Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL1996 D 23
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
EFTIRLITSSTOÐ fyrir gervihnattasambönd sem sett hefur verið upp í Eiðahreppi.
Bílgreinasambandið
Aðalfundur BGS verður haldinn á Hótel Sögu,
2. hæð, laugardaginn 20. apríl nk.
ráðstefnusölum.
Kl. 09.15-10.45 Sérgreinafundir.
Kl. I 1.00—12.15 Aðalfundur.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kl. 12.15 Hádegisverður - Hádegisverðarerindi.
Stjórn BGS.
Eftirlits-
stöðfyrir
gervihnatta-
sambönd
Egilsstöðum -1 landi Snjóholts í
Eiðahreppi hefur verið komið upp
eftirlitsstöð fyrir gervihnetti og er
stöðin ein af fjórum sem nýlokið
er að byggja upp í heiminum. Stöð-
in er byggð á fjarskiptakerfi sem
nefnist IRIDIUM og er það fjár-
magnað af alþjóðlegum fjarskipta-
og iðnfyrirtækum. Aðalverktaki
framkvæmdanna við að koma
eftirlitsstöðunum upp er gervi-
hnattasambandadeild MOTO-
ROLA í Bandaríkjunum.
Þessu kerfi er ætlað að flytja
símtöl, gagnasendingar, faxsend-
ingar og boðkerfasendingar hvert
sem er hér á jörðu og hvenær sem
er. Til þess að kerfið geti starfað
þarf að skjóta upp gervihnöttum
en áætlað er að fyrir lok ársins
1998 verði búið að skjóta upp 66
hnöttum auk 6 varahnatta sem
geymdir verða „afsíðis“ og verða
teknir í notkun ef aðrir bila. Gervi-
hnöttum þessum er skotið upp frá
Bandaríkjunum, Rússlandi og
Kína. Þessum eftirlitsstöðvum er
ætlað að koma hnöttunum á
ákveðnar brautir og halda þeim
þar en svo verða annars konar
stöðvar sem sjá um að koma um-
beðnum samböndum á milli við-
skiptamanna, þá flytja hnettirnir
boðin sjálfvirkt á milli sín, að þeim
hnetti sem á því augnabliki er
næstur þeim stað sem beðið er um
að komast í samband við. Ef sam-
bandið varir lengi, skilar hnöttur-
inn því þegar hann fjarlægist, til
þess næsta sem nálgast. Hringferð
hnattanna um jörðu tekur rúmlega
100 mínútur. Hnettirnir eru í 780
km hæð og er áætlaður endingar-
tími þeirra 5-8 ár.
Gert er ráð fyrir að í lok ársins
2000 verði notendur GSM-síma
orðnir um 142 milljónir og notend-
ur boðtækja um 147 milljónir. Út-
reikningar IRIDIUM byggjast á
því að þá muni þeir sinna um 650
þúsund símnotendum og um 350
þúsund boðtækjanotendum.
GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR
KR. 4.7S0
MÖRKINNI 3 • SlMI S88 0640
Skoda Felicia 1300 - 5 dyra
FRAMTÍDIN BYCCIST A HEFDINNI
Það er ekkert sem mælir
gegn því að þú kaupir
Skoda í dag.
849.000 kr.
fyrír þýsk gæði
í glæsilegum fólksbíl
Skoda stenst evrópskum og japönskum bílum
fyllilega snúninginn þegar þú leitar að vönduðum
fjölskyldubíl, en verðið er ennþá jafn ótrúlega lágt.
Skoda Felicia hefur slegið rækilega í gegn á íslandi
sem annars staðar og seldist þrisvar sinnum upp hjá
okkur á síðasta ári.
Skoda er nú í meirihlutaeign Volkswagen
samsteypunnar og það sést á gæðum bílsins.
í árekstursprófunum sem framkvæmdar voru
í Þýskalapdi nýlega var Skoda Felicia í einu af
efstu sætunum og telst með öruggustu bílum
sem framleiddir eru í þessum stærðarflokki.
Skoda Felicia er með styrktarbita í hliðarhurðum,
höfuðpúðar í fram- og aftursætum, barnalæsingar
í afturhurðum, öryggisstýrisstöng og hæðarstillanleg
öryggisbelti.
Tryggðu þér nýjan
fjölskyIdubíl núna.
Þýsk gæði á ótrúlega lá
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600
|u verði. a
Aukabúnafiur é mynd: Alfelgur.