Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 34

Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 34
34 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Það er komið qrænt * LYFJA Lágmúla 5 Opnar Fimmtudaginn 11. apn1 TIL hvers eru lögin í landinu? Þannig spyr Sigurður T. Sigurðsson formaður Verka- mannafélagsins Hlífar í grein er hann ritaði í Morgunblaðið fyrir nokkrum dögum. Hér á hann við af hverju ekki er farið eftir vinnuverndarlögunum um heilsuvernd starfs- manna og hún falin þeirri heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi sem næst liggur vinnustað og/eða auðveldast er að ná til. Eðlilega ber Sigurður hag félags- manna sinna fyrir bijósti, en málið varðar miklu fleiri. Vinnuverndar- lögin, nr. 46/1980, eiga með örfá- um undantekningum við allt vinn- andi fólk í landinu, það á rétt á þeirri þjónustu sem kölluð er heilsu- vemd starfsmanna. Við hvern er að sakast að ekki er til að dreifa heilsuvemd starfs- manna á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum? Sigurður beinir máli sínu einkum til ráðherra og alþing- is en segir þó í lögunum að fyrirtæk- in skuli koma á fót heiísuvernd starfsmanna og gera um þjón- ustuna samninga við heilbrigðis- stofnanir. Það eru fyrirtækin í land- inu sem eiga að hafa frumkvæði og ábyrgð í málinu samkvæmt vinnuverndarlögunum. Það fyrirkomulag að trúnaðar- læknir ISALs sjái um læknisskoð- anir starfsmanna hefur verið við lýði ámm saman áður en vinnuverndarlögin tóku gildi, en þetta fyr- irkomulag vekur tor- tryggni Sigurðar. Að efasemdir komi upp um hlutleysi trúnaðar- lækna er ekki nýtt af nálinni heldur hefur oft komið upp og stundum valdið sárum deilum hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndum. Með- al annars þess vegna hefur verið kveðið á um það í vinnuvemdar- lögunum að heilsu- vernd starfsmanna skuli falirfheilsugæslu- stöðvum og sjúkrahúsum sem heyra undir heilbrigðisyfirvöld. Þannig er hægt að gera það fólk sem sinnir heilsuvernd starfsmanna sjálfstæð- ara gagnvart bæði starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækjanna. Það eru til fleiri aðferðir til að reyna að tryggja óhlutdrægni þeirrar þjónustu sem veita skal með heilsu- vemd starfsmanna. Ein þessara leiða er að setja sérstaka stjórn yfir heilsuvernd starfsmanna sem í eru jafnmargir fulltrúar stjórnenda og starfsmanna og að þeir sem sinna þjónustunni séu ábyrgir gagnvart stjórninni. Stjóm Vinnueftirlits ríkisins hef- ur skipað sérstaka nefnd til að skipuleggja þjónustu heilsuverndar starfsmanna. Miklar vonir em bundnar við að henni takist að greiða þannig úr málum að meiri sátt ríki um tilhögun heilsuverndar- Heilsuvernd starfs- manna er ekki einungis heilbrigðisskoðanir, segir Vilhjálmur Rafnsson, heldur einnig forvarnarstarf miðað við aðstæður á vinnustað. innar og skriður komist á árangurs- ríkar framkvæmdir. Heilsuvernd starfsmanna varðar nær alla starfandi menn í landinu og felst ekki einungis í sérstökum heilbrigðisskoðunum þar sem þær eiga við, heldur einnig í forvarnar- starfi á fyrsta stigi, þar sem gerð er áhættugreining með tilliti til vinnuaðstæðna, gert er áhættumat og gefin ráð um hvemig megi koma í veg fyrir sjúkdóma, slys og vanlíð- an. Heilsuvernd starfsmanna er því forvarnarstarf sem tekur mið af aðstæðum á vinnustöðunum, en ekki almenn heilsuvernd, enda er henni nú þegar sinnt af heilbrigðis- kerfínu. Starfsfólk á heilsugæslu- stöðvum og sjúkrahúsum hér á landi hefur færni til að leysa af hendi verkefni heilsuverndar starfsmanna og grunnþekkingu til að setja sig inn í aðstæður á flóknustu og erfið- ustu vinnustöðunum. Ég tel að skipulögð og markviss rekin heilsu- vernd starfsmanna sé eitt brýnasta heilbrigðismál alls starfandi fólks og muni í lengd koma atvinnulífinu í heild til góða. Því ber að fagna að þessu máli er nú hreyft, enn á ný. Höfundur er yfirlæknir atvinnu- sjúkdómadeildar Vinnueftirlits ríkisins. Heilsuvernd starfsmanna Vilhjálmur Rafnsson ÍSLENSKT MÁL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 843 þáttur í 837. þætti var próf. Baldur Jónsson beðinn um dóm í því álita- máli sem þar var uppi, um „helm- ingi (hálfu) meira“ o.s.frv. Hér á eftir kemur greinargerð próf. Bald- urs (fyrri hluti) og síðari hlutinn í næsta þætti. Er þetta alit svo vand- að og skýrt að trauðla verður betur gert, og færir umsjónarmaður Baldri sérstakar þakkir fyrir. Gef- um honum orðið: „í 837. þætti (24. febrúar sl.) var enn vakin upp umræðan um orðalagið „helmingi meira“, „þriðj- ungi meira" o.s.frv. og merkingu þess. Þorbjörn Karlsson prófessor telur óeðlilegt að 200 krónur teljist vera helmingi meira en 100 krón- ur, rökréttara sé að 150 krónur séu helmingi hærri fjárhæð, og vísar til prósentureiknings því til stuðn- ings. Umsjónarmaður er á öðru máli og ber fyrir sig margra alda málvenju, en Ieggur til að málið verði lagt í minn dóm, enda sé ég bæði málfræðingur og stærðfræð- ingur. Það er að vísu ofrausn að kalla mig stærðfræðing, því að það er ég ekki, en úr því að nafn mitt var nefnt verð ég líklega að leggja orð í þennan belg. Það skal þó tekið fram að ég tel mig þess ekki um- kominn að gerast dómari í málinu. Ég hefi ekki gert neina sérstaka rannsókn á málvenju fyrri alda, en hefi þó mínar hugmyndir um hana, svipaðar og ýmsir aðrir, og mér er útlátalítið að skýra frá þeim hér. Ég hefi haft nokkurn stuðning af grein eftir Helga Hálfdanarson, „Fimm sinnum fimm eru tuttugu" (Morgunblaðið 4. des. 1976; Skynsamleg orð og skætingur (1985), bls. 69-73) og annarri eft- ir Auði Einarsdóttur, „Helmingi meira“ (Mímir, blað félags stúd- enta í íslenskum fræðum, 35, 26. árg. 1. tbl., júlí 1987). Það fer ekki á milli mála að á síðustu áratugum eru tvær venjur að rekast á, eins og glöggt má sjá í grein Auðar, annars vegar gömul íslensk málvenja sem tekur aðal- lega til tveggja hlutfalla, helmings og þriðjungs, og hins vegar ungt orðalag sem fylgir prósentureikn- ingi. Prósentureikningur fór ekki að tíðkast að neinu ráði fyrr en á þess- ari öld og varð tæplega almenn- ingseign fyrr en eftir miðja öldina. Tal um prósentur var ekki mjög algengt fyrir 1950. Orðið prósenta komst ekki í íslenska orðabók fyrr en 1896 og var ekki áleitnara en svo á fyrstu áratugum þessarar aldar að það er ekki að finna í orða- bók Blöndals, sem var gefín út á árunum 1920-1924. Það sést þar fyrst í viðbætinum frá 1963. Hvor- ugkynsorðið prósent hefir aldrei komist í orðabók Blöndals og engar samsetningar með þessum orðum. Orðið hundraðshlutur er í aðalút- gáfunni, en orðin af hundraði hvorki þar né í viðbæti. Ekki minnist ég þess sérstaklega að orðalagið „helmingi hærri“, „hálfu lengri“, „þriðjungi stærri“ o.s.frv. hafi valdið neinum vand- kvæðum þegar ég var að alast upp. Mér finnst þessi vandi vera til kominn á síðari hluta aldarinnar og vera samferða almennri notkun prósentumáls. Reikningsmenn eiga bágt með að sætta sig við að það sem er 100%o stærra en annað megi kallast „helmingi (hálfu) stærra" og ekki síður hitt að það sem er 50% prósent stærra megi kallast „þriðjungi stærra“, enda veit hver maður að 50% er sama og helmingur! Ef til vill má orða það svo að þarna ljósti saman gömlum tíma og nýjum. Sá sem lærir reikning í skóla nútímans er ekki í vafa um að það sé rökrétt sem honum er kennt. Því ályktar hann sem svo að gamla orðalagið geti ekki stað- ist úr því að það brýtur í bága við hið nýja. Þetta viðhorf hefi ég orð- ið var við, jafnvel hjá glöggum reikningsmönnum, en á það get ég ekki fallist. Frá mínum bæjardyrum séð mætast hér ekki andstæðurnar rök-rétt: órökrétt. í gamla orða- laginu er ekkert órökrétt, en við- horfið er allt annað en í prósentu- máli og hefir líka mótast við allt aðrar áðstæður, löngu áður en pró- sentureikningur gerði vart við sig.“ ★ Anonym kvað: Svo hresstu þig, Hallgrímur minn, heimurinn var aldrei þinn, og þó h(r)eimur sé harður, er þinn hlutur ei skarður borinn frá borði neitt sinn. ★ „En þá þeir neyttu, tók Jesús brauðið, blessaði og braut það, gaf sínum lærisveinum og sagði: Takið og etið, þetta er mitt hold. Hann tók og kaleikinn, gjörði þakkir, gaf hann þeim og sagði: Drekkið allir hér út af. Því að það er mitt blóð, ens nýja testaments, hvert eð út- hellist fyrir marga til syndanna fyrirgefningar. En eg segi yður að eg mun eigi héðan í frá drekka af þessum vínviðarins ávexti allt til þess dags er eg mun drekka það nýtt með yður í míns föðurs ríki. Og að lofsöngnum sögðum gengu þeir út í íjallið 01iveti.“ (Matt. 26, Oddur Gottskálksson þýddi. Svo prentað í Hróarskeldu í Danmörku 1540, og var það í fyrsta sinn í heiminum, að bók væri prentuð á íslensku máli.) Gleðilega páska.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.