Morgunblaðið - 08.02.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 15
Vemdunarkrem
sem á að þola end-
urtekinn handþvott
NÝKOMIN er á markað froða sem
heitir Proderm. Hún á að vernda
húðina fyrir vatnsleysanlegum efn-
um og einnig fyrir efnum sem ekki
leysast upp í vatni.
„Við líkamshita umbreytast efnin
í Proderm í kristalkennd efni“, seg-
ir Anna Björg Hjartardóttir, eigandi
Celsus sem flytur Proderm til lands-
ins. „Efnablandan Proderm er gerð
úr risastórum lífrænum frumeind-
um sem gerir að verkum að það
festist í hornhimnu húðarinnar. Þar
myndar efnablandan tvöfalda raka-
fyllta óleysanlega himnu sem starf-
ar þar eins og frumuveggur sem
gerir húðinni k'.aift að anda um leið
og aðgangur skaðlegra efna er
hindraður að húðinni.“
Að sögn Önnu vara áhrifin í 4-6
klukkustundir og endurtekinn
handþvottur með sótthreinsi eða
sápuefnum dregur ekki úr virkni
efnablöndunnar. Anna segir að
Proderm myndi enga fitukennda
filmuáferð á yfirborði húðarinnar
og smiti því ekki út frá sér, til
dæmis í matvæli, pappír og filmur.
Vörn gegn húðertandi efnum
Froðan sem er sænsk framleiðsla
hefur verið prófuð og viðurkennd
af 25 ieiðandi húðlækningastofnun-
um í Evrópu. „Efnablandan var
fundin upp í bytjun sjöunda áratug-
arins en ekki hefur verið unnt að
markaðssetja hana fyrr en nýlega
vegna umfangsmikilla rannsókna
og strangra krafa frá lyfjaeftirliti,"
segir Anna.
Barnfóstru-
námskeið
Rauða
krossins
Á vormánuðum heíjast hjá
Rauða krossi íslands námskeið
fyrir verðandi barnfóstrur á
aldrinum 11-14 ára. Fjallað
er m.a. um æskilega eiginleika
barnfóstru, þroska barna, val
á leikföngum, mikilvægi fæðu-
tegunda, mataræði, umönnun
ungbarna, pelagjöf, veik börn,
slys í heimahúsum og rétt við-
brögð við þeim. Námskeiðið
er í umsjá leikskólakennara
og hjúkrunarfræðings. Það
stendur yfir 4 kvöld og er
bæði fyrir stráka og stelpur.
í lok námskeiðs fá allir þátt-
tökuviðurkenningu, en á sl. ári
gaf RKÍ út um 400 slíkar við-
urkenningar. Námskeiðin eru
haldin í mars, apríl, maí og
júní af deildum RKÍ um land
allt.
Proderm froðan er sögð veita
vörn gegn öllum húðertandi efnum
á PH bilinu 1-12 þar á meðal sýr-
um, alkali, málningu, gúmmíi,
prentsvertu og hreinsiefnum. Þá
verndar froðan einnig húðina gegn
vatni, þvagi, matvælum og svo
framvegis. Auk þessa er talað um
að froðan eigi að veita vörn gegn
bakteríum.
Að sögn Önnu kemur froðan sér
vel fyrir þá sem þjást af sprungum
á höndum, frostskaða á andliti, lík-
ama og höndum, smásárum, þurrki
af völdum kulda eða efnasambanda,
kláða, sviða, snertiexem og útbrot.
Þá á froðan að henta þeim sem eru
með nikkel eða krómofnæmi svo
og á brunasár.
Anna segir að Proderm sé notað
á heilsugæslustöðvum og sjúkra-
húsum í Skandinavíu, í matvælaiðn-
aði, landbúnaði, við fiskvinnslu og
á fiskiskipum og sé öflug vörn á
heimilum gegn ertingu af völdum
hreinsiefna og annarra ofnæmis-
valda. Þá segir hún að efnið hafi
reynst mjög vel á lítil börn sem
hafa bleiuofnæmi og útbrot. Hér á
Islandi segir Anna ýmsa aðila vera
að skoða efnið, jafnt aðila í heil-
brigðisgeiranum sem og í at-
vinnulífinu. „Mótttökur eru jákvæð-
ar og efnið er til dæmis komið í
smásölu í flestar lyijaverslanir
ásamt Slippfélaginu og málningar-
verslunni Hörpu,“ segir hún.
Proderm froðan er seld í 160
ml brúsum og eru að sögn Önnu
180 skammtar í brúsa.
Nýtt sjávar-
réttakrydd
HAGKAUP hefur nú hafið sölu
á Old Bay-kryddi. Kryddið þykir
henta fisk- og sjávarréttum afar
vel og er eitt mest selda sjávar-
réttakryddið í heiminum, segir í
frétt frá umboðsaðila kryddsins,
Sláturfélagi Suðurlands svf.
Framleiðandi kryddsins er
McCormick. Kryddið er til sölu
í matvöruverslun Hagkaups í
Kringlunni.
VERIÐ
Loðnu-
frysting á
Seyðisfirði
LOÐNUFRYSTING er nú komin
í fullan gang á Seyðisfirði. Hrá-
efnisöflun í frystinguna hefur
verið nokkuð slitrótt fyrstu dag-
ana en þrátt fyrir það hefur
frysting verið nánast samfelld
frá því hún hófst.
Á Seyðisfirði er fryst loðna hjá
þremur fyrtækjum. Strandarsíld,
Fiskiðjunni Dvergasteini og
SUA. Hjá Strandarsíld verða um
50 manns á tveimur vöktum og
eru þar fryst um 60 tonn á sólar-
hring. Hjá Fiskiðjunni Dverga-
steini starfa um 50 manns við
loðnufrystinguna og er frystiget-
an þar um 70 tonn á sólarhring.
Hjá SUA starfa um 30 manns við
frystinguna og eru þar fryst um
70 tonn á sólarhring. Hráefnið í
frystihúsin kemur að langmestu
leyti úr flokkunarstöð SR-Mjöls
á staðnum. Loðnufrystingin
skapar mörg störf og er langur
vegur frá því að bæjarbúar geti
mannað þau öll.
20 þúsund tonnum landað á
Eskifirði
„Loðnuveiðarnar hafa gengið
vel eftir að þær byrjuðu," sagði
Haukur Björnsson, rekstrarstjóri
Hraðfrystihúss Eskifjarðar. „Það
hefur verið landað hjá okkur um
20 þúsund tonnum. Það er ágæt-
is gangur í veiðunum núna.
Hrognafyllingin er um 12% í
dag, en loðnan er full af átu og
ekki er hægt að frysta hana. Við
erum þó búnir að frysta 900 tonn
Morgunblaðið/Sigurgeir
LOÐNUFRYSTING hófst í Vinnslustöðinni í Eyjum um síðustu
helgi og var þá oft handagangur í öskjunni eins og sjá má.
Morgunblaðið/Pét'ur Kristjánsson
STARFSMENN Strandarsíld-
ar á Seyðifirði í óða önn við
að pakka loðnu til frystingar.
fyrir Rússland og Taiwan fyrir
þennan dag.“
Hann segir að það ætti að vera
hægt að hefja frystingu á Japans-
markað um helgina, ef loðnan
verður orðin átulaus. „Sölusamn-
ingar gera ráð fyrir að hrogna-
fyllingin verði 15%, en það verð-
ur ef til vill hægt að byrja eitt-
hvað fyrr.“
Um hádegisbilið í gær landaði
Jón Kjartansson 1.100 tonnum
og Guðrún Þorkelsdóttir landaði
um 700 tonnum seinnipartinn.
Búist var við að Hólmaborgin
landaði 1600 tonnum núna í
morgun.
Ekkert hefur verið fryst af
loðnu hjá Vinnslustöð Vest-
mannaeyja síðan um síðustu
helgi þegar að Kap VE og Sig-
hvatur Bjarnason VE komu með
loðnu að landi. Að sögn Inga
Júlíussonar, verksljóra hjá
Vinnslustöðinni, eru skip þeirra
útbúin fremur grunnum nótum
og því ekki fengið mikinn afla
undanfarna daga en sagðist
reikna með að veiði glæðist þeg-
ar að nær líði helginni.
NÝJA loðnuvinnslukerfið, sem sett hefur verið upp í Granda fækkar, störfum um
tíu og sparar umframvigt.
Nýtt loðnuvinnslu-
kerfi í Granda hf.
LANDSSMIÐJAN í samstarfi við
Samey hf. hefur sett upp loðnu-
vinnslukerfi fyrir Granda hf. Norð-
urgarði. Kerfið er hannað af Lands-
smiðjunni og byggir á Hraðpökkun-
arkerfi SL-2.
Loðnuvinnslukerfið hjá Granda hf.
afkastar 15 tfl 20 tonnum af pakk-
aðri loðnu á klukkustund. „Við pökk-
un vinna níu starfsmenn í stað nítján
við fyrri vinnsluaðferð og sparast því
tíu störf sem verður að teljast um-
talsverð framleiðniaukning,“ segir
Birgir Bjamason, framkvæmdastjóri
Landssmiðjunnar.
Meiri nákvæmni í vigtun
„Einnig er mun meiri nákvæmni
í vigtun og þar með sparnaður í
umframvigt. Hluti af kerfinu er úrt-
ínslubönd fyrir allt að þrjátíu starfs-
menn sem gera Granda kleift að
uppfylla óskir kaupenda um hrein-
leika flokkunar og tryggja þannig
hæsta afurðaverð hvemig sem lönd-
uð loðna flokkast."
Birgir segir að í vinnslukerfinu sé
samtengdur stjórnbúnaður allra
vinnslurása frá flokkun að pökkun
og séu afköst þannig hámörkuð á
meðan vinnsla standi yfir. Fjárfest-
ingarkostnaður Granda hf. vegna
vinnslubúnaðarins hafi numið 10
milljónum.
„Hraðpökkunarkerfi SL-2 var
hannað af Samey og Landssmiðjunni
í samvinnu við Borgey hf. á Höfn,“
segir Birgir. „í upphafi kviknaði
hugmyndin þegar rætt var hvernig
mæta ætti fyrirsjáanlegri þróun
umbúða frá hefðbundinni plastfilmu
í kartonöskju til plastpoka beint í
frystipönnu."
Samhliða lausn umbúðabreyting-
anna nefnir Birgir nokkur atriði sem
skilgreind voru fyrir hönnun SL-2
hraðpökkunarkerfisins: „Að ná fram
við frystingu loðnu, síldar og makr-
íls sem mestum vinnsluhraða án þess
að skerða nákvæmni vigtunar. Halda
í lágmarki samtímis því starfs-
mannafjölda og því húsnæði sem
þarf til vinnslunnar."
Landssmiðjan og Samey hafa af-
greitt tólf Hraðpökkunarkerfi SL-2
fyrir síld og loðnu á undanförnum
mánuðum, m.a. til Kaupfélags Hér-
aðsbúa Reyðarfirði, SÚA Seyðis-
firði, Borgeyjar hf., Isfélags Vest-
mannaeyja, Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar og Granda hf. Kerfið hefur
verið kynnt í Noregi og Skotlandi
og er vonast til að það skili sér i
viðskiptum á næstu síldar- og makr-
ílvertíð.