Morgunblaðið - 08.02.1996, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞORSTEINN
GUÐMUNDSSON
+ Þorsteinn Guðmundsson
fæddist á Syðstu-Fossum í
Andakíl 31. maí 1901. Hann
lést í Sjúkrahúsi Akraness 5.
janúar síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Lundarkirkju 13.
janúar.
HÉRAÐSHÖFÐINGINN Þorsteinn
Guðmundsson, fv. bóndi og hrepp-
stjóri á Skálpastöðum í Lundar-
reykjadal, er fallinn í hárri elli.
Þorsteinn mun samtíðarfólki,
frændum og vinum minnisstæður
sem virðulegur, greindur og höfðing-
legur stórbóndi og þá ekki síður fyr-
ir ljúfmennsku, glatt geð og
skemmtilegar samverustundir. Hann
var maður fróður, minnugur og víð-
lesinn, fluggreindur, hagmæltur, rit-
fær og sagnamaður góður. Hann var
náttúrunnar bam, mikill unnandi ís-
lenskrar sveitar, hestamaður góður,
dýravinur hinn mesti, stórhuga rækt-
unarmaður og búhöldur mikill. Lax-
veiðimaður var hann slyngur og mik-
ill félagsmálamaður, léttur og ljúfur
í viðmóti, prúður og virðulegur. Hann
var hár vexti, sívalur og beinvaxinn,
hinn snotrasti maður, sem bauð af
sér góðan þokka.
Þegar ég hafði lesið fyrri bókina
hans, Glampar í fjarska á gullin
þil, skrifaði ég í blað mitt álit á
þessum hugljúfu sögum. Stuttu
seinna komu þau hjónin í heimsókn
til okkar hjóna og áttu með okkur
ánægjulega stund, vottuðu okkur
vinarhug sinn og hlýju, mæltust til
að þetta skyldi upphaf að vináttu
og nú mættum við til með að heim-
sækja þau að Skálpastöðum. Ekki
vorum við kunnug fyrir. En þegar
við Þorsteinn fórum að ræða ættir
Borgfirðinga sást að ættir okkar
lágu saman til beggja handa, sem
sé Ari móðurafi hans og Oddný
móðuramma mín voru alsystkini.
En í föðurættina, Vilborg föður-
amma Þorsteins og Rögnvaldur
móðurafi Jóns föður míns voru
systraböm. Þó í fjarlægð sé eru
þetta ættleggirnir. Þetta glæddi
samræðuna. Eftir þetta var ávarp
Þorsteins: Sæll frændi. Þá skrifuð-
umst við á að gömlum sið og höfðum
ánægju af. Það geymist.
Rétt síðar urðu fagnaðarfundir
þegar við mættum þeim hjónum á
Hvanneyri. Vomm þar mætt á or-
lofsviku eldri borgara, reyndar tvö
ár í röð. Þá buðu þau okkur með
sér til Skálpastaða og sýndu okkur
höfuðbólið sitt, hús og víðáttumiklar
túnekrur. Hann ók bíl sínum um
túnið og fræddi um örnefni, en hver
slátta átti sitt rómantíska nafn, sem
bar vott um glaða, frumlega hugs-
un. Túnið er stórt og glæsilegt. Þá
var boðið til stofu og veitingar þegn-
ar. Gestrisnin er enn í gildi og verð-
ur vonandi. Þorsteinn og Guðmund-
ur, synir þeirra hjóna, voru teknir
við búskapnum, voru báðir búnir að
byggja sér einbýlishús yfir fjölskyld-
ur sínar. Það leyndi sér ekki að
þama var vel haldið í horfinu og
vel það. Búið af stórhug og hyggind-
um. Þetta var sannarlega ánægjuleg
heimsókn.
Hluta úr tveimur summm 1944-
1945 ók ég vörubíl í vegavinnu í
Borgarfirði. Yfirverkstjóri var Ari
Guðmundsson frá Skálpastöðum,
bróðir Þorsteins. Kynni okkar Ara
urðu allnokkur því ég naut nokkuð
oft veitinga heima hjá honum. Hann
var gestrisinn, fróður og skemmti-
legur maður, prúður en glaðsinna.
Þeir virtust líkir bræður að mörgu
leyti, drengir góðir. Þetta voru
borgfirskir heiðursmenn, sem lifa í
minningunni, nú fallnir til foldar.
Þorsteinn og hans gæðakona, Þór-
unn Vigfúsdóttir, sýndu mikinn
manndóm, vit og manngæði. Besta
þökk fyrir góð kynni.
Valgarður L. Jónsson.
RAÐAUGÍ YSINGAR
Hraðfrystihús
Tálknafjarðar hf.
Starfsfólk óskast til fiskvinnslustarfa.
Upplýsingar gefur Þórður í síma 456-2524.
Sölumaður
Áramótaspilakvöld Varðar
Hið árlega áramótaspilakvöld Varðar verð-
ur haldið sunnudaginn 11. febrúar í Súina-
sal Hótels Sögu og hefst kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 20.00.
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra,
flytur ávarp.
Fjöldi glaesilegra vinninga, m.a. utanlands-
ferðir.
Miðaverð kr. 600.
Nefndin.
Aðalfundur
Félag íslenskra háskólakvenna og
Kvenstúdentafélag íslands
heldur aðalfund á Hótel Holti fimmtudaginn
15. febrúar kl. 17.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Stórt og öflugt verslunar- og þjónustufyrir-
tæki óskar eftir að ráða sölumann í eina
verslun þess, sem staðsett er í Kringlunni.
Starfið felst í sölu og innkaupum fyrir búsá-
haldadeild verslunarinnar.
Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu í sölu
á búsáhöldum og gott auga fyrir þörfum við-
skiptavinarins.
Við leitum að starfskrafti á aldrinum
30-40 ára.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Með allar umsóknir verður farið sem algjört
trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinsamlegast skilið inn upplýsingum um
nafn, reynslu og fyrri störf á afgreiðslu
Mbl. fyrir 18. febrúar, merktar:
„Sölumaður - búsáhöld".
Bílstjóri
Okkur vantar snöggan og snaran bílstjóra
sem ratar um Reykjavík, getur unnið sjálf-
stætt og hefur bein i nefinu. Viðkomandi
þarf að hafa góða enskukunnáttu, reynslu
af tölvum og helst stúdentspróf.
Starfsmaður
ítolladeild
Við leitum að nákvæmum, duglegum og sam-
vinnuliprum starfsmanni, sem hefur góða
kunnáttu og reynslu í tollskýrslugerð, er lipur
á tölvu, býr yfir góðri enskukunnáttu og hefur
stúdentspróf.
Umsóknir, með mynd og upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist til DHL
Hraðflutninga efh., Faxafeni 9.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar.
WORLOW/DE EXPRESS ®
VIÐ STÖNDUM VIÐ SKULDBINDINGAR ÞÍNAR
Til leigu eða sölu
100 fm húsnæði í verslunarmiðstöð í Breið-
holti. Hentar fyrir verslun eða léttan iðnað.
Fyrirspurnir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
14. febrúar, merktar: „J - 505".
Hvaðveistþú
um stjórnmál?
Þú getur áttaö þig á þvi og öðlast meiri þekkingu á námskeiði
Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, sem verður haldið í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, Reykjavík, 19., 20., 26. og 27. febrúar og 4., 5.,
11. og 12. mars nk. kl. 19.00-23.00.
innritun og upplýsingar f sfma 568-2900.
Fræðslu- og útbreiðsludeild Sjálfstæðisflokksins.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisþing
laugardaginn
10. febrúar 1996
Stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstaeðisflokksins í Reykjaneskjördæmi boð-
ar stjórnir félaga.Nulltrúaráða, sveitarstjórnarmenn og kjördæmis-
ráðsfulltrúa flokksins í kjördæminu til kjördaemisþings í Gafl-inum,
Dalshrauni 13, Hafnarfirði, laugardaginn 10. febrúar nk. kl. 09.00
árdegis.
Dagskrá:
09.00 Morgunkaffi.
09.20 Setning. Ávarp formanns fulltrúaráðs Hafnarfjarðar.
09.40 Hópar starfa.*
12.00 Léttur hádegisverður.
12.40 Hópar starfa.*
15.30 Samantekt.
17.00 Þingslit.
Þingstjóri: Mjöll Flosadóttir.
*Hver þingmaður er 30 mínútur með hverjum hópi og ræðir
ákveðin málefni.
Gestir fundarins og þátttakendur í hópstarfi verða Björn Bjarna-
son, menntamálaráðherra, og Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra.
Þinggjald kr. 1.500 (veitingar innifaldar).
Aðalfundur
Aðalfundur Félags ræstingastjóra verður
haldinn í Scandic Hótel Loftleiðir (kjallara)
fimmtudaginn 15. febrúar 1996 kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Önnur mál.
Stjórnin.
I.O.O.F. 5 = 1772088 = I
I.O.O.F. 11=17708028'Á = Bk
□ EDDA 5996020819 II 5
□ HLÍN 5996020819 IV/V° 2
Frl.
Landsst. 5996020819 VII
Hvítasunnukirkjan
Fíladeifía
Bænastund i kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
Lofgjörðarvaka kl. 20.30 f umsjá
Erlings Nielssonar.
Allir velkomnir.
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Fundur f kvöld kl. 20.30.
„Hvað breytti Páli?“ Umsjón
hefur Halla Jónsdóttir. Upphafs-
orð: Ársæll Aðalbergsson.
Allir karlmenn velkomnir.
Sktðagöngunámskeið
laugardaginn 10. febrúar
kl. 10.30 á Miklatúni, áður
Klambratún.
Kennari Valur Valdimarsson.
Ekkert þátttökugjald.
Dagsferð sunnud. 11. feb.
kl. 10.30: Víðisnes - Naustanes,
létt ganga um Álfsnes.
Helgarferð 10.-11. febrúar
kl. 10.00: Vestan undir Hengil.
Gengið á skíðum frá Kolviðar-
hóli vestan við Hengilinn. Gist f
Nesbúð á Nesjavöllum. Matur
innifalinn í verði kr. 5.000/5.500.
Fararstjóri: Jósef Hólmjárn.
Útivist.