Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Valgarður Stefánsson, deildarstjóri forðafræðideildar, vinnur að rannsóknum á jarðhitasvæðum Stefnan í orkunýtingn þarfnast end- urskoðunar VALGARÐUR Stefánsson, deildarstjóri forðafræðideildar Orkustofnunar, er þeirrar hyggju að íslendingar verði að endurskoða stefnuna í orkunýtingu frá grunni og gera sér grein fyrir því að vatnsorka þarf ekki alltaf að vera hagkvæmasti virkjunarkosturinn. Valgarður hefur stjórnað rann- sókn háhitasvæða og sagði í gær að með litlum virkjunum til dæmis í Brennisteinsfjöllum eða Torfa- jökli mætti á hagkvæmari hátt ná sama markmiði í áföngum og með stórri virkjun. Valgarður sagði að undanfarin þrjú til fjögur ár hefði verið unnið að verkefni, sem miðaði að því að að kanna jarðhitasvæði með tilliti til orkuvinnslu. Þetta verkefni væri upphaf þess að breyta hugs- unarhætti manna í rannsóknum. Rannsóknir Valgarðs hafa leitt í ljós að mikið háhitasvæði er að finna í Brennisteinsíjöllum. Undir Torfajökli er einnig mikið af óbeisluðum jarðhita og sagði Val- garður að þar væri .{trúlega stærsta orkusvæði á íslandi“. Margar litlar virkjanir Valgarður kvaðst þeirrar hyggju að hagkvæmast væri að reisa margar 20 megawatta virkj- anir. „Þegar upp er staðið koma litlu virkjanirnar betur út vegna þess að fjármagnsdreifingin er hagkvæmari,“ sagði Valgarður. 555-1500 Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhus auk 35 fm bílskúrs. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti mögul. á 3ja herb. íbúð. Grafarvogur Baughús Glæsil. ca 90 fm 3ja herb. íb. í tvíbýli með góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj. húsbr. Verð 8,5 miilj. Hafnarfjörður Miðvangur Gott raðhús ca 150 fm + 38 fm bílsk. Möguleiki á 4 svefnh. Skipti mögul. á minni eign.. Flókagata Góð 5-6 herb. íb. ca 125 fm ásamt bílsk. Flókagata Einb. á fjórum pöllum, ca 190 fm, ásamt nýjum bílsk. og öðr- um eiari. Miicið endurn. Útsýni. Áhv. ca 2,5 millj. eldra byggsj- lán. Ath, skipti á minni eign. Áffaskéið Einb. á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Lítið áhv. Ath. skipti á lítilli íb. Vantar eignir á skrá. FASTEIGNASALA, Strandgötu 25, Hfj., Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl. ^ V „Þegar um er að ræða eina stóra virkjun þarf að leggja í svo mikinn kostnað áður en hún fer að skila arði og því er hún fjárhagslega verri kostur.“ Annar kostur við þessa aðferð sagði Valgarður að væri sá að orkuvinnslan sjálf væri rannsókn, sem veitti niðurstöðu um það hver orkugeta svæðis væri og hvort forsendur væru fyrir því að reisa fleiri virkjanir á sama svæði. Um leið mætti stunda rannsóknir víðar á landinu. Valgarður sagði að það tæki tíu til fimmtán ár að undirbúa og reisa vatnsaflsvirkjun, en þetta ferli mætti stytta um helming, allt nið- ur í fimm til sjö ár. Þá yrði þægi- legra að laga virkjanir að þeim markaði, sem fyrir hendi væri, í stað þess að það tæki tíu til fimmt- án ár að fullnýta virkjun, eins og til dæmis ætti við um Blönduvirkj- un. Einnig yrði auðveldara að bregðast við þegar orkuþörf ykist, eins og til að mynda gæti gerst ef bandaríska fyrirtækið Columbia Aluminum ákvæði að reisa hér álver. Þvert á viðtekinn hugsunarhátt Valgarður sagði að hugmyndir hans gengju þvert á viðtekinn hugsunarhátt hérlendis og væri jafnvel litið á þær sem villutrú. „Að sumu leyti hefur þessu ver- ið illa tekið,“ sagði Valgarður. „Þetta er öðruvísi sjónarhorn en menn eru vanir og fyrstu viðbrögð- in eru að þetta standist ekki. EIGNASALAN simar 551-9540 & 551-9191 fax 551-8585 INGÓLFSSTRÆT112-101 REYKJAVÍK. HÖFUM KAUPANDA að góðri 3ja herb. íb. með rúmgóðum bílskúr. Þyrfti að losna fljótl. Góð útb. í boði fyrir rétta eign. HÖFUM KAUPANDA að góðu ca 150 fm einbhúsi með bílskúr. Staðs. Reykjavík eöa Seltjnes. Góð útborgun. HÖFUM KAUPANDA aö góðri 3ja-4ra herb. íb. í miðborginni eða vesturb. Góð útb. fyrir rétta eign. HÖFUM KAUPANDA meö góða útb. að einstaklings- eða 2ja herb. íb. miðsv. í Rvík. Þarf að vera með gömlu veðdláni og losna fljótl. HÖFUM KAUPENDUR að 2ja-5 herb. ris- og kjíb. Mega í sumum tilfellum þarfn. stands. Góöar útb. geta verið í boöi. HÖFUM KAUPANDA að góðri 4ra herb. íb. í Hlíðahverfi eða Smáíbúðahverfi. Góð útb. í boði. SELJENDUR ATH. Okkur vantar allar gerðir fasteigna á söluskrá. Það er mikið um fynrspurnir þessa dagana. Skoðum og verðmetum samdægurs. EIGNASALAN Magnús Einarsson, löggiltur fasteignasali. - kjarni málsins! Háhitasvæbib í Brennisteinsfjöllum Brennisteinsfjöll Misgengi og sprungur Gígaröö Brennisteins- fjöll sfZ Grindavikurhreppur jar&hita- ummyndun Grindaskörð jarbhiti Háhitaviönámskjarni Lághitavibnámskápa Morgunblaðið/Ásdís RAGNA Karlsdóttir, verkfræðingur í jarðeðlisfræðideild Orku- stofnunar, og Valgarður Stefánsson deildarstjóri rýna í kort af jarðhitasvæðinu í Brennisteinsfjöllum. Ragna túlkaði mælingar sem gerðar hafa verið á jarðhita í Brennisteinsfjöllum. Landsvirkjun hefur ekki sýnt mik- inn áhuga, en raforkuiðnaðurinn sem slíkur er í eðli sínu íhaldssam- ur og það tekur langan tíma að breyta honum.“ Valgarður sagði að Bandaríkja- menn væru fremstir í nýtingu jarð- hita til orkuvinnslu, en Filippsey- ingar væru í öðru sæti og myndu brátt sigla fram úr Bandaríkja- mönnum. ítalir og Nýsjálendingar hefðu einnig verið í þessum hópi frá fornu fari. Islendingar notuðu jarðhita hlutfallslega meira en nokkur önnur þjóð, en raforku- vinnsla væri lítil hér á landi vegna samkeppni við vatnsorku. Niðurstöður rannsóknanna, sem Valgarður stjórnar, eru byggðar á svokölluðum viðnámsmælingum. Við þær eru notaðar rafsegulað- ferðir. Ákveðið samband er milli eðlisviðnáms og jarðhita. í skýrslu Rögnu Karlsdóttur um niðurstöður mælinganna í Brennisteinsfjöllum er þessu sambandi lýst sem svo að „notagildi mælinganna byggist á því að berglög með jarðhitavatni hafa yfirleitt lægra eðlisviðnám en berg mettað köldu vatni“. Seg- ir þar enn fremur að háhitasvæðið komi fram „sem lágviðnámskápa með minna en 10Í2 og háviðnáms- kjarni undir“. í lágviðnámskáp- unni er hitastigið á bilinu 50-200 gráður, en í háviðnámskjarnanum er hitastigið um eða yfír 240 gráð- um, samkvæmt niðurstöðum Rögnu (sjá kort). Niðurstaða tyrknesks hæstaréttar í forræðismáli Sophiu Hansen „Samkvæmt landslögum“ vantaði á hjónavígsluvottorð TYRKNESKUR hæstiréttur úr- skurðaði ekki í forræðismáli Sophiu Hansen því ekki kom fram í hjóna- vígsluvottorði að Sophia og Halim Al, fyrrum eiginmaður hennar, væru gefin saman samkvæmt landslögum. Fjórir af fimm dómurum dæmdu úrskurð undirréttar ógildan. Einn skilaði sératkvæði og taldi augljóst að dæma ætti eftir íslenskum lögum. Niðurstaðan hefur verið þýdd á ís- lensku. Hæstiréttur tók forræðismálið fyrir í lok nóvember. I niðurstöðu meirihlutans er tekið fram að á hjónavígsluvottorði komi ekki fýrir ákvæðið „samkvæmt landslögum“ eins og mælt sé fyrir í 256 gr. tyrk- n'eskra laga um meðferð einkamála. Þó faðerni og móðemi sé viðurkennt séu börnin því skráð óskilgetin og forræði óákveðið. „Við þessar aðstæður ber réttin- um að ákveða forræðið og koma á góðum samskiptum við þann aðila máls sem ekki er dæmt forræði, að teknu tilliti til 2. málsgreinar 312. gr. tyrkneskra einkamálalaga skv. 19. og 16. gr. laga nr. 2675. Ekki verður talið rétt að skera úr um forræði án þess að taka tillit til ofan- greinds atriðis," segir í niðurstöð- unni. í sératkvæði segir Ferman Kibr- iscikli hæstaréttardómari að með til- liti til 13., 16., 17. og 19. gr. laga eigi að leysa málið samkvæmt ís- lenskum lögum. „Ég er því ósam- mála úrskurði Hæstaréttar," segir Kibriscikli. Fordæmisgildi Sigurður Pétur Harðarson, stuðn- ingsmaður Sophiu, hefur-eftir Hasíp Kaplan, tyrkneskum logmanni henfi- ar, að þegar mátið komi til undirrétt- ar sé um fjóra möguíeika að ræða. Að lögmenn Halims kæri úrskurð hæstaréttar aftur til hæstaréttar til að vinna tíma. Möguleikar Haiims á að fá forræði séu í því tilviki einn á móti milljón. Annar möguleiki sé að undirréttur samþykki ekki úrskurð hæstaréttar og staðfesti aftur sína fyrri niður- stöðu. Þá fengist endanlega niður- staða aðaldómstóls tyrkneska hæstaréttarins. Þriðji möguleikinn sé að undirrétt- ur samþykki niðurstöðu hæstaréttar, biðji um nýtt hjónavígslu- og skiln- aðarvottorð frá íslandi, þar sem komi fram að vottorðin séu sam- kvæmt landslögum, og úrskurði síð- an í málinu. í fjórða lagi verði Halim dæmt forræði og Sophia áfrýi til Hæstaréttar. Ef lögmenn Halims kæra úrskurð Hæstaréttar aftur til Hæstaréttar má að sögn Kaplans reikna með réttarhöldum í Hæstarétti í mars. Hann telur að niðurstaða málsins hafi fordæmisgildi. Sjö hundruð er- lendar konur eru í sömu sporum og Sophia í Tyrklandi. Fregnir hafa borist af því að Halim A1 hafi gefið dætrum sínum ný tyrknesk nöfn. Sophia, móður stúlknanna, hefur dvalist á sjúkrahúsi frá því milli jóla og nýárs. Vegna mikils kostnaðar vegna málsins hefur verið gripið til þess að senda öllum fyrri stuðningsmönn- um Sophiu bréf þar sem óskað er eftir fjárstuðningi. Einnig liggja frammi í bönkum og sparisjóðum innleggsmiðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.