Morgunblaðið - 26.03.1996, Síða 1
64 SIÐUR B
72. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Málamiðlun Jeltsíns um stækkun Atlantshafsbandalagsins
Kohl
Hillary
Clinton í
Bosníu
HILLARY Clinton, kona Banda-
ríkjaforseta, kom í gær til Bosníu
ásamt dóttur sinni, Chelsea, og
heimsótti bandaríska hermenn í
Tuzla og nágrenni. Forsetafrúin
sá brunnin hús og önnur merki
um átökin í Bosníu. Áður en Clin-
ton, sem er í átta daga ferð um
Evrópu, heimsótti hermennina
ræddi hún við frammámenn í
Bosníu um það hvernig hægt væri
að koma á sátt i landinu eftir blóð-
ugt stríð og hlýddi á lýsingar á
þeim hörmungum, sem á undan
eru gengnar. „Sarajevo er stærsti
kirkjugarður í heimi,“ sagði einn
viðmælenda hennar. Hér sést
Clinton ganga með hermönnum
við búðir nærri Donja Visca.
■ Pólitísk sprengja/29
Gangi í NATO án
hernaðaraðildar
Ósló. Morgunblaðið.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
kom í opinbera heimsókn til Noregs
í gær og sagði með þunga að mikil-
vægasta málefni viðræðna við
norska ráðamenn væri „hvers vegna
þarf NATO að þokast í austur?" og
lagði til að ríki Austur-Evrópu
gengju í NATO án þess að taka þátt
í hernaðarstarfi.
Jeltsín var í góðu skapi við kom-
una og virtist við góða heilsu, en
hann hefur í tvígang slegið för til
Noregs á frest vegna heilsubrests.
Hann sló á létta strengi og sagði
auðveldara að ferðast til Noregs en
um Rússland.
„Þetta er ekki langt, aðeins tvær
klukkustundir," sagði Jeltsín. „Það
tekur tólf klukkustundir að fara
þvert yfir Rússland." Jeltsín hefur
ítrekað lýst yfir andstöðu sinni við
að fyrrverandi Varsjárbandalagsríki
gengju í Atlantshafsbandalagið, en
virtist reiðubúinn til að draga eilítið
í land þegar hann sagði að hann
gæti sætt sig við að þau ættu aðild
að stjórnmálanefnd bandalagsins ef
þau héldu sig utan hernaðarþáttar
þess;
„Ég mundi leggja til að þau fylgdu
dæmi Frakka, það er gengju í nefnd-
ina, en ekki NATO,“ sagði Jeltsín.
Jeltsín kvaðst einnig ætla að ræða
heræfingar á vegum NATO þegar
hann hittir Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, í dag. Á
tímum kalda stríðsins settu Norð-
menn takmarkanir á ferðir heija
Reuter
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, gengur við hlið Haraldi Noregs-
konungi í móttökuathöfn fyrir utan konungshöllina í Ósló í gær.
bandamanna um Finnmörku, sem
liggur að Rússlandi. Nú er það breytt
og á föstudag lauk heræfingum á
vegum NATO þar.
„Til dæmis að hermenn NATO
verði ekki á norsku landsvæði, vegna
þess að Noregur er eina ríki NATO,
sem á landamæri að Rússlandi,"
sagði Jeltsín þegar hann var spurður
hvað yrði rætt í Ósló.
bjartsýnn
eftir signr
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl,
kanslari Þýska-
lands, sagði í
gær að stjórn sín
hefði náð „miðs-
vetrarprófun-
um“ í kosningum
í þremur sam-
bandslöndum
um helgina,
Slésvík-Holtsetalandi, Rheinland-
Pfalz og Baden-Wúrttemberg, og
nú gæti hann horft með eftirvænt-
ingu til endurkjörs árið 1998 undir
fána Evrópustefnu sinnar.
„Sigrum 1998“
„Samsteypustjórnin mun sigra í
kosningunum 1998, það er ekki
nokkur vafi,“ sagði Kohl, sem hefur
veitt stjórn kristilegra demókrata og
systurflokks þeirra í Bæjaralandi
(CDU/CSU) og fijálsra demókrata
(FDP) forystu frá árinu 1983, á
blaðamannafundi í gær. „í ykkar
sporum myndi ég reyna að venjast
þeirri tilhugsun."
CDU og FDP unnu sigur í Baden-
Wúrttemberg á sunnudag, en jafn-
aðarmönnum (SPD) tókst naumlega
að haida völdum í hinum sambands-
löndunum tveimur þrátt fyrir nokk-
urt fylgistap. Mest á óvart kom
frammistaða FDP, sem fékk um 9%
í tveimur landanna og,5,7 í því þriðja,
en hann hafði hrasað um 5% þrösk-
uldinn svokallaða í 12 af undanförn-
um 13 kosningum í sambandslöndum
Þýskalands. Wolfgang Gerhardt, for-
maður FDP, ságði að kristilegir
demókratar gætu nú reitt sig á flokk-
inn í samstarfinu í Bonn.
Oskar Lafontaine, formaður SPD,
hafnaði því á blaðamannafundi með
leiðtogum sambandsríkjanna þriggja
að andstaða flokksins og áróður gegn
evrópskri mynteiningu og innflytj-
endum, sem eru af þýsku bergi brotn-
ir, hefði leitt til fylgistapsins.
Frakkar slátra nautgripum vegna gruns um kúariðu
Bretar fordæma inn-
flutnmgsbann ESB-ríkja
London, Brussel, MUnchen. Reuter.
BRESK stjórnvöld fordæmdu í gær-
kvöldi þá ákvörðun embættismanna
14 ríkja Evrópusambandsins, ESB,
að banna innflutning á öllum bresk-
um nautgripaafurðum vegna hættu
á kúariðusmiti. „Það er ekki tekið
viðeigandi tillit til áhættumats. Við
munum íhuga hver næstu skref okk-
ar verða,“ sagði Douglas Hogg,
landbúnaðarráðherra Bretlands, á
fréttamannafundi.
Fjallað verður um ákvörðun emb-
ættismannanna á ný á fundi fram-
kvæmdastjórnar ESB í dag en geysi-
legir hagsmunir eru í húfi fyrir Breta
sem flytja út nær þriðjunginn af
nautgripaafurðum landsins. Franz
Fischler, sem fer með landbúnaðar-
mál í framkvæmdastjórn ESB, hvatti
Breta til að grípa til hertra aðgerða
með það að markmiði að útrýma
kúariðu. Hann sagði að bannið við
innflutningi á bresku nautakjöti tæki
gildi á morgun, miðvikudag.
Vísindamenn telja að ekki sé
hægt að útiloka að kúariða geti bor-
ist í menn og valdið heilahrörnunar-
sjúkdómi er nefnist Creutzfeldt-Jak-
ob, hættan sé þó afar lítil. Öruggar
vísbendingar eru ekki um að þetta
geti raunverulega gerst en mörg
lönd hafa þegar bannað innflutning
á bresku nautakjöti. Bresk stjórn-
völd ákváðu í gær að ekki væri að
svo komnu máli ástæða til að fella
umtalsverðan hluta nautgripastofns-
ins í landinu, sem er um 11 milljón-
ir dýra, eins og áður hafði verið
rætt um. Um 150 nautgripum var
slátrað í Frakklandi í gær vegna
gruns um kúariðu.
Skyndibitakeðjan Burger King
lýsti því yfir í gær að á laugardag
yrði hætt að nota breskt nautakjöt
í framleiðsluvörur fyrirtækisins en
áður hafa helstu keppinautarnir í
Bretlandi, McDonalds, Wendy’s og
Wimpy, gripið til svipaðra aðgerða.
Breskir vísindamenn telja að
stökkbreytt afbrigði Creutzfeldt-
Jakob veikinnar geti borist í menn
með nautgripum sem sýktir eru af
kúariðu og leggist nýja afbrigðið
ekki einvörðungu á aldraða. 10
manns eru taldir hafa sýkst af þessu
afbrigði og ollu þessi tilvik því að
grunur vaknaði um tengsl milli kjöt-
neyslunnar og veikinnar í mönnum.
Talsmaður rannsóknastofu há-
skólasjúkrahússins í Múnchen skýrði
frá því í gær að sjúklingur með svip-
uð einkenni og lýst var í Bretlandi
hefði verið þar til meðhöndlunar.
Sjónvarpsstöðin Focus sagði að um
36 ára gamla konu væri að ræða
og henni virtist hraka hægar en tíðk-
aðist um sjúklinga með hefðbundna
afbrigðið.
Bretadrottn-
ing í Póllandi
ELÍSABET Bretadrottning kom í
gær í opinbera heimsókn til Pól-
lands og hefur verið litið á komu
hennar sem viðurkenningu á þeim
umbótum, sem átt hafa sér stað
í landinu frá hruni kommúnism-
ans árið 1989.
Elísabet er fyrsti handhafi
bresku krúnunnar, sem heimsæk-
ir Pólland í þúsund ára sögu þess.
Breskir embættismenn sögðu
að drottningin hefði ekki tíma til
að fara til Auschwitz-Birkenau,
þar sem nasistar reistu gereyð-
ingarbúðir fyrir gyðinga. Þess í
stað heimsótti hún hverfi gyðinga
i Varsjá eins og sést á myndinni.