Morgunblaðið - 08.02.1996, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skíðamenn
fagna
snjónum
TALIÐ er að milli U'ö og þijú
þúsund manns hafi komið í Blá-
fjöll í gær og rennt sér á skíð-
um. Opið var til klukkan tíu í
gærkvöldi og talsverður fjöldi
kom undir kvöld. Allar lyftur
nema tvær voru opnar.
Að sögn Harðar Sverrissonar,
húsvarðar í Bláfjallaskála, sýndi
veðrið á sér ýmsar hliðar. Fram-
undir hádegi var blíða og ekki
ský á himni, síðan þykknaði upp
og um fimmleytið var sest að
þoka. Hörður segir að færið
hafi verið mjög gott og vel líti
út með framhaldið. Þennan snjó,
sem nú er kominn, taki ekki svo
glatt upp aftur, þótt enn meiri
snjór væri bara til bóta.
Tilsjónar-
maður að
Sogni
REKSTRARSTJÓRN réttar-
geðdeildarinnar að Sogni í Olf-
usi óskaði eftir því á fundi í
gær að heilbrigðisráðuneytið
tilnefndi stofnuninni tilsjónar-
mann.
Að sögn Davíðs A. Gunnars-
sonar ráðuneytisstjóra verður
brugðist við þessari beiðni eins
fljótt og auðið er. Hann sagði
hlutverk tilsjónarmanns að
vera stjómendum til halds og
trausts. Yfirleitt væru fengnir
utanaðkomandi aðilar, en ekki
ráðuneytismenn, til að vera til-
sjónarmenn heilbrigðisstofn-
ana.
Rekstur réttargeðdeildarinn-
ar fór á síðasta ári fram úr fjár-
lögum og verður því að hag-
ræða þar í rekstri. Davíð sagði
að stjórn stofnunarinnar hefði
ýmsar hugmyndir til athugun-
ar. Það væri eitt af hlutverkum
tilsjónarmannsins að skoða þær
hugmyndir.
Morgunblaðið/Þorkell
Fljótlega
embættis-
mannafundur
um síldina
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að halda þurfi
áfram að reyna að ná samningi
við Norðmenn og Rússa um síld-
arkvóta, og gert sé ráð fyrir fundi
embættismanna um málið í Osló
innan skamms tíma.
„í öllum þeim tilkynningum sem
við höfum sent frá okkur höfum
við alls ekki lokað á samninga
milli þjóðanna. Við erum þeirrar
skoðunar að við þurfum að halda
áfram og það komi til greina i því
sambandi að breyta veiðimagninu.
Við erum þeirra skoðunar að sú
veiði sem nú er stefnt i sé allm-
iklu meiri en æskilegt er,“ sagði
Halldór.
Sjö milljóna króna krafist í bætur vegna ásiglingar í Eyjum
Hafnsögumann og
skipsijóra greinir á
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
SJÓPRÓFUM vegna áreksturs lit-
háiska skipsins Siauliai á Naust-
hamarsbryggjuna á Eyjum lauk í
gærkvöldi. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins kom fram við sjó-
prófin að skipstjóra skipsins og
hafnsögumann greindi á um hvor
bæri ábyrgð á óhappinu.
Hafnsögumaður segist ekki hafa
verið við stjórnvölinn er óhappið
varð þvi skipstjóri hefði tekið við
stjóminni áður en lagst var að
bryggju í Vestmannaeyjum. Skip-
stjóri skipsins segir að hafnsögu-
maðurinn hafí verið með stjórn á
skipinu þegar óhappið varð.
Jóhann Pétursson, lögmaður
Hafnarsjóðs Vestmannaeyja, sagði
í samtali við Morgunblaðið að sam-
kvæmt mati Vita- og hafnamála-
stofnunnar næmi tjónið á bryggj-
unni um 7 milljónum króna. Hann
sagði að krafa hefði verið sett fram
um tryggingu fyrir ríflega þeirri
upphæð og sagðist hann telja full-
víst að útgerð skipsins myndi
leggja fram þá tryggingu þannig
að ekki kæmi til kyrrsetningar
skipsins. Hann sagði að síðan ætti
eftir að athuga hvort hafnaryfir-
völd og útgerðin gætu komist að
samkomulagi um bótagreiðslur eða
hvort fara þyrfti dómstólaleiðina.
Viðgerð hafin
Viðgerð á þilinu hófst í gær og
sagði Ólafur Kristinsson hafnar-
stjóri að hann vonaðist til að búið
yrði að loka þilinu að mestu í dag
þannig að hægt yrði að fylla í
skarðið og bryggjan gæti þá orðið
nothæf til loðnulöndunar.
Læknir
Marínar
kemur
hingað
TRYGGINGASTOFNUN hef-
ur samþykkt að greiða kostnað
við komu bandarísks sérfræð-
ings í hjartasjúkdómum barna,
Stantons Perrys, til að gera
aðgerð á Marín Hafsteinsdótt-
ur, 9 mánaða frá Eskifirði, á
Landspítalanum.
Sigurður Thorlacius trygg-
ingayfírlæknir segir að Perry
muni ekki þiggja laun fyrir að
gera aðgerðina, kostnaðurinn
liggi eingöngu í ferðum og
uppihaldi hér. Landspítalinn
sjái um kostnað við aðgerðina
sjálfa. Sigurður segir að að-
gerðin Verði gerð fljótlega.
Sigurður segir kostina við
þetta fyrirkomulag ótvíræða
fyrir alla aðila. Þetta sé hag-
kvæmara fyrir Tiygginga-
stofnun og þægilegra fyrir
fjölskyldu og sjúkling, auk
þess sem læknir þessi flytji
með sér þekkingu og reynslu
sem geti nýst læknum hér.
Búin að bíða í ofvæni
Marín gekkst undir aðgerð
hjá Perry í nóvember sl. á
Children’s Hospital i Boston.
Eftir þá aðgerð var ljóst að
hún þyrfti að gangast undir
aðra aðgerð fljótlega. Fyrir
skömmu lýsti Perry sig síðan
reiðubúinn að koma hingað til
lands og framkvæma aðgerð-
ina hér.
Anna Óðinsdóttir, móðir
Marínar, sagðist í gærkvöldi
vera ákaflega fegin að af
komu Perrys yrði. „Þú getur
ímyndað þér, maður er búinn
að bíða í ofvæni frá því að
þessi möguleiki kom upp. Ég
er fegin að það verður einni
ferðinni færra. Þetta munar
miklu fyrir okkur,“ sagði
Anna.
Olíuleki í
affallsröri
orsök elds-
ins í Kofra
ísafirði. Morgunblaðið.
RANNSÓKN á eldsvoðanum
um borð í Kofra ÍS 41, sem
varð alelda á skömmum tíma
snemma á sunnudagsmorgun
er skipið var að veiðum á
rækjumiðunum undan Norður-
landi, lauk síðdegis í gærdag.
Ljóst þykir að orsök elds-
voðans sé að leita í olíuleka,
sem varð á affallsröri frá elds-
neytisolíukerfí aðalvélar skips-
ins, en við nákvæma skoðun
um borð í'skipinu fannst ann-
ars vegar laus samsetning og
hins vegar gat á affallsröri
sem hefur orsakað olíuleka
nálægt mjög heitum útblást-
ursrörum.
Yfirvöld vínna enn að skiptingu aflakvóta milli þýsku útgerðarfyrirtækjanna
ÞÝSK yfirvöld munu næstu daga
halda fundi með fjórum útgerðarfé-
lögum, sem ekki hafa getað náð
samkomulagi um skiptingu þýska
úthafsveiðikvótans.
Engar viðræður áttu sér stað í
gær og enn er ekki ljóst hvenær
yfirvöld ræða við fulltrúa útgerð-
anna.
Gúnter Drexelius, yfirmaður
kvótamála í Þýskalandi, sagði á
Úrslitalota í Hamborg
þriðjudag að viðræður yrðu haldnar
í Hamborg og haldið áfram til
föstudags ef á þyrfti að halda.
Tvö íslensk fyrirtæki eiga mikilla
hagsmuna að gæta í kvótaskipting-
unni. Samheiji á Akureyri á meiri-
hluta í Deutsche Fischfang Union
í Cuxhaven og Útgerðarfélag Akur-
eyringa á meirihluta í Mecklenburg-
er Hochseefíscherei í Rostock.
Mecklenburger hefur krafist þess
að kvótaskiptingin verði tekin til
rækilegrar endurskoðunar, en ráða-
menn DFFU eru þeirrar hyggju að
ekkert gefi tilefni til þess að horfið
verði frá núverandi fyrirkomulagi.
Útgerðarfyrirtækjunum var gef-
inn frestur fram í miðjan janúar til
að komast að málamiðlun og sá
frestur var framlengdur til janúar-
loka.
Drexelius sagði á þriðjudag að
engar nýjar tillögur hefðu korruð
fram og nú yrði málið til lykta leitt,
með hvaða hætti, sem það yrði.
Lítill eldur í vélarrúmi
Tiltölulega lítill eldur mun
hafa verið í vélarrúminu, en
hann borist hratt um efri hluta
skipsins þar sem eldurinn varð
hvað mestur.
Rannsókn málsins var í
höndum lögreglunnar á
ísafirði, en henni til aðstoðar
við vettvangsrannsókn komu
tveir rannsóknarlögreglumenn
frá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins og auk þeirra sérfræðingar
frá Siglingamálastofnun ríkis-
ins og rannsóknarnefnd sjó-
slysa til að rannsaka málið.
i
I