Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 15
Persson
hrífur
kjósendur
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
PERSSON-áhrifin hafa ekki
látið standa á sér í Svíþjóð. Gör-
an Persson, nýkjörinn leiðtogi
jafnaðarmanna, virðist koma
löndum sínum vel fyrir sjónir,
ef marka má skoðanakönnun,
sem birtist í Svenska Dagbladet
í vikunni. I desemberkönnun
voru Jafnaðarmannaflokkurinn
og Hægriflokkurinn jafnstórir,
báðir með þijátíu prósenta fylgi,
en nú skilja heil tíu prósent á
milli flokkanna.
Fylgi jafnaðarmanna er nú
37,6 prósent, en var 45,3 prósent
í kosningunum 1994, svo miðað
’við fylgi undanfarinna ára er
það enn lítið. Flokkurinn lofar
ákaft að helminga atvinnuleysið
fyrir aldamót og að niðurskurði
sé lokið, þó blikur séu á lofti
um að ný hrina sé óhjákvæmi-
leg.
Samkvæmt könnuninni hefur
Hægriflokkurinn 27,7 prósent
fylgi, er enn næststærstur og
fékk 22,4 prósent í kosningun-
um. Fylgisaukningjafnaðar-
manna virðist koma frá Um-
hverfisflokknum, Vinstriflokkn-
um og Hægriflokknum. Stjórn-
arandstaðan er fyrirferðarlítil,
þar sem Carl Bildt, formaður
Hægriflokksins, gegnir störfum
I Bosníu og sést ekki lengur á
heimavelli. Þótt staðgenglum
hans gangi málflutningurinn
vel, hefur verið kvartað undan
að flokkurinn hafi lítið fram að
færa.
Hagnýtt nám með alþjóðlegu yfirbragði
Útflutningsskólinn í samstarfi við Danska útflutningsskólann
Starfar þú við útflutning?
eða
Hefur þú áhuga á að vinna
við útflutning?
Hefur þú áhuga á að bæta
þekkingu þína?
Meðal kennara verður skólastjóri og fjórir kennarar Danska útflutingsskólans:
Utflutningsskólinn í samstarfi við „Den
Danske Eksportskole" býður 6 vikna
sumarskóla á Sauðárkróki þar sem þekktir
erlendir og íslenskir sérfræðingar munu
kenna.
Lögð verður áhersla á hagnýtt nám fyrir
þá sem starfa eða hafa áhuga á að starfa
við útflutning.
Kennt verður í hinu glæsilega skólahúsi
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki.
Nemendur munu gista í húsnæði FNV
mánudag til föstudags og um helgar
ef þeir óska.
Kennt verður á ensku og íslensku.
Mogens Blume Schmldt er
skólastjóri Danska útflutningsskólans.
Hann starfaði lengi sem markaðsstjóri og
framkvæmdastjóri hjá dönskum
útflutningsfyrirtækjum og síðar sem
ráðgjafi og framkvæmdastjóri hjá danska
ráðgjafafyrirtækinu PA Consulting Group.
Hr. Schmidt tók við stadi rektors DDE á
Vijay P. Jainermargreyndur
fraeðimaður og ráðgjafi um
markaðsmál og alþjóðaviðskipti. Hann
hlaut menntun sína í þrem löndum og
hefur starfað viða um heim. Hr. Jain er
danskur ríkisborgari og hefur kennt við
Danska útfiutningsskólann síðan 1979
jafnframt því að starfa sem ráðgjafi um
alþjóðlega markaðsfærslu. Hr? Jain er
litríkur og hrifandi persónuleiki með
óvenju viðtæka reynslu og bakgrunn.
Mogens Brock er
aðstoðarskólastjóri Danska
útflutningsskólans. Hann hefur sérhæft
sig á sviði stefnumörkunar og
stjórnunar. Hr. Brock er reyndur kennari
við æðri menntastof nanir auk þess sem
hann hefur tekið þátt í stjórnun og
stefnumörkun danskra fyrírtækja.
June da Fonsecaerfædd
í Goa, þá portúgalskri nýlendu í
Indlandi. Hún starfaði i 13 ár (
indverska sendiráðinu í
Kaupmannahöfn, lengst af sem
viðskiptafutttrúi. Hún hefur kennt
við Danska útflutningsskólann
síðan 1989 aöallega á sviði
alþjóðlegra samskipta.
Barry O'Loughlin er Iri með mikla
alþjóðlega reynslu f viðskiptum og
fræðistörfum. Hann starfaði i irska
sendiráðinu í Danmörku í nokkur ár sem
viðskiptafulltrúi þar sem hann sórhæfði sig
í að styrkja viðskiptasambönd ira á
Norðurlöndum. Barry O'Loughlin og June
da Fonseca eru hjón með alþjóðlegu
yfirbragöi sem hafa valið sór heimili í
Danmörku. Þau hafa tekið sór frf frá
kennslu við DDE í eitt ár til þess að stunda
framhaldsnám á írlandi.
Upplýsingar í síma 453 6281
Óvenjulega falleg og fróðleg bók. Á sjötta hundrað
blaðsíðna með skýringum og teikningum af fleiri en
2400 jurtum.
mifk
Ævisögur og endurminningar,
spennusögur, barna- og unglinga
bækur, þjóðlegur fróðleikur,
íþróttir og margt fleira
BÓKALAGERIN
Skjaldborgarhúsinu Ármúia 23 * 588-2400
»PW
mánudaga - föstudaga kl. 9-18
laugardaga 10-14
Sígilt skáldverk í fjórum
bindum eftir hinn
heimsfræga, danska
rithöfund Martin
Andersen Nexo.
Fæst í fallegri gjafaöskju.
Ómetanleg bók handa fólki á öllum aldri sem vill stuðla
að góðri heilsu sjálfs sín og sinna nánustu. Auðskildar
leiðbeiningar um úrræði til náttúrlegrar heilbrigði, úrval
óskaðlegra meðala við algengum kvillum og til bráðahjálpar.
Vönduð og aðgengileg bók með lýsingum á einkennum
og dreifingu yfir 2S0 fuglategunda og undirtegunda. 44
litmyndasíður með um 500 nákvæmum vatnslitamyndum
af 225 tegundum, þar af allmörgum fátíðum.
Bókin um Geirfinnsmálið
sem skók íslenskt þjóðfélag
á árunum 1976-1980 og er
nú aftur að koma upp á yfir-
borðið. Þorsteinn Antons-
son, rithöfundur, fjallar um
málsrannsóknina og
skyggnist bak við tjöldin í
leit að raunverulegu
samhengi atburða.
ANTONSSOM