Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 15 VIÐSKIPTI Ferða- mönnum fjölgaði um 5,9% ALLS komu tæplega 190 þús- und erlendir ferðamenn hing- að til lands á sl. ári, sem er um 5,9% fjölgun frá árinu áð- ur, skv. talningu Útlendinga- eftirlitsins. Hefur fjöldi er- lendra ferðamanna því nær tvöfaldast á sl. tíu árum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Mjög mismunandi þróun varð á fjölda ferðamanna frá einstökum löndum. Um fimmt- ungur þeirra kom frá Þýska- landi og fjölgaði þeim um 7,1% milli ára. Aftur á móti er um meiri sveiflur að ræða þegar litið er til hinna Norðurland- anna. Þannig fækkaði Svíum og Norðmönnum sem hingað komu meðan Dönum og Finn- um fjölgar umtalsvert. Þar ræður miklu hversu margir norrænir viðburðir á borð við fundi og ráðstefnur koma í hlut íslendinga á ári hverju. Þá vekur athygli mikil fjölg- un ferðamanna frá Sviss, en hana má fyrst og fremst rekja til landsleiks íslendinga og Svisslendinga í sumar. ' ' ' ' ’ ' ' ' ' ' ...ii.. Tékkar og debetkort 1994 og 1995 Fjöldi tékka og færslna í hverjum mánuði Ort vaxandi notk- un debetkorta NOTKUN debetkorta hefur vaxið mjög ört frá því þau voru fyrst innleidd í byijun ársins 1994. Þannig urðu færslur með debet- kortum alls um 1,5 milljónir tals- ins í desember sl. sem er rösklega tvöföldun frá því í desember árið 1994. Notkun tékka virðist hins vegar vera komin í jafnvægi eftir mikinn samdrátt á árinu 1994 og framan af árinu 1995. Hafa að jafnaði verið gefnir út um 900 þúsund til ein milljón tékka í hveijum mán- uði að undanförnu. Þessi þróun sést nánar á meðfylgjandi mynd. Þegar litið er yfir árið 1995 í heild kemur í ljós að debetkorta- færslur urðu alls um 13 milljónir talsins, en tékkafærslur um 12 milljónir. Árið 1994 voru tékka- færslurnar hins vegar um 21,4 milljónir talsins en debetkorta- færslur um 3,2 milljónir. Erlendir ferðamenn í janúar-desember 4 QQC Breyt. Irá 1993 Fjöldi % fyrraári 1. Þýskaland 36.840 19,4 7,1% 2.Bandaríkin 28.633 15,1 10,6% 3.Danmörk 22.512 11,9 8,3% 4.Svíþjóð 19.027 10,0 ■4,2% .5. Bretland 17.520 9,2 ■ ■2,1% 6.Moregur 13.448 7,1 ■7,9% 7.Frakkland 9.142 4,8 1,6% 8. Holland 6.558 3,5 -6,0% 9. Sviss 6.489 3,4 39,0% 10. Finnland 4.206 2,2 13,7% Önnur 23.011 1Í4 18,5% Samtals 189.796 100,0 5,9% Valinn verk- fræðingnr ársins hjá Rockwell SVERRIR Ólafsson, raf- magnsverkfræðingur og fram- kvæmdastjóri Rockwell á ís- landi, hefur verið valinn verk- fræðingur ársins hjá fyrirtæk- inu. Sverrir segir að nokkrum verkfræðing- um hjá fyrir- tækinu áskotnist þessi heiður á hveiju ári og því sé hann ekki einn í þessum hópi. Hann segir þetta hins vegar vera mikinn heiður fyrir sig, enda starfi um 100.000 manns hjá Rockwell, þar af um 10-20 þúsund verkfræðingar. Sverrir hefur starfað hjá Rockwell frá árinu 1986. Fyrst starfaði hann við höfuðstöðvar fyrirtækisins í Kaliforníu en árið 1987 fluttist hann hingað heim og hefur starfað fyrir fyrirtækið hér á landi síðan. Arið 1994 stofnaði Rockwell síðan dótturfyrirtæki um þennan rekstur hér á landi og hefur Sverrir gegnt þar stöðu framkvæmdastjóra. Starfsemi Rockwell á íslandi felst fyrst og fremst í hönnun liugbúnað- ar fyrir mótaldskubba og fara samskipti við móðurfyrirtækið fram í gegnum internetið. Starfsmönnum fyrirtækisins hér á landi hefur farið fjölg- andi og í dag eru þeir 5, en Sverrir segir að horfur séu á því að þeim verði fjölgað enn frekar á næstunni. Sunnlensk flutnmga- fyrirtæld sameinast FLUTNINGAMIÐSTOÐ Suðurlands (FMS) hefur verið sameinuð Vöru- flutningum Sigurðar Ástráðssonar. Markmið sameiningarinnar er að veita viðskiptavinum aðgang að öflugu og sveigjanlegu flutningakerfi og þjóna Sunnlendingum á sem best- an hátt, að því er fram kemur í frétt. Eftir sameininguna verða þrjár ferðir á dag á milli Reykjavíkur og Selfoss ásamt daglegum ferðum milli Reykjavíkur og Hveragerðis, Þor- lákshafnar, Eyrarbakka, Stokkseyr- ar, Hellu, Hvolsvallar, Víkur og Kirkjubæjarklausturs. Daglegar ferðir verða einnig á milli helstu þétt- býlisstaða á Suðurlandi ásamt áætl- un í sveitir Suðurlands. Þá er fyrir- tækið er hlekkur í flutningakeðju sem býður ferðir til 63 áfangastaða allt í kringum landið. Sigurður Ástráðsson verður flutn- ingastjóri FMS og mun hann stýra áætlunarflutningum fyrirtækisins ásamt söfnun og dreifingu. Magnús Guðmundsson þjónustustjóri FMS annast alla þjónustu vegna inn- og útflutnings ásamt sölu- og markaðs- starfi. Framkvæmdastjóri er Tryggvi Þór Ágústsson. Velta Viðskiptanetsins þrefaldast VELTA Viðskiptanetsins hf. þre- faldaðist á árinu 1995 miðað við árið þar á undan. Veltan á netinu nam um 242 milljónum króna á síð- asta ári, en árið 1994 var veltan á netinu um 80 milljónir króna. Jafn- framt hefur fjöldi fyrirtækja sem eiga viðskipti á netinu vaxið nokkuð og eru þau rúmlega 430 í dag en voru rétt tæplega 240 í árslok 1994. Lúðvig Sveinsson, framkvæmda- stjóri Viðskiptanetsins, segir að þau fyrirtæki sem stundi viðskipti á net- inu séu fyrst og fremst minni og meðalstór fyrirtæki. „Það sem þessi fyrirtæki eru fyrst og fremst að sækjast eftir er að styrkja hjá sér lausafjárstöðuna og afla nýrra við- skiptavina." Lúðvig segir að þar starfi nú tveir sölumenn í fullu starfí við það að kynna netið fyrir fyrir- tækjum, auk þess sem tveir þjón- ustufulltrúar vinni við að örva við- skipti á netinu og aðstoða fyrirtæki við leit að þeim vörum sem þau vant- ar. Lægsta verðið til Karíbahafsins frá íslandi Sértilboð til Cancun 2 vikur - 5. febrúar kr. 59.930 sértílboði Beint leiguflug Tryggðu þér glæsilegt kynningartilboð á nýjum gististað í Cancun, Laguna Verde Suites, sem við kynnum nú í fyrsta sinn á frábæru verði. Fallegur gististaður með öllum aðbúnaði. sjónvarp, sími, loftkæling og frábær staðsetning, við frægasta golfvöllinn í Cancun. Frábær aðbúnaður, ótrúlegt úrval veitinga- og skemmtistaða, glæsilegir golfvellir, siglingar, köfun, tennis, pýramýdar, kynnisferðir og íslcnsk fararstjórn Heimsferða tryggja þér yndislega dvöl í paradís. Síðustu 8 sætin í þessa brottfór, bókaðu strax. Verð kr. 59.930 VerÖ m.v. hjón með bam, 2 vikur, 5. febr. Skattar innifaldir. ekki forfallagjald kr. 1.200. Verð kr. 69.950 Verð m.v. 2 í herbergi, Laguna Verde. 2 vikur. 5. fcbr. Skattar innifaldir. ckki forfallagjaid kr. 1.200. Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600. Veistu. PÓSTUR OG SÍMl ...að bíómiði í Hollandi kostar 508 kr. Fyrir það verð fæst símtal í 1 klst. og 5 mín. á milli Rotterdam og Eindhoven. ...að bíómiði á íslandi kostar 550 kr. Fyrir það verð fæst símtal í 2 klst. og 12 mín. á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.