Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 37 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Lionsklúbburinn Fjörgyn og Barnaspítali Hringsins FÉLAGAR í Lionsklúbbnum Fjörgyn afhenda Lego-leikföng. Frá Þórí Steinarssyni: 1 Á SÍÐASTLIÐINNI jólaföstu hélt Lionsklúbburinn Fjörgyn skemmt- un fyrir Barnaspítala Hringsins. Oft er einmanalegt að dvelja fjarri heimili sínu þegar undirbúningur stendur sem hæst fyrir jólahátíðina. Lionsklúbburinn Fjörgyn naut lið- sinnis hins landsþekkta jólasveins Askasleikis foringja jólasveinanna. Askasleikir gerði sér sérstaka ferð I úr helli sínum í Skálafelli til að | heimsækja börnin á spítalanum. Vegna anna hjá jólasveinum gat Langminnsti stúfur ekki fylgt Askasleiki í þessa heimsókn. Aska- sleikir foringi jólasveinanna er hlust- endum Rásar 2 að góðu kunnur því hann ræðir við þá í beinni útsend- ingu frá Skálafelli fyrir hver jól. Askasleikir hafði að venju með sér hinn magnaða lurk sinn sem nota má til að sjá í gegnum holt og hæðir. Þrátt fyrir mikið annríki I dvaldi Askasleikir hátt á annan tíma á Barnaspítala Hringsins og skemmti börnunum, söng og sagði sögur og fékk börnin til að taka þátt í fjörinu. Félagar úr Lions- klúbbnum Fjörgyn fengu Aska- sleiki tit að færa börnunum jólasæl- gæti frá Nóa og Síríusi og var það vel þegið. Eins og hjá jólasveinum er ann- ríki mikið hjá tónlistarmönnum fyr- ir jólin. Síðastliðin jól einkenndust af miklu „diskóflóði“. Bubbi Morth- ens gaf sér tíma í jólaannríkinu til að koma og taka þátt í skemmtun- inni. Lék hann nokkur lög við góð- ar undirtektir barnanna og fékk hann þau til að taka þátt í söngnum. Askasleikir foringi jólasvein- anna gerði sér aftur ferð á Barn- aspítala Hringsins á aðfangadag, og gladdi þar börn sem ekki kom- ust heim um jólahátíðina. Lionsklúbburinn Fjörgyn kann Katli Larsen bestu þakkir fyrir að ná sambandi við Askasleiki fyrir hönd klúbbsins. Einnig kann klúbburinn Bubba Morthens bestu þakkir fyrir að aðstoða klúbbinn við þessa skemmtun. Undanfarin ár hefur Lions- klúbburinn Fjörgyn m.a. beint kröftum sínum til styrktar Barna- spítala Hringsins. Klúbburinn hef- ur fært Barnaspítalanum LEGO leikföng sem notuð eru á leikstofu spítalans. Þeir sem þurfa að dvelja á spítalanum hafa eins og önnur börn þörf fyrir að leika með þrosk- andi leikföng. Starfsfólk leikstofu Barnaspítala Hringsins segja að ætíð sé þörf á góðum leikföngum fyrir sjúklingana. í starfi sínu fyrir Barnaspítala Hringsins hefur Lionsklúbburinn Fjörgyn leitað til fjölmargra aðila um land allt. Kann klúbburinn þeim bestu þakkir fyir aðstoðina. Síðastliðið vor færði klúbburinn Barnaspítala Hringsins að gjöf öndunarvél fyrir fyrirbura að verð- mæti 2,7 millj. króna. Nú er verið að vinna að kaupum á heilasírita. Verðmæti þess búnaðar er um 5 milljónir. Eins og áður sagði hefur klúbburinn leitað til margra aðila um stuðning við sitt verkefni. Einn þessara að- ila er verslunin Bónus sem á síð- astliðnu ári tók þá ákvörðun að styrkja Barnaspítala Hringsins. Bónus færði Barnaspítalanum búnað fyrir um 500 þúsund krónur að gjöf skömmu fyrir jól. Bónus hf. mun einnig taka þátt í kaupun- um á heilasíritanum sem rætt var um hér að framan. Gaman er að geta þess að þessi heilasíriti er íslensk hönnun. Tækið verður afhent Barnaspítalanum á næstu mánuðum. ÞÓRIR STEINARSSON, Hverafold 136, Reykjavík. i Ljóð eða lausavísur eftir Leif Haraldsson frá Háeyri Frá Daníel Ágústínussyni: urnar á íslenskri tungu sem taka LEIFUR Haraldsson var fæddur í Reykjavík 6. júní 1912 en ólst upp á Eyrarbakka. Hann andaðist í Reykjavík 2. ágúst 1971 aðeins 59 ára að aldri. Leifur var landskunnur hagyrðingur og auk þess lét hann eftir sig nokkurt safn af ágætum ljóðum. Það var háttur Leifs að kasta fram vísum við ýmis tækifæri, í hópi vina og kunningja á góðri stund j án þess að festa þær á blað. Ýmsir vinir hans urðu svo til þess að skrifa vísurnar niður. Þannig bárust þær Ioft víða vegu á skömmum tíma. Leifur var hinsvegar hlédrægur, miklaðist aldrei af einstæðri hag- mælsku sinni né hélt vísum sínum á lofti. Ein af kunnustu vísum hans er þessi sem kennd er við Ingólfs- kaffi: „Ótal fávitar yrkja kvæði án þess að geta það. Á Ingólfskaffi ég er í fæði án þess að éta það.“ Einum vinnufélaga sínum lýsti I hann eitt sinn þannig: „Sína iðju hann sækir fast sýður á keipum níð og brígsl, veður á súðum lýgi og last, lymskan og fólskan ganga á víxl.“ Þær eru ekki margar skammarvís- þessari fram. Nú er í undirbúningi að gefa út bók á þessu ári um Leif Haraldsson og birta þar úrval af ljóðum hans og lausavísum. Af því tilefni vil ég beina þeim tilmælum til allra þeirra sem eiga í fórum sínum lausavísur eða ljóð eftir Leif að hafa samband við mig eða senda mér afrit af skáld- skap hans. Þeir sem að útgáfunni standa leggja mikla áherslu á að komast yfir sem mest af yrkingum hans og taka síðan til birtingar gott úrval af því sem safnað er saman. Þá væri vel þegið að fá ýmsar frá- sagnir af Leifi, því hann var allra manna orðheppnastur og ýmis tilsvör hans urðu fleyg á sínum tíma. Enn eru margir ofar moldu sem þekktu Leif og unnu með honum. Þeim mun hann seint gleymast. Ég tel líklegt að þeir hinir sömu eigi einhveijar endurminningar um hann sem vert væri að varðveita. Hver vísa og hvert atvik þarf að koma til skoðunar þegar efni er safnað í fyrir- hugaða bók um Leif. Eg vil því vinsamlegast ítreka þá beiðni mína til allra þeirra sem hér gætu orðið að liði að hafa samband við mig sem allra fyrst og eigi síðar en um miðjan febrúar nk. DANÍEL ÁGÚ STÍNU SSON, Háholti 7, 300 Akranesi, sími 431-1188. Aður aðeins 1 dag og a morgun Komið og geriö frabær ka Algjört verðhri 75-80% afsláttu Dœmi um verö: V-hálsmalspeysa Peysa marglit Bómullarpeysa Stutt jakkapeysa Langermabolur Kjólar + skokkar Sett: Leggings + bolur Hvít dömuskyrta Víðar buxur Erobikk sokkar 3.790 9 2.490 6 Allir sem kaupa fyrir meira en 2.000 kr. fá ókeypis hálsfesti meðan birgðir endast. Einnig úrval af barnafatnaði með 50% afslætti Komdu og prúttaðu um verð. Sioumula 13,108 Reykjavik sími 568-2870. Opið kl. 10.00-18.00. Getur þú ímyndað þér þá tilfinningu að taka við 40 milljóna króna ávísun? LfflÍ Til mikils að vinna! Alla miðvikudaga fyrir kl. 17.00. aðalútibú oraumabanki ÍSLANDS --flfaj TóWofe*r,ífl9ur — ■ Greiðiðgegntékkaþessum Krónur 'MALe$P'm Ím& Reykjavík 5947338+ hvorKi skrift né stiVnp/un. J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.