Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 31 AÐSENDAR GREINAR Póstur o g sími - gjaldskrárstefna AÐ UNDAN- FÖRNU hafa sjónir almennings og stjórn- málamanna beinst í auknum mæli að nauðsyn þess að jafna gjaldtöku Pósts og síma, fyrir notendur þjónustu stofnunar- innar hvar sem þeir búa á landinu. Það verður ekki gert öðru- vísi en með því að gera landið að einu gjaldsvæði. Annað felur í sér viðskipta- hindranir, sem ekki eiga að líðast í nútíma samfélagi, þar sem höfuðáhersla er lögð á fijáls við- skipti og samskipti fyrirtækja og einstaklinga. Nú liggur frumvarp fyrir Al- þingi um stofnun hlutafélags um rekstur Pósts og síma. Ég tel það vera mjög mikilvægt skref að formbreyta rekstri stofnunarinnar til þess að auðvelda það að landið verði gert að einu gjaldsvæði hvað varðar símaþjónustu. Rekstur fyr- irtækis í hlutafélagsformi er mun auðveldari og sveigjanlegri en B- hluta ríkisstofnunar, eins og nú er. Því er þessi formbreyting nauð- synleg til þess að hægt sé að bregðast við breyttu rekstrarum- hverfí og aukinni samkeppni er- lendis frá. Eitt af því sem breytist við breytt rekstrarform er skattlagn- ing fyrirtækisins. Núverandi fyrir- komulag er þannig að fyrirtækið greiðir arð í ríkissjóð samkvæmt ákvörðun Alþingis í fjárlögum. Þessar arðgreiðslur hafa numið á undanförnum árum 850-860 millj- ónum króna. Við þá formbreytingu sem væntanleg er verða skatt- greiðslur fyrirtækisins eins og gerist um önnur hlutafélög. Ef skoðaðir eru ársreikningar stofn- unarinnar fyrir árið 1994 og reynt að meta hvernig skattlagningu hefði verið háttað ef um hlutafélag hefði verið að ræða, sést að skatt- lagning og 10% arður hefðu num- ið 55-75 milljónir króna lægri upp- hæð heldur en arðgreiðslan það ár. Ég tel að það svigrúm sem skap- ast við breytta skattlagningu eigi að nota til þess að jáfna símkostn- að og gera landið að einu gjald- svæði. I fyrstu myndu tekjur Pósts og síma lækka nokkuð og er þá hægt að nota minni skattgreiðslur í ríkissjóð til jöfnunar á því. Til lengri tíma munu tekjur Pósts og síma aukast til muna vegna aukinnar notk- unar í kjölfar lækkun- ar á kostnaði á milli svæða. Ég fullyrði að bil sem er á milli texta nú heftir fólk og fyrir- tæki í notkun á sím- kerfinu á milli gjald- svæða. Það er ekki umdeilt að símkerfið þolir margfalt meiri notkun þannig að auk- in notkun er einungis betri nýting á þeim fjárfestingum sem fyrir.eru. Póstur og sími hefur byggt upp símaþjónustuna með nýjustu og bestu tækni. Það sem hefur átt mestan þátt í að þróunin hefur orðið svo ör hér á landi er lagning ljósleiðarakerfisins, sem fjár- magnað var að miklu leyti í sam- bandi við uppbyggingu ratsjár- stöðvanna. Því er stofnkostnaður við þessa miklu þjóðvegi fjarskipt- anna ekki nema að litlu leyti hjá Pósti og síma. Stofnkostnaður er að öðru leyti afskrifaður eftir eðli- legum leiðum jafnt línur sem enda- búnaður og allt er þetta eðlilegir þættir í því að Póstur og sími geti selt þjónustu sína. Það kostar ekki meira að selja símtal á milli húsa á Akureyri heldur en á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hver eru þá rökin fyrir mismunandi verði ef stofnkostnaður hefur verið greiddur að miklu leyti af utanað- komandi aðila? Óþarft er að rekja sögu gjaldskrármála hjá Pósti og síma, en komið hefur fram í um- ræðum að undanförnu að lengst af hefur verið óeðlilegur munur á langlínu- og innanbæjarþjónustu. Langlinugjöldin byggðu þannig upp innanbæjarkerfin á árum áður. Þessi verðlagningarstefna hefur því verið eins og skattur á landsbyggðina, sem eðli málsisn samkvæmt hefur þurft að ná í þjónustu til þéttbýlissvæðanna. Og nú hefur hin nýja tækni gert það ennþá óeðlilegra að verðmúrar á milli landsvæða séu settir upp. í vaxandi mæli hafa smáfyrir- tæki verið að bindast samstarfs- neti til þess að verða samkeppnis- Samhliða formbreyt- ingu fyrirtækisins á, að mati Arnbjargar Sveinsdóttur, að lög- festa jafnhátt þjónustu- gjald hvar sem er á landinu. hæfari á markaðnum. Einnig hafa fyrirtæki í samkeppnisþjónustu farið út í að staðsetja sig á fleiri en einum stað á landinu. I þeirri nýju tækni sem við þekkjum nú geta starfsmenn og samstarfsaðil- ar í slíkum fyrirtækjum haft gott og óhindrað samband. Atvinnu- möguleikar í sambandi við fjar- vinnslu eru alltaf að aukast og getur verið stórkostleg viðbót við störf í dreifbýli. Fjarkennsla er í mikilli þróun og er þegar notuð með góðum árangri með hjálp tölvutækni. Það er óhæfa að slíkir vaxtarbroddar í íslensku menning- ar- og atvinnulífi, sem er í raun að beijast í alþjóðlegu umhverfi, séu heftir af gömlum gjaldskrár- hugmyndum. Dæmi er um verk- fræðistofu sem staðsett er á Reyð- arfirði og Egilsstöðum sem þurfti á ákveðinni þjónustu að halda frá Pósti og síma. Sú þjónusta var nífalt dýrari en ef fyrirtækið hefði verið staðsett í Hafnarfirði og Seltjarnarnesi. Upplýsingahraðbrautin sem verið er að leggja um allan heim og byggist á róttækum breyting- um sem hafa orðið í þróun sam- skipta og upplýsingatækni að und- anförnu, er sú braut sem við verð- um að vera inni á til að auka hag- vöxt. Upplýsingatækin á að vera opin öllum íslendingum og ekki má búa til fyrsta og annars flokks borgara eftir búsetu. Vissulega hafa orðið stórstigar breytingar til hins besta í gjald- skrármálum á allra síðustu árum fyrir tilstuðlan núverandi sam- gönguráðherra, en við megum ekki láta staðar numið. Boðaðar hafa verið breytingar í þá veru að landinu verði skipt í tvö gjald- svæði. Það er hins vegar verið að breyta rekstrarforminu og við það skapast möguleiki til þess að taka allt skrefið nú. Það er því skoðun mín að það beri að lögfesta um leið og formbreyting fyrirtækisins á sér stað ákvæði þess efnis að jafnhátt gjald greiðist fyrir sömu þjónustu hvar sem er á landinu. Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Austurlandi. m TIL WfWMMRI ELFA-LVI Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir rafmagnsofnar350 - 2000w. Hæð 30, 50 eða 59 cm. I ELFA-OSO J «r* Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir 30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir frá 400-10.000 lítra. SiSliiíli k ELFA-VORTICE Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w. Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut- reyndurvið íslenskaraðstæður. I HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLAR. Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 - & 5622901 og 5622900 § w < e z s Tónleikar í Hallgrímskirkju laugardaginn 13. apríl kl.17.00 Sólrún Bragadóttir, (p Loftur Erlingsson, sópran e>n barintón ásamt Kór Langholtskirkju og Sinfóníuhljómsveit íslands Hljómsveitarstjóri: Takuo Yuasa / Þýsk sáíumessa, eftir Johannes Brahms Blá áskriftarkort gilda SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255 MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HIJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN Rétti tíminn til að gera góð kaup! Canon BJC-70 Canon Tulip Vision Line Pentium 100 Litableksprautuprentari fyrir heimilið 2ja hylkja kerfi 720 dpi upplausn 30 blaða arkamatari - 3 bls/mín kr. 22.950 Litableksprautuprentari 4ra hylkja kerfi 720 dpi - 3 bls/mín 100 blaða arkamatari MHBnmwvnHHBflHnaB CorelDraw hönnunarpakkinn kr. 179.900 kr. 169.900 m/14 "litaskiá kr. 47.900 Opíð laugardaga 10-14 SKAFTAHLIÐ 24 SÍMI 569 7800 OLL VERD ERU STCR. VERD M VSK http://www.nylierii.is/vorur/ 8 MB minni - 850 MB diskur 4 hraða geislaspilari SoundBlaster 16 hljóðkort 15W hátalarar - Windows 95 MS Home heimapakkinn MS Works (ritvinnsla, töflureiknir, gagnagrunnur) MS Encarta - alfræðiorðabók MS Money - heimilisbókhald MS Scenes - undersea collection Megapak 3 (12 geisiadiskar stútfullir af leikjum) The Lemmíngs Chronicles TFX - Tactical Fighter Experiment The VORTEX - Quantum Cate II Cyclones - Jammit - Dragon's Novastorm - Reunion - Megarace The Journeyman Project Turbo m CdnBWMV'3 Th« Bast in Graphics

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.