Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 11 Sláturfélag Suðurlands Synjun útflutn- ingsleyfis könnuð UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU hefur borist erindi frá landbún- aðarráðuneytinu vegna Slátur- félags Suðurlands en félaginu hefur verið synjað um útflutn- ingsleyfi á ESB-markað. Að sögn Björgvins Guðmundsson- ar sendifulltrúa, er verið að skoða erindið, sem síðan verður lagt fyrir utanríkisráðherra og væntanlega muni ráðuneytin taka við síðar og ræða málið sín á milli. Eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins sl. sunnudag hefur Sláturfélagi Suðurlands verið synjað um útflutnings- leyfi þrátt fyrir að hafa breytt sláturhúsi sínu á Selfossi í sam- ræmi við kröfur dýralæknis frá ESB. Kostnaður vegna breyt- inganna er um 40 millj. Annar dýralæknir frá ESB, sem skoð- aði húsið í haust, synjaði beiðni um útflutningsleyfi á þeirri for- sendu að fláningslínan í húsinu væri ekki af réttri gerð. Enn ber á Bakka Blönduósi. Morgunblaðid. ÆRIN Grákolla frá Bakka í Vatnsdal bar einu lambi um miðjan dag á mánudag. Þetta fyrsta lamb ársins var hvít gimbur og kemur í heiminn um svipað leyti og ný reglugerð um sauðfjárframleiðslu næsta verðlagsárs. Þetta er ekki í fyrsta sinn að ær frá Bakka í Vatnsdal ber um þetta leyti árs. Þess er skemmst að minnast að ærin Móra frá sama bæ bar tveim lömbum daginn fyrir gamlár- dag. Kristín Lárusdóttir, hús- freyja á Bakka, sagði þessa kind svo og Móru vera ættaðar frá Stóra-Fjarðarhorni „og er þessi mikla frjósemi þaðan komin,“ sagði Kristín. Orkubúið kaupir Hitaveitu Reykhóla UNDIRRITAÐUR hefur verið kaupsamningur milli Orkubús Vestfjarða og hreppsnefndar Reykhólahrepps um kaup bús- ins á hitaveitu hreppsins. Að sögn Kristjáns Haralds- sonar orkubústjóra er samning- urinn undirritaður með fyr- irvara um samþykki hrepps- nefndar, sem koma mun saman til fundar í vikunni. Sagði hann að innihald samningsins yrði ekki upplýst fyrr en að fundin- um loknum. MÁLASKÓLINN MÍMIR sími: 588 22 99 Stórhöfða 17, vlð Gullinbrú, sími 567 4844 Milt um miðjan veturinn ÞAÐ ER ekki bara mannfólkið sem nýtur góðs af því að veður hefur verið með ólíkindum milt nú þegar níu dagar eru í miðjan vetur og upphaf þorra. Þessi hest- ur þarf a.m.k. ekki að krafsa snjó- inn af jörðinni áður en hann fær sér dálitla tuggu. Og þegar hita- stigið er nær alltaf yfir frost- marki ætti kafloðinn vetrarfeld- urinn að halda góðum hita á þeim sem tölta um túnin. Morgunblaðið/Kristinn I haldi vegna innbrota TVEIR gæsluvarðhaldsúrskurðir voru kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku vegna ítrekaðra innbrota í hús og bíla. 18 ára piltur var á þriðjudag úrskurðaður í gæsluvarðhald fram í miðjan febrúar. Hann er talinn forsprakki nokkurra 17-19 ára pilta, sem stundað hafa innbrot í hús og bíla. 23 ára gamall maður var á föstudag úrskurðaður í 45 daga gæslu vegna innbrota í íbúðarhús. Cheerios sólarhringurinn Málið er einfalt, í hvert sinn sem þú borðar Cheerios borðar þú hollan og góðan mat. Cheerios er trefjaríkur matur, svo til laus við sykur og fitu en hlaðinn steinefnum og vítamínum. Þess vegna er ráðlegt að borða Cheerios hvenær sem hungrið segir til sín - á nóttu sem degi. -einfaldlega hollt allan sólarhringinn?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.