Morgunblaðið - 17.01.1996, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞÖGN Stálpastaða er rofin með vélardyn.
Jámblendið kaupir
kurl af Skógræktinni
Tillaga sjálfstæðis-
manna í borgarráði
Vilja
semja við
skóla um
þjónustu
BORGARRÁÐSFULLTRÚAR.
Sjálfstæðisflokksins hafa lagt
fram tillögu um að þjónustusamn-
ingar verði gerðir á grundvelli
samningsstjómunar við allt að
fimm grunnskóla borgarinnar.
Miðað verði við að samningurinn
taki gildi um leið og Reykjavíkur-
borg taki við rekstri skólanna.
Borgarráð frestaði afgreiðslu til-
lögunnar.
í greinargerð með tillögunni
segir að á undafömum ámm hafi
mikið verið rætt um nauðsyn þess
að breyta opinberum rekstri og
draga úr miðstýringu en dreifa
valdi til einstakra eininga og stofn-
ana. Þekkt aðferð sé samnings-
stjórnun, sem feli í sér að gerður
er samningur milli aðila um rekst-
ur til ákveðins tíma og skilgreint
um leið innihald og umfang starf-
seminnar og rekstrarumhverfi.
Tilgangurinn sé að auka sjálfstæði
stofnana og ná um leið betri
árangri, framleiðni og hagræð-
ingu.
Skólastjórnendur taka
hugmyndinni vel
Bent er á að í umræðu um auk-
ið sjálfstæði skóla á undanförnum
ámm hafí hugmynd um samnings-
stjómum verið áberandi. Á fundi
skólastjóra í Reykjavík fyrir
nokkram ámm hafí þær fengið
góðan hljómgrunn og undirtektir.
Á vegum Skólaskrifstofu hafí og
verið unnið að því að styrkja fjár-
hagslegt sjálfstæði skólanna. Það
ætti því að vera góður jarðvegur
til að hrinda af stað tilraun til
samningsstjómar með tilteknum
Qölda grannskóla.
Loks segir að sjálfstæðismenn
telji brýnt að að stíga þetta skref
nú þegar fyrir dyram standi yfír-
færsla grannskólans til sveitarfé-
laga. Rætt hafi verið við nokkra
skólastjórnendur sem hafí tekið
hugmyndinni vel.
Grund. Morgunblaðið.
SKÓGRÆKT rfkisins hefur samið
við Jámblendiverksmiðjuna á
Grundartanga um að selja henni
um 200 tonn af flís eða kurli til
starfsemi sinnar. Jámblendiverk-
smiðjan notar kurlið til brennslu
í vinnsluofni og duga 200 tonnin
aðeins til nokkurra daga, en ann-
ars flytur verksmiðjan efnið inn.
Upphæð samningsins er um 800
þús. kr.
Nú starfa fjórir skógarhöggs-
menn á Stálpastöðum í Skorradal
við að höggva tré upp í þennan
samning, en ætlunin er að fella
HANDTÖKUBEIÐNI hefur verið
gefin út á hendur Þórhalli Ölveri
Gunnlaugssyni, sem Hæstiréttur
dæmdi í tveggja ára fangelsi í nóv-
ember sl. Þórhallur mætti ekki til
afplánunar og hefur lögregla verið
beðin um að hafa uppi á honum
og handtaka hann. Granur leikur
á að Þórhallur hafí farið úr landi.
Þórhallur var dæmdur fyrir að
svíkja 38,1 milljón króna úr ríkis-
um tvö til þrjú hundruð tonn af
viði, sem unninn verður í borðvið
og flís.
Á Stálpastöðum eru margir fal-
legir teigar af sitkagreniskógi frá
nokkrum stöðum í Alaska eða af
mismunandi kvæmum eins og það
er kallað.
Það hefur komið í Ijós að hvert
kvæmi hefur sín séreinkenni og
hafa þau reynst misjöfn að vaxtar-
færni, frostþoli og vaxtarhraða.
Eitt kvæmi hefur þótt bera nokk-
uð af öðrum, en það er frá
Cordova.
sjóði með því að skila vikulega
röngum virðisaukaskattsskýrslum
á áranum 1992-1994. Einnig var
hann dæmdur fyrir að hafa rang-
lega tilkynnt hlutafélagaskrá um
60 milljóna króna hlutfjáraukningu
Vatnsberans, félags sem stofnað
var til að vinna að vatnsútflutn-
ingi, og fyrir að svíkja út orlofsfé
úr Ábyrgðarsjóði launa. Þá var
hann dæmdur til að greiða 20 millj-
Árið 1961 voru gróðursettar
rösklega 40.000 plöntur af þessu
kvæmi í samfelldan reit. Nú eru
hæstu trén komin á tólfta metra
og farin að bera þroskuð fræ.
Þessi reitur hefur nú verið valinn
sérstaklega af rannsóknarstöð
Skógræktar ríkisins á Mógilsá til
fræræktar. Með því á að tryggja
að þetta kvæmi af sitkagreni geti
þakið fleiri svæði víða um land.
Svæði þetta á Stálpastöðum hef-
ur þarfnast grisjunar því tré í fræ-
ræktarreit þurfa meira rými og
standa gisnar en tré í timburskógi.
óna króna sekt auk þess að greiða
til baka fjárhæðina sem hann sveik
út.
Ef vitneskja berst um að íslend-
ingur með óafplánaðan refsidóm
sé á einhveiju hinna Norðurland-
anna er hægt að senda dóminn
utan til fullnustu í því landi þar sem
viðkomandi er. Erfiðara er að eiga
við málið ef dæmdir menn eru í
öðram löndum.
Dæmdur maður í „Vatnsberamáli“ mætti ekki til afplánunar
Handtökubeiðni gefin út
Ríkisstjórnin og borgarráð
Andlát
Leiðtogafundar
verður minnst
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
að undirbúa í samvinnu við borgar-
stjóm Reykjavíkur hátíðarhöld til
að minnast þess að tíu ár eru síðan
leiðtogafundur Reagans og Gorb-
atsjovs var haldinn hér á landi og
borgarráð samþykkti samhljóða til-
lögu um samvinnu við ríkisstjórn-
ina.
{ samþykkt ríkisstjórnarinnar og
borgarráðs segir að telja megi að
fundur leiðtoga Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna hér á landi hafí átt
verulegan þátt í endalokum „kalda
stríðsins". Leitað verði samstarfs
við innlenda og erlenda aðila sem
kynnu að hafa áhuga á að koma
að málinu.
í greinargerð sem fylgir sam-
þykktunum segir að þeirri skoðun
hafi vaxið fylgi að straumhvörf
hafi orðið í afvopnunarviðræðum
stórveldanna á Reykjavíkur-
fundinum. Með því að minnast
fundarins verði lögð áhersla á að
nafn Reykjavíkur sé tengt fundi
sem með öðru leiddi til breyttrar
heimsmyndar og bættra samskipta
stórþjóðanna.
Fram kemur að gestgjafar verði
forsætisráðherra og borgarstjóri
sem skipi fámennan framkvæmda-
hóp til að samhæfa undirbúning.
Fjármögnun verði á ábyrgð ríkis og
borgar, en einstakir atburðir verði
kostaðir af einkaaðilum og fyrir-
tækjum, íslenskum og erlendum.
Litið til framtíðar
Þá segir: „Hátíðarhöldin beinist
annars vegar að því að rifja upp
fundinn frá 1986. og áhrif hans á
framvindu heimsmála. Til þessa
hluta verði boðið aðilum, sem tóku
þátt í leiðtogafundinum 1986. Hins
vegar verði litið til framtíðar og
iíklegrar þróunar heimsmála. Er-
lendum áhrifamönnum úr stjórn-
mála- og athafnalífi verði boðið að
fjalla um þann þátt. Leitað verði
sjónarmiða víðar að en frá Banda-
ríkjunum og Rússlandi, t.d. frá
þróunarlöndum Asíu og Afríku, auk
Evrópu."
ASGEIR
JAKOBSSON
ÁSGEIR Jakobsson rit-
höfundur lést á heimili
sínu í gær, á sjötugasta
og sjöunda aldursári.
Ásgeir fæddist 3. júlí
1919 í Bolungavík í
Hólshreppi í Norður-ísa-
fjarðarsýslu, sonur Jak-
obs Elíasar Bárðarsonar
formanns og útvegs-
bónda þar og Dórótheu
Helgu Jónasdóttur.
Asgeir stundaði nám
í unglingaskóla og Hér-
aðsskóla Laugarvatns
einn vetur, Kennara-
skóla íslands einn vetur
og Stýrimannaskólanum í Reykjavík
þar sem hann lauk meira físki-
mannaprófi 1945. Hann stundaði
sjómennsku frá 1934-47 og bóksölu
í Bókabúð Rikku á Akureyri
1945-64 en hefur síðan stundað rit-
störf og skrifað aðaliega um sjávar-
útveg.
Hann var dálkahöfundur við
Morgunblaðið og tímaritið Ægi til
1976 en síðan vann hann að mestu
við gerð og ritun bóka sem tengjast
sjávarútvegi á einn eða annan hátt.
Hann hefur skrifað
skáldsögur, ævisögur,
söguleg rit og
kennslubækur svo eitt-
hvað sé nefnt. Seinasta
bók hans, Pétur sjómað-
ur, kom út um síðustu
jól og var tuttugasta og
fyrsta bók Ásgeirs sem
var kunnastur fyrir ævi-
sögur útgerðarmanna,
þar á'meðal Einars sögu
Guðfinnssonar og Ósk-
ars sögu Halldórssonar,
íslandsbersa.
Ásgeir gekk að eiga
Friðriku Friðriksdóttur
bóksala á Akureyri árið 1947 en hún
lést árið 1951. Þau áttu einn son,
Ásgeir. Hann kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Bergrós S. Jóhann-
esdóttur, árið 1952, og eiga þau
fjögur börn, Elsu Karólínu, Jóhann-
es, Bergrós og Jakob Friðrik.
Ásgeir Jakobsson skrifaði um ára-
bil greinar í Morgunblaðið og vöktu
þær ævinlega mikla athygli. Morg-
unblaðið þakkar honum langt sam-
starf og sendir ástvinum hans sam-
úðarkveðjur.
Stækkun álversins
Níu tilboð
í stálgrind
kerskála
NÍU tilboð, þar af tvö íslensk,
bárust í stálgrind nýs kerskála
vegna stækkunar álversins í
Straumsvík.
Tilboðin voru opnuð í Ziirich
í Sviss í vikunni. Farið verður
yfir þau á næstu tveimur vikum
og þau borin saman áður en
afstaða verður tekin, að sögn
Rannveigar Rist, upplýsinga-
fulltrúa ISAL.
Hún sagði að átján aðilum
hefði verið boðið að bjóða í verk-
ið. Meðal níu tilboða sem hefðu
borist væru tilboð frá ístaki og
vélsmiðjunni Odda á Akureyri.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir við stálvirkið hefjist
um miðjan maí og er áætlað
að þeim ljúki um tveimur mán-
uðum eftir að vinnu við steypu-
virki lýkur. Framkvæmdir við
steypuvirki hefjast í þessari
viku og er áætlað að þeim ljúki
í októbermánuði.
Varðhald
framlengt
ísafirði. Morgunblaðið.
GÆSLUVARÐHALD yfír
þremur mönnum, sem hand-
teknir voru ásamt tveimur öðr-
um um síðustu helgi vegna inn-
brots í Shell-skálann í Bolung-
arvík, var framlengt síðdegis í
gær, fram til kl. 17 á föstudag.
Brotist var inn í Shell-skál-
ann aðfaranótt síðastliðins
föstudags og þaðan stolið pen-
ingaskáp og vindlingum auk
þfiss sem peningar úr sjóðsvél-
um voru teknir. HeildarfjárhaA
þess sem stolið var er talin vera
á bilinu 3-400 þúsund krónur.
Þeir sem þama voru að verki
eru einnig grunaðir um að hafa
brotist inn í áhaldahús staðarins
þar sem tekin voru verkfæri til
að bijóta upp peningaskápinn,
en hann fannst tómur á auðu
svæði nálægt áhaldahúsinu.
Lögreglan í Bolungarvík hóf
þegar rannsókn málsins og síðla
á föstudagskvöld höfðu fimm
menn verið handteknir, grunað-
ir um aðild að innbrotunum.
Einum þeirra var sleppt fljót-
lega en flórir voru hafðir í haldi
fram á sunnudag, er einum til
viðbótar var sleppt.
Tekinn á 123
km hraða
LÖGREGLAN í Reykjavík
mældi ökumann á 123 km
hraða á Vesturlandsvegi við
Grafarholt skömmu fyrir há-
degi í gær. Leyfilegur hámarks-
hraði er 70 km á þessum stað.
Ökumaðurinn var færður á lög-
reglustöð og sviptur ökuréttind-
um til bráðabirgða.
Þriggja bíla árekstur varð um
hádegisleytið í gær á Kringlu-
mýrarbraut á móts við Nesti.
Einn þeirra varð að fjarlægja
með kranabíl. Ökumaður þess
bíls fór sjálfur á slysadeild með
minniháttar meiðsli.
Atak í vímu-
efnafræðslu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu borgarstjóra um að óska
eftir því við samstarfshóp um
vímuefnavarnir að hann móti
hið fyrsta tillögur um hvernig
standa skuli að fræðsluátaki í
efri bekkjum grunnskólans.
Verði við það miðað að slíkt
átak geti farið fram þegar á
þessu misseri og nái bæði til
nemenda og foreldra þeirra.