Morgunblaðið - 26.03.1996, Side 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hreinsum alll fyrii hátíðarnar
Góð þjónusta í yfir 40 ár.
Fagmennska í fyrirrúmi
Háaleitisbraut 58-60, simi 553 1380 • Álfabakka 12, sími 557 2400
_____________Grímsbæ v/Bústaðaveg, sími 568 5480._______________
UPPÁHALDSLAGIÐ MITT
í Háskólabíói fi mmtudaginn
28. mars kl. 20.00
ásamt
Sinfóníuhljómsveit fslands
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS (*\
Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HIJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN
Það er alltaf mikið líf og fjör á kompuhátíðum í Kolaportinu
Salan á helginni
var 55.000 krónur
Kompubásinn á kr.
Þórdís Alfreðsdóttir á Brekku-
stíg seldi á sinni fyrstu helgi í
Kolaportinu búsáhöld, fatnað og
fleiri notaða muni frá sjálfri sér fyrir
heilar 55.000 krónur.
Hressar og spjölluðu mikið
"Við vorum hressar, spjölluðum
mikið og fannst í raun þetta allt
saman vera frábaer skemmtun.
Dagurinn leið hjá á skömmum tíma”
sagði Þórdís.
1800,- um helgina
Ótrúlegustu hlutir seldust
Þórdís sagði að ótrúlegusta vara
hefði selst s.s. notað strauborð,
hraðsuðuketil, gömul hárþurrka,
notuð hnífapör og fleira.
Kompuhátíð um helgina
Um helgina verður Kompuhátíð
og þá er þoðið upp á lægra básaverð
fyrir kompudót eða kr. 1800,- á dag.
Básapantanir eru í síma 5625030
virka daga kl. 9-17.
- kjarni málsins!
ÍDAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hvítur á leik
STAÐAN kom upp á VSB-
stórmótinu í Amsterdam í
Hollandi sem hófst fyrir
helgina. Frakkinn Joel
Lautier (2.630) var með
hvítt og átti leik, en Bretinn
Nigel Short (2.665), hafði
svart.
26. Rxd5! - Bxd5 27.
Bxd5 — Rxd5 28. Hxd5 —
Hf5? (Jafngildir uppgjöf.
Svartur varð að sýna kjark
°g þiggja fórnina, því eftir
28. — Dxd5 29. Rxg6+ —
hxg6 30. Dxg6 — Hf7 31.
e4 á hann ótrúlegan varn-
arleik: 31. — Db7! og verst
eftir bæði 32. Hhl+ — Bh4
33. Hxh4 - Hh7
og 32. Dh5+ - Hh7
33. De5+ - Bf6!)
29. Hd2 - g5 30.
Rc6 - Hbf8 31.
Rxe7 — Dxe7 32.
Dc3+ - Kg8 (Með
peði meira og yfir-
burðastöðu blasir
sigur við hvíti. Lok-
in urðu) 33. Dc4+ —
H8f7 34. Hd5 -
Kf8 35. Hxg5 -
Hxf4 36. Dxa6 —
Hxf2 37. Dc8+ -
De8 38. Hg8+ og
svartur gafst upp,
því drottningin er fallin.
Kasparov tapaði glæsi-
lega í fyrstu umferð fyrir
Topalov, en hefur síðan
unnið þá Piket og Anand.
Staðan eftir þrjár umferðir:
1—5. Kasparov, Kramnik,
Lautier, Short og Topalov
2 v., 6. Gelfand 1 ‘/2 v.,
7-9. Piket, Seirawan og
Timman 1 v. 10. Anand 'U
v.
Það eru allar líkur á því
að þetta verði sterkasta
mót ársins.
COSPER
KONAN mín var ekkert í sérlega góðu skapi
þegar hún kyssti mig bless.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Ábending til
hundaeigenda
EFTIR að lesa grein um
óréttlæti heimsins gagn-
vart hundaeigendum og
þá sérstaklega í Reykja-
hverfinu í Mosfellsbæ,
sem birtist í Bréfí til
blaðsins 22. mars sl.,
finnst mér alveg rakið
að nota tækifærið til að
minna hundaeigendur í
sama hverfi á að hirða
skítinn upp eftir hunda
sína sem ég sé þá aldrei
gera. Þeir senda hundana
sjálfa út til að gera þarf-
ir sínar eða senda með
þeim smábörn sem
sjaldnast eru með þá í
bandi.
Ég er sammála því að
það þyrftu líka að vera
leyfisgjöld fyrir ketti til
að fólk hugsi sig um áður
en dýr kemur á heimilið
og hversu vel á að sinna
því. í mitt hús hefur aldr-
ei komið óboðinn köttur
og þegar sandkassi var í
garðinum var breitt yfir
hann þegar hann var
ekki í notkun. En aftur
á móti er hundaskítur út
um allan garð, á gang-
stígum og opnum svæð-
um.
Húsmóðir í
Reykjahverfi.
Maður óskast
með reynslu
ÉG las í Morgunbiaðinu
sl. fimmtudag viðtal við
Sigfús Sigfússon for-
stjóra Heklu um rekstur
fyrirtækis hans. Væri
ekki hægt að fá svona
menn til að aðstoða við
ríkisreksturinn? Ef hægt
væri að géi;a svipaða
hluti við rekstur landsins
og margir góðir forstjór-
ar vel rekinna fyrirtækja
eru að gera í fyrirtækjum
sínum, myndu hlutirnir
ganga hér betur.
Stefanía Ólafsdóttir.
Þakkir til
ljóðaunnenda
GUÐRÚN Jacobsen
hafði samband við Vel-
vakanda og vildi biðja
fyrir kærar kveðjur til
þeirra mörgu sem höfðu
samband við hana út af
vísubrotum sem birtust í
Velvakanda. Er þeim
þökkum hér með komið
á framfæri.
Tapað/fundið
Úr týndist
ÚR týndist á Flyðru-
granda eða innst í Ála-
granda á fimmtudaginn
var. Úrið er silfurlitað.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 551-7082.
Gleraugu
töpuðust
BRÚN gleraugu týndust
í anddyri Loftkastalans
þann 7. mars sl. eftir
sýningu á skólaleikriti
Kvennaskólans í Reykja-
vík. Finnandi vinsamleg-
ast hringi í síma
552-4152.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI hefur velt því nokkuð
fyrir sér að undanfömu hvers
vegna kvenþjóðinni sé eins illa við
að aka bíl og raun ber vitni. Eða
er konum bara illa við að keyra
þegar eiginmennimir sitja við hlið
þeirra? Eru þær haldnar minnimátt-
arkennd eða eru þeir alltaf að gagn-
rýna? Þessar vangaveltur Víkvetja
hafa ekki gefið honum nein svör.
Hann hefur hins vegar veitt því at-
hygli um nokkurt skeið, að oftar en
ekki þegar samstarfsmenn hans af
hinum ýmsu deildum koma til starfa
og eiginkonan eða kærastan eru
samferða, stíga þau bæði út úr bíln-
um. Hann kemur út bílstjóramegin
og hún farþegamegin, hann gengur
inn í húsið en hún sest undir stýri
og ekur í burtu. Hún er sem sagt
að skutla honum í vinnuna en hann
keyrir! Þegar Víkveiji bar þetta und-
ir tvo samstarfsmenn sína fannst
þeim þetta hreint ekkert fýndið!
Þetta var nefnilega líka svona hjá
þeim. Annar kom með þá skýringu
að konunni hans leiddist að keyra
en hinn hafði sér til afsökunar eða
útskýringar að þegar frúin sækti
hann í vinnuna sæti hún áfram und-
ir stýri!:
Hitt er annað mál að hefðin er
svo mikil í þjóðfélaginu að sjá karl
undir stýri að undrun vekur ef kon-
an keyrir. Varstu að koma úr kok-
teilpaifýi? er karlinn kannski spurð-
ur af einhveijum sem til sá, því
ekki er gert ráð fyrir að hann sitji
farþegamegin nema undir sérstök-
um kringumstæðum. Víkveiji þekkir
þó til tvennra hjóna, þar sem kon-
uraar keyra alltaf, þó svo að menn-
imir séu samferða. Og meira að
segja úti á landi! Víkveijir hefur aldr-
ei spurt hvers vegna, en hefur þá
trú að eiginkonunum finnist karlam-
ir keyra svo illa.
Það er fleira í umferðinni sem
má ræða. Víkveiji ekur nánast dag-
lega um gatnamót Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar og finnur
mikinn mun á því þegar myndavélin
var sett upp og menn óttuðust að
verða teknir fyrir að aka yfir á rauðu
ljósi og ástandinu eins og það er
nú. Greinilegt var að fólk vildi ekki
láta hanka sig á því og af þeim
sökum höfðu bílar sem voru á
beygjuljósum góðan tíma til að koma
sér yfir áður en grænt ljós kom á
beinu brautina. Nú er allt komið í
sama horf og áður og fólk hikar
ekki við að aka yfir á rauðu ljósi.
xxx
TVÖ AF stærstu einkafyrirtækj-
um landsins, Hekla hf. og Hof
sf, móðurfyrirtæki Hagkaups,
ákváðu í síðustu viku að birta í
fyrsta sinn opinberlega upplýsingar
úr ársreikningum sínum. Þetta eru
óneitanlega nokkur tímamót í við-
skiptalífinu, því áratugum saman
hafa þessi fyrirtæki eins og önnur
lokuð fjölskyldufyrirtæki farið með
upplýsingar um rekstur og efnahag
sinn sem trúnaðarmál. Ný lög um
ársreikninga gera kröfu til þess að
ársreikningar allra hlutafélaga í
landinu verði aðgengilegir fyrir al-
menning á þessu ári en einnig má
segja að birting slíkra upplýsinga
sé í takt við breytt viðhorf almenn-
ings gagnvart fyrirtækjarekstri.
Fyrir aðeins fáum árum voru vel
rekin fyrirtæki sem nutu velgengni
jafnvel litin hornauga og öfundar-
menn voru fljótir að snúa öllu á
versta veg í umræðu um þau manna
á meðal. Núna virðist góður hagn-
aður fyrirtækja almennt litinn mun
jákvæðari augum. Meiri skilningur
er ríkjandi á nauðsyn þess að hlut-
hafar fái góðan arð af sínu hlutafé
og að fyrirtækin þurfi að hagnast
til að þau geti treyst rekstur sinn
í sessi og búið í haginn fyrir fram-
tíðina. Þetta er ekki síst að þakka
hlutabréfamarkaðnum sem hefur
vaxið mjög fiskur um hrygg á síð-
ustu árum.
xxx
VÍKVERJA finnst ástæða til að
hvetja alla til að sjá kvik-
myndina Dauðamaður nálgast sem
Háskólabíó sýnir um þessar mund-
ir. Þó að myndin sé engan veginn
hlutlaus í afstöðu til dauðarefsing-
ar, eru hinar tvær hliðar dauðarefs-
ingar þar skoðaðar af meiri hlut-
lægni en venja er í bandarískum
kvikmyndum í krufningu þeirra á
áleitnum þjóðfélagsmálum.