Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 27 PÁSKAMYNDIR hennar er Tævaninn Ang Lee (Brúðkaupsveislan). Hann hafði ekki lesið verk Aust- en þegar hann samþykkti að leik- stýra myndinni en fannst ekki geta verið mikill munur á ástarmálum bresku efristéttarinnar á Bretlandi á nítjándu öld og þeim tævönsku ástai-flækjum sem hann hafði feng- ist við fram að þessu. Austen var ekki mikið fyrir kossaflens en Emma Thompson var ekki á því að sleppa mótleikara sínum, Hugh Grant, án þess að fá tækifæri til að kyssa hann loksins; þau hafa leikið saman í nokkrum myndum án þess slíkar kringumstæður sköpuðust. „Ég hef leikið í þremur bíómyndum á móti Hugh Grant og ég ætla ijandakornið ekki að leika í einni enn án þess að kyssa hann,“ var haft eftir Émmu. Kossinn varð aldrei að veruleika. Önnur páska- mynd Stjörnubíós er nýja íslenska kvikmyndin Draumadísir eftir Ás- dísi Thoroddsen. Páskamynd Regnbogans er önn- ur Travoltamynd en fjarska ólík Náið þeim stutta. Hún er spennu- tryllir sem heitir Brotin ör og er einnig sýnd í Háskólabíói en Trav- olta fer með hlutverk flugmanns í bandaríska flughernum sem stelur myndum. Hann gerði áður „Hard Target“, eina af skárri myndum belgíska buffsins Jean-Claude van Damme, og Brotin ör þykir stað- festing á því að hann eigi hvergi betur heima en í Hollywood. Önnur páskamynd Regnbogans er óskars- verðlaunamyndin Á förum frá Veg- as með nýkrýndum óskarsverð- launahafa Nicolas Cage í aðalhlut- verki. Gamanmyndin Heim í fríið er önnur myndin sem Jodie Foster framleiðir og leikstýrir. Hún er páskamynd Háskólabíós og segir af sérkennilegri fjölskyldu sem hitt- ist um þakkargjörðarhátíðina. Með aðalhlutverkið fer Holly Hunter en aðrir leikarar eru m.a. Robert Downey, Anne Bancroft og Charles Durning. „Eins og aðrar myndir mínar fjallar þessi um fólk sem reynir í örvæntingu að tengjast til- finningaböndum,“ er haft eftir Jodie Foster. Og seinna segir hún: „Að tilheyra Ijölskyldu er svolítið eins og að lokast inni í lyftu með fólki sem þú átt ekkert sameigin- legt með.“ Ekki er nóg með að Hunter skelfist tilhugsunina um að eyða nokkrum dögum í faðmi íjöl- skyldunnar, skömmu áður en hún flýgur á vit sinna nánustu er hún BROTIN ör; Christian Slater og Samantha Mathis. kjarnorkusprengju og ógnar með henni heimsfriðnum. Hann er sumsé óbermi myndarinnar, sem er tilbreyting fyrir hann og áhorf- endur. Christian Slater leikur fé- laga hans sem sendur er til að tak- ast á við hann ásamt aðstoðar- konu, sem Samantha Mathis leik- ur. Leikstjóri er hasarmyndajöfur- inn John Woo, en hann er að hasla sér völl sem einn af efnilegri hasar- myndaleikstjórum í draumaverk- smiðjunni. Woo hefur um árabil verið fremsti hasarmyndahöfundur hins skrautlega kvikmyndaiðnaðar í Hong Kong en er að mjaka sér inn á stærri markaði með bandarískum rekin úr vinnunni og hún fær að vita að 16 ára dóttir hennar hyggst missa meydóminn þessa sömu helgi. Það var ekkert smámál að kvik- mynda hátíðarkvöldverðinn með hinum hefðbundna kalkún í aðal- rétt. Tökudagarnir urðu tíu, 64 kalkúnar voru steiktir, stöppuð voru tíu kíló af kartöflumús, 17 kíló af fyllingu þurfti í kalkúnana, 44 eplakökur voru bakaðar og 200 lítrar af djús voru notaðir til að líkja eftir víni svo eitthvað sé nefnt. Aðrar páskamyndir Háskólabíós eru framtíðartryllirinn Skrýtnir dagar og óskarsverðlaunamyndin Dauðamaður nálgast. CHARLES DURNING DYLAN McDERMOT A | O D 1 E F O S T E R F I I. M 'HOME FORTffE ilOLIDAYS GERALDINE CHAPLIN CYNTHIA STEVENSON HOLLY HUNTER ROBERT DOWNEYJR. ANNE BANCROFT PÁSKAMYND HÁSKÓLABÍÓS Tryggðu þér veiðileyfin tímanlega SVFR selur veiðileyfi á eftirfarandi svæðum, meðal annarra: SOGIÐ: Er víðfrægur stórlaxastaður og oft hafa verðlaunalaxar SVFR veiðst þar. Frábær ný veiðihús með sturtu og góðri aðstöðu fyrir fjölskyldur í ódýrri veiði. Tveggja manna herbergi fylgir hverri stöng. Eigum lausar stangir á víð og dreif á öllum svæðum frá 16. júní-25. septefnber. BÍLDSFELL Stórt og skemmtilegt þriggja stanga svæði. Flelstu veiðisvæði steinsnar frá vel búnu veiðihúsi. Verð á stöng frá kr. 2.900 til 9.900. ALVIÐRA Auðvelt yfirferðar og skemmtilegt þriggja stanga svæði. Notalegt hús. Verð á stöng frá 3.900 til 13.300. ÁSGARÐUR Stórt veiðihús með gufubaði og nógu gistiplássi fyrir fjölskyldur eða hópa. Þrjár stangir. Verð á stöng frá 5.800 til 10.900. SYÐRI BRÚ Einnar stangar svæði. Lítið gashitað hús. Verð á stöng frá 7.900 til 9.900. SILUNGS- OG ÓDÝRARI LEYFI Snæfoksstaöir - stórlaxavon. 3 stangir. Verð frá 3.700. Laugarbakkar - lítið og þægilegt. 2 stangir. Verð frá I.IOO. Sog, silungasvæði - bleikja og silungur. Verð frá 1.800. Norðurá, Flóðatangi. Gott hús, ódýrt. Verð frá 2.200. NQRÐURAI Fengsælasta veiðiá landsins síðastliðin þrjú ár. Frábær aðstaða, öll þjónusta á staðnum auk gufubaðs. Eigum lausar stangir i júlílok, ágúst og september. Verð frá kr. 9.800 i september. NORÐURÁ II Nýtt gott veiðihús í landi Hvamms. Eigum lausar stangir á mjög góðum tíma í júní og einnig í ágúst. Verð frá 11.800 til 17.600. STORA LAXA III OG IV Svæði III er lítið tveggja stanga svæði, sem er auðvelt yfirferðar. Verð á stöng er frá 7.800 til 9.800. Svæði IV er 4-5 stanga svæði. Verð á stöng er frá 6.800 til 8.800. Báðum svaeðunum fylgja mjög góð veiðihús með heitum pottum. TUNGUFLJÖT Sjóbirtingur - lax - bleikja. Ágætis veiðihús, gaskynt og lýst. Fjölbreyttir veiðistaðir. Eigum lausar stangir i ágúst. Verð á stöng frá 3.800 til 7.400. VATNAVEIÐI Hítarvatn á Mýrunum og Langavatn í Borgarfirði - á báðum stöðum er húsnæði og hreinlætisaðstaða fyrir hendi og góð aðstaða fyrir hópa. Seljum einnig leyfi í Hlíðarvatn, Djúpavatn og Kleifarvatn. Allar upplýsingar eru gefnar á skrifstofu SVFR á Háaleitisbraut 68, í síma 568 6050, á faxi 553 2060 eða tölvupósti: SVFR@ITN.IS SVFR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.