Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 11
við æðruleysi innra með okkur sem
er lykillinn að innri ró.“
Huga þarf betur að
sálgæslunni
Hvemig er hægt að losa sig út
úr því lífsferli sem hér hefur verið
lýst og taka upp nýja hugsun og
hegðun?
„Við verðum að byrja á því að
sannfæra okkur um að við höfum
leyfi til að næra okkur sjálf. Það
er líka nauðsynlegt að viðurkenna
vanmátt sinn, að við getum ekki
gert allt. Við verðum að byija á
því að þóknast sjálfum okkur.
Staðreyndin er sú að það er nauð-
syn en ekki munaður að gefa sér
tíma fyrir sjálfan sig. Þá fer mað-
ur að uppgötva gleðina upp á nýtt.
Við förum að sinna áhugamálum
okkar aftur, verðum ástfangin upp
á nýtt bæði af sjálfum okkur, öðr-
um og lífinu. Bænin hefur verið
mér sterkt haldreipi," segir Andr-
és. Allir sem horfast í augu við
mikla erfiðleika verða að gefa sér
tíma til að hugleiða og skoða sjálfa
sig af einurð og einlægni. Einung-
is þannig getum við unnið okkur
í gegnum það innra stríð sem við
höfum lent í; Venjulegt fólk að
kljást við óvenjulegar aðstæður!
„Eg á líka góða vini og samheldna
fjölskyldu sem hefur hjálpað mér.
Það hefur líka verið mér ómetan-.
legt að vinna að þessum málefnum
sem fræðimaður. Ég hef að undan-
förnu haldið námskeið um þetta
málefni á vegum Endurmenntun-
ardeildar Háskóla íslands ásamt
Vilhelm Norðfjörð sálfræðingi og
hefur það verið afar fjölsótt. Nú
er ég kominn á þann punkt að
mér finnst fenjalagið skemmtilegt
þó að því sé engan veginn lokið,“
heldur hann áfram. „Mér finnst
ég lánsamur. Ekki síst fyrir það
að ég eignaðist strákinn minn.
Hann hefur kennt mér alveg upp
á nýtt merkingu hugtaka eins og
ást, þakklæti, auðmýkt, lítillæti og
fleira í þeim dúr. Eg veit að það
gerir mig að meiri og betri fag-
manni.“
Hvernig finnst Andrési ástandið
í málefnum fatlaðra hér á landi
eftir reynslu sína af því?
„Mér sýnist að á alþjóðlegan
mælikvarða sé ástandið nokkuð
gott. Þótt betur megi ef duga skal.
Við erum að ganga í gegnum tíma
niðurskurðar þar sem hætta er á
að þeir sem minnst mega sín verði
frystir úti. Því þurfum við að vera
vakandi á verðinum yfir því góða
sem við eigum og hlúa að því.
Ég tel að það þurfi að koma til
meiri fjölskyldunálgun á ferlinu
sem foreldrarnir ganga í gegnum.
Á hverri barnadeild ættu að vera
sérþjálfaðir einstaklingar sem
veita foreldrunum sálfræðilega
aðstoð til að hjálpa þeifn í gegnum
fyrsta áfallið. Slík aðstoð er til
staðar í nágrannalöndunum og
breytir miklu um hvernig fólki
tekst að vinna úr þeim erfiðleikum
sem eftir koma, og er því mikill
sparnaður þegar til lengri tíma er
litið.
Að lokum langar mig til að segja
þetta: Fötlun er aldrei einkamál
þeirra sem verða fyrir henni. Ef
samfélagið ákveður að bjarga
fyrirburum verður það að taka
afleiðingunum og kosta til þess
sem þarf því afleiðingin er oft
ævilöng, „dýr“ fötlun. Ég sakna
umræðu um, hver við teljum vera
lágmarkslífsgæði sem hveijum
manni ber. Hversu langt á þjóðfé-
lagið að ganga til að mæta þeim
gæðum? Fyrir mér mælist velferð-
arsamfélagið eftir því hvernig við
mætum þeim sem minnst mega sín.
Nú er verið að draga úr fjárveit-
ingum til heibrigðismála. Þá koma
upp spurningar eins og hvaða þjón-
usta á að vera efst á forgangs-
listanum. Ég tel að þegar spurn-
ingar sem þessar eru ræddar og
teknar eru ákvarðanir megi úrræð-
in ekki stjórnast einvörðungu af
ákvörðunum stjórnmálamanna
heldur verði raddir eins og heim-
spekinnar og guðfræðinnar að fá
að heyrast. Því inn í þetta mál
koma fleiri gildi en læknisfræðileg
og peningaleg."
Tilbob á vorlaukum
stykkiö í lausu
GRÓÐURVÖRUR
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓÐURRÆKT
- kjarni málsins!
• •
Nl FÆRIST FJORISOLINA...
Plúsferðir hafa slegið í gegn.
Þúsundir Islendinga hafa nú þegar bókaðfar í orlofsferðir okkar.
Bjóðum nú þessar ferðir suður í sólina:
PLAYA DE PALMA
Vegna mikillar eftirspumar höfum við nú útvegað
viðbótargistingu og getum enn boðið stúdíó íbúðir
á Pil Lari Playa hótelinu
VERÐDÆMl:
pr. mann
IVl/VI
1 vika á tímabilinu 20. maí -15. júlí.
Verð miðað við 2fullorðna ( studíó
Innifalið: Flug, gisting ogJlugv.skattar.
Einnig getum við nú boðið ÍBÚÐAGISTINGU
á Pil Lari Playa, fyrir 4,
sem ferðast saman.
VERÐDÆMJ:
r. mann
1 vika á tCmabilinu 20. maí - 15. júlí.
Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára saman (
(búð Innifalið: Flug, gisting ogflugv.skattar.
pr. mann.
1 vika á íbúðahótelinu
Gran Playa.
í maí, júníjúlí
og september.
Verð miðað við 4 í íbúð í 1 viku. 2 fullorðnir og
2 böm 2-11 ára .Innifalið: Flug, gisting ogflugv.skattar.
1 vika á Gran Playa í maí, jún(,
júlí og september.
Verð miðað við 2 í stúdíó í 1 viku.
Innifalið: Flug, gisting og
flugv.skattar.
pr. mann.
Bókið sem
fyrst
vegna
mikillar
eftirspurnar.
pr. mann.
Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára saman ( íbúð.
Innifalið: Flug, gisting ogflugv.skattar.
pr. mann.
1 vika á Feliz Choro ( ma(,jún( og sept.
Verð miðað við 2 fullorðna ( íbúð
q Innifalið: Flug, gisting og
flugv.skatlar.
Farþegar PLÚSferða fljúga
eingöngu með Flugleiðum.
Beintflug
ÞYSKALAND
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavík Sími: 568 2277 Fax: 568 2274
i/ VVI
Berlín-Köln-Frankfurt-Miinchen
Flugv.skattur innifalinn.
Bókað og greitt fyrir l.maí.
Gildistími: 15. apríl -15. sept.