Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Heimildarmynd um afleiðingar kjarnorkutilrauna Frakka í Suður-Kyrrahafi
Paradísareyjan
Rairoa framleidd
afíslendingi
HELGI Felixsson við vinnu sína á Raroia.
FYRIRTÆKI Helga Felixsonar
kvikmyndagerðarmanns, IDE-
FILM í Stokkhólmi, hefur tekið
að sér að framleiða heimildar-
mynd um afleiðingar kjarn-
orkutilrauna Frakka á líf íbúa
á Raroia-eyju í Suður-Kyrra-
hafi, sem er á sama svæði og
Mururóa-eyjar. Helgi er stadd-
ur á Raroia-eyju við gerð mynd-
arinnar. Kvikmyndatakan tekur
um mánuð og verður væntan-
lega lokið í byrjun mars. Heim-
ildarmyndin er kostuð af nor-
rænum aðilum og er gert ráð
fyrir að kostnaðurinn nemi um
23 milljónum íslenskra króna.
Sveinn Magnússon, markaðs-
ráðgjafi Auglýsingastofunnar
ESSEMM, sem hefur verið í
samstarfi við IDE-FILM, segir
að hugmyndin af myndinni hafi
orðiðtilárið 1991.
„Helgi fékk hugmyndina eftir
að hann kynntist Bengt nokkr-
um Danielsson. Bengt er þekkt-
ur fyrir að hafa ásamt Thor
Hayerdal og fleirum siglt á svo-
kölluðum Kon-Tiki fleka frá
Suður-Ameríku til Pólynesíu á
101 degi árið 1947. Tveimur
árum eftir siglinguna sneru
Bengt og eiginkona hans Marie-
Thérése, blaðamaður og rithöf-
undur, aftur til Raroia-eyju. Nú
búa hjónin á Tahiti og starfa
við rannsóknir og kennslu í
pólynesískri sögu og menn-
ingu,“ segir Sveinn.
Hann segir að Bengt hafi
gert kvikmynd um Iífið á Raro-
ia-eyju í samvinnu við hinn
þekkta sænska leikstjóra,
Torgny Anderberg, árið 1961.
„Þegar Helgi kynntist Bengt
höfðu Bengt og Torgny skrifað
annað handrit að sex þátta
heimildarmynd um innrásir út-
lendinga í líf eyjaskeggja.
Fyrstur var Kólumbus og svo
komu kristniboðamir, heims-
styrjöldin og kjarnorkutilraunir
Frakka svo eitthvað sé nefnt.
Handritið hafði verið lagt á hill-
una og hefði trúlega ekki orðið
að kvikmynd ef Frakkar hefðu
ekki ákveðið að hefja kjarn-
orkutilraunir í Suður-Kyrrahafi
að nýju. Helgi ákvað að taka
að sér framleiðsluna og handrit-
ið var endurskrifað í eina heim-
ildarmynd um sögu eyjarinnar
síðustu 20 til 30 ár,“ segir
Sveinn.
„Stóra sólin“
Hann segir að heimildarkvik-
myndin „Paradísareyjan Raro-
ia“ byggist á endurminningum
sögumannsins Tetohu frá árinu
1947. „Tetohu er borinn og
barnfæddur á eyjunni og hefur
frá ýmsu að segja. Hann segir
t.a.m. frá því þegar talað var
um að fyrsta kjarnorkusprengj-
an eða „Stóra sólin“ myndi færa
eyjaskeggjum mikinn auð. Fjöl-
margir íbúar eyjarinnar fluttust
til Taítí til að njóta auðsins.
Hann lét hins vegar á sér standa
og fólkið bjó og býr enn í fá-
tækrahverfum borgarinnar. Nú
búa aðeins um 40 manns á Raro-
ia,“ segir hann og tekur fram
að heilmikið af gömlum kvik-
myndum og heimildum verði
notað í myndinni.
Helgi er nýfarinn til eyjanna
og verður viðstaddur tökur
fram í byijun mars. Aðrir í
hópnum eru leiksljórinn
Torgny Anderberg, finnskur
kvikmyndatökmaður og norsk-
ur hljóðmaður.
Norræni kvikmyndasjóður-
inn og ýmsir aðrir norrænir
aðilar styrkja gerð myndarinn-
ar. Hún hefur þegar fengið tölu-
verða athygli og hefur Helga
m.a. borist tilboð frá kanadísk-
um dreifingaraðila, Great
North, um heimsdreifingu.
Heimildarmyndin verður um 50
minútna löng og verður væntan-
lega frumsýnd næsta haust.
Útlitshönnun og kynning á
myndinni er í höndum ESSEM
í Reykjavík.
Félagsmálaráðherra um tilskipanir ESB um barnavinnu og vinnutíma
Verð ekki uppnæmur
þó Brussel reki á eftir
Munum ekki komast hjá að fullgilda tilskipanirnar
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra segir að á næstu vikum muni
skýrast hvernig staðið verði að fullgildingu tilskipana Evrópusambands-
ins um vinnu barna annars vegar og hámarksvinnutíma hins vegar.
Nefndir sem unnið hafa að tillögugerð í þessu máli hafi ekki lokið störf-
um, en ljóst sé að íslendingar muni ekki komast hjá að fullgilda þess-
ar tilskipanir vegna aðildar að Evrópska efnahagssvæðinu, þótt þær
samrýmist illa íslenskum veruleika.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Jóhannes Ivar
aftur á veiðar
LÍNUBÁTURINN Jóhannes
ívar frá Flateyri hélt aftur til
veiða í gær eftir viðgerðir á
smávægilegum skemmdum
sem urðu á honum þegar
hann fékk á sig hnút í fyrra-
dag og varð að halda til hafn-
ar. Sjórinn flæddi inn um
lúguna og yfir háseta sem
þar stóð með þeim afleiðing-
um að maðurinn féll og
vankaðist.
Tilskipanirnar kveða annars
vegar á um að meðalvinnutími
megi ekki vera lengri en 48 stund-
ir á viku nema með samþykki við-
komandi starfsmanns og í hinni
tilskipuninni er kveðið á um að
vinna barna á skólaskyldualdri sé
bönnuð nema í undantekningartil-
vikum.
Frestur fram á sumar
Páll sagðist ekkert hafa verið
að flýta sér í þessu máli og verði
ekki uppnæmur þó eitthvað sé
rekið á eftir því út í Brussel, eink-
um þegar um sé að ræða íslenska
sendimenn okkar sem gangi erinda
Evrópusambandsins í þessu máli.
Með því að taka sér góðan tíma
til að athuga þessi mál vilji hann
undirstrika að þessar tilskipanir
henti illa í því samfélagi sem hér
hafi þróast, þar sem vinna ungl-
inga sé eðlilegur þáttur í samfélag-
inu og gegni mikilvægu hlutverki
í uppeldi þeirra, auk þess sem þjóð-
félagshættir hér á landi séu með
þeim hætti að þeir kalli á skorpu-
vinnu um tíma í mörgum atvinnu-
greinum. Hins vegar sé kannski
ástæða til að taka á þessu þegar
máiið hafi verið tekið upp í viðræð-
um ráðherra. Hann ætli ekki að
leggja fram tillögur um að íslend-
ingar segi upp samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið til að
komast hjá samþykkt þessara til-
skipana. Við hljótum að taka af-
leiðingum samningsins.
Páll sagði að við hefðum frest
fram á sumar til að fullgilda aðra
tilskipunina og fram á haust til
að fullgilda hina. Aðspurður hvort
hann myndi sem félagsmálaráð-
herra beita sér fyrir nauðsynlegum
lagabreytingum til að fullgilda til-
skipanirnar, en lagabreytingar
varðandi fyrra tilfellið þurfa að
koma fram á vorþingi nú, sagðist
hann telja fullvíst að þetta endaði
þannig. „Hins vegar hef ég ekkert
verið að flýta mér í þessu máli og
vil gjarnan að menn viti hvað þetta
kostar og hvaða afleiðingar það
hefur,“ sagði Páll.
Hann sagði að sum þau atriði
sem breyta þyrfti væri hægt að
leysa með kjarasamningum, en í
öðrum tilvikum þyrfti lagabreyt-
ingar til. Æskilegast væri að gera
það sem hægt væri með breyting-
um kjarasamninga áður en kæmi
til kasta löggjafans. Það væri eðli-
legri og betri lausn. Til dæmis
fyndist honum að það leiddi af
sjálfu sér að eftir því sem vinnu-
tíminn styttist þyrftu menn að
hækka í kaupi til að bera það sem
þeir þyrftu úr býtum fyrir styttri
vinnutíma.
Aðilar vinnumarkaðarins eiga
fulltrúa í þeim nefndum sem fé-
lagsmálaráðherra skipaði til að
vinna tillögugerð vegna þessa.
Olía flæddi
úr tanki
SVARTOLÍUTANKUR í
Áburðarverksmiðjunni í Gufu-
nesi yfirfylltist með þeim afleið-
ingum að um 300 lítrar af svar-
tolíu flæddu út úr tanknum.
Samkvæmt upplýsingum frá
mengunardeild Reykjavíkur-
hafnar var það bilun í búnaði
sem olli slysinu. Fenginn var
dælubíll sem dældi upp olíunni
og starfsmenn Áburðarverk-
smiðjunnar unnu einnig að
hreinsun.
Þurftu að
skila stolnum
gaskútum
PILTAR, sem lögreglan hafði
afskipti af í fyrrinótt, urðu að
tína saman þýfi, sem þeir höfðu
kastað úr bíl sínum, og skila
því til réttra eigenda.
Lögreglan veitti bifreið pilt-
anna athygli í Grafarvogi
skömmu fyrir kl. 2 um nóttina.
Þegar piltarnir urðu varir við
lögregluna fóru þeir í ofboði að
losa sig við þýfi og köstuðu því
út um glugga bifreiðarinnar.
Meðal annars var um að ræða
gaskúta, sem piltarnir höfðu
stolið frá OLÍS við Gullinbrú.
Það voru heldur aumir þjóf-
ar, sem röltu til baka eftir veg-
inum í Iögreglufylgd, til að
safna kútunum saman á ný og
koma þeim aftur til OLÍS.
Skáru í sófa
og málverk
BROTIST var inn í íbúð við
Réttarholtsveg og uppgötvaðist
innbrotið á þriðjudagskvöld.
Þjófarnir létu greipar sópa og
unnu mikil skemmdarverk.
Svalahurð íbúðarinnar var
brotin upp og tóku þjófarnir
sjónvarp, myndbandstæki,
hljómtæki og fleira. Þá ristu
þeir í sundur áklæði á sófa-
setti, auk þess sem þijú mál-
verk voru skorin í sundur.
Datt af
snjóbretti
DRENGUR slasaðist þegar
hann féll af snjóbretti við Jað-
arsel undir kvöld á þriðjudag.
Við Jaðarsel eru skíðabrekk-
ur Breiðholtsbúa og flykktust
börn og unglingar þangað um
leið og snjó festi.
Drengurinn fékk högg á and-
litið við fallið og braut þijár
tennur. Hann var fluttur á
slysadeild, þar sem gert var að
meiðslum hans.
Tvöfaldur
fyrsti vinn-
ingur næst
í ÚTDRÆTTI í Víkingalottói í
gærkvöldi var enginn með allar
sex tölurnar réttar þannig að
fyrsti vinningur verður tvöfald-
ur næsta miðvikudag.
Fyrsti vinningur var kominn
í 54,4 milljónir í gær. Hann
bætist við pottinn í næstu viku.
Bónusvinningur á íslandi gekk
ekki heldur út en hann var rúm-
ar 1.740 þúsund krónur. Heild-
arupphæð vinninga á íslandi var
2,5 milljónir. Tveir voru með 5
tölur réttar og fékk hvor þeirra
120.220 krónur. 184 voru með
4 tölur réttar af 6 og komu 2.070
krónur í hlut hvers. 675 manns
fengu 240 krónur hver fyrir að
hafa 3 tölur réttar.