Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 52
52 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Díana sögð kaldrifjuð Lundúnum. Reuter. DÍANA prinsessa kom unnustu yngsta sonar Elísabetar drottning- ar nýverið til að gráta með rætnum athugasemdum um hár hennar og fatasmekk. Breska dagblaðið The Sun skýrði frá þessu í vikunni. í frétt blaðsins sagði að Sophie Rhys-Jones, unnusta Játvarðar, -yngsta sonarins, hefði farið að gráta í óformlegu teboði hjá drottningu er Díana prinsessa tjáði sig óhikað um útlit hennar og smekkvísi, sem prinsessan taldi lítt til eftirbreytni. Hefði unnunstan verið mjög taugaóstyrk við þetta tækifæri og hefði Díana gjörsam- lega komið henni úr jafnvægi með athugasemdum sínum. Var þetta haft eftir vinum Sophie en hún þykir líkjast mjög Díönu í útliti þótt skaphöfnin sé sögð önnur. Sophie Rhys-Jones er 31 árs og hefur hún verið unnusta Játvarðar í rúm tvö ár. Teikn eru á lofti um að Elísabet drotning hafi lagt blessun yfir þetta samband þeirra. Henni hefur verið heimilað að gista í Buckingham-höllu og myndir hafa birst af drottningunni og unn- ustunni saman í útreiðartúrum. Byltir snjáld- urmús by gg- ingarfræðum? London. Daily Telegraph. Dennis Cullinae, vísindamaður við Cornell-háskólann í New York, hefur ljóstrað upp leyndardómin- um á bak við ógurlegan styrk scutisorex somereni, eða hetju- snjáldrunnar, eins og menn af fornum ættbálkum í Rúanda kalla dýrið. Talið er að einstakt byggingar- lag hryggjar snjáldurmúsarinnar geti orðið verkfræðingum hvatn- ing til að finna upp ný, öflug og sveigjanleg byggingarform og læknum nýjar leiðir við meðhöndl- un hryggmeiðsla. Nýjar rannsóknir á músinni eru ráðgerðar með framagreint í huga. Músin er um 20 sentimetra löng þegar mælt er frá trýni og aftur á enda skottsins. Heimkynni hennar eru í Úganda, austurhluta Zaire og norðurhluta Rúanda. Herkúlesarafl músarinnar er þjóðsagnakennt og orðstý hennar er haldið við með sérstakri athöfn meðal Mangbetu-ættbálksins í Rúanda. Með sérstökum hætti er hún tilbeidd og afli hennar lýst. Síðan stígur stjórnandi athafnar- innar ofan á snjáldurmús og stendur á henni. Stígur síðan ofan og undantekningalaust skýst músin þá burtu eins og ekkert hafi í skorist. Hryggur músarinnar er þeim kostum búinn að hann þolir, að allt að 70 kílóa þungur maður standi ofan á dýrinu án þess að því verði meint af. Samt er hrygg- urinn það sveigjanlegur að dýrið getur auðveldlega hnyklað sig svo hann verði S-laga. Cullinane tók snjáldurmús með sér til New York frá Úganda og með gengumlýsingartækjum tókst honum að mynda hrygginn. Reyndist hann vera settur saman úr 11 liðum í stað fimm venjulega og út úr honum stóðu bein eins og fingur. „Hryggjarmassinn er fjórum sinnum meiri. miðað við stærð og þyngd dýrsins, en hjá öðrum spendýrum," sagði Cul- linane. Valið stendur um þrjár mismunandi tegundir af Merrild kaffi: 304-Dökkbrennt 104-Mjög dökkbrennt Merrild-setut^ Reuler IRENE Saez. Ungfrú heim- ur vinsælust Caracas. Reuter. FYRRUM Ungfrú heimur er vin- sælasti stjórnmálamaður Venesú- ela, ef marka má skoðanakannanir þar í landi. Samkvæmt könnun sem birtist í dagblaðinu EI Universal er Irene Saez, núverandi borgarstjóri Chacao, útborgar Venesúela, vin- sælasti stjórnmálamaðurinn þar í landi. Rúmur þriðjungur þeirra sem þátt tóku kvaðst hafa mest traust á Irene. Hún er 32 ára gömul og var i desember endurkjörinn borgar- stjóri Chacao til þriggja ára. Það orð fer af henni að hún sé bæði strangheiðarleg og kröftug. Segja aðdáendur hennar að hún gæti orðið stjórnmálamönnum fyrir- mynd. Því hefur verið haldið fram að Irene Saez hyggi á forsetaframboð í Venesúela árið 1998 er kjörtíma- bili Rafael Caldera forseta rennur út. Hún hefur á hinn bóginn neitað að tjá sig um áform sín á þeim vettvangi. Fjendur henar segja að hún sé „uppstríluð dúkka“ og væna hana um stefnuleysi. Halda þeir því og fram að vinsældir hennar myndu fljótlega hverfa ef hún hætti sér i pólitískt embætti utan Chacao sem innfæddir nefna gjarnan „Irenu- land“. ------♦---------- Juppé hvetur til barneigna París. Reuter. ALAIN Juppé, forsætisráðherra Frakklands, skoraði á þriðjudag á Frakka að eignast fleiri börn. „Það er áhyggjuefni að það skuli fæðast svo fá börn í landi okkar að það tryggir ekki einu sinni við- hald íbúafjöldans og ætti að vekja Frakka til umhugsunar," sagði Juppé á ráðstefnu um börn. Frökkum hefur aðeins fjölgað um 0,5 af hundraði á ári undanfar- in þijú ár þrátt fyrir ýmsar aðgerð- ir og áróðursherferðir af hálfu stjórnvalda til að hvetja fólk til að eignast mörg börn. Um 58 milljón- ir manna búa í Frakklandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.