Morgunblaðið - 04.04.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 9
sér te að drekka. Eða látið fylla brauðið með
grænmeti eða lambakjöti sem er náttúrlega
enn gómsætara.
Og þarna er verið að byggja pýramída líka.
Leiðsögustúlkan segir að hann verði í laginu
eins og hinir einu sönnu en að öðru leyti úr
stáli og gleri. Bygging hans hefur staðið yfir
í sex ár og sér ekki fyrir endann á henni.
í pýramídanum á að vera listasmiðja og
leikhús þar sem flutt er tónlist, leikin á hljóð-
færi Forn-Egypta. Enn hefur Rageb ekki
komist að því hvernig skuli leikið á þau.
Ekki er heldur vitað hvernig sú tónlist hljóm-
aði sem frá þeim kom. Tilraunir standa yfir
því eftirlíkingar hafa verið gerðar af ýmsum
samkvæmt hljóðfærum sem rist hafa verið
eða máluð á grafhýsi.
í þorpinu búa að staðaldri um 300 manns,
allt fólk sem hefur unnið með dr. Hassan
Rageb að uppbyggingu þessa sérkennilega
og lifandi safns. Annars staðar á eyjunni eru
ÞEIR búa sig undir að kasta netunum.
ÞÆR voru að vinna við víngerð.
UNGBARNIÐ Móses hefur fundist í sefinu.
BÚSMALINN með hirði sínum.
hús þeirra, þangað er gestum ekki beint til
að rjúfa ekki stemmningu staðarins og stund-
arinnar.
Eftirlíking af grafhýsi Tutankamons er
síðasti viðkomustaðurinn. Það er ekki svo að
skilja að mér hafi ekki fundist það hið merk-
asta en óneitanlega þótti mér skemmtilegra
að ganga um í „þorpinu“ og horfa á fólkið
að störfum.
Svo einkennilega sem það kann að hljóma
virðist faraóaþorpið ekki almennt þekkt,
hvorki meðal erlendra ferðamanna né jafnvel
Egypta sjálfra. Ferðaskrifstofur eru þó að
byrja að taka við sér og senda þangað hópa
en það er ekki algengt. Og Egyptar sækja
ekki ýkja mikið þangað. Það er synd og
skömm því hvað sem öðru líður sem Egypta-
land býður upp á er Faraóabær á Jakobseyju
óvenjulegt og umfram allt; þar er rósemd í
loftinu sem maður kann að rneta, að minnsta
kosti eftir að hafa búið í Kairó í nokkra
mánuði.
Svo fer ég með bátnum í land, tek leigu-
bíl inn í miðbæ og ærandi flaut, mengun og
gauragangur Kaíró er aftur raunveruleikinn.
í FJARSKA grillir í iiáhýsi Kairó.