Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 6
6 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ V\ ÍV'f1 ið var Jonni Hamborg spurður hvort hann ætlaði ékki að mennta sig eitthvað í Iistínni þegar hann kæmi til Dánmerk- ur og hefði lokið starfinu með Elsu Sigfúss. „Jú, ef mér tekst að fá góða kennslu - annaðhvort í jassi eða klassískri músík, en þó helst í hvoru tveggjá. Annars langar mig að fá tækifæri til að spila með einhverri danskri hljómsveit ef tök verða á sllku.“ Um tónleikana sagði hann að sig hefði lengi langað að halda konsert og nú væri að hrökkva eða stökkva því ekki væri víst hvenær hann kæmi heim frá Danmörku. Jonni var ánægður með kappana er áttu að leika með J honum og sagði að vel hefði borið 1 í veiði. „Karl Karlsson verður með mér á trommur. Við erum búnir að spila saman í mörg ár. Hann hef- " ur léttan og skemmtilegan áslátt. I Baldur Kristjánsson spilar á píanó 1 í hljómsveitinni. Hann er þekktur píanóleikari og spilar á Borginni eins og allir vita. Björn R. Einars- son, eini maðurinn á íslandi sem kann að spila jass á básúnu, verður líka með. Hann hefur stjórnað hljómsveitinni í Listamannaskálan- um í vetur. Mér þykir ekki ólíklegt að hann verði einhverntíman virtúós á básúnu. Gunnar Egilsson er yngsti maðurinn í hljómsveitinni. Hann hefur spilað með Birni í Listamanna- skálanum í vetur. Gunnar er þegar orðinn fær klarinettleikari og mér finnst hann sérstaklega efnilegur.“ Forsala aðgöngumiða var í Bókabúð Lárusar Blöndal og seldust miðarnir einsog heitar lummur og því voru tónleikarnir endurteknir fjórum dögum síðar og hefur efnisskráin frá þeim tónleikum varðveist. í gagnrýni í Morgunblaðinu var sagt að tónleikarnir hefðu tekist afbragðsvel og „þetta væru einir bestu og líklega þó þeir bestu djasshljómleikar sem hér hafi heyrst. Um einleik Jóhannesar er það að segja að hann var með ágætum. Það var sama <<o . t<- v<,\í-vv. V.’N aA. v.\V o'tvi ’- V hvort lögin voru hæg og rómantísk eða hröð. Alls staðar kom .fram örugg tækni, skemmtileg hugkvæmni í improvisationum og frábær smekkvísi. Ekki er gott að segja hvert laganna hann lék best því ekki mátti á milli sjá. M.a. lék Jóhannes lag eftir sjálf- an sig, sem hann nefnir Wallers Weight, til minningar um eftirlætis- píanóleikarann sinn Fats Waller. Jó- hannes varð að endurtaka mörg lag- anna. Bárust honum blómvendir og fögnuður áheyrenda var með ein- i dæmum. Hljómsveitin lék með mik- í illi prýði. Jóhannes mun hafa komið flestum á óvart með trompetleik sinum, tæknin er góð og tónninn laus við að vera grófur- eða rifinn ; eins og við hér eigum svo mjög að venjast. Baldur Kristjánsson lék á flygil með prýði og gaf hljómsveitin góðan rythma. Björn R. hefur náð mikilli leikni á bás- únuna, það erfiða hljóðfæri og hefur fallegan tón. Gunnar Egils- son lék á klarinett af mikilli smekkvísi og tók margar góðar sólóar. Hann er ekki nema átján ára gamall og má það mikið vera ef hann á ekki eftir að BLAÐSÍÐA úr bókhaldsbók Kalla á Felli þar sem kaupið fyrir tónleikana er tíundað. - HLJÓMSVEIT Björns R. í Listamannáskálanum. verða í fremstu röð hljóðfæraleikara. Karl Karlsson hafði léttan áslátt og góðan ryt- hma. Hljómsveitin varð að leika tvö auka- lög. Yfir leik hennar var hreinn og ósvik- inn dixílandblær“. Það var rétt hjá Jonna í Morgunblaðsvið- talinu að nú væri að hrökkva eða stökkva, ekki væri víst hvenær hann kæmi frá Kaup- mannahöfn. Það varð aldrei. Þangað hélt hann eftir tónleikana í fylgd Elsu Sigfúss og eftir að hafa unnið með henni spilaði hann víða og sögusagnir eru um að hann hafi ma. leikið inn á hljómplötu. Sú upptaka hefur ekki fundist. í júlí 1946 lést Jonni af slysförum - vo- veiflega - í Kaupmannahöfn. Hvað gerðist veit enginn með vissu. I áranna rás hafði nafn Jonna nánast fallið í gleymsku, en nú þegar fimmtíu ár eru liðin frá tónleikunum frægu í Gamla bíói verða þeir endurgerðir í minningu hans eins og kostur er. Það er RúRek djass- hátíðin sem stendur fyrir tónleikunum. Þar mun einn af þeim er léku með Jonna blása í básúnu: Björn R. Einarsson, Árni Elfar mun leika á básúnu og píanó og Guðmund- ur R. Einarsson á trommur. Þetta eru allt kappar sem eiga hálfa öld að baki í djassin- um. Tveir af yngstu kynslóð íslenskra djassleikara, sem báðir stunda framhalds- nám í djassspili erlendis, munu koma hing- að sérstaklega til að leika á tónleikunum: Veigar Margeirsson trompetleikari og Agnar Már Magnússon píanisti og síðan mun danski klarinettuleikarinn Jorgen Svare blása í klarinettið, en hann blés með Víkinga dixílandsveit Papa Bue um langa hríð. Tónleikarnir verða að sjálfsögðu haldnir í íslensku óperunni - Gamla bíói - þann 11. apríl og síðan endurteknir á Hótel KEA á Akureyri þann 12. apríl. Þá mun andblær hans leika um æskuheimilið, Hamborg, steinsnar frá. Það er við hæfi að minnast Jonna Ham- borg á þessum tímamótum og það er merki- leg tilviljun að sama árið og hann dó flutt- ist ungur strákur til íslands frá Kaup- mannahöfn. Sá átti eftir að verða mesta nafn íslenskrar djasssögu. Gunnar Ormslev hét hann og þarmeð var lokið sögu frum- herjanna og gullöld íslenskrar djasstónlistar hófst. * Attalus binding-lanúnating ✓ Plasthúðun - innbinding ✓ Allur vélbúnaður - og efni ✓ Úrvals vara - ún/als verð J. ÁSTVfllDSSON HF. Skipholli 33,105 Reykjavik, sími 552 3580 Leiklistarstúdíó Eddu Bjorgvins Gisla Rúnars wímvmsa_____________________ Fullorðinsnámskeið • Unglinganámskeið • Helgarnámskeið SÍMAR 588-2545, 581-2535, 551-9060 Rosatilboð á skíðum °g um ■ OPIÐ ALLA PÁSKANA 20-60% afsláttur Skíðaskiptimarkaður in2 Esja Mjódd 11.30-22 00 16:00-21 00 17:00 - 22:00 Lokað 11:30-23:00 12:00 - 22 00 Lokað Lokað 17:00-22:00 17:00-21:00 Skirdagur Föstudagurinn langi Laugardagur Paskadagur Annar í páskum Páskaec/r*,-. barnaboxin ’v korró^

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.