafa haldið fram að hafí fylgt samn-
ingnum vegna mistaka við rit-
vinnslu. Félagsdómur kemst svo að
þeirri niðurstöðu að Dagsbrún hafi
ekki sýnt fram á að þau frávik hafi
orðið á samningsforsendum að fé-
lagið geti gripið til uppsagnar hans.
Alvarleg áminning
um frágang samninga
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir dóminn
staðfesta að mat launanefndar á
forsendum samninganna hafí haldið.
Hann segir einnig að Félagsdómur
veiti alvarlega áminningu um að
vanda beri orðalag við frágang
kjarasamninga vel.
Forystumenn verkalýðsfélaganna
eru mjög óánægðir með niðurstöðu
Félagsdóms. Halldór Björnsson,
varaformaður Dagsbrúnar, og Björn
Snæbjörnsson, formaður Einingar,
telja félögin hafa litla sem enga
stöðu til að fara út í ólöglegar að-
gerðir. Forystumenn allra félaganna
eru sammála um að mun meiri harka
verði í samskiptum aðila vinnumark-
aðarins á næstunni.
■ Niðurstaða Félagsdóms/
Viðbrögð málsaðila/26-27.