Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 29
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÞORF UMRÆÐA UM
ÞJÓÐARATKVÆÐI
FORYSTA Þjóðvaka hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til
breytingar á stjórnarskránni. í frumvarpinu er kveðið á um
að skylt sé að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvarp,
sendi þriðjungur kosningarbærra manna í landinu forseta íslands
áskorun um slíkt.
Rök Þjóðvaka eru þau, að lýðræðinu séu settar ákveðnar skorð-
ur með því að fáar leiðir séu til að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu
um mikilvæg mál, ekki sízt vegna þess að samsteypustjórnir séu
algengar hér á landi og þær geti oft komið sér hjá því að efna
kogningaloforð flokkanna, sem að þeim standa. Þá telur Þjóðvaki
að efna beri til þjóðaratkvæðis um mikilvæga alþjóðasamninga
og segir að þjóðin hefði átt að greiða atkvæði um samninginn um
Evrópskt efnahagssvæði á sínum tíma.
Þegar EES-samningurinn var til meðferðar hjá Alþingi tók
Morgunblaðið afstöðu gegn kröfum um að efnt yrði til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið, á þeirri forsendu að ekki væri hefð fyr-
ir slíku hér á landi. Ekki hefði verið viðhaft þjóðaratkvæði um
aðra milliríkjasamninga eða um mikilvæg innanlandsmál.
Morgunblaðið hefur jafnframt fært rök að því að málskotsrétt-
ur forseta af því tagi, sem nú er að finna í 26. grein stjórnarskrár-
innar, sé óþarfur í ljósi hálfrar aldar reynslu og að tilefni sé til
að afnema ákvæðið og létta þannig af forseta íslands þeim tillits-
lausa þrýstingi, sem hann geti bersýnilega orðið fyrir vegna þess.
Þrír forsetar lýðveldisins hafa verið beittir þrýstingi, um að taka
beinlínis afstöðu gegn meirihluta Alþingis til þess að efna mætti
til þjóðaratkvæðagreiðslu, án þess þó að þeir létu undan honum.
Þetta breytir þó ekki því, að þjóðaratkvæðagreiðslur hafa ýmsa
kosti. Með þjóðaratkvæðagreiðslu er til dæmis hægt að höggva á
hnúta og leysa deilumál, sem Alþingi virðist einhverra hluta vegna
ekki ráða við, hvort sem það er vegna þess kerfis samsteypu-
stjórna, sem hér hefur komizt á, eða vegna annarra þátta. Sumir
kynnu að vilja gera út um áralangar deilur um t.d. eignarhald á
fiskimiðunum eða fyrirkomulag landbúnaðarkerfisins með slíkri
atkvæðagreiðslu. Annar kostur þjóðaratkvæðagreiðslu er sá, að
þar hafa allir landsmenn jafnan atkvæðisrétt. Mál, sem nýtur
raunverulegs meirihlutafylgis meðal kjósenda, getur strandað á
því að þingheimur endurspegli ekki vilja þjóðarinnar vegna úrelts
kjördæmakerfis.
Morgunblaðið hefur talið að standi hugur þjóðarinnar til að
taka upp þjóðaratkvæði í ríkari mæli en íslenzk hefð stendur til,
með tilheyrandi fyrirhöfn og kostnaði, þurfi að taka það til ræki-
legrar umfjöllunar áður en af verður. Í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins um þetta efni 17. janúar 1993 sagði: „Hér á íslandi rík-
ir engin hefð um þjóðaratkvæði um mikilsverð mál. Vilji menn
hins vegar taka upp slíka reglu er sjálfsagt að fram fari umræð-
ur um það, en þá er eðlilegt að það gerist án atbeina forseta ís-
lands. Embætti þjóðhöfðingjans verður að vera hafið yfir pólitísk-
ar deilur, ella getur hrikt í undirstöðum stjórnskipunar lýðveldis-
ins.“
Frumvarp Þjóðvaka er jákvætt innlegg í umræður um þessi
mál, sem eðlilegt er að séu rædd þegar kastljósið beinist að stöðu
og hlutverki embættis forseta íslands.
GREININ GARSTÖÐ
FATLAÐRA
*
ARIÐ 1979 voru samþykkt lög um aðstoð við þroskahefta. I
þeirri löggjöf var í fyrsta skipti hér á landi rætt um nauðsyn
á greiningarstöð fyrir fatlaða. Fyrir tíu árum, árið 1986, tók síð-
an endurskipulögð og endurskilgreind greiningar- og ráðgjafarstöð
til starfa. Meginverkefni hennar hefur verið greining á fötluðum
og ráðgjöf um hvernig bezt yrði staðið að meðferð, þjálfun og
þjónustu við hvern einstakling.
Margrét Margeirsdóttir, formaður stjórnar Greiningar- og ráð-
gjafarstöðvarinnar, kemst svo að orði í viðtali við Morgunblaðið
í fyrradag:
„Með lögunum frá 1979 kom fram ný hugmyndafræði sem felst
í því að fatlaðir eigi rétt á við aðra landsmenn. Þá var landinu
líka skipt í átta þjónustusvæði. Þetta fyrirkomulag gafst vel á
þeim tíma, en breyttist við síðustu endurskoðun laga um málefni
fatlaðara. Svæðisstjórnir heyra nú sögunni til. Svæðin eru eftir
sem áður átta og Greiningarstöðin er ráðgefandi fyrir þau og
fyrir stjórnvöld.“
Algengasta fötlun þeirra, sem til Greiningar- og ráðgjafarstöðv-
arinnar leita, er þroskafrávik, þegar þroski viðkomenda er veru-
lega undir meðallagi. Stöðin hefur verið viðkomendum og aðstand-
endum mikil hjálparhella. Framkvæmdasjóður fatlaðra og ýmis
iíknarfélög hafa síðan reynzt stöðinni góðir bakhjarlar.
Stjórn greiningarstöðvarinnar ráðgerir að láta fara fram könn-
un á starfi stöðvarinnar þau tíu ár sem hún hefur starfað, til þess
að fá betri vitneskju um, hvern veg hún hefur skilað hlutverki
sínu. Vinnubrögð af þessu tagi eru gott fordæmi fyrir aðrar þjón-
ustustofnanir.
Staða þroskaheftra í samfélaginu er allt önnur og betri en var
fyrir nokkrum áratugum. Sitt hvað stendur þó enn til bóta. Starf-
semi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins var farsælt og gott
skref til réttrar áttar.
Sami herafli
en breyting
á verktöku
Morgunblaðið/Ásdís
HALLDÓR Ásgrímsson svarar spurningum fréttamanna.
ísland og Bandaríkin hafa náð samkomulagi
um framkvæmd vamarsamnings ríkjanna
næstu fimm árín. Vamarviðbúnaður á Kefla-
víkurflugvelli verður óbreyttur, en einkaréttur
tveggja verktakafyrirtækja á vamarfram-
kvæmdum verður afnuminn á átta árum.
Qlafur Þ. Stephensen sat blaðamannafund
utanríkisráðherra í gær.
HALLDÓR Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra kynnti í
gær á blaðamánnafundi
drög að samkomulagi ís-
lands og Bandaríkjanna um bókun
við varnarsamning íslands og
Bandaríkjanna, sem kveður á um
framkvæmd samningsins næstu
fimm árin. Samkvæmt samkomu-
laginu verður herafli Bandaríkjanna
á Keflavíkurflugvelli óbreyttur
þennan tíma frá því sem nú er, en
breytingar verða gerðar á verktöku
fyrir varnarliðið í áföngum. Einka-
réttur íslenzkra aðalverktaka og
Keflavíkurverktaka á framkvæmd-
um verður endanlega afnuminn í
byijun ársins 2004.
Samkomulagið, sem nú liggur
fyrir, er framhald samkomulags um
framkvæmd varnarsamstarfsins,
sem gengið var frá 4. janúar 1994
og átti að endurskoða að tveimur
'árum liðnum. Undanfarna mánuði
hafa íslenzk og bandarísk stjórnvöld
átt í viðræðum um framlengingu
samkomulagsins, en það fól í sér
nokkurn samdrátt í umsvifum í
varnarstöðinni í Keflavík frá því,
sem verið hafði.
Samninganefndirnar hafa nú lok-
ið störfum og hafa íslenzk stjórn-
völd samþykkt samkomulagsdrögin
fyrir sitt leyti. Sama á við um utan-
ríkisráðuneyti Bandaríkjanna og
Atlantshaf sherstj órn Bandaríkj -
anna. Búizt er við formlegri stað-
festingu bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins, Pentagon, á næstu
dögum.
I samkomulaginu eru ítrekaðar
skuldbindingar beggja ríkjanna um
varnir íslands á grundvelli varnar-
samningsins frá 1951 og aðildar að
Atlantshafsbandalaginu. Áfram-
haldandi vera varnarliðs Bandaríkj-
anna í varnarstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli er staðfest og áréttað er
áframhaldandi náið samstarf ríkj-
anna í öryggis- og varnarmálum,
bæði tvíhliða og innan Atlantshafs-
bandalagsins.
Nýja samkomulagið gildir til
fimm ára, en ekki tveggja eins og
það gamla. Endurskoðun þess getur
hafizt á fimmta ári gildistímans.
„Við höfum lagt mikið upp úr því
að skapa meiri vissu í kringum þessi
mál og auka þar með starfsöryggi
fólks, en aðallega að tryggja eðlileg-
an varnarviðbúnað hér á landi,“ seg-
ir Halldór Ásgrímsson.
Sami herafli í
Keflavíkurstöðinni
Utanríkisráðherra segir enga
stefnubreytingu felast í samkomu-
laginu hvað varði varnarviðbúnað;
viðvera Bandaríkjanna á Kefla-
víkurflugvelli verði sú sama næstu
árin og nú er. í því felst að í varnar-
stöðinni verða ævinlega að minnsta
kosti fjórar F-15 orrustuþotur, og
segir Halldór að aldrei hafi komið
til álita í viðræðunum að þær hverfi
úr landi. Með litlum fyrirvara sé
hægt að auka varnarviðbúnaðinn
hér á landi. Bandaríkja-
menn hafi ekki gert kröf-
ur um að viðbúnaðurinn
yrði minnkaður. „Þetta er
niðurstaðan og það er
ánægjulegt að samstaða
skuli vera um hana á milli
þjóðanna," segir ráðherra.
Orrustuþotunum fylgir þyrlu-
björgunarsveit, og er staðfest í sam-
komulaginu að rekstur hennar verði
óbreyttur og hún rnuni veita sömu
þjónustu og áður. í samkomulaginu
frá 1994 var kveðið á um að kanna
möguleika á að ísland axlaði aukna
ábyrgð á sviði þyrlubjörgunarstarfa.
Halldór segir að ekki hafi verið horf-
ið frá því markmiði, og gert sé ráð
fyrir því í nýja samkomulaginu að
viðræðum verði haldið áfram um
að íslendingar taki við björgunar-
starfseminni í meira mæli.
Loks verður heræfingunni Norð-
urvíkingi haldið áfram á tveggja
ára fresti, með áherzlu á að laga
varnarsveitir og varnaráætlanir fyr-
ir ísland sem bezt að ríkjandi að-
stæðum hér á landi.
Áherzla á að draga úr kostnaði
Þótt varnarviðbúnaður verði
óbreyttur, segir utanríkisráðherra
að mikil áherzla sé á það af hálfu
Bandaríkjanna að draga úr kostnaði
í rekstri varnarstöðvarinnar. „Á því
höfum við fullan skilning, ekki sízt
vegna þess að mikill niðurskurður
hefur verið til varnarmála í Banda-
ríkjunum, um 40% á undanförnum
árum, og mörgum stöðv-
um hefur verið lokað,“
segir Halldór. Hann segir
að kostnaðarlækkunar-
nefnd, skipuð háttsettum
embættismönnum beggja
ríkja, verði áfram starf-
rækt og muni áfram leita leiða til
sparnaðar. Halldór nefnir sem dæmi
að talið sé að varaflugvöllur fyrir
a.m.k. hluta af flugflota varnarliðs-
ins geti verið á Austurlandi, þ.e. á
Egilsstöðum, í stað Skotlands. Þá
sé aukið samstarf varnarliðsins og
Suðurnesjamanna í heilsugæzlu til
umræðu. „Menn gera sér jafnframt
vonir um að kostnaður muni lækka
vegna vaxandi útboða og meiri sam-
keppni í kringum rekstur flugvallar-
ins,“ segir utanríkisráðherra.
Einkaréttur verktaka
afnuminn 2004
Sá þáttur samkomulags íslands
og Bandaríkjanna, sem mesta at-
hygli vekur, snýr að fyrirkomulagi
verktakaframkvæmda á Kefla-
víkurflugvelli. Islenzkir aðalverk-
takar og Keflavíkurverktakar hafa
um áratugaskeið haft einkarétt á
framkvæmdum fyrir varnarliðið.
Síðastliðið vor var einkaréttur Aðal-
verktaka á framkvæmdum, sem
greiddar eru úr Mannvirkjasjóði
Atlantshafsbandalagsins, afnuminn
og jafnframt var byijað að bjóða
út kaup á ýmissi vöru og þjónustu
fyrir varnarliðið. Um tugur þjón-
ustuverkefna hefur verið boðinn út
og eitt verkefni á vegum
Mannvirkjasjóðsins.
Verktakafyrirtækin
tvö hafa hins vegar áfram
setið ein að framkvæmd-
um, sem greiddar eru úr
ríkissjóði Bandaríkjanna.
í samningaviðræðunum, sem farið
hafa fram undanfarið, var megin-
krafa Bandaríkjanna sú, að einka-
rétturinn yrði afnuminn endanlega.
í nýja samkomulaginu er ákveðið
að stefna að afnámi einkaréttar
fyrirtækjanna tveggja í áföngum.
Akveðið er að árið 1998 verði lokið
athugun á reynslu af útboðum á
framkvæmdum fyrir Mannvirkja-
sjóðinn og þjónustuverkefnum. Á
grundvelli þeirrar athugunar verða
settar reglur um samkeppnisútboð
fyrir byggingaframkvæmdir og við-
haldsverkefni á vegum varnarliðs-
ins. Byijað verður smátt og breyt-
ingar á núverandi ástandi verða í
raun ekki fyrr en árið 1999, en þá
verður eitt verkefni boðið út á al-
mennum markaði á grundvelli hinna
nýju reglna. Árið 2000 verða síðan
tvö verkefni boðin út. Að því loknu
mun herða á breytingunum og er
gert ráð fyrir að verktaka á þessu
sviði verði boðin út á almennum
markaði í áföngum, allt fram til
janúarmánaðar 2004, en þá verður
einkaréttur íslenzkra aðalverktaka
og Keflavíkurverktaka endanlega
afnuminn.
Sameiginlegt hagsmunamál
Halldór Ásgrímsson segir að
Bandaríkjamenn hafi verið ánægðir
með þjónustu verktakafyrirtækj-
anna. „Það er hins vegar alveg ljóst
að þeim ber, samkvæmt þeim fjár-
lagaheimildum, sem þeir hafa, að
leitast við að lækka kostnað eins
og frekast er kostur. Við hljótum
að skilja það á þessum aðhaldstím-
um á Vesturlöndum að við þurfum
að verða við slíkum málaleitunum.
Við teljum það þess vegna vera
hagsmunamál okkar og þeirra að
lækka kostnað við rekstur stöðvar-
innar, þannig að hún geti skilað
sömu markmiðum og áður fyrir
minna fé og það verði jafnframt til
þess að tryggja nauðsynlega viðveru
þessa liðs hér á landi,“ segir hann.
Utanríkisráðherra segir að þetta
muni hafa margvíslegar breytingar
í för með sér fyrir verktakafyrirtæk-
in tvö. „Við höfum lagt áherzlu á
að hér þyrfti alllangan aðlögunar-
tíma, þannig að þau geti breytt
áherzlum sínum í ljósi nýrra að-
stæðna og mótað stefnu til lengri
tíma,“ segir Halldór. „Þessi fyrir-
tæki eru umfangsmikil í atvinnu-
starfsemi á Suðurnesjum og mikill
fjöldi fólks byggir afkomu sína á
vinnu hjá þeim.“ Ráðherra bendir á
að um 860 manns starfi hjá verk-
taka- og þjónustufyrirtækjum á
Keflavíkurflugvelli, fyrir utan
starfsfólk varnarliðsins sjálfs og
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Halldór segir að íslenzk stjórn-
völd hafi lagt megináherzlu á að
þær reglur, sem settar verði um
samkeppnisútboð, verði sambæri-
legar við það, sem almennt gerist
á íslandi. „Við viljum til dæmis
ekki að notaðar verði sambærilegar
útboðsreglur við það, sem gengur
og gerist í Bandaríkjunum, heldur
verði þær miðaðar við íslenzkar
aðstæður. Það eru mörg mál, sem
þarf að leysa áður en til þessa kem-
ur, til dæmis að því er varðar skatta-
mál og íslenzka löggjöf. Reglurnar
þurfa að miðast við íslenzkar að-
stæður til þess að fyrirtæki í land-
inu geti treyst því að þarna ríki
eðlilegar samkeppnisreglur,“ segir
Halldór.
Ráðherra segir að í huga ís-
lenzkra stjórnvalda sé gert ráð fyr-
ir að varnarliðsfram-
kvæmdir verði fyrst og
fremst boðnar út á innan-
landsmarkaði. Enn hafi þó
ekki verið gengið frá út-
boðsreglunum. Ekki megi
heldur gleyma því að gæta
verði að reglum, sem gildi á Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Halldór
segir að viðhaft verði alþjóðlegt
útboð á endurnýjun flugskýlis á
Keflavíkurflugvelli, sem greidd er
af Mannvirkjasjóði Atlantshafs-
bandalagsins og hljóðar upp á um
20 milljónir dollara. Mannvirkja-
sjóðurinn hafi ekki fallizt á að það
verk yrði eingöngu boðið út hér á
landi og því hafi ísland orðið að
hlíta.
Stöðin skili
sömu mark-
miðum fyrir
minna fé
Meiri vissa
með sam-
komulagi tii
fimm ára
íslenzkir
aðalverktakar
stofnaðir,
fá einkarétt
á varnarliðs-
framkvæmdum
Keflavíkur verk-
takar stofnaðir,
fá einkarétt
á hluta fram-
kvæmdanna,
einkum viðhaldi
Fallizt á kröfur Útboð á verkum
Mannvirkja- Mannvirkjasjóðs
sjóðs NATO og á þjónustu-
um að verk á verkefnum hefjast,
hans vegum einkaréttur Aðal-
verði boðin út verktaka afnuminn
AFNAM EINKARETTAR: Á næstu árum verður einkaréttur Islenzkra
Núverandi ástand:
ÍAV og Keflavíkurverk
takar hafa einkarétt
á framkvæmdum,
sem greiddar em
af Bandaríkjunum
aðalverktaka og Keflavikurverktaka á framkvæmdum fyrir
varnarliðið á Keflavíkurflugyelli afnuminn endanlega,
samkvæmt samkomulagi íslands og Bandarikjanna:
ástand
nýjar útboðs-
reglursamdar
Einkaréttur
verk verk Útboðum afnuminn
boðið út boðin út fjölgað endanlega
Þýsku stjórnarflokkarnir styrkja stöðu sína í kosningum í þremur sambandslöndum
Pólitísk sprengja aftengd
SEGJA má að pólitísk sprengja
hafi verið aftengd í kosning-
unum í þremur þýskum sam-
bandslöndum, Slésvík-Holt-
setalandi, Baden-Wúrttemberg og
Rheinland-Pfalz, á sunnudag. Kristi-
legir demókratar (CDU) hafa átt í vök
að veijast að undanförnu en fóru með
sigur af hólmi í mikilvægustu kosn-
ingunum, í Baden-Wúrttemberg, og
frammistaða þeirra þótti góð í hinum
sambandslöndunum tveimur.
Úrslitin eru ekki síður mikill sigur
fyrir Ftjálsa demókrata og leiðtogar
flokksins höfðu sagt að kosningarnar
væru „spurning um líf eða dauða fyr-
ir flokkinn". Frjálsir demókratar
(FDP) geta varpað öndinni léttar þar
sem þeir fengu verulegt kjörfylgi í
sambandslöndunum þremur. Skoð-
anakannanir höfðu bent til þess að
flokkurinn næði ekki tilskildu fylgi,
eða 5% atkvæða, til að fá menn kjörna
á þing sambandslandanna og hann
hafði ekki náð því marki í 12 af síð-
ustu 13 kosningum í sambandslönd-
um. Stjórnmálaskýrendur voru sam-
mála um að ógjörningur hefði verið
fyrir Helmut Kohl kanslara að halda
stjórnarsamstarfinu með Fijálsum
demókrötum til streitu ef þeir hefðu
beðið enn einn ósigurinn.
„Samsteypustjórnin í Bonn getur
nú andað léttar,“ sagði dagblaðið Bild.
„Sannfærandi sigur Frjálsra demó-
krata tryggir frið og stöðugleika í rík-
isstjórn Kohls kanslara."
Kosningarnar kveða niður vanga-
veltur um að Kohl kunni að neyðast
til að mynda samsteypustjórn með
jafnaðarmönnum til að stemma stigu
við mesta atvinnuleysi í Þýskalandi
eftir heimsstyijöldina síðari; „Vofa
stóru samsteypustjórnarinnar er nú
loksins horfin," sagði Norbert Blúm,
vinnumálaráðherra Þýskalands.
Guido Westerwelle, framkvæmda-
stjóri Fijálsra demókrata, sagði að
kjósendurnir hefðu umbunað flokkn-
um fyrir að styðja skattalækkanir.
Ósigur fyrir Lafontaine
Úrslitin eru áfall fyrir jafnaðar-
menn, sem hafa verið í stjórnarand-
stöðu í þrettán ár og höfðu vonast
eftir meira fylgi undir forystu nýja
leiðtogans, Oskars Lafontaine.
Jafnaðarmenn töpuðu verulegu
fylgi, 4,3-6,4 prósentustigum, í öllum
sambandslöndunum þremur. Mesta
áfallið var í Baden-Wúrttemberg, þar
sem jafnaðarmenn höfðu verið í stjórn
með Kristilegum demókrötum. Kristi-
legir demókratar og Fijálsir demó-
kratar fengu þar samanlagt 50,9%
atkvæðanna og geta myndað nýja
stjórn.
Jafnaðarmenn í Rheinland-Pfalz,
undir forystu Kurts Becks forsætis-
ráðherra, töpuðu einnig fylgi en héldu
stöðu sinni sem stærsti flokkurinn og
geta haldið áfram stjórnarsamstarfi
við Fijálsa demókrata.
Heidi Simonis, forsætisráðherra og
leiðtogi jafnaðarmanna í Slésvík-Holt-
setalandi, missti hreinan meirihluta
sinn á þingi sambandslandsins. Lík-
legt er að hún myndi samsteypustjórn
með Frjálsum demókrötum eða Græn-
ingjum.
Treysta stjórnarflokkunum
betur
Stjórnmálaskýrendur segja að þótt
Helmut Kohl hafi átt í vök að veijast
að undanförnu vegna efnahagsvand-
ans séu vandamál hans harla léttvæg
miðað við vanda jafnaðarmanna.
Vinsældir Kohls meðal kjósenda
hafa minnkað að undanförnu og hann
hefur sætt gagnrýni fyrir að víkja sér
undan því að taka erfiðar ákvarðanir
um aðgerðir til að stemma stigu við
atvinnuleysinu og blása lífi í efnahag-
inn. Jafnaðarmönnum tókst þó ekki
að hagnýta sér þessa erfiðleika kansl-
arans. Kjósendurnir sýndu þvert á
móti að þeir treysta Kristilegum dem-
ókrötum og Fijálsum demókrötum
betur til að leysa efnahagsvandann
en vinstriflokkunum.
Óljós stefna
„Þeir sem kjósa Kristilega demó-
krata vita að hveiju þeir ganga,“ sagði
sína í mikilvægum kosningum í þremur þýsk-
um sambandslöndum á sunnudag. Fijálsir
demókratar héldu velli í kosningum sem leið-
togar þeirra lýstu sem „spumingu um líf eða
dauða fyrir flokkinn“. Úrslitin eru hins vegar
mikið áfall fyrir jafnaðarmenn.
Reuter
RAINER Bruderle, frambjóðandi Frjálsra demókrata og efnahags-
málaráðherra Rheinland-Pfalz, ásamt Kurt Beck, forsætisráðherra
sambandslandsins og leiðtoga jafnaðarmanna.
Stjóm Helmuts Kohls kanslara styrkti stöðu
STJORN KOHLS EFUST
STJÓRN Helmuts Kohls, kanslara
Þýskalands, styrkti stöðu sína í
kosningum í þremur sambands-
löndum á sunnudag. Frjálsir
demókratar héldu velli í kosning-
unum sem var lýst sem spurningu
um líf eða dauða fyrir flokkinn".
Slésvík-
Holtsetaland
0
Berltn
Baden-
Wúrttemberg
ÚRSLIT KOSNINGANNA
í prósentum 24. mars, 5. april,
Baden-Wúrttemberg 1996 1992
Kristilegir demókratar (CDU) 41.3 39.6
Jafnaðarmenn (SPD) 25.1 29.4
Græningjar 12.1 9.5
Frjálsir demókratar (FDP) 9.6 5.9
Aðrir 11.9 15.6
Rheinland-Pfalz
Jafnaðarmenn (SPD) 39.8 44.8
Kristilegir demókratar (CDU) 38.7 38.7
Frjálsir demókratar (FDP) 8.9 6.9
Græningjar 6.9 6.5
Aðrir 5.703 3.1
Slésvík-Holtsetaland
Jafnaðarmenn (SPD) 39.8 46.2
Kristilegir demókratar (CDU) 37.2 33.8
Græningjar 8.1 5
Frjálsir demókratar (FDP) 5.7 5.6
Aðrir 9.1 9.4
Reuter
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, greiðir atkvæði í Rhein-
land-Pfalz. Kohl var þar forsæt-
isráðherra frá 1969 til 1976.
dagblaðið Suddeutsche Zeitung. „Þeir
sem kjósa Fijálsa demókrata vita að
þeir eru óbeint að kjósa stjórnina í
Bonn. En þeir sem kjósa jafnaðar-
menn nú um stundir vita ekki við
hverju þeir megi búast. Þetta er ein-
föld en trúverðug skýring á kosninga-
úrslitunum í öllum sambandslöndun-
um þrernur."
Sigur Kristilegra demókrata og
Fijálsra demókrata í Baden-Wúrttem-
berg þykir sérlega athyglisverður í
ljósi þess að jafnaðarmenn notuðu
kosningarnar þar til að kanna undir-
tektir kjósenda við tveimur umdeild-
um málum sem flokkurinn gæti sett
á oddinn í næstu þingkosningum í
Þýskalandi. Jafnaðarmenn í Baden-
Wúrttemberg reyndu að höfða til
hægrisinnaðra kjósenda í þessum
tveim málum með því að krefjast þess
að fyrirhuguðu efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópusambandsins yrði
frestað og takmarkanir við innflutn-
ingi fólks af þýskum ættum frá fyrr-
verandi sovétlýðveldum yrðu hertar.
Niðurstaðan varð sú að kjörfylgi
jafnaðarmanna minnkaði um rúm
fjögur prósentustig og fór í 25,1%,
sem er minnsti stuðningurinn sem
flokkurinn hefur nokkurn tíma fengið
í Baden-Wúrttemberg.
„Staða Jafnaðarmannaflokksins er
hörmuleg," sagði þýski stjórnmála-
fræðingurinn Peter Lösche. „Flokkur-
inn valdi röng kosningamál," sagði
hann og bætti við að jafnaðarmenn
hefðu tileinkað sér mál sem róttækir
hægrimenn hefðu hingað til einokað.
Kjósendur í Baden-Wúrttemberg
fengu það á tilfinninguna að jafnaðar-
menn vildu bæði ganga lengra til
hægri og vinstri en hinir flokkarnir.
Oskar Lafontaine reitti t.a.m. hægri-
sinnaða kjósendur til reiði með því
að taka undir kröfu vinstrimanna í
flokki Græningja um nýja náttúru-
verndarskatta.
Rudolph Scharping, sem Lafont-
aine steypti af stóli í leiðtogakjöri jafn-
aðarmanna í nóvember, gerði stefnu
flokksins enn ruglingslegri með því
að gefa til kynna að jafnaðarmenn
myndu framfylgja miðjustefnu og
beita sér fyrir samsteypustjórn með
Kristilegum demókrötum.
Kerstin Múller, leiðtogi Græningja,
kvaðst hissa á ruglingslegri fram-
göngu jafnaðarmanna. „Lafontaine
var í fyrstu hlynntur bandalagi
vinstriflokka með það að markmiði
að koma Kohl frá árið 1998 og núna
verður hann að útskýra hvað hann á
við með því.“
Repúblikanaflokkurinn
heldur velli
Jafnaðarmenn eru taldir hafa farið
illa að ráði sínu með því að setja inn-
flytjendamálið á oddinn í kosninga-
baráttunni og stuðlað þannig að því
að róttækur hægriflokkur, Repúblik-
anaflokkurinn, hélt velli í Baden-
Wúrttemberg. Flokkurinn fékk 9,1%
atkvæðanna en skoðanakanhanir
höfðu bent til þess að hann næði ekki
5% fylgi og fengi því engan þingmann
kjörinn.
Repúblikanar komust á þing í Bad-
en-Wúrttemberg í kosningunum árið
1992 með 10,9% fylgi eftir að hafa
lagt áherslu á loforð um að stöðva
straum innflytjenda og skerða rétt
flóttamanna til að fá pólitískt hæli í
Þýskalandi. Stóru flokkarnir brugðust
við uppgangi flokksins með -því að
samþykkja lög sem 'drógu verulega
úr straumi flóttamanna til landsihs
og virtust þannig hafa slegið vopnin
úr höndum Repúblikanaflokksins.
Jafnaðarmenn gerðu hins vegar inrrf
flytjendur að kosningamáli með kröfu
um að fjöldi innflytjenda af þýskum
ættum yrði takmarkaður frekar.
200.000 Þjóðveijar frá fyrrverandi
sovétlýðveldum fá nú að flytja til
Þýskalands á ári.
„Kjósendur hafa refsað jafnaðar-
mönnum fyrir ,að misnota innflytj-
endamálið, sem leiðtogi fiokksins setti
á oddinn og stuðlaði að góðri útkomu
Repúblikanaflokksins,“ sagði dag-
biaðið Hamburger Abendblatt.
Erwin Teufel, forsætisráðherra og
ieiðtogi Kristilegra demókrata í Bad-
en-Wúrttemberg, gagnrýndi málfluth-
ing jafnaðarmanna og sagði það eítt
af mikilvægustu verkefnum næstu
fjögurra ára að „hrekja Repúblikaiia-
flokkinn af þingi“.
Annar róttækur hægriflokkur,
Þýska þjóðarsambandið, fékk engan
þingmann kjörinn í Slésvík-Holtseta-
landi. Flokkurinn fékk 4,3% fylgi en
6,3% í kosningunum 1992.
Fréttaskýrendur segja að þótt Kohl
geti andað léttar eftir kosningarnar á
sunnudag eigi atvinnuleysið eftir að
valda honum frekari vandræðum og
hann geti ekki lengur vikið sér undan
því að taka á efnahagsvandanum.
„Tími kænskubragðanna er nú loksins
liðinn,“ sagði viðskiptadagblaðið
Handelsblatt. „Samsteypustjórn
Kohls kom sér hjá því að taka á
viðvæmum málum síðustu vikurnar
fyrir kosningarnar."
4,3 milljónir Þjóðveija eru án at-
vinnu, eða 10,3 af vinnuaflinu og
efnahagssamdráttur hefur leitt til
aukins ijárlagahalla.
Sigur stjórnarflokkanna á sunnu-
dag styrkir stöðu stjórnarinnar í Bonn
og ætti að örva hana til dáða í barátt-
unni við efnahagsvandann. Stjórnin
getur ekki gripið til þess ráðs að auka
ríkisútgjöldin til að blása lífi í efna-
haginn þar sem hún á þegar í erfið-
leikum með að koma fjárlagahallanum
undir 3% af vergri landsframleiðslu,
sem er skilyrði fyrir aðild að efna-
hags- og myntbandalagi Evrópusam-
bandsins.
Stjórnin verður því að grípa til
sparnaðaraðgerða og lækka ríkisút-
gjöldin. Hún hefur lofað að spara í
velferðarkerfinu og lækka álögur á
fyrirtæki til að glæða efnahaginn.
„Vorvindar gefa nú Kristilegum
demókrötum byr undir seglin," sagði
dagblaðið Frankfurter Allgemeine
Zeitung. „Núna geta þeir loksins snú-
ið áér að því að stjórna.“