Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 8
8 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ + | t Faraóaþorp AÐKOMAN að bátnum sem flytur gesti út í faraóaþorp dr. Ragabs. AÐ GANGA á vit fortíðar eins og gerist þegar farið er út í litla faraóaþorpið á Níl vekur með manni skrýtna tilfmningu. í fárra mínútna fjarlægð er Kairó með sínum óendanlega ys og þys og hér er gengið inn í fortíðina. Fortíð sem er kyrrlát og hljóð. Ég horfí á fólkið, klætt búningum sem notaðir voru fyrir 3.500 árum, hvernig það gengur að vinnu með frumstæðum verkfær- um, hreyfir sig hægt, það er engu líkara en ég horfi á kvikmynd sem er sýnd ofurhægt. Þó eru allir að, ekki vantar það; unnið við pappírsgerð í einni „myndinni", annars stað- ar sýnt hvemig plægt er og sáð, gert vín, rið- in net, og bakað brauð. Það tekur ekki nema 5 mínútur með báti út í eyjuna og fyrst er siglt hægt og rólega um- hverfis hana. Þar hafa einnig verið settar upp eftirlíkingar af guðum Forn-Egypta. Amon Ra - konungur guðanna sem hefur hrútshöfuð - tákn vitsmunanna. Thoth tunglguðinn sem taldi stjörnur him- inhvolfíns _ og skapari ritlistar. í mannslíki með höfuð íbisfuglsins. Osiris sem var myrt- ur af afbrýðisömum bróður sínum. Hann var brytjaður í spað og lík- amsleifunum dreift vítt og breitt um landið. En eiginkona hans, og jafnframt systir, sú mæta Isis, safnaði sam- an líkamspörtunum og með kynngi fékk hún lífgað Osiris við nætur- langt og var þá sonur þeirra Horus getinn. Hún er þarna líka með piltkornið í kjöltu sér. Nílarguðinn Hapy, gerður með mikið skegg til að sýna vald hans og konubijóst er tákna frjósemi, útblásinn kviðurinn er merki um gnægð hans. Og ótal aðrar guða- styttur, mér fínnst þær mynda eins konar varðlið fyrir eyjuna. Sendiherra á eftirlaunum kom upp þorpinu Þessu var öllu komið upp fyrir tilstilli og atbeina dr. Hassans nokkurs Ragabs. Hann hafði verið sendiherra Egyptalands m.a. í Kína og þegar hann komst á eftirlaun settist hann öldungis ekki í helgan stein, heldur sneri sér þá að rannsóknum, í fyrstu á pap- írusmyndum og þær eru til af öllum gerðum, stærðum og gæðum. En merkilegt nokk eru innan við þrír áratugir síðan Hassan Ragab uppgötvaði tæknina við að búa til papírus, bæði til að teikna og mála á og til að hnýta úr þeim fleti í faróaþorpið. Þá hafði tæknin við gerð papírus verið mönnum ráðgáta í meira en þúsund ár. En Ragab lét ekki staðar numið, rannsókn- ir hans á papírusjurtinni og notkun hennar höfðu vakið forvitni hans um lífsháttu Forn- Egypta og hann ákvað að koma upp þorpi, sem sýndi lifnaðarháttu þeirra, hvernig þeir Á lítilli eyju á Nílarfljóti hefur fortíðin veríð endur- sköpuð og dregnar upp lif- andi myndir af lífsháttum Fom-Egypta fyrir 3.500 ámm. Jóhanna Kristjóns- dóttir skoðaði sig um þar. bjuggu, hvað þeir höfðust að og hvernig. Umfram allt hversdagslífið, smáatburðina og það sem fólk er ekkert endilega að velta fyrir sér að öðru jöfnu. Hann byrjaði á því að leita að heppilegum stað og fann þá jakobseyju sem er um 32 ekrur að stærð. Aður en hann sneri sér að gerð þorpsins sjálfs, plantaði hann mörg þúsund tijám - m.a. papírus umhverfis eyj- una. Hann vildi losna við Kairó úr sjóndeildar- hring eyjunnar. Það hefur að vísu ekki tekist algerlega enn, á stöku stað grillir í háhýsi Kairó þegar horft er frá eyjunni. Gerir um- hverfíð kannski enn frekar óraunverulega raunverulegt. Dr. Hassam plantaði einnig aðskiljanlegum öðrum tijátegundum sem eru á fornum rist- um og listaverkum þessa tíma. Sum tijánna uxu ekki lengur hér í landi en hann leitaði þeirra og fann flest í Súdan og Eþíópíu. Einn- ig náði hann fuglategundum sem voru út- dauðar hér og flutti til Jakobseyjar, auk alls konar blómategunda. Hefðarmaður þorpsins að ráðgast við skrifarann og frúin að punta sig Þegar stigið er á land eftir að hafa flotið umhverfis eyjuna þar sem þessar lifandi myndir fólks að ýmsum störfum birtast eins og á leiksviði, fer ég með Olu leiðsögustúlku að húsi hefðarmannsins í þorpinu. Við húsið er stór garður og í honum miðj- um er tjöm með vatnaliljum og lótusblómum. Sjálfur situr húsbóndinn úti fyrir húsi sínu og gæðir sér á vínbeijum, hugsandi og alvöru- gefinn. Þegar inn kemur tekur við mikill salur, mér skilst að Ragab telji að þar hafi verið aðalbænastaður hússins. í einu herbergjanna er frúin í húsinu að snyrta sig og bera á sig fegrunarlyf. Stundum eru þjónustustúlkur hjá henni og eins kemur hljóðfæraleikari og styttir henni stundir ann- að veifið. Síðan skoðaði ég svefnherbergi þeirra hjónanna, rúm þeirra voru gerð úr papírus og bakatil eru vistarver- ur hjúanna, öllu óhijá- legri og síðan tóku við gripahúsin. Þegar ég gekk aftur í gegnum húsið var frúin enn að dúlla við að líta fagurlega út en hús- bóndinn var hættur að borða ávexti og sat nú og ráðgaðist við skrifara sinn. Rólegt á markaðs- torginu þennan daginn. Þegar ég hélt áfram um þorpið gafst enn betra tækifæri til að horfa á menn og konur að störfum. Það var unnið við bátasmíði, korninu sáð og uxar síð- ar leiddir yfir til að trampa því vel niður í jörðina. Konur flestar kíæddar hvítum serkjum og karlmenn sömuleiðis en þegar hlýnar eru karlmenn í mittisskýlu einni fata, ég skal ekki segja hvort konurnar mega vera svo dirfsku- lega klæddar. Karlar ráku fjárhóp á undan sér, á einum stað voru leirkerasmiðir að störfum og það var unnið við múrsteinagerð, myndskurð og aðrir máluðu á papírus eða blönduðu dular- full ilmvötn svo angan iagði yfir. Úti á ánni reru tveir menn til fiskjar og köstuðu netum sínum. Það er engu líkara en manni fínnist um stund að maður hafi raunverulega færst aft- ur til fortíðar þegar gengið er um og ein- hverra hluta vegna talar enginn hátt hér. Að því leyti hafa Forn-Egyptar sannarlega verið ólíkir þeim sem nú byggja þetta land. Auðvitað væri þorpið ekki fullkomnað nema þar væri markaður. Óla sagði mér að oft rækjust gestir á Rageb sjálfan en ekki var ég svo heppin þennan dag. Og það var lítið um að vera á markaðstorginu enda hafði íbúum verið gefið frí og þeir höfðu augsýni- lega farið í land. En þarna mun oft vera líf og fjör og seldar vörur sem framleiddar eru á eyjunni sjálfri, hvort sem er ilmvötn, pap- írusmyndir, vín eða jafnvel nýr fiskur. Pýramídi í byggingu í jaðri þorpsins er veitingahús og fyrir utan það situr ein forn-egypsk og bakar brauð í leirofni. Maður getur keypt af henni brauð, farið með það inn í veitingahúsið og fengið VERIÐ er að reisa eftirlíkingu af pýramída. Nú eru sex ár síðan verkið hófst. ISIS með son sinn í kjöltu sér. HEFÐARMAÐUR þorpsins sat úti fyrir húsi sínu og gæddi sér á ávöxtum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.