Morgunblaðið - 08.02.1996, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
*(o)M
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár i
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 567 7878 - fax 567 7022
tJOCKEY
Jockey THERMAL nærfötin eru úr
tvöföldu efni. Innri hluti efnisins er til
helminga úr polyester og viscose en
ytri hlutinn er úr hreinni búmull. Þetta
tryggir THERMAL nærfötunum einstaka
einangrun og öndun.
IfflMilllilBKI
Söluaðilar:
Andrés Skólavörðustíg
Ellingsen Ánanaustum
Maxhésið Skeifunni
Fjarðarkaup Hafnarfirði
Kaupf. Suðurnesja Miðvangi Hafnarfirði
Vöruland Akranesi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Apótek Ólafsvíkur
Kaupf. Vestur-Húnvetninga Hvammstanga
Versl. Haraldar Júlíussonar Sauðárkróki
Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum
Viðar Sigurbjörnsson Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Höfn
Kaupfélag Rangxinga Hvolsvelli
Grund Fjúðum
Vöruhús K Á Selfossi
Paléma Grindavík
Heildsölubirgðir:
Oavíð S. Jónsson & Co. hf. sími 552 4333
GÆÐAfljSARÁGÓöUVERÐÍ
má
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sínii 567 4844
FJÖLMIÐLUN
Hundrað ljósmyndarar úr öllum heimshornum önnum kafnir
Sólarhringnr í netheimi
Kodak og Japanar kynna
umbyltingu í ljósmyndun
BÓKAFLOKKURINN A Day in the
Life er mörgum kunnur, en í honum
er reynt að gefa mynd af landi eða
landshluta með miklu myndefni og
texta. Aðstandendur bókafiokksins
hafa smám saman fært sig inn á
rafrænt svið, meðal annars gefið út
tvo magmiðlunardiska, og í dag fer
fram söfnun mynda í verkefnið 24
Hours in Cyberspace, eða Sólarhring-
ur í netheimi. Þátttakendur í því eru
hundrað ljósmyndarar úr öllum
heimshomum, þar á meðal þrír ís-
lenskir.
Upphafsmaður verkefnisins er Rick
Smolan, sem meðal annars hefur gef-
ið út bækur undir A Day in the Life
heitinu, en einnig margmiðlunardisk-
ana Alice to Ocean og Passage to
Vietnam, en sá síðamefndi er marg-
verðlaunaður. Undirbúningur að Sól-
arhring í netheimi hefur svo staðið
síðan í september, en í verkefninu er
sagt frá fólki sem nýtir sér tölvur og
tækni á ýmislegan hátt. Ljósmyndar-
amir sem taka þátt eru frá fjölmörg-
um löndum, þar á meðal íslandi, en
fulltrúar íslands eru Einar Falur Ing-
ólfsson og Ragnar Axelsson Ijós-
myndarar Morgunblaðsins og Páll
Stefánsson ljósmyndari Iceland Revi-
ew.
Einar Falur Ingólfsson myndar
þijú verkefni; hann fylgist með 12
ára bömum í Villingaholtsskóla í Kidl-
ink verkefni á alnetinu um umhverfis-
vemd með bömum frá 50 löndum.
Hann myndar netverslun Hagkaupa,
Netkaup, meðal annars með blindum
einstaklingi sem kaupir inn í Netkaup-
um með aðstoð tölvunnar. Að lokum
myndar Einar Falur siðan myndlista-
konuna Huldu Hákon, sem alla jafna
vinnur verk sín í tré, en hún hefur
einnig unnið myndlist á alnetinu.
Ragnar Axelsson fer í Fjölbrauta-
skóla Akraness og fylgist þar með
nemendum sem eru að setja saman
heimasíðu um Snorra Sturluson. Þá
fer Ragnar í heimsókn í tölvufyrir-
tækið OZ og kynnir sér starfsemi
fyrirtækisins á alnetinu. Að lokum
heimsækir Ragnar Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra.
Páll Stefánsson fylgist með degi f
lífi Friðriks Skúlasonar hugbúnað-
arsmiðs og fer meðal annars með
honum í fyrirlestrarferð í Hvalfjörð.
Einnig kynnir Páll sér skynjara þá
sem Vegagerðin hefur komið fyrir til
að fylgjast með færð og veðri, mynd-
ar uppsetningu mæla og starfsmenn
við úrvinnslu upplýsinga.
Eftir því sem verkefnunum lýkur
em þau send tii höfuðstöðvanna í
Bandarílcjunum og sett inn á alnetið
jafnóðum. Sex vikum síðan verður
komið upp varanlegri heimasíðu sem
helguð er verkefninu. Vegleg bók og
margmiðlunardiskur koma út síðar á
árinu.
Slóð Sólarhrings í neithemi en
http://www.cyber24.com/. Viðtal
við Rick Smolan má finna á slóðinni:
http://www.cnet.com/Content/Fe-
atures/Dlife/Cyberspace/intervi-
ew.html.
Los Angeles. Reuter.
EASTMAN Kodak og fjögur japönsk
stórfyrirtæki hafa kynnt nýjar gerðir
ljósmyndafílma og ljósmyndavéla,
sem þau segja að muni valda byltingu
og gerbreyta því hvemig fólk taki ljós-
myndir.
Vörumar verða markaðssettar 22.
apríl í Bandaríkjunum, Japan og viss-
um Evrópulöndum að því er forstjóri
Kodak, George Fisher, skýrði frá á
blaðamannafundi.
Kodak og ijórir keppinautar fyrir-
tækisins í Japan - Fuji Photo Film,
Minolta, Canon og Nikon - lögðu
ágreining sinn til hliðar og skiptu
með sér kostnaði við gerð nýs kerfís,
sem er ætlað að koma í stað þess sem
nú er notuð.
Hvert fyrirtæki um sig markaðsset-
ur sína eigin vöru, sem byggist á
nýrri tækni er kallast Advanced Photo
System, eða APS, þar sem stafræn
tækni er notuð jafnframt þeirri sem
notuð hefur verið til þessa.
Kaflaskil í yósmyndun
„Þessi áfangi boðar byltingu í ljós-
myndagerð sem er svo mikilvæg að
hún mun breyta því hvemig við tök-
um, geymum og framköllum ljós-
myndir," sagði Fisher. „Þetta verður
sá grundvöllur, sem byggt verður á
langt fram á næstu öld.“
Brezka leikkonan Jane Seymour
stjómaði kynningunni, sem var sjón-
varpað til London, Tokyo and Roc-
hester í New York-ríki, þar sem aðal-
stöðvar Kodaks era.
í yfirlýsingum frá Kodak og Fuj
segir að með nýja kerfínu verði auð-
veldara að stækka ljósmyndir og
geyma fílmumar.
Auk negatífrar myndar á fímunni
verða á henni stafrænar upplýsingar
um hvetja mynd. Stafræna tæknin
gerir kleift að prenta hveija mynd
með réttri lýsingu og réttum hraða
og senda myndirnar um tölvur og
alnetið.
Hægt verður að fá Smartfilm frá
Fuji og Advantix frá Kodak fyrir
mismunandi hraða og hægt verður
að nota þær í nokkrar APS ljós-
myndavélar, meðal annars einnota
vélar.
Unnið hefur verið í fímm ár að
hinum nýju Advantix-vöram Kodaks.
Óteljandi tilraunir hafa verið gerðar
til að ganga úr skugga um hvemig
auðvelda megi fólki að taka ljósmynd-
ir og kostnaðurinn nemur um 1 millj-
arð dollara.
Nýja fílman, sem er 24 mm í stað
35 mm nú, verður 15-20% dýrari að
sögn Davids Biehns, eins af vara-
stjómarformönnum Kodaks. Verð á
nýrri línu Advantix ljósmyndavéla
verður á bilinu „innan við 100 dollar-
ar“ til 400 dollarar.
Auðveldar í notkun
Fisher sagði að álíka auðvelt yrði
að nota Advantix vélamar og Kodak
Brownie ljósmyndavélina, sem George
Eastman kynnti fyrir réttum 96 árum.
Hann kvaðst gera ráð fyrir að
markaðssetning mundi ganga vel og
að 10-20% þeirra Ijósmyndavéla, sem
seldar yrðu fyrir árslok, yrðu af gerð-
inni APS.
Kodak áætlar að 80% ljósmynda-
véla, sem seldar verða í Asíu fyrir
árið 2000, verði af gerðinni APS. Þó
mun Kodak halda áfram að selja 35
mm ljósmyndavélar.
Markaðssetningu Advantix mun
fylgja „umfangsmesta sjónvarps- og
prentherferð í sögu fyrirtækisins“ að
sögn Fishers.
A vefvaktinni
MEÐODD DE PRESNO
NORSKI alnetsfrömuðurinn Odd
de Presno sem var hér á landi
ekki alls fyrir löngu, heldur úti
þætti á netinu sem hann kallar Vef-
vaktina. Þar tínir hann til ýmis at-
hyglisverðustu vefsetrin og slóðirn-
ar sem hann hefur rekist á á flakki
sínu um veraldarvefinn. Morgun-
blaðið hefur fengið heimild Odds til
að birta þessar ábendingar hans hér
á fjölmiðlunarsíðunni og annars
staðar í blaðinu eftir því sem tilefni
gefst til. í upphafi grípum við þar
niður í þátt Odds de Presno, þar sem
hann fjallar um fréttaþjónustu á
vefnum:
Heimsfréttirnar
Það er auðvelt að fínna ókeypis
fréttir á ainetinu, en ef þið ætlið að
ná að fylgjast fullkomlega með því
sem er að gerast, verður fólk að
vera tiibúið að greiða fyrir þjón-
ustuna. Einn kosturinn er World
News Cormection (WNC), erlend
fréttaþjónusta bandarískra stjórn-
valda sem gerir fréttaþyrstum við-
vart um markverð tíðindi utan
Bandaríkjanna.
Fyrir einungis um 50 dali á mán-
uði er unnt að fá aðgang að nýjum
fréttum sem safnað hefur verið sam-
an frá þúsundum erlendra frétta-
linda, þar á meðal má nefna ræður
stjómmálamanna, texta sjónvarps-
þátta og útsendinga útvarps, auk
greina úr dagblöðum, timaritum og
bókum.
Innihaldið getur verið allt frá opin-
beru hermálaefni, stjórnmálaefni,
umhverfís- og þjóðfélagsmálum til
visinda- og tækniupplýsinga ásamt
skýrslum allsstaðar að. Allt efnið er
þýtt á ensku. Svæðisbundir flokkar
sem útgáfan nær til er: Mið-Evróas-
ía, A-Asía, Austurlönd nær og S-
Asía, Kína, A-Evrópa, V-Evrópa,
S-Ameríka, Afríka sunnan Sahara.
Upplýsingar frá Bandaríkjunum eru
ekki þarna á meðal!
Ákveðin áskriftarflokkun felur í
sér úrklippuþjónustu sem kallast
„profiling“. Skilgreinið tegund upp-
lýsinganna sem þið viljið fá, og WNC
mun þá skoða allar þær greinar sem
bætast við þjónustuna og greina úr
allar þær sem falla að skilgreining-
unni. Daglega eru síðan þessar grein-
ar sendar til ykkar í tölvupósti.
Slóðin er:
(http://wnc.fedworld.gov/).
Aðrir fréttamiðlar sem heimsóttir
hafa verið í þessum mánuði eru m.a.
Reuter Business Alert Online
(http://206.4.74.17/)
fréttalind um Mexíkó með bæði hljóði
og mynd -
(http://eng.usf.edu/ "
palomare/newspapers/html),
heimasíða fyrir grísk dagblöð
(http://www.spark.net.gr/
perip—e.html).
Einnig má benda á ástralska síðu
með upplýsingum um dagblöð á vefn-
um frá hinum ýmsu löndum
(http://www. intercom.com.au/
intercom/newsprs/index.htm).
Á rússnesku fjölmiðlasíðunnni má
finna slóðir til rússneskra dagblaða
og tímarita sem hafa vefútgáfur og
hvernig tengjast má gagnagrunnum
á ensku. Slóðin er
(http://www.hibo.no/
stud/sh4/media.html).