Morgunblaðið - 08.02.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fyrirhuguð sala hlutabréfa bæjarins í UA
Engin trygging að kaup-
endur verði úr heimabyggð
GERT er ráð fyrir að öll seljanleg
hlutabréf í eigu Framkvæmdasjóðs
Akureyrar, sem á hlutabréf bæjar-
ins í atvinnufyrirtækjum, verði seld
á þessu ári. Fjárhagsáætlun Fram-
kvæmdasjóðs var til síðari umræðu
á fundi bæjarstjómar á þriðjudag
og var hún samþykkt en þar sem
söluverðmæti seljanlegra hluta-
bréfa í eigu bæjarins liggur ekki
fyrir var miðað við skráð gengi
þeirra nú í byijun febrúar að því
er varðar hlutabréf sem skráð eru
á verðbréfaþingi, en söluverð ann-
arra er áætlað.
Á fundi bæjarráðs á fimmtudag
í síðustu viku var ekki rætt um
breytingar á fjárhagsáætlun Fram-
kvæmdasjóðs en áætlað hafði verið
að selja eignir á þessu ári fyrir um
215 milljónir króna. Þegar dagskrá
bæjarstjómarfundar var borin út
til bæjarfulltrúa á föstudagskvöld
hafði sú breyting verið gerð að
eignasala var áætluð 1.450 milljón-
ir króna. Innan bæjarstjómar er
ekki stór ágreiningur um að létta
þurfí skuldum af sjóðnum, en full-
trúum minnihluta í bæjarstjórn
þótti súrt í broti að svo afgerandi
breyting á fjárhagsáætlun sjóðsins
skyldi ekki kynnt á bæjarráðsfund-
inum á fímmtudag. „Með því hefði
mátt koma í veg fyrir vandræða-
gang á fundi bæjarstjórnar," eins
og Sigríður Stefánsdóttir orðaði
það á fundinum.
Hægt að ávaxta
peningana betur
Atvinnuleysi hefur verið mikið
á Akureyri á liðnum árum og
gjaldþrot iðnfyrirtækja í eigu
Sambandsins á Gleráreyrum á sín-
um tíma komu illa niður á bæjarfé-
laginu. í varnarbaráttu síðustu
ára hefur bærinn lagt mikið fé í
atvinnufyrirtæki og er það gert í
nafni Framkvæmdasjóðs. Skuldir
sjóðsins sem eru umtalsverðar
hafa lengi angrað bæjarfulltrúa
og á liðnum árum iðulega verið
til umræðu á fundum bæjarstjórn-
ar. Um síðustu áramót var pen-
ingaleg staða sjóðsins neikvæð um
ríflega hálfan milljarð króna, en
árið áður var hún neikvæð um 655
milljónir. Þá skuldaði bæjarsjóður
um 977 milljónir króna í lok síð-
asta árs.
Jakob Bjömsson bæjarstjóri
sagði á fundi bæjarstjómar þar
sem sala hlutabréfanna var kynnt
að mikil verðmæti væru bundin í
hlutabréfaeign bæjarins í atvinnu-
fyrirtækjum, en hægt væri að láta
þessa peninga ávaxta sig mun bet-
ur með því að selja eignimar og
að bærinn hætti atvinnurekstri og
láti aðra sjá um hann.
Meirihluti bæjarstjómar hefur
markað sér þá stefnu að selja þær
'ÞREKST/GAR
TIL ATVINNUNOTA
Líkamsræktarstöövar
íþróttahús
Iþróttafélög
Skip
Hótelogfl.
Glómus hf. 462 3225
Framkvæmdasjóður Akureyrar-
bæjar á eignarhlut í 12 fyrirtækjum
Nafnverð hlutabréfa sjóðsins um 490 milljónir króna
FRAMKVÆMDASJÓÐUR Akureyrarbæjar á eignarhlut í 12 fyrir-
tækjum. Um síðustu áramót var nafnverð hlutabréfanna um 490 milljónir
króna. Framkvæmdasjóður á hlut í eftirtöldum fyrirtækjum:
1. Útgerðarfélag Akureyringa hf. kr. 409.187.795 83,49%
2. Foldahf. 25.000.000 5,10%
3. Laxá hf. 21.187.900 4,32%
4. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. 15.646.000 3,19%
5. Fiskeldi Eyjafjarðar hf. 10.071.065 2,05%
6. Úrvinnslan hf. 3.600.000 0,73%
7. Bifreiðastöð Norðurlands hf. 2.500.000 0,51%
8. Kaupþing Norðurlands hf. 1.241.811 0,25%
9. Hlutabréfasjóður Norðurlands hf. 1.000.000 0,20%
10. Slippstöðin Oddi hf. 428.624 0,09%
11. Omak hf. 200.000 0,04%
12. Kísiliðjan hf. 35.000 0,01%
Framkvæmdasjóður afskrifaði hlutafé í Foldu hf. á síðasta ári upp á kr.
37.000.000.- en keypti aftur hlutabréf fyrir kr. 25.000.000.-. Þá afskrifaði
sjóðurinn hlutafé í Lindu hf. upp á kr. 1.000.000.-. Á síðasta ári átti
Framkvæmdasjóður hlutabréf í Úrvinnslunni að andvirði kr. 4.000.000.-.
Hlutafé sjóðsins í fyrirtækinu var skrifað niður um kr. 2.000.000.- og síðan
keypt aftur hlutabréf fyrir kr. 1.600.000.-.
eignir sjóðsins sem seljanlegar eru
og er þegar farið að vinna eftir
þeirri stefnumörkun. Hagnað af
eignasölunni á fyrst og fremst að
nota til að greiða niður skuldir
framkvæmdasjóðs og bæjarsjóðs
en þess jafnframt vænst að svig-
rúm skapist til aukinna fram-
kvæmda í kjölfarið.
Hlutabréf í tveimur
félögum seld
Hlutabréf framkvæmdasjóðs í
tveimur fyrirtækjum voru seld á
liðnu ári, í Krossanesi og Skinna-
iðnaði. Á seinni hluta síðasta árs
var 80% hlutur bæjarins í loðnu-
verksmiðjunni Krossanesi seldur á
150 milljónir króna og þá léttu
kaupendur af ábyrgðum sem Akur-
eyrarbær var í vegna verksmiðj-
unnar að upphæð um 280 milljónir
króna. Nafnverð hlutabréfa í
Krossanesi var 110 milljónir króna.
Þá hafa hlutabréf Akureyrarbæjar
í Skinnaiðnaði, sem voru að nafn-
verði 21,2 milljónir króna, verið
seld og fengust fyrir þau 63,7
milljónir króna.
Þá hefur bæjarstjóra verið veitt
heimild til að selja hlutabréf Akur-
eyrarbæjar í Slippstöðinni-Odda en
tilboð bárust í bréfin, sem eru að
upphæð tæplega 430 þúsund krón-
ur á genginu 1. Tvö tilboð hafa
borist í hlut bæjarins í fóðurverk-
smiðjunni Laxá, en bærinn á tæp-
lega 21,2 milljónir króna að nafn-
virði í fyrirtækinu.
Jakob Bjömsson bæjarstjóri hef-
ur lýst þeirri skoðun sinni að bak-
hjarlar Útgerðarfélags Akur-
eyringa verði úr heimabyggð, en
fram kom í máli nokkurra bæjar-
fulltrúa að engin leið sé að tryggja
að meirihluti félagsins yrði í hönd-
um heimamanna eftir að bærinn
hefði selt sinn hlut. Guðmundur
Stefánsson, Framsóknarflokki,
sagði í því sambandi óþarfa að
mála skrattann á vegginn, menn
þyrftu ekki að vera hræddir um
að fyrirtækið yrði flutt úr bænum,
„ef fyrirtækið eins og það stendur
tryggir ekki sjálft að það verði
áfram í bænum er eitthvað að,“
sagði hann.
Eignaraðild bæjarins hamlandi
á vöxt og viðgang
Guðmundur velti því upp að
Akureyrarbær væri kannski ekki
sérstaklega góður eigandi að Út-
gerðarfélagi Akureyringa og það
væri almennt álit í atvinnulífínu
að eignaraðild bæjarins virkaði
frekar hamlandi fyrir vöx og við-
gang félagsins. Dæmin sönnuðu
að það hefði ekki skaðað fyrirtæki
að fara út úr rekstrarformi bæjar-
útgerðar, frekar væri að slík fyrir-
tæki hefðu dafnað.
Þórarinn E. Sveinsson, bæjarfull-
trúi Framsóknarflokks, sagði að
með því að stefna að sölu hlutabréf-
anna væri verið að búa til svigrúm
til að taka þátt í öðrum atvinnu-
rekstri. Hann sagði ómögulegt að
vita fyrr en eftir á hvort bréfín
hefðu verið seld á réttum tíma-
punkti, en það væri tímaskekkja
að bærinn standi að reksti ÚA.
Misvitrir
stjórnarmenn
Þórarinn B. Jónsson, Sjálf-
stæðisflokki, tók í sama streng og
Guðmundur og taldi bæinn ekki
heppilegasta eiganda ÚA. „Það
eina sem við erum að gera fyrir
þetta fyrirtæki er að leggja því til
misvirta stjórnarmenn og jafnvel
stjórnendur,“ sagði hann og bætti
við, „það er liðin tíð að verið sé
að hampa gömlum bæjarfulltrúum
með því að setja þá í stjórn fyrir-
tækja."
Morgunblaðið/Kristján
GÍSLI Bragi og Þórarinn B. Jónsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks,
ræddu um golfsveiflur í fundarhléi sem gefið var á bæjarsljórn-
arfundi meðan fulltrúar komu sér saman um bókun vegna fyrir-
hugaðrar eignasölu Akureyrarbæjar.
Fékk undanþágu frá
hægrihandaruppréttingu
Vörumiðar hf
* ÞAR SEM LÍMMIÐARNIR FÁST *
Óskum eftir starfskrafti
vanan vinnu í prentsmiðju.
Sfmi 461-2909 - Fax 461-2908.
Við Hvannavelli, 600 Akureyri.
GISLI Bragi Hjartarson bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokks fór fram
á undanþágu frá 29. grein í
Samþykkt um stjórn Akureyrar
og fundarsköp bæjarsljórnar
frá árinu 1988 þar sem segir
að atkvæðagreiðsla á bæjar-
stjórnarfundi fari að jafnaði
fram með handaruppréttingu,
forseti biðji þá bæjarfulltrúa
sem samþykkja mál að rétta upp
hægri hönd sína, leiti að því
búnu mótatkvæða með sama
hætti o g skýri loks frá úrslitum
atkvæðagreiðslunnar.
Ástæða þess að Gísli Bragi
fékk undanþáguna er sú að
hann handleggsbrotnaði illa um
helgina þegar hann var að elt-
ast við sonarson sinn, Andra
Grétar, son Alfreðs Gíslasonar
þjálfara KA. Afi var úti með
strákinn þegar hann tók skyndi-
lega á rás og stefndi fram af
klettasyllu, en bæjarfulltrúinn
náði taki á drengnum á síðustu
stundu og bjargaði honum frá
að falla fram af. Sjálfur féll
hann við og skellti hægri hönd-
inni niður á svellbunka og braut
bein rétt neðan við olnboga.
Skrifar ekki undir
nein stórmál
„Þetta kostar það að maður
getur ekki skrifaði undir nein
stórmál næstu fimm vikur,“
sagði Gísli Bragi, en sala á
hlutabréfum bæjarins, m.a. í
Útgerðarfélagi Akureyringa
var til umfjöllunar á bæjar-
stjórnarfundinum. Gísli Bragi
og flokksfélagar hans hafa
fram til þessa verið þeirrar
skoðunar að bærinn ætti að eiga
hlut sinn í ÚA.
Leikfélag Akureyrar
Æfingar
hafnar á
„Nönnu
systur“
ÆFINGAR eru að hefjast hjá
Leikfélagi Akureyrar á nýju
íslensku leikriti eftir Einar
Kárason og Kjartan Ragnars-
son. Leikritið er samið sérstak-
lega fyrir LA en það heitir
„Nanna systir".
Höfundarnir kalla verk sitt
óbeislað raunsæisverk en í því
segir frá óvæntum aðstæðum
sem upp koma í sjávarplássi
úti á landi þar sem leikfélagið
er að setja upp nýtískulega
leikgerð af Fjalla-Eyvindi Jó-
hanns Siguijónssonar. Óvenju-
leg tengsl milli aðalpersón-
anna í leikriti Einar og Kjart-
ans gera það að verkum að
upp koma margslungnar flétt-
ur sem virka mjög spaugileg-
ar, en leikritið er þó ekki án
alvarlegs undirtóns.
Andrés Sigurvinsson leik-
stýrir uppfærslunni á „Nönnu
systur“ og Úlfur Karlsson ger-
ir leikmynd. Ingvar Björnsson
hannar lýsingu í sýningunni
og allir fastráðnir leikarar LA
fara með hlutverk í þessari
lokauppfærslu leikársins, þau
Aðalsteinn Bergdal, Guð-
mundur Haraldsson, Rósa
Guðný Þórsdóttir, Skúli
Gautason, Sunna Borg og
Valdimar Flygenring. Auk
þeirra munu þær Guðbjörg
Thoroddsen og Harpa Arnar-
dóttir fara með stór hlutverk
í sýningunni sem og Drífa
Arnþórsdóttir, sem nú fer með
sitt fyrsta hlutverk i atvinnu-
leikhúsi. Hún lauk námi frá
leiklistarskóla í Lundúnum síð-
asta vor. Áður hefur hún stig-
ið á fjalir Samkomuhússins en
hún var formaður Leikfélags
Menntaskólans á Akureyri og
fór þá með hlutverk í sýning-
um MA-inga.
Horft yfir
landið
af Bárð-
arbungn
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
FIMM menn á tveimur fjalla-
bílum fóru héðan úr Mývatns-
sveit suður á Vatnajökul á
miðvikudag í síðustu viku.
Lagt var af stað um hádegi
og ekið sem leið liggur suður
á milli Bláfjalls og Sellanda-
fjalls, síðan áfram um Dyngju-
fjalladal, og komið í skálann í
Kistufelli um kvöldið og gist
þar um nóttina.
Morguninn 1. febrúar var
ekið upp á Bárðarbungu og
horft þaðan vítt og breitt um
landið. Þegar komið var niður
af jöklinum aftur var ekið vest-
ur yfir Skjálfandafljót á ís, síð-
an áfram norður í Bárðardal
og yfir brúna hjá Stóru-Völl-
um. Komið var heim um kvöld-
ið eftir vel heppnaða ferð.
Færi og veður var gott mið-
að við árstíma. Rómuðu ferða-
langarnir mjög víðsýni og feg-
urð hálendisins, ekki síst af
Bárðarbungu. Þátttakendur í
þessari ferð voru Leifur Hall-
grímsson, Jón Reynir Sigur-
jónsson, Þórhallur Guðmunds-
son, Þorlákur Páll Jónsson og
Karl Emil Sveinsson.