Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 30
30 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
AÐSENDAR GREIIMAR
MORGUNBLAÐIÐ
Helgi Hálfdanarson
Herra og séra
NÝLEGA hripaði ég greinar-
stúf í Lesbók Morgunblaðsins
um aldagamlar trélíknsekjur
tvær af Maríu mey, kenndar við
snillinginn síra Hjalta Þorsteins-
son í Vatnsfirði. Taldi ég vafa-
samt að önnur þeirra, nefnd
Maria rustica, væri hans verk,
enda með mun lakara hand-
bragði en hin, sem væri prýðisg-
ott listaverk, kölluð María önn-
ur. Greininni fylgdu að sjálf-
sögðu myndir af líkneskjum þess-
um. En svo slysalega tókst til,
að textar undir myndunum
brengluðust í prentun og þar með
nöfnin, svo greinarkornið, sem
ekki mátti við miklu, varð eitt-
hvert hörmulegasta rugl sem
birzt hefur á prenti. Mistökin
leiðrétti Morgunblaðið undir eins
í næsta töiublaði, og fyrir það
þakka ég vel.
Hins vegar hafa kunningjar
mínir hringt til mín hver um ann-
an þveran af öðru tilefni í þessari
sömu grein. Þeir lýstu andúð á
rithætti mínum „síra“ á titli
Hjalta prófasts vegna þess að rit-
hátturinn „séra“ væri réttari.
Reyndar er þetta ekki í fyrsta
sinn að fundið sé að þessu við
mig, svo kannski er við hæfi að
ég reyni að bera hönd fyrir höfuð
mér.
Þá er ekki fráleitt að víkja í
leiðinni að öðru atriði nátengdu.
Fátt er um að íslenzk karl-
kynsorð endi á a í nefnifalli. Þar
ber einkum á titlunum herra og
séra. Þó að íslendingar hafi van-
izt þessari nefnifallsendingu og
tekið hana i sátt, mun flestum
þykja hún eitthvað ofurlítið óeðli-
leg, og liggur við að þessum orð-
um sé fyrir bragðið skipað hálf-
vegis utan orðflokka.
Reyndar var herra á sínum
tíma aðeins aukafallsmynd af
herri, sem var eins konar tví-
mynd af harri og þýddi höfðingi
eða konungur; enda var Óðinn
titlaður harri Hliðskjálfar.
Snemma mun nefnifallsmynd-
in herri hafa breytzt í herra,
hvernig sem á því stóð. Á síðari
öldum varð algengasta notkun
orðsins í utanáskrift á sendibréf,
og þá í þágufallinu: Herra Jóni
Jónssyni. Var þá sennilega undir-
skilið Berist (herranum Jóni
Jónssyni) eða annað slíkt. Þegar
svo var farið að hafa mannanöfn
á bréfum í nefnifalli, var þetta
sendibréfa-þágufall orðið svo
ráðríkt, að mynd þessi, herra,
kann að hafa fylgt mannsnafninu
inn í nefnifallið. Um tímamörk
þess ferlis væri að líkindum erf-
itt að segja; en svo má virðast
sem nefnifallsmyndin herra sé
a.m.k. eldri en frá ritunartíma
íslenzkra fornrita, hvernig sem
bréfaskriftum hefur þá verið
hagað; en á þeim tímum voru
sendibréf ekki fátíð.
Líku máli gegnir um titilinn
séra, sem prestvígðir menn
hljóta. Hann kvað í upphafi verið
hafa síri í nefnifalli (sbr. Sir og
önnur skyld orð erlend) og hafð-
ur um fleiri menn en nú. En i-
endingin sætti þar sömu örlögum
og í herri og líklega af sömu
sökum. í tilbót mun í-ið snemma
á öldum hafa lent í e.k. hljóð-
skriði, svo að nefnifallið síra
varð séra.
Enn ber ögn á rithættinum
síra, og mun þá smekkur ráða,
hvort „skrið“-myndin séra er not-
uð eða ekki. Þeim sem þetta ritar
þykir orðmyndin síra bæði snotr-
ari og virðulegri, þó að vinir hans
hafí snuprað hann fyrir þá
sérvizku sem aðra. En til i-end-
ingarinnar í herri og síri verður
ekki aftur snúið úr því sem þar
er komið. Að minnsta kosti þyrfti
til þess jafnvel enn harðsnúnari
sérvitringa en undirritaðan, og
þeir eru ekki á hverju strái.
KOMIÐOG
BflNSlO!
1
læstu
námskeið
■RÐU l3og 14. apr
LÉTTA
DANSSVEIFLU
Á TVEIM ___ ____
DÖGUMt 557 7700
Áhugahópur um almenna dansþátttöku á íslandi
hringdu núna
A
Skíðasamband Is-
lands 50 ára
stofnað þann 23. júní 1946
SKÍðASAMBAND
íslands, elsta sérsam-
band íslensku íþrótta-
hreyfingarinnar, sem
stofnað er innan ÍSÍ,
fagnar fimmtíu ára af-
mæli á þessu ári. Sam-
bandið var formlega
sett á stofn þann 23.
júní árið 1946 og hefur
starfað samfleytt að
málefnum skíðaíþrótt-
arinnar frá þeim tíma.
Tilgangur Skíðasam-
bands íslands er sá að
hafa með höndum yfir-
stjórn í málefnum
skíðaíþróttarinnar á
landinu og að vinna að
eflingu hennar. Sambandið kemur
fram út á við fyrir hönd íþróttasam-
bands íslands í málefnum er varða
skíðaíþróttir og er æðsti aðili innan
vébanda ÍSÍ í sérgreinamálefnum á
því sviði.
Skíðasamband íslands er sam-
band skíðaráða, héraðssambanda og
íþróttabandalaga. Sambandið setur
þær leikreglur sem gilda skulu í
skíðaíþróttagreinum á landinu. Líkt
og -víðast annars staðar eru íslensku
reglurnar byggðar á reglum alþjóða
skíðasambandsins, en í einstökum
atriðum eru þær lagaðar að íslensk-
um aðstæðum. Sambandið löggildir
einnig skíðadómara og ráðstafar
skíðamótum milli héraða.
Á þeim fimmtíu árum sem SKÍ
hefur starfað hafa að sjálfsögðu orð-
ið gífurlegar breytingar á flestu því
sem lýtur að iðkun skíðaíþrótta. Er
þá sama hvort litið er til keppnis-
greina eða almennrar iðkunar skíða-
íþrótta.
Undanfarin ár hefur starfsemi
SKÍ óhjákvæmilega snúist í vaxandi
mæli um landslið íslands í skíða-
íþróttum og starf með íslenskum
skíðamönnum erlendis. Að jafnaði
eru 6-8 íslensk ungmenni á skiða-
menntaskólum í Noregi og Svíþjóð
og landsliðið hefur á síðustu árum
dvalið 8-9 mánuði á ári erlendis við
æfingar og keppni.
Þótt aðstæður til iðkunar skíða-
íþrótta hér á landi hafi vissulega
tekið stórstígum framförum eru þær
ekki nægjanlegar því skíðafólki sem
komast vill í fremstu röð í keppnis-
greinum. Skíðatímabilið hér á landi
er oftast rétt um þrír mánuðir á ári
auk þess að Kerlingarfjöll bætast
við yfir hásumarið. Á haustmánuð-
um og langt fram á vetur (septemb-
er-janúar) er mörg ár hvergi á land-
inu hægt að æfa skíðaíþróttir svo
gagn sé að. Þótt hugsanlega mætti
finna hér svæði sem mögulegt væri
að byggja upp með nær heilsárs iðk-
un skíðaíþrótta í huga yrði sú upp-
bygging svo dýr að varla svaraði
kostnaði. Sú er að
minnsta kosti staða
mála í dag.
Afleiðingin er sú að
íslenska skíðalandsliðið
verður að dveljast lang-
dvölum utanlands ef
árangur á að nást. Síð-
ustu tvö árin hefur liðið
nánast verið búsett í
Schladming í Austur-
ríki. Þar er liðið við
æfingar og sækir þaðan
keppni frá septemb-
ermánuði og fram í
aprílmánuð. Frá
Schladming er stutt á
öll helstu skíðamót í
Evrópu. Staðsetningin
auðveldar keppnisfólki okkar að
fínna „réttu“ mótin fyrir sig eða þau
mót sem gefa hveijum keppenda
bestu möguleika á að færast upp
heimsafrekalistann.
Öllum keppendum í skíðaíþróttum
á alþjóðavettvangi er raðað á lista
eftir FlS-punktum, sem eru aiþjóð-
leg styrkstig. Stiginn er hnígandi,
Elsta sérsamband
íþróttahreyfingarinnar,
Skíðasamband íslands,
verður 50 ára á þessu
ári. Benedikt Geirs-
son, skrifar hé um
skíðaíþróttina.
þannig að því betri sem keppandi
er, samanborið við aðra virka kepp-
endur, þeim mun færri stig hefur
hann. Besti keppandi heims í hverri
grein hefur styrkleikastigið 0,00
(eins og til dæmis Alberto Tomba í
svigi karla og Elfi Eder í svigi
kvenna). Keppendur leitast því við
að lækka stigafjölda sinn.
Þeir keppendur okkar sem dvalið
hafa erlendis síðustu árin eru allir
að bæta stöðu sína á heimsafreka-
listanum jafnt og þétt. Þar er við
ramman reip að draga, því um átta
þúsund karlar og fimm þúsund kon-
ur beijast um sætin á listanum.
Okkar fremsti skíðamaður, Krist-
inn Björnsson, er nú í 56. sæti í risas-
vigi, 93. sæti í svigi og 127. sæti í
stórsvigi. Fremsta skíðakona okkar
er Ásta Halldórsdóttir, en hún komst
lengst í 68. sæti í svigi, 133 sæti í
stórsvigi og 233. sæti í risasvigi.
Þegar kemur að heimsbikarmót-
um er hin almenna regla sú að allar
þjóðir eiga rétt á að senda einn kepp-
anda til móts, en síðan öðlast þjóðir
Benedikt Geirsson
rétt til að senda fleiri keppendur ef
þeir komast niður fyrir viss styrk-
leikastig.
Framundan eru fjöldamörg al-
þjóðleg mót, bæði stór og smærri.
Næstu stórmót eru heimsmeistara-
mót í alpagreinum í Sestriere á ítal-
íu og heimsmeistaramót í norrænum
greinum í Trondheim í Noregi. Bæði
þessi mót verða á næsta ári. Árið
1998 verða Vetrarólympíuleikarnir
haldnir í Nagano í Japan og árið
1999 verða heimsmeistaramót í
alpagreinum í Vail í Bandaríkjunum
og í norrænu greinunum í Ramsau
í Austurríki.
Undirbúningur fyrir þátttöku á
þessum mótum er þegar hafinn.
Starf Skíðasambands Islands hef-
ur fyrst og fremst falist í samskipt-
um við útlönd og starfi með landslið
íslands. Gerð samninga um búnað
landsliðsfólks hefur einnig verið
áberandi, en sá búnaður sem hver
keppandi í skíðaíþróttum þarfnast
er bæði mikill og dýr.
Þótt starf SKI með landsliði og
öðru íslensku skíðafólki erlendis sé
bæði umfangsmikið og mikiivægt
er það starf sem unnið er í héraði,
af aðildarsamböndum SKÍ, ekki síð-
ur merkilegt. Þar fer uppeldisstarfið,
sem er eitt af helstu markmiðum
allrar íþróttahreyfingarinnar, fram
og þar er lagður grunnurinn að öllu
því sem SKI hefur með höndum.
Þá má ekki gleyma öllum þeim
fjölda Islendinga sem stunda skíða-
íþróttina í tómstundum í lauslegum
eða jafnvel engum tengslum við
íþróttafélögin. Ur þeirri breiðfylk-
ingu er allt þetta starf sprottið.
Héraðssamböndin sem mynda
SKÍ starfa mjög sjálfstætt. Þeim er
úthlutað mótum og sjá alfarið um
undirbúning og framkvæmd þeirra.
Á hveiju vori kemur saman vorþing
skíðahreyfingarinnar. Þar er nýlið-
inn vetur skoðaður og gerðar breyt-
ijigar á lögum og reglugerðum SKÍ.
Á haustin koma svo formenn héraðs-
sambanda saman og leggja línurnar
fyrir komandi vetur.
Móft á íslandi skiptast í punkta-
mót og bikarmót. Á punktamótum
stefna keppendur fyrst og fremst
að því að lækka íslensk styrkstig
sín, það er bæta stöðu sína á ís-
lenska afrekalistanum. Á bikarmót-
um reyna keppendur einnig að lækka
styrkstigin, en safna jafnframt bik-
arpunktum og sá sem hefur flest
bikarstig eftir veturinn er krýndur
bikarmeistari SKI.
Innan vébanda SKÍ hefur verið
unnið viðamikið starf. Framundan
eru líka stór verkefni sem krefjast
mikillar vinnu og verulegrar fjár-
mögunar. Skíðasamband íslands
getur í dag litið yfir farinn veg með
nokkru stolti, en hugurinn má ekki
dvelja lengi við hið liðna því framtíð-
in kallar. Iðkendur skíðaíþrótta eru
á öllum aldri, en krafan um sífellt
öflugra starf kemur ekki síst frá
hinum yngri. Eldmóður þeirra og
áhugi þarf að vera Skíðasambandi
íslands leiðarljós, þótt yfirvegun hins
fimmtuga myndi kjölfestuna.
Höfundur er formaður Skíðasam-
bands íslands.
Sporfleguf og spennandi
-ogumleið rúmgóður og þægilegur 5 manna bíll!
Verð aðeins
kr, 1.317.000
OPIÐ FRÁ KL. 9-18, LAUGARDAGA 12-16
RÆSIR HF
SKÚIAGÖTU 59 - SÍMI 5619550
Áttþú 1 miljón?
An þess tn) vita þttöl
' -éi
//
/*■«/
y'7"
.
' isl
. 1m
Ég hef verið beðinn um að útvega i
frímerkjasafn umslag með skildingafrímerkjum (1873-
1876). Kaupandi vill greiða um 1 miljón. Öll boð eða
fyrirspurnir verður farið með sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
gefur Magni.
Hjá Magna
Lattgavegi 15 • Sími 552 3011 • Fax 551 3011