Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÉVAÐUR subbuskapur er þetta. Hver ykkar hefur
skilið hausinn á sér eftir úti á tröppum strákar?
Héraðsdómur dæmir í deilu VSÍ og Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær greiðir
vegna vanefnda á skuldabréfi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur
dæmt Hafnarfjarðarbæ til að greiða
Vinnuveitendasambandi íslands 6,5
milljónir króna í máli þar sem deilt
var um hvort Hafnarfjarðarbær
hefði tekist á hendur einfalda ábyrgð
á skuldabréfí sem Vinnuveitenda-
samband íslands keypti fyrir milli-
göngu verðbréfafyrirtækisins Hand-
sals af Hagvirki-Kletti.
Auk Hafnarfjarðarbæjar var Þor-
steini Steinssyni, fjármálastjórabæj-
arins, stefnt persónulega í málinu
en hann var sýknaður með dómi
héraðsdóms.
Málið var sprottið af 8 milljóna
króna skuldabréfi til 4 ára sem
Hyrningarsteinn hf., hlutafélag
starfsmanna Hagvirkis-Kletts, gaf
út til Hagvirkis-Kletts 17. desember
1993 til greiðslu á hlutafjárloforðum
starfsmanna Hagvirkis-Kletts í
fyrirtækinu í tengslum við íjárhags-
lega endurskipulagningu þess í kjöl-
far nauðasamninga.
Á eintak VSÍ af skuldabréfinu er
Hyrningarsteinn skráður útgefandi,
Hagvirki-Klettur kröfuhafi og jafn-
framt er ritað á skuldabréfið að
bæjarsjóður Hafnarfjarðar muni
endurkaupa bréfið ef greiðslufall
verði, sbr. meðfylgjandi yfirlýsingu
þess efnis. Á bréfi í vörslu Hafnar-
fjarðarbæjar er ekki slíka yfirlýsingu
að fínna og þar er Hagvirki-Klettur
ekki skráður kröfuhafi.
í yfírlýsingu með skuldabréfínu
er rakið að Hafnarfjarðarbær muni
sjá um að greiðslur samkvæmt verk-
samningi bæjarins við Hagvirki-
Klett vegna hönnunar og byggingar
dælu- og útrásarstöðva í bænum á
næstu tveimur árum muni renna til
að greiða skuldabréfíð.
Verði vanskil á bréfínu muni Bæj-
arsjóður sjá til þess að bréfið verði
greitt upp á gengi og öðlist bærinn
þá rétt á að nýta sér bréfíð til skulda-
jöfnunar á móti áðumefndum verk-
samningi. Undir yfirlýsinguna rituðu
fjármálastjóri Hagvirkis-Kletts, fjár-
málastjóri Hafnarfjarðarbæjar og
framkvæmdastjóri Handsals.
Ekki var hafíst handa við fram-
kvæmdir samkvæmt fyrrgreindum
verksamningi og lá fyrir að efndir
hans féllu niður af ástæðum sem
vörðuðu Hafnarfjarðarbæ en ekki
Hagvirki-Klett.
Hyrningarsteinn hf. greiddi þijá
gjalddaga af skuldabréfmu, síðast
3. október 1994, þremur dögum fyr-
ir gjaldþrot Hagvirkis-Kletts. Eftir-
stöðvar bréfsins námu þá um 6,5
milljónum króna. Þá fjárhæð krafð-
ist VSÍ að Hafnarfjarðarbær greiddi
sér í samræmi við túlkun sambands-
ins á ábyrgðaryfírlýsingu þeirri sem
fylgdi skuldabréfinu.
Heræfingum lokið
Hafnarfjarðarbær hafnaði því að
hafa tekist á hendur ábyrgð á
greiðslu skuldabréfsins. Yfírlýsingin
hafi aðeins haft þá þýðingu að Hag-
virki-Klettur heimilaði bæjarsjóði að
láta greiðslur, sem fyrirtækinu bar
vegna verksamningsins um útrásirn-
ar, renna til niðurgreiðslu á skulda-
bréfínu. Ábyrgð bæjarins hafi ekki
verið önnur en sú að sjá til þess að
greiðslur rynnu ekki til verktakans
heldur til greiðslu á skuldabréfinu.
í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjaness segir að fyrir liggi að
verð það sem VSÍ greiddi fyrir
skuldabréfíð hafi ekki verið í sam-
ræmi við gengi á skuldabréfum sem
Hafnarfjarðarbær og sveitarfélög
með svipað lánstraust seldu á þess-
um tíma, heldur hafi ávöxtunar-
krafan verið um 2 prósentustigum
hærri en almennt á sveitarfélaga-
bréfum.
Sá munur verði vart skýrður með
öðru en því að áhætta sú sem VSÍ
tók við kaupin hafi verið metin meiri
en ef um venjulegt sveitarfélagabréf
hefði verið að ræða.
„Áhætta [VSÍ] gat einkum falist
í því, að [Hagvirki-KIettur] stæði
ekki við sinn hluta samningsins [um
hönnun og byggingu dælu- og útrás-
arstöðva í bænum], en [VSI] hlaut
með hliðsjón af verksamningnum og
yfírlýsingu fjármálastjóra Hafnar-
fjarðarbæjar, að mega treysta því,
að öflugt sveitarfélag sem Hafnar-
fjörður stæði við verksamninga sína
undanbragðalaust," segir í dóminum.
Þá segir að yfírlýsingin með
skuldabréfínu feli m.a. í sér að
greiðslur til Hagvirkis-Kletts sam-
kvæmt 240 milljóna króna verksamn-
ingi skuli renna til handhafa þessa 8
milljóna króna skuldabréfs og því
hafí einungis verið um það að ræða
að hluti verksamningsgreiðslna rynni
til greiðslu skuldabréfsins.
„Telja verður að fjármálastjóri
bæjarins hafi haft umboð til að gefa
yfírlýsinguna, enda jók hún ekki á
skuldbindingar bæjarsjóðs, miðað
við að bærinn stæði við verksamn-
inginn," segir í dóminum.
Hafnarfjarðarbæ hafi hins vegar
ekki verið í sjálfsvald sett að feila
niður greiðsluskyldu sína samkvæmt
yfirlýsingunni með viðtökudrætti á
framkvæmdum samkvæmt verk-
samningnum.
Ef greiðslur til verktakans hefðu
fallið niður vegna atvika sem verk-
takinn bar ábyrgð á, hefði ekki ver-
ið um frekari greiðsluskyldu Hafnar-
fjarðarbæjar að ræða. Ástæða þess
að ekki hafi orðið úr framkvæmd
verksamningsins hafí hins vegar
verið viljaleysi verkkaupans, bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar.
Ekkert sé fram komið um að
kaupandi skuldabréfsins hafi mátt
ætla að nokkur skynsamlegur vafi
léki á því að bærinn stæði við verk-
samninginn að sínu leyti og að
skuldabréfið mundi greiðast með
greiðslum úr honum.
Már Pétursson héraðsdómari og
dómsformaður var ósammála niður-
stöðu meirihluta dómenda, sem hér-
aðsdómararnir Steingrímur Gautur
Kristjánsson og Kristján Torfason
mynduðu.
í séráliti Más segir að hann telji
að VSÍ geti ekki reist greiðsluskyldu
Hafnarfjarðarbæjar á vanefndum
bæjarins innan samninga gagnvart
Hagvirki-Kletti á verksamningi. Þar
sem hann telji að öðru leyti hvorki
bótagrundvöll né bæjarábyrgð fyrir
hendi telji hann að sýkna beri Hafn-
arfjarðarbæ af kröfum VSI.
Islendingar nýti sér hugvitið
Miðstöð skap-
andi hugsunar
ALLT frá upphafí
hefur maðurinn
aðskilið sig frá
öðrum dýrum með hugs-
un sinni og uppfinninga-
semi. Með þessum hætti
hefur maðurinn tryggt
viðurværi sitt og bætt
lífsskilyrði sín smám
saman. Marsh Fisher
taldi hins vegar að það
væri ekki aðeins á færi
snillinga á borð við Ein-
stein eða Bell að fá góðar
hugmyndir. Slíkt væri á
allra færi ef þeir aðeins
hefðu rétta verkfærið.
Hann réðst því í hönnun
á hugbúnaði sem aðstoða
á fólk við hugmyndasmíð.
Búnaðurinn byggir á
tengslum orða og slær
notandinn inn orð og töl-
van gefur honum upp nokkur
hundruð orð sem tengjast því á
einn eða annan hátt. Alls er um
65 þúsund orð og tengsl þeirra á
milli að ræða.
-Hvernig gagnast þessi hug-
búnaður fóiki?
„Tilraunir okkar hafa sýnt að
fólk geti í mesta lagi munað
50-60 slík tengsl áður en hug-
myndaflug þess er þurrausið. Að
auki eru það yfirleitt sömu orðin
sem fólki dettur í hug. Rannsókn-
ir sýna að mannshugurinn flokkar
vitneskju okkar eftir tengslum og
geymir hana í slíkum tengslaskýj-
um. Nýjar hugmyndir eru gjarnan
ekkert annað en ný tengsl milli
gamalla hugmynda. Við þurfum
bara að finna þau. Til þess þurf-
um við að beita langtímaminninu,
sem geymir þorra allrar vitneskju
okkar.
Þar er þó sá hængur á að það
getur reynst erfitt að nálgast
hana. Við vitum svo margt i
tengslum við hluti sem við höfum
upplifað, lesið í bókum eða lært
af samtölum við fólk og það er
erfitt að kalla fram allt sem við
vitum um tiltekinn hlut þegar við
þurfum á því að halda.“
-Er þessi búnaður einungis
hugsaður til markaðssetningar á
nýjum vörum eða hefur hann
meira notagildi?
„Fjöldi fólks hefur nýtt sér
þennan hugbúnað og raunar erum
við alltaf að heyra af nýju nota-
gildi. Meðal þeirra sem hafa notað
hann eru auglýsingastofur, verk-
fræðingar, lögfræðingar og lista-
menn. Þá var búnaðurinn notaður
til skrifa á handriti kvikmyndar-
innar Ace Ventura II og við höf-
um spurnir af geimfara hjá NASA
sem notaði forritið til að skrifa
ljóð.“
Fisher segir þetta þó ekki að-
eins snúast um hugbúnað sinn
og bendir á rannsókn sem rann-
sóknarstofnun Nomura Securities
var falið að vinna. Þar hafi verk-
efnið verið að kanna á ________
vísindalegan hátt hvar
mannkynið yrði statt
að 50 árum liðnum og
hvernig Japanir gætu
búið sig undir þá
framtíð. „Rannsóknin ■
tók rúm 2 ár, náði til þúsunda
fyrirtækja og stofnana.
Niðurstaðan var sú að maður-
inn væri verkfærasmiður að eðlis-
fari. Verkfærin sköpuðu síðan
þær framfarir sem ættu sér stað.
Þeir líktu núverandi stöðu við
þrjú megintímabil mannkynssög-
unnar. Hið fyrsta var landbúnað-
artímabilið og verkfærið var plóg-
urinn. Næsta bylting var iðnbylt-
ingin og verkfærið gufuvélin.
Þriðja og yfirstandandi tímabilið
Marsh Fisher
► Bandaríkjamaðurinn Marsh
Fisher er með BA-próf í fjöl-
miðlafræði, auk þess sem hann
var flugmaður í seinni heims-
styijöldinni, var söngvari í
kjölfar stríðsins og gerðist loks
fasteignasali. Árið 1971 stofn-
aði hann ásamt félaga sínum,
Art Bartlett, fasteignasöluna
Century 21, sem átti eftir að
verða ein stærsta fasteigna-
sölukeðja í Bandaríkjunum.
Árið 1977 fór hann hins vegar
á eftirlaun og hefur æ síðan
unnið að rannsóknum á hugsun
manna. Utkoman er kenning
hans um tengsla-hugsun og
hjálpartæki sem hann hefur
hannað til þess að hjálpa fólki
við hugmyndasmíðar. Fisher
er giftur Marlee Fisher.
Tímabil sköp-
unar tekur við
af upplýsinga-
byltingunni
er upplýsingabyltingin þar sem
tölvan er verkfærið.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar erum við nú að stíga
inn í fjórða tímabilið, tímabil sköp-
unar. Þar höfum við hins vegar
engin verkfæri enn. Niðurstaða
Nomura var sú að þetta tímabil
tæki öllum hinum fram. Þau tíma-
bil hefðu byggst á ákveðnum hug-
myndum, plógnum, gufuvélinni og
tölvunni. Með betri skilningi á því
hvaðan þær hugmyndir eru
sprottnar sjáum við fram á mikil-
vægasta tímabilið í sögu mann-
kyns til þessa. Það er mjög spenn-
andi að hugsa til þess að við séum
að upplifa þetta tímabil."
- Sérðu fyrir þér eitthvert sér-
stakt notagildi hér á landi?
„Við ræddum við forseta ykkar
og hún var mjög áhugasöm um
sköpunargáfu og menntun barna.
Okkar markmið er að skapandi
hugsun verði kennd í skólum líkt
og eðlisfræði eða stærðfræði. Með
þessum hætti öðlast börnin aukna
trú á því að þau geti beitt skap-
andi hugsun. Þetta er hlutur sem
við kennum ekki í dag en ættum
að gera. Þetta er öflugasta verk-
_________færi sem til er, grund-
völlur alls þess sem
leitt hefur til framfara
í sögunni. Við getum
kennt sjimpansa að
skúra ef við fáum
hann til að hlusta á
okkur en að finna upp ryksuguna
kallaði á uppfinningasemi.
íslendingar ættu að nýta sér
smæðina í þessu samhengi og
stefna að því að verða sú þjóð sem
skari fram úr í skapandi hugsun.
Slíkt ætti að vera mjög einfalt,
þjóðin er vel menntuð og því ætti
hún auðveldlega að geta státað
af flestum hugsuðum í heimi mið-
að við höfðatölu. Þar gæti smæðin
nýst vel. Slík stefna gæti skapað
hér auðlind sem aldrei yrði tæmd.“