Morgunblaðið - 08.02.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 3
Næsta sunnudag
verða kaflaskipti
íferðasögu Islendinga
Plúsferðir ehf. er ný ferðaskrifstofa.
Plúsferðir byggja starfsemi sína á fyrirkomulagi sem óþekkt er hér
á landi en vel þekkt og afar vinsœlt í öðrum löndum.
Lykilorð þessa fyrirkomulags eru: Einföldun og sparnaður.
Markmið fyrirkomulagsins hjá Plúsferðum er eitt:
ÓDÝRARIFERÐIR FYRIR ÍSLENDINGA.
Markmiðunum hyggjast Plúsferðir ná m.a. með eftirtöldum aðferðum:
1. Ný tækni
Með nýjum og sérhæfðum tölvubúnaði Plúsferða sparast mikil vinna og
fjármunir. Þessir fjármunir munu skila sér beint í lægri ferðakostnaði til
viðskiptavina. Við verðum m.a. á Intemetinu og þar geta allir fengið
upplýsingar og gengið frá bókunum sínum. Netfangið er: plusf@skima.is
2. Hraðari afgreiðsla
I nýju skrifstofunni okkar að Faxafeni 5 verða engir djúpir stólar. Við
munum afgreiða viðskiptavini okkar með öryggi, hraða og jákvæðu
viðmóti en við munum ekki hjala alltof lengi við þá!
Við viljum frekar bjóða lægra verð.
3. Einfaldari þjónusta
Hjá Plúsferðum spömm við einnig með því að bjóða viðskiptavininum
sjálfum að annast hluta af vinnunni, svo sem eins og að fylla út eyðublað
vegna bókunar. Við teljum að flestir séu tilbúnir að spara sér hluta af
fargjaldinu með þessu móti.
4. Einfaldara ferðaframboð, færri ferðamöguleikar
I stað þess að bjóða ótal áfangastaði og enn fleiri hótel eins og aðrar
ferðaskrifstofur, höldum við hjá Plúsferðurti okkur einungis við þá staði
sem við getum boðið á hagkvæmu verði. Hinum sleppum við.
Því bjóðum við takmarkað úrval ferða.
5. Færri fararstjórar
Fjölmargir íslenskir ferðalangar notfæra sér lítið þjónustu fararstjóra í
hópferðum þó þeir hafi greitt fyrir hana. Við ætlum að spara með því að
leyfa fólki að treysta örlítið meira á sjálft sig. Við verðum með trausta og
góða fararstjóra, en þeir verða mun færri og munu veita takmarkaðri
þjónustu en hjá öðrum ferðaskrifstofum.
6. Ódýrari gisting
Frændur okkar á Norðurlöndunum, og aðrir Evrópubúar, láta sér yfírleitt
nægja einfaldari gistingu en íslenskar ferðaskrifstofur hafa boðið upp á.
Islendingar eru þekktir fyrir að vera svolítið flottir á því. Við ætlum að
lækka verðið og bjóða ódýrari og látlausa gististaði, en samt góða og
snyrtilega.
7. Engir dýrir glansmyndabæklingar
Verulegur hluti rekstrarkostnaðar venjulegra ferðaskrifstofa felst í
auglýsingum og markaðsstarfi t.d. gerð dýrra litmyndabæklinga. Við
ætlum aðrar leiðir og gerum t.d. enga slíka bæklinga. Hjá okkur liggja
frammi einföld upplýsingablöð.
8. Hagstæðari innkaup
Þó Plúsferðir séu sjálfstæð, ný ferðaskrifstofa, þá hefur hún öfluga
bakhjarla. í þeirra krafti geta Plúsferðir gert hagstæða samninga á
ferðamarkaðinum, og tryggt viðskiptavinum einstök kjör.
9. Umfram allt fagleg þjónusta og öryggi
Þótt áhersla sé lögð á lágt verð þjónustunnar, er ekki slakað á kröfum um
fagmennsku og öryggi viðskiptavinanna á ferðum sínum erlendis.
Við tökum ekki áhættu á að fljúga með hvaða flugfélagi sem er.
Plúsferðir munu fljúga allt sitt leiguflug með glæsilegum farkostum
Flugleiða.
Niðurstaðan er sú að með þessum nýju aðferðum í rekstri ferðaskrifstofu
geta Plúsferðir einfaldlega boðið ódýrari ferðir en aðrar ferðaskrifstofur
- ódýrari ferðir en áður hafa verið í boði hér á Iandi.
Okkar fólk leggst í sólbað undir sömu sólinni, við sama hafið og fólkið
frá hinum ferðaskrifstofunum. Bara fyrir mun lægri upphæð.
Þetta er ekki innantómt auglýsingahjal, tölur munu tala.
Við færum sannanir fyrir máli okkar á næstu dögum.
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavíh. Sími: 568 2277 Fax: 568 2274