Morgunblaðið - 10.03.1996, Blaðsíða 1
104 SÍÐUR B/C/D/E
59. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 10. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
HAMINGJU SAMUR Á HÖRÐUV ÖLLUM
Morgunblaðið/Ásdís
Var eitrað
fyrir Stalín?
New York. Reuter.
RÚSSNESKA leikskáldið Edvard Radz-
ínskí heldur því fram í nýrri bók, að Jósef
Stalín einræðisherra Sovétríkjanna hafi
verið myrtur af mönnum sem vildu koma
í veg fyrir að áform hans um að losa sig
við marga nánustu samverkamenn sina og
láta flytja Gyðinga nauðuga til Síberíu
næðu fram að ganga.
Hin opinbera skýring á dauða Stalíns
5. mars 1953, er hann var 73 ára, er sú,
að kvöldið fyrir andlátið hafi hann sagt
lífvörðum sínum að taka á sig náðir en
ekki farið að sofa sjálfur. Að morgni hafi
lífverðirnir fundið hann meðvitundarlausan
og tilraunir til að lífga hann við hafi ekki
borið árangur.
Radzínskí segir lýsinguna ranga og
byggir tilgátu sína um dauða Stalíns á
framburði eins lífvarðanna þriggja, Peters
Vasílíevitsj Logzgatsjevs. Aðeins einn líf-
varðanna heyrði Stalín segja: „Ég er að
fara í háttinn, ég þarf ekki á ykkur að
halda. Þið megið fara að sofa líka.“ Sá
var ívan Khrústalev, náinn samverkamað-
ur Lavrentí Bería, yfirmanns leyniþjón-
ustunnar, sem óttaðist um líf sitt, þegar
hér var komið sögu.
Radzínskí heldur því fram, að Stalín
hafi verið að þvi kominn að láta handtaka
Bería og aðra háttsetta samverkamenn
sína. Síðan hafi hann ráðgert mikla hreins-
un í Kommúnistaflokknum og fyrirskiþað
nauðungarflutninga á Gyðingum til
Síberíu. Með þeim ætlaði hann að storka
Vesturveldunum og bjóst við íhlutun af
þeirra hálfu sem myndi leiða til styijaldar.
Taldi hann sig öruggan um að vinna hana
þar sem Sovétmenn réðu þá yfir færan-
legri vetnissprengju, en þar með myndi
rætast draumur hans um heimsyfirráð
Sovétríkjanna, að sögn Radzínzkí. Nauð-
ungarflutningarnir áttu að hefjast daginn
sem Stalín dó.
„Verðirnir áttu að gæta Stalíns meðan
hann svaf. í eina skiptið sem þeir gerðu
það ekki dó hann. Logzgatsjev kom að
honum liggjandi á gólfinu í eigin þvag-
polli og meðvitundarlausum. í uppnámi af
hræðslu vissu verðirnir ekki hvernig þeir
áttu að bregðast við og hringdu í Bería
og aðra nánustu aðstoðarmenn Stalíns og
báðu þá að koma hið snarasta. Það leið
þó góður tími áður en þeir birtust. Þegar
Bería loks kom sagði hann: Ekki skelfa
menn, angrið okkur ekki. Og ónáðið ekki
félaga Stalín. Hann sefur greinilega."
Læknar birtust loks þegar Stalín hafði
„sofið". í 13 klukkutíma en það var um
seinan. Radzínskí segir, að Bería hafi síðar
gortað af því við V.M. Molotov, utanríkis-
ráðherra og hægri hönd Stalíns, að hafa
banað leiðtoganum. „Bería átti tveggja
kosta völ, að deyja sjálfur eða ryðja Stalín
úr vegi. Honum tókst það síðarnefnda.“
Bería varð undir í valdabaráttu eftir dauða
Stalíns og var tekinn af lífi. Sömuleiðis
dó Khrústalev lífvörður stuttu seinna.
írakar slaka á og
leyfa vopnaeftirlit
New York, Ankara. Reuter.
ÍRAKAR slökuðu loks til eftir hádegi í gær
eftir sólarhrings umsátursástand við stjórn-
arbyggingu í höfuðborginni Bagdad og
hleyptu eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) inn í hana. Rökstuddur grunur leikur
á að þar séu geyrnd skjöl, búnaður og efni
tengt tilraunum íraka til smíði gjöreyðing-
arvopna.
Öryggisráð SÞ krafðist þess í fyrrinótt,
að stjórnvöld í írak sæu til þess að eftirlits-
mennirnir gætu sinnt starfi sínu óhindrað.
Ráðið áformaði að hittast á sérstökum auka-
fundi í gær til þess að ræða næstu skref í
málinu.
Eftirlitsmennirnir hugðust ráðast til inn-
göngu í húsið í fyrradag en var meinaður
aðgangur. Brugðu þeir á það ráð að standa
vörð við húsið til að koma í veg fyrir að
gögn yrðu flutt á brott.
Finnast skjöl og búnað-
ur tengd tilraunum með
gj örey ðingarvopn?
Skiptust þeir á að standa vörð um það
í fyrrinótt. Hins vegar var stöðugur straum-
ur íraskra embættismanna inn í húsið og
því útilokað fyrir eftirlitsmennina að fylgj-
ast með livað gerðist innandyra, hvort gögn-
um, sem þeir hugðust kanna, yrði eitt með
einhveijum hætti.
Öryggisráðið krafðist þess að írakar
stæðu við fyrirheit um að fara að samþykkt-
um SÞ og hleyptu eftirlitsmönnunum inn í
bygginguna.
I gær sat lengi vel allt við það sama en
um hádegisbilið að íslenskum tíma rættust
spár vestrænna stjómarerindreka um að
a.m.k. hluti eftirlitsmannanna fengi að fara
inn í bygginguna og kanna innviði.
Sögðust stjórnarerindrekarnir efast um,
að írakar streittust öllu lengur við og tækju
þar með áhættu á því, að viðræður, sem
fyrirhugað er að hefjist á morgun, mánu-
dag, færu út um þúfur.
Þá hittast fulltrúar SÞ og stjórnvalda í
Baghdad til að skipuleggja hugsanlega olíu-
sölu íraka en öryggisráðið ákvað nýverið
að leyfa þeim að selja olíu fyrir jafnvirði
tveggja milljarða dollara, 130 milljarða
króna, og nota andvirðið til matvæla- og
lyfjakaupa.
Irakar féllust á endanum á að hleypa
eftirlitsmönnunum inn í bygginguna, én þó
með þvi skilyrði að einungis lítill hluti þeirra
yrði samtímis innandyra.
Fyrir hina ríku
eða fátæku
VIDSMPITJflVINNULÍr
Á SUNNUDEGI
FJOLBREYTT starf
a smmm „
INKANNA B