Morgunblaðið - 08.02.1996, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
KAMMERSYEIT Reykjavíkur.
Meistarar
tuttugustu aldar
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
30 milljónir til að styrkja
menningar starfsemi
Morgunblaðið/Sverrir
GUÐRÚN Jónsdóttir, formaður Menningarmálanefndar Reykja-
víkur, á blaðamannafundinum í gær, þar sem fyrirkomulag á
styrkveitingum nefndarinnar fyrir árið 1996 var kynnt.
Á TÓNLEIKUM í Listasafni íslands
næstkomandi mánudagskvöld, 12.
febrúar, kl. 20.30 teflir Kammer-
sveitin saman nokkrum af meistur-
um 20. aldarinnar. „Verk þessara
meistara heyrast ekki oft hér á landi
og munu sum verkin ekki hafa
heyrst hér fyrr. Þessi tónskáld hafa
öll nú þegar markað sín spor í tón-
listarsöguna og teljast nokkur þess-
ara verka tímamótaverk. Með þess-
um heimsfægu nöfnum setjum við
okkar meistara þessa tíma, Jón
Leifs,“ segir í kynningu.
Á efnisskránni eru eftirtalin verk.
A. Webern: Konsert op. 24 (1934),
E. Varése: Octandre (1923), Jón
Leifs: Kvintett op. 50 (1960), L.
Berio: Serenata I (1957) og G.
Crumb: Madrigalar I-IV (1965-
1969).
Einleikari í verki Berios er Martian
Nardeau flautuleikari, Marta G. Hall-
dórsdóttir syngur einsöng í Madrigöl-
um Crumbs og stjómandi á tónleik-
unum er Bemharður Wilkinson.
í NÝSAMÞYKKTRI fjárhagsáætlun
fyrir Reykjavíkurborg er gert ráð
fyrir að Menningarmálanefnd
Reykjavíkur fái 30 milljóna króna
fjárveitingu til að styrkja menningar-
starfsemi í borginni. Er þetta sama
upphæð og nefndin hafði úr að moða
á liðnu ári.
Nýlega auglýsti Menningarmála-
nefnd eftir umsóknum um styrki til
menningarstarfsemi, það er styrki
til listamanna, hópa og stofnana
vegna liststarfsemi eða einstakra
verkefna. Umsóknarfrestur er til 1.
mars næstkomandi og ber umsækj-
endum að gera grein fyrir tilefni
umsóknar og fjármögnun til viðbótar
umsóttum styrk.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
Reykjavíkurborg 1995 var í fyrsta
sinn gert ráð fyrir að styrkbeiönir
sem flokkaðar yrðu eftir málaflokk-
um væru afgreiddar beint frá þeirri
nefnd sem fjallaði um viðkomandi
málaflokk. Þannig voru allar styrk-
umsóknir sem snertu menningarmál
sendar beint til Menningarmála-
nefndar sem fjallaði um þær og sendi
tillögur sínar um úthlutun til borgar-
ráðs til samþykktar. Áður hafði ýmist
verið leitað eftir umsögn nefndarinn-
ar um styrkbeiðnir eða þær verið
afgreiddar beint frá borgarráði eða
hvort tveggja.
Styrkir voru veittir þrisvar á síð-
astliðnu ári að undangengnum aug-
lýsingum. Alls bárust 203 umsóknir
frá 162 aðilum en veittir voru 90
styrkir til 82 aðila.
Guðrún Jónsdóttir formaður
Menningarmálanefndar Reykjavíkur
sagði á blaðamannafundi í gær að
litið hefði verið á árið 1995 sem
hálfgert tilraunaár í þessu tilliti og
fyrirkomulagið hefði þótt gefast vel.
„Það er vissulega alltaf hægt að
færa til en við teljum okkur hafa
fundið fyrirkomulag sem geti gengið
til frambúðar."
Auglýst tvisvar
I ár verður fyrirkomulag með
sama sniði og í fyrra nema ákveðið
var að auglýsa eftir styrkumsóknum
tvisvar, í febrúar annars vegar og
september eða október hins vegar.
„Það gafst ekki nógu vel að auglýsa
í þrígang," sagði Guðrún og bætti
við að í ár yrði gengið meira eftir
því að kanna hvernig styrkir hefðu
komið að gagni.
Formaðurinn sagði að engar fastar
reglur væru um úthlutun til hinna
ýmsu listgreina. „Styrkjum er úthlut-
að þar sem þörfín er fyrir hendi.“ Á
liðnu ári var hæstri upphæð, liðlega
12 milljónum króna, varið til tónlist-
armála. Rösklega 6 milljónir runnu
til leiklistar og annað eins til mynd-
listar. Þá komu tæpar 5 milljónir í
hlut bókmennta og annarra greina.
Samkvæmt reglum borgarinnar
um afgreiðslu styrkumsókna má út-
hluta allt að 2/3-3/4 af fjárveitingu
nefndarinnar strax í kjölfar sam-
þykktar fjárhagsáætlunar borgar-
innar en þriðjungur til fjórðungur
heildarframlags skal notaður til að
mæta úthlutun styrkja að hausti.
Ennfremur mun Menningarmála-
nefnd Reykjavíkur halda uppteknum
hætti og auglýsa styrk til starf-
rækslu strengjakvartetts hjá Reykja-
víkurborg í aprílmánuði og starfslaun
listamanna eigi síðar en 15. maí. Þá
verður borgarlistamaður valinn og
kynntur 17. júní.
VERK Oliviers Debré.
Olivier Debré gefur Lista-
safni Reykjavíkur gjöf
Söngleikurinn
Grettir
Tilhleyp-
ingar
SÝNING á lokaverkefnum nýút-
skrifaðra arkitekta verður opnuð
laugardaginn 10. febrúar í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu á
2. hæð í vesturenda byggingarinn-
ar.
Arkitektarnir sem sýna eru:
Arnór Skúlason, Ásdís Ingþórs-
dóttir, Ásmundur Hrafn Sturlu-
son, Gunnar Stefánsson, Gunn-
laugur Ó. Johnson, Hrafnhildur
Jónsdóttir, Hrefna Björg Þor-
steinsdóttir og Jóhann Stefánsson.
Sýningin er opin frá 11.-25.
febrúar alla daga frá kl. 14-18 og
lýkur 25. febrúar. Sýningin er öll-
um opin og er aðgangur ókeypis.
SÝNING Oliviers Debré á Kjar-
valsstöðum sem opnuð var 13.
janúar síðastliðinn hefur fengið
góðar viðtökur og fjöldi gesta
hefur sótt sýninguna heim. Sýn-
ingin kemur frá Jeu de Paume
listasafninu í París og er styrkt
af AFAA (Stofnun fyrir franska
myndlist erlendis).
Olivier Debré fæddist í París
árið 1920, þar sem hann hefur
verið búsettur siðan og unnið að
list sinni.
Olivier Debré kom sjálfur til
landsins i tilefni af sýningunni
og dvaldi hér í nokkra daga.
„Hann hreifst af fegurð iandsins
og notaði meðal annars tímann
til þess að mála úti í náttúrunni.
Gjöf hans til Listasafns Reykja-
víkur samanstendur af einu mál-
verki og tveimur litógrafíum.
Málverkið er eitt þeirra verka
sem hann vann hér á meðan dvöl
hans stóð. Koma hans hingað til
lands og þessi höfðinglega gjöf
er mikill heiður fyrir Listasafn
Reykjavíkur og góð viðbót við
hið alþjóðlega samhengi safns-
ins,“ segir í kynningu.
LEIKLISTARKLÚBBUR NFFA
frumsýnir söngleikinn Gretti eftir
Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin
Eldjárn og Egil Ólafsson í sal
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi laugardaginn 10. febr-
úar næstkomandi.
Söngleikurinn Grettir var fyrst
frumsýndur af Leikfélagi Reykja-
víkur í Austurbæjarbiói árið 1980
og naut vinsælda. Síðan þá hafa
þó nokkur áhugafélög „glímt“ við
Gretti.
„Söngleikurinn fjallar um
Gretti Ásmundsson sem er u.þ.b.
16 ára unglingur í vafasömum
félagsskap og býr í Breiðholti.
Grettir lendir vegna ýmissa at-
burða upp á kant við skólann og
lögin og lendir í fangelsi. Þar er
hann „uppgötvaður" og verður
stórstjarna. En eins og með nafna
hans í Grettissögu hinni fornu,
þá verður ekki sagt um hann að
gæfan elti hann,“ segir í kynn-
ingu.
Leikstjóri er Jakob Þór Einars-
son og aðalleikarar eru Einar
Karl Birgisson, Snæbjörn Sigurð-
arson, Hulda Björg Sigurðardótt-
ir, Rúnar Magni Jónsson, Val-
gerður Jónsdóttir og Kristín. Stef-
ánsdóttir. Söngstjóri er Flosi Ein-
arsson.
Allar sýningar hefjast kl.
20.30.
LEIKLISTARKLÚBBUR NFFA frumsýnir söngleikinn Gretti í sal
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á laugardag.