Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 12
12 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ má til tíðinda telja, að „detta“ inn á samkomu rúmlega 60 bandarískra hermanna í síðari ’heims- styijöldinni, þar sem þeir eru að minnast veru sinnar við mjög frum- stæðar aðstæður á íslandi á árunum 1941 til 1945., Velflestum íslendingum er það ljóst að atburðir síðari heimsstyij- aldarinnar og sú þróun sem fylgdi í kjölfar hennar batt endalok á alda- langa einangrun lands og þjóðar. ísland komst smám saman í hring- iðu heimsins. Þessir atburðir höfðu ekki aðeins áhrif á þá íslendinga, sem voru sjónarvottar að því sem gerðist, heldur festust þeir einnig í minn- ingu þeirra hermanna, sem sendir voru frá sínum heimalöndum til að hernema landið og búast þar til sóknar og/eða varnar gegn hættu- legum óvini sem stefndi að heims- yfirráðum. Þetta voru kornungir menn; þetta var þeirra fyrsta mann- dómsraun; þessi sendiför þeirra tii Sumir bandarísku her- mennirnir sem tóku við hernáminu af Bretum hittast árlega til að minnast dvalarinnar á íslandi. Atli Steinars- son slóst í hópinn og og fylgdist með sam- komunni. gersamlega ókunns staðar, að þeirra dómi, gat skipt sköpum um Ííf þeirra. Þeir voru þá flestir um tvítugt, jafnvel 18 ára. Þeir eru nú rúmlega sjötugir þeir yngstu og vel yfir átt- rætt þeir elstu. Enn muna þeir braggahverfin sem þeir bjuggu í rétt utan við Reykjavík, Akureyri, á ísafirði, Búðareyri við Reyðarijörð og víðar. Þessar minningar þeirra eru svo lifandi, að þeir hafa nú hist á hveiju ári í nær þijá áratugi. Þeir koma með myndaalbúm og aðra muni sem þeir eiga frá fyrstu manndómsárum sínum á íslandi. Þeir eru saman í þijá daga, eins og þeir voru í 2-4 ár á íslandi, þar sem voru engir vegir eins og þeir þekktu, engin hús handa þeim svo þeir urðu að búa í köldum bröggum og næsta fátt við að vera. Sumir kvæntust á íslandi og urðu flest þeirra hjónabanda traust og góð. Island varð þeim gott að því leyti, að þar var aldrei barist. Þeir unnu að mannvirkjagerð til að veija ísland, en þurftu aldrei að skjóta á andstæðinga og verða manni eða mönnum að bana. Þannig var Island þeim gott og þeir eiga ekkert nema góðar minningar frá þessum tíma, eins og fram kemur í meðfylgjandi viðtölum við nokkra þeirra. Þeir eru vinir íslands! HÉR eru nokkrir úr „5th Engineer Combat Battaiion" sem tók við hervernd íslands 1941. Frá vinstri talið: Joe Beddes, Bill Kosky, Ed Clemenson, Warren Harden, Joe Crute, Mesavitz, Podccasci, Harry Cameron, aðalhvatamaður að endurfundum herdeildarinnar. Þannig er stríðið „ÞAÐ er svo einkennilegt hvernig þetta er hjá hernum. Ef þú ert ljósmyndari ertu gerður að matsveini og kannski eru matsveinarnir gerðir að ljósmyndurum,“ sagði Ernie Donadoni, hressi- legur náungi úr 5. verkfræði- deildinni. „Eg var nefnilega Ijós- myndari þegar ég fór í stríðið og var sendur til Islands. En þá var ég látinn í eldhúsið og gerður að matsveini eða öllu heldur bakara! Þó hafði ég aldrei komið nálægt elda- mennsku, en í hernum verð- urðu bara að gera eins og þér er sagt og ekkert múður með það. Eg mætti í vinnuna í eld- húsinu á kvöldin. Yfirkokkur- inn sýndi mér hvað ég átti að gera og hvernig og svo var ég skilinn eftir og reyndi að gera eins og mér hafði verið sagt. Þetta gekk svo sem ágætlega, en ég kunni líka að vélrita svo fljót- lega var ég látinn á skrifstof- una! Minningar úr eldhúsinu Mér er minnisstætt er ég stóð uppi kalkúnalaus fyrir þakkargjörðarhátíðina. Veðrið var alveg hringsjóð- andi brjálað og skipið sem kom með kalkúnana gat ekki lagst að bryggju heldur lá úti á flóanum! Það varð þó að gera mönnunum dagamun svo ég bakaði handa þeim kleinuhringi. Ég bakaði hvorki meira né minna en 800 kleinuhringi fyrir þessa þakkargjörðarhátíð, skreytti þá og makaði á þá sætum glassúr! Þegar svo veðrinu slotaði eldaði ég sjötíu kalkúna. í annað sinn bjó égtil risastórt kirsubeijapæ, það var 24x24 tommur á stærð. En illt var að sjá hvernig komið var fyr- ir pæinu næsta morgun. Mat- reiðslumaðurinn gleymdi að segjamér að setja kartöflu- mjöl í fyllinguna, þannig að hún var alveg lapþunn og flutu berin í henni, en lokið á pæinu var sokkið til botns! Eftir miklar vangaveltur um hvað gera skyldi veiddum við berin upp og bárum þau fram með pæbotninum. Þetta var auðvitað borðað með beztu lyst, því annað var ekki að hafa. Villt um fyrir óvininum - innrásin í Noreg Donadoni var staðsettur á Búðareyri við Reyðarfjörð. Sagði hann að á austurströnd- inni hafi verið reist mörg mannvirki til þess að villa Þjóðverjum sýn. Verið var að reyna að koma þeim í trú um, að innrásin í Evrópu yrði gerð í Noreg. „Okkar menn áttu bágt með að skilja þesar fram- kvæmdir," sagði Ernie. „Þeir urðu að hafast við í tjöldum á meðan þeir byggðu ágætis hús og þegar búið var að reisa nokkur, voru þeir fluttir úr stað, urðu að liýrast áfram í tjöldunum og byrjuðu á nýjum húsum. Þannig er stríðið. Okkar er að framkvæma og hlýða skil- yrðislaust en ekki að spyrja hvers vegna.“ Donadoni fékk þó um síðir að starfa við iðju sína, ljós- myndun, því frá íslandi fór hann á vígvöllinn í Evrópu, þar sem hann myndaði fram- kvæmdir verkfræðingadeild- arinnar og ýmsa aðra at- burði. Síðar átti hann hlut- deild í útgáfu heimildarbókar með fjölmörgum myndum um afdrif og afrek verkfræð- ingadeildarinnar. í bókinni voru nöfn allra sem höfðu verið í herdeildinni. Þetta varð til þess að farið var að garfa í því að hafa upp á sem flestum og síðan 1966 hafa þessir menn hist árlega. A hverju ári bætast einhverjir nýir í hópinn, einhverjir, sem ekki hefur áður tekist að hafa upp á. En auðvitað heltast alltaf nokkrir úr lestinni, þetta eru orðnir rígfullorðnir menn, margir komnir á ní- ræðisaldur. Ljósmyndari gerður að mat- sveini en mat- sveinn látinn taka myndir! Hemám íslands var þeirra eldraun „Hvar er Pearl Harbonr?“ „ÉG VAR aðeins átján ára unglingur þegar ég kom til Islands í september 1941,“ sagði George Tavani. „Ég var ákaflega mikill unglingur og þegar ég heyrði um árásina á Pearl Harbour hafði ég ekki hugmynd um hvar sá staður var og spurði: Hvar er Pearl Harbour?" Island var algert „Hell Hole“. Það var í rauninni ekk- ert þar, varla vegir, engin tré, það var kalt og þegar það rigndi rigndi alveg óskaplega. En verst af öllu fannst mér að þurfa að borða sauðakjöt. Kannski hafa kokkarnir ekki kunnað að matreiða það,“ sagði George. Hann var mætt- ur á hermannasamkomuna með konu sinni og dóttur en þennan dag áttu þau einmitt 45 ára hjúskaparafmæli. Ge- orge var mjög unglegur, enda ekki nema 72 ára gamall og því meðal yngstu manna á mótinu ef ekki yngstur! Útivistarmaður George Tavani dvaldi í Belvois herskálabúðunum á Úlfarsfelli í tvö og hálft ár. Skammt frá búðunum er Iítið vatn, sem fraus á vetrum. Ge- org sagði að þá hefði hann og fleiri félagar hans notað tæki- færið og farið á skautum á vatninu. Skammt frá var einn- ig ylvolg á þar sem þeir gátu synt. Þá minntist George þess að hafa farið í útreiðartúra á litlu íslenzku hestunum. Hann þvertók fyrir að hafa átt vin- gott við íslenzkar heimasætur, sagðist hafa verið allt of feim- inn og mikill unglingur til þess. George syndir enn, en þar sem hann býr nú í Flórída, getur hann ekki svo auð- veldlega farið á skautasvell og hef- ur því tekið upp hjólaskauta. Hann kemur oft í næsta nágrenni við bú- stað blm. Mbl. og var fastmælum bundið að honum yrði boðin íslenzk fiskmáltíð næst þegar hann færi á hjólaskautana sína. George er af ít- GEORGE Tavani var aðeins 18 ára þegar hann koin til íslands 1941. ölskum ættum, var búsettur í Phila- delphia er hann kom til íslands. Nú er hann seztur í helgan stein í Flórída. Hann seg- ist ekki fá neitt betra en íslenzkan fisk, þorsk, sem hann fær oft á akveðnum veitinga- stað í Orlando! Eitt- hvað hefur hann kannski lært í dvöl- inni á íslandi fyrir fimmtíu árum, í það minnsta að meta nýjan oggóðan fisk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.