Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 25 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAl^KVÆMDASTJÓRL Hallgrípiur B;y.Geirssðií, RITSTJÓRAR: Matthías Joháhnessen, Styrmir Gunnarsson. SÚÐAVÍK ÁRI EFTIR FLÓÐ EITT ÁR var í gær liðið frá því snjóflóð féll á Súðavík rneð þeim afleiðingum að fjórtán manns biðu bana. í kjölfar flóðsins fór fram endurmat á snjóflóðahættu á þessum slóðum og varð niðurstaðan sú að mörg hús voru talin á hættusvæði og því nauð- synlegt að færa stóran hluta byggðarinnar á nýtt bæjarstæði. Þetta var reiðarslag fyrir fámennt byggð- arlag á harðbýlu svæði. Þrátt, fyrir það er nú ljóst, að Súðvíkingar hafa ekki látið bugast og eru vel á veg komnir með upp- byggingu nýrrar Súðavíkur. Ári eftir snjóflóðið búa 290 manns í Súðavík, fjórtán færri en fyrir flóðið. Nokkrar fjölskyldur er urðu fyrir ástvinamissi í flóð- inu hafa flutzt á brott en aðrar fyllt í skarðið. Sextíu íbúðir voru í bænum fyrir flóð en nú hefur verið út- hlutað lóðum fyrir 57 íbúðir af þeim 67, sem gert er ráð fyrir. Sigríður Hrönn Elíasdóttir, oddviti á Súðavík, segir í samtali við Morgunblaðið í gær að hún hafi alla tíð verið viss um að byggð yrði með svipuðu sniði: „Hér er gott og vel rekið atvinnufyrirtæki, Frosti hf., og næg atvinna. Mannlíf er til fyrirmyndar og mjög góður grunnskóli. Þegar þetta bætist við þær sterku rætur sem fólk á hér á staðnum er ekki skrítið þótt fólk vilji búa hér áfram.“ Hún nefnir einnig þá fjárhagslegu aðstoð er Súðvík- ingar fengu í landssöfnun, frá ríkisstjórninni, sveitar- félögum, Færeyingum og nágrönnum á Vestfjörðum. „Við höfum fengið hjálp til að hjálpa okkur sjálf og ég tel að það hafi riðið baggamuninn að við gátum ráðizt í að byggja allt upp á nýtt,“ segir Sigríður Hrönn. Sá styrkur og sú staðfesta er Súðvíkingar hafa sýnt við erfiðar aðstæður undanfarið ár eru aðdáunar- verð. Nýtt og blómlegt samfélag er að rísa við Álfta- fjörð, sem íbúar binda miklar vonir við. SKULDASÖFNUN RÍKISSJÓÐS SKÝRSLA Ríkisendurskoðunar um skuldastöðu ríkissjóðs í árslok 1994 sýnir, að það mun taka langan tíma að grynnka á skuldunum, sem námu rúmum 195 milljörðum króna fyrir rúmu ári og lætur nærri að það svari til tekna ríkissjóðs í tvö ár. Þessi skuldsetning ríkissjóðs kostaði 14,5 milljarða króna á árinu 1994 en það svarar til þess, að 14.500 skattgreiðendur hafi mátt borga eina milljón hver í fjármagnskostnað vegna lánanna, eða 29 þúsund skattgreiðendur hálfa milljón hver. Þessar tölur sýna, hversu dýrkeypt umframeyðslan er. Hreinar skuldir ríkissjóðs jukust um 16,8 milljarða króna á árinu; Verulegur árangur náðist þó þetta árið miðað við það, að árið 1993 jukust skuldirnar um 28,6 milljarða. Á fimm árum hafa skuldirnar aukizt að raungildi um 54%, eða um 78 milljarða króna, sem svarar til þess að ríkissjóður hafi verið rekinn með ríflega 14 milljarða króna halla að jafnaði. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur markað þá stefnu að eyða ríkissjóðshallanum á tveimur árum. Þingflokkar ríkisstjórnarinnar stóðu þétt saman um þá stefnu við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Hallinn á samkvæmt fjárlögum 1996 að vera 3,9 milljarðar og á næsta ári verða fjárlög hallalaus. Það verður þrautin þyngri fyrir stjórnarflokkana, en vax- andi umsvif í efnahagslífinu auka líkur á að unnt verði að ná settu marki. Það verður mikill áfangi við stjórn ríkisfjármála, því síðast var ríkissjóður rekinn hallalaus 1984. Óhjákvæmilegt er að næsta skref verði niður- greiðsla skulda, sem safnað hefur verið á annan ára- tug á ábyrgð skattgreiðenda. KERTALJÓS voru lögð á grunna húsanna þar sem fólk fórst. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Súðvíkingar minnast þeirra sem fórust í snjóflóðunum fyrir réttu ári Dagur mikilla tilfinninga Dagurínn í gær var dagur mikilla tilfínninga hjá Súðvíkingum. Ár var liðið frá því snjóflóð féllu á byggðina, gerðu þorpið óbyggilegt í þeirrí mynd sem það var og tóku líf fjórtán Súðvíkinga. Var þeirra sem létust minnst með blysför um snjóflóðasvæðið og bænastund að henni lokinni. Helgi Bjamason var í blysförinni. DAGURINN er manni af- skaplega þungbær,“ sagði fullorðinn Súðvík- ingur, Garðar Sigur- geirsson, fyrir athöfnina í gær og var ekki einn um þessar tilfinning- ar. Fánar í hálfa stöng voru merki sorgarinnar víða um þorpið. Vinna var lögð niður á meðan gangan og athöfnin fóru fram. Stór hópur safnaðist saman fyrir framan kaupfélagið í leiðindaveðri, roki sem síðar fylgdi rigning. Tölu- vert á annað hundrað manns tók þátt í blysförinni, þrátt fyrir veðr- ið, eða um helmingur bæjarbúa. Fyrir henni fóru séra Magnús Erl- ingsson sóknarprestur, séra Baldur Vilhelmsson prófastur, Sigríður Hrönn Elíasdóttir oddviti og Agúst Kr. Björnsson sveitarstjóri. Auk Súðvíkinga voru mættir til að taka þátt í athöfninni Einar Kr. Guðf- innsson alþingismaður og Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður, auk nokkurra ísfirðinga og ann- arra nágranna. Hópurinn gekk með kyndla eftir Aðalgötu og út á snjóflóðasvæðið. Stoppað var við grunn þeirra sjö húsa þar sem fólk hafði farist í snjóflóðunum og fólk lagði þar kertaljós til minningar um hina látnu. Voru það tilfinningaþrungnar stundir þegar menn minntust vina Morgunblaðið/Þorkell SÉRA Magnús Erlingsson leiddi Súðvíkinga í bæn á miðju hamfarasvæðinu. og ættingja. Barn grét og kona hjúfraði sig upp að manni sínum. Minning þeirra lifir Á auðu svæði á miðju hamfara- svæðinu var bænastund með sóknarprestinum. Börn úr grunn- skólanum tendruðu 14 ljós í minn- ingu þ’eirra sem létust og létu í kross sem reistur var á svæðinu. Jafn mörg blóm voru lögð við krossinn. Séra Magnús sagði að fólk væri saman komið til að minn- ast ástvina: Við vitum að minning þeirra lifir og þau munu lifa með Guði. Séra Baldur Vilhelmsson pró- fastur sagði að á þessari stundu leitaði hugurinn aftur um tólf mánuði, til atburðanna sem vöktu fólk af hversdagslegum doða. Minntist hann Súðavíkur eins og hann sá hana fyrst fyrir fjörutíu árum og sagði að husanlega yrði hún aldrei eins. Djúpur harmur býr undir Hann ræddi um uppbygginguna en minntist þess jafnframt að und- ir byggi djúpur harmur þeirra sem urðu fyrir þessum voveiflegu at- burðum. Sagði að þótt hér risi góð og göfug borg væri það til lítils ef hjartanu liði ekki vel. Hvatti hann til sátta í samfélaginu. Loks var farið með bæn. í gærkvöldi var síðan helgistund í Súðavíkurkirkju. Sigríður Hrönn Elíasdóttir var ánægð með þátttökuna. Sagði eftir bænastundina að hún hefði verið góð, þrátt fyrir leiðinlegt veður. Og athöfnin hefði verið látlaus og virðuleg, eins og til var ætlast. Gömlu húsin verða áfram andlit Súðavíkur Eins og að gista hjá ókunnugum Fyrstu íbúarnir í nýrri Súðavík Morgunblaðið/Þorkell GARÐAR Sigurgeirsson og Ragnhildur Gísladóttir við hús sitt á Víkurgötu 11. Eins og sjá má er gamla húsnúmerið enn uppi en ekki hefur komist í verk að skipta um. „ÞAÐ fer vel um okkur nema okkur Ieiðist nýjalyktin en hún fer smátt og smátt,“ segir Garðar Sigurgeirsson fyrrverandi sjómaður sem hefur flutt hús sitt frá Aðalstræti 40 að Víkur- götu 11. Garðar og Ragnheiður Gísla- dóttir fluttu inn fyrir jól og eru fyrstu íbúamir í varanlegu húsi í nýrri Súða- vík. Andlit Súðavíkur Lítil timburhús á steyptum kjallara hafa einkennt Súðavík, flest eru húsin frá því á þriðja áratug aldarinnar. Arkitektarnir sem skipulögðu nýja Súðavík vildu láta einhver einkenni þorpsins halda sér og völdu þá leið að óska eftir því að einhver af gömlu húsunum yrðu flutt á nýja bygginga- svæðið. Húsin verða sett upp við þjóð- veginn, bæði innst og yst í þorpinu, og verða þannig andlit þess hvoru megin sem inn í það er ekið. Fyrirhugað er að flytja 10-11 gömul íbúðarhús og hafa þrjú þeirra þegar verið sett á steypta kjallara við Vallar- götu. Ágúst Kr. Bjömsson sveitar- stjóri segir sveitarfélagið hafa haft forgöngu um það vegna óvissunnar sem eigendur þeirra hafí verið í gagn- vart Ofanflóðasjóði. Snjóflóðið úr Traðargili féll skammt frá húsi Garðars og Ragnhildar og skemmdist það aðeins af loftþrýstingn- um sem fylgdi flóðinu. Hús í nágrenn- inu eyðilögðust. Hjónin höfðu yfirgefið húsið um nóttina að kröfu almanna- vamanefndar. „Ég hef tvisvar þurft að rýma húsið og alltaf farið illur og öfugur út,“ segir Garðar. Þau segja að þeim hafi aldrei dottið í hug að þeirra hús væri í hættu þó oft hefði snjóað mikið í Súðavík. Eftir snjóflóðið segist Garðar fljótt hafa fengið áhuga á að flytja húsið, ekki hafi verið um annað að ræða því aldrei væri hægt að vera í rónni á þessum stað úr því sem komið væri. „Ég held að maður muni kunna vel við sig hér en við söknum gamla stað- arins voðalega. Sérstaklega sakna ég trjánna minna sem mér finnst hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig,“ segir Garðar. í gamla garðinum standa falleg ilmreynitré. „Að sofa hérna fyrstu nóttina var eins og að gista hjá ókunnugum," seg- ir Ragnhildur. Hún segist sakna gamla staðarins en þar bjuggu þau í nítján ár en segir jafnframt að sá nýi venjist furðanlega. Nýja lóðin sé á ákaflega fallegum stað og útsýni gott. Þau sjá til dæmis vel yfir allt nýja byggingar- landið og fylgjast með framkvæmdun- um þar sem alltaf sést eitthvað nýtt á hveijum degi. Kraninn sligaðist Ekki gekk þrautalaust að flytja húsið þó leiðin sé ekki löng, aðeins nokkur hundruð metrar úr innsta hluta gömlu Súðavíkur í ysta hluta þeirrar nýju. Kraninn sligaðist þegar reynt var í fyrra skiptið en betur gekk í annarri tilraun. Húsið er orðið 63 ára gamalt og varð fyrir einhveiju hnjaskí við flutninginn. Notuðu þau tækifærið til að endurnýja allt að innan. Húsið reyndist hins vegar traustlega byggt enda viðirnir á sínum tíma fluttir inn frá Noregi. Þau byggðu hærri kjallara en var á gamla staðnum og fæst ágæt- is aðstaða þar. Ofanflóðasjóður greiðir kostnaðinn við flutninginn og auk þess fengu þau milljón úr landssöfnuninni til að koma sér fyrir. Endurnýjunin er á þeirra eigin kostnað. Ragnhildur segir að það sé mikið umstang að flytja og þau séu ekki búin að komá sér almennilega fyrir. Hins vegar fái þau mikla aðstoð frá fjölskyldunni og þetta bjargist allt. Þau sjá mikið eftir garðinum við Aðalstræti. Húsið stóð á eignarlóð og segist Garðar ætla að girða í kringum trén. Á nýja staðnum er einnig stór lóð en Garðar segist ekki vita hvað hann endist til að rækta hana upp. „Ég held nú samt að maður reyni eftir bestu getu að laga til í kringum sig,“ segir hann. Bjartsýn á framtíðina Ragnhildur og Garðar eru bjartsýn á að byggðarlagið byggist upp að nýju og sjá merki þess í kringum sig á hveijum degi. Þau voru svo lánsöm að ekkert af bömum þeirra eða barna- börnum sem bjuggu um allt þorpið lentu í flóðinu. En þau misstu vini og kunningja. „Þegar svona atburðir verða í litlu plássi er það eins og ein heild. Það er eins og fólk sé að missa sína nánustu," segir Ragnhildur. Og Garðar segir að svona atburðir sitji lengi í fólki og minnist í því sambandi vina og kunningja sem hann missti þegar þnr bátar frá Súðavík fórust á árunum 1967—69. Þau eru bjartsýn fyrir hönd Súðvík- inga þrátt fyrir allt. Vonast þó eftir góðum vetri því slæm veður fari illa í fólk sem býr í gamla þorpinu. „Það lá við að maður færi í sama farið þeg- ar Flateyrarslysið varð. Fólk sem býr á öruggu svæði á örugglega bágt með að skilja hvernig svona hlutir verka á fólk,“ segir Garðar. Lýs milda ljós FJÖLMENNT var við minn- Ástríður Thorarensen, og ingarathöfn um þá sem létust fjölmargir aðrir sem vottuðu í snjóflóðunum í Súðavík og þeim sem eiga um sárt að Reykhólasveit í Dómkirkjunni binda hluttekningu sína. Séra í gærkvöldi. Dagskránni var Karl Matthíasson las úr heil- valin yfirskriftin Lýs milda agri ritningu og séra Jakob Ijós og viðstaddir athöfnina Hjálmarsson flutti hugvekju, voru ástvinir hinna látnu, for- Dómkirkjukórinn söng undir seti íslands, Vigdís Finnboga- stiórn Marteins H. Friðriks- dóttir, Ólafur Skúlason bisk- sonar, Inga Backman söng up, Davíð Oddsson forsætis- einsöng og Guðný Guðmunds- ráðherra og eiginkona hans, dóttir lék á fiðlu. Morgunblaðið/Þorkell FROSTI Gunnarsson, Björg Valdís Hansdóttir og Elma Dögg Frostadóttir í nýja húsinu í Súðavík. Byggja heimili í nýrri Súðavík ári eftir að þau voru grafin úr snjónum Líður illa í vond- um veðrum „VIÐ höfum það gott og höfum náð okkur að mestu. En okkur hefur liðið illa í vondum veðrum, finnst heyrast svo mikið í húsinu en maður er ótrú- lega viðkvæmur fyrir því,“ segir Frosti Gunnarsson, starfsmaður Súðavíkur- hrepps, í samtali við Morgunblaðið en hann lenti í snjóflóðinu fyrir ári ásamt konu sinni og dóttur. Frosti og kona hans, Björg Valdís Hansdóttir, starfs- maður rækjuvinnslu Frosta hf., voru grafin upp úr snjónum eftir fimm klukkutíma og dóttur þeirra, Elmu Dögg sem nú er fímmtán ára, var bjargað eftir fimmtán tíma bið undir snjófarginu. Fæti bjargað með skurðaðgerð Frosti og Elma Dögg voru nokkuð kalin og þurftu að vera undir læknis- hendi á sjúkrahúsi í Reykjavík fyrstu vikurnar eftir slysið. Þau segjast vera að mestu búin að ná sér. Frosti segist fínna enn til í tánum en kalið sé smám saman að hverfa. Elma Dögg segist ennþá vera dofin í lærinu og segir að það geti tekið á annað ár að verða alheil. Gerður var mikil uppskurður á fæti henni hennar vegna þess hvað kalið var djúpt og með því tókst að bjarga honum, að því er hún hefur eftir læknum. Þáu komu aftur vestur um miðjan febrúar og fluttu inn í sumarbústað í Súðavík 9. mars. Segja þau að það hafi verið mjög gott að fá bústaðina og telur Frosti að uppsetning þeirra hafi ráðið úrslitum um það hve marg- ir Súðvíkingar hafa snúið aftur heim. Lagast þegar frá líður Frosti segir að það virðist ætla að taka lengri tíma en þau hefðu talið að ná sér andlega eftir áfallið. Þeim líði ágætlega í góðu veðri en svo hell- ist hræðslan yfir þegar veðrið versnar. „Ég hélt að ég væri alveg komin yfir erfiðleikana en svo fæ ég stundum undarlegar tilfinningar, þær koma ósjálfrátt yfir mann þegar það er hvasst og leiðinlegt veður. En þetta gengur yfir og lagast þegar lengra líð- ur frá,“ segir Björg Valdís. Þau segj- ast þjappa sér saman í eitt rúm þegar hræðslutilfinningin kemur yfír þau í slæmum veðrum. Annars segir Frosti veturinn hafi verið svo góðan, fyrir utan vikuna í • október, að ekki sé hægt að kvarta. . Snjóflóð á Flateyri í október hafði 1 mikil áhrif á þá sem lentu í snjóflóðinu ’ í Súðavík. „Það var eins og spólað væri til baka þegar þetta gerðist á Flateyri. Það var skelfileg upplifun fyrir flesta hér,“ segir Frosti. Þau segja að almennt gangi fólki vel að byggja sig upp að nýju, þótt auðvitað sé það einstaklingsbundið. Góður vetur það sem af er hjálpi mik- ið til og telja þau að margir væru orðn- ir slæmir á taugum ef veðrið hefði verið verra. „Ég held að fólkið sé al- mennt samhent um að byggja sig upp, enda er það mjög mikilvægt," segir Björg Valdís. Frosti segir að seina- gangur stjómvalda við að ákveða regl- ur um uppkaup á húsum hafi pirrað fólk og seinkað fyrirætlunum þess. Gátum ekki beðið lengur Frosti og Björg Valdís eru að byggja sér hús í nýrri Súðavík. Keyptu þau sér einingahús úr timbri frá Selfossi og vinna við innréttingar. Viðlaga- trygging íslands bætti hús þeirra sem eyðilagðist í snjóflóðinu en Frosti seg- ist hafa ætlað að bíða til vors með að hefja framkvæmdir við nýtt hús. „En þegar við sáum að aðrir voru að byija gátum við ekki beðið lengur og skellt- um okkur með,“ segir Frosti. Fram- kvæmdirnar ganga vel enda hefur veð- ur ekki tafið byggingamenn í vetur. Húsið kom til Súðavíkur 11. nóvember og vonast þau til að geta flutt inn 9. mars, réttu ári eftir að þau fluttu inn í sumarbústaðinn sem verið hefur heimili þeirra þetta árið. Þau eru spennt að flytja í nýja hús- j ið, segja að þó að það hafi verið mikil- vægt að komast í sumarbústaðinn á sínum tíma sé þreytandi að búa í þrengslunum til lengdar. Og gaman sé að taka þátt í uppbyggingu nýs þorps frá upphafi. „Fólk kann vel við sig hérna, enda gott að búa í Súðavík,“ segir Frosti, þegar leitað er eftir skýringum hans á því hvað margir hafa snúið aftur heim eftir náttútuhamfarirnar. Hann segir að veðursæld sé oft mikil við Álftafjörð, fallegt og stutt í ósnortna náttúru. Fólk hafi trygga atvinnu þótt hún sé einhæf. Og hann segir að manió lífið sé gott og fólki líði almennt vel. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.