Morgunblaðið - 04.04.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 35
AÐSENDAR GREINAR
Hver er réttur MS
sjúklinga?
Eiga þeir að búa við kvótakerfi?
NÚ HEFUR grænt
ljós verið gefíð á
lyfjagjöf á Interferon-
Beta, en það er fyrsta
lyfið sem sýnt hefur
verið fram á að vinni
gegn MS sjúkdómn-
um.
í versta falli getur
það seinkað fram-
gangi sjúkdómsins um
nokkur ár. Ekki þarf
að taka það fram að
beðið hefur verið árum
saman eftir lyfí sem
þessu, þar sem raun-
hæfur möguleiki er á Gyða J.
að ná einhveijum Olafsdóttir
bata.
En þrátt fyrir að þessi lang-
þráðu gleðitíðindi liggi nú fyrir,
ríkir mikil örvænting og vonleysi
meðal flestra ef ekki allra sem
sjúkdómurinn snertir; sjúkling-
anna sjálfra, aðstandenda og þess
fólks sem starfar við umönnun
sjúklinganna; sérfræðinga, lækna
og annars hjúkrunarfólks sem að
málinu kemur á einn eða annan
hátt. Ástæðan fyrir áðurnefndu
vonleysi og þeirri óheilbrigðu
spennu sem nú ríkir meðal þessa
fólks er sú ótrúlega staðreynd að
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
ið hefur ákveðið „að mismuna
gróflega þeim sem þjást af sjúk-
dómnum“.
Mismununin fer þannig fram
að öllum þeim sem þurfa nauðsyn-
lega á lyfinu að halda er ekki veitt
það, nei, heldur velur ráðuneytið,
að þvi er virðist að fara í leik sem
helst minnir á „Ugla sat á
kvisti..." og velja handahófskennt
þá sjúklinga sem eru þess verðir
að fá lyfíð og hinir eru látnir sitja
á hakanum. Ráðuneytið er búið
stofna nýtt sjúkralottó sem er öllu
verra en hin sem fyrir eru, því hér
er leikið með heilsu fólks og sálar-
heill.
Það mætti ætla að háttvirtum
fyndist þjáningar þessa fólks ekki
nægar fyrir, því að nú eiga þess-
ir sjúklingar einfaldlega að bíða
og sjá hvort þeir verða dregnir
úr lukkupotti. Og þeir sem dregn-
ir eru úr pottinum þora varla að
nefna það við nokk-
urn mann, vegna
hinna sem eru jafn-
veikir eða veikari,
vegna samviskubits
(óeðlilegs) og
skömmustutilfinn-
ingar.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðu-
neytið er komið í þá
aðstöðu, sem ætla
mætti að væri ein-
ungis á valdi æðri
máttarvalda, að velja
ut þá sem fá að lifa
(fá lyfið) og hina sem
deyja (fá ekki lyfið).
Því auðvitað er það hálfgerður
dauðadómur fyrir þá sjúklinga
sem ekki fá lyfið að vita að lækn-
ingin er fyrir hendi. Sumum sjúk-
lingum er neitað um meðferðina
þótt þeir þarfnist hennar. Þetta
vekur mikla furðu þar sem sam-
kvæmt lögum um heilbrigðisþjón-
ustu nr. 97/1990 með síðari
Ég bið heilbrigðisráð-
herrann auðmjúklega,
segir Gyða J. Ólafs-
dóttir, að svipta MS
sjúklinga ekki voninni
(lyfinu).
breytingum segir að „allir lands-
menn eiga rétt á fullkomnustu
heilbrigðisþjónustu sem völ er á
að veita“ en ekki er minnst einu
orði á „ugla sat á kvisti“ aðferð
ráðuneytisins.
Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytið hundsar þá taugalækninga-
sérfræðinga sem hafa með mál
þessara sjúklinga að gera og velur
handahófskennt þá sem lyfið fá
og synjar umsóknum þar sem nán-
ast sömu forsendur liggja að baki.
Ástæðan sem gefín er fyrir þess-
um vinnubrögðum er einfaldlega
sú að nú eigi að spara. Það eru
ekki mörg ár síðan ég sá heilbrigð-
isráherra í sjónvarpssal, en þá var
hann einungis óbreyttur þingmað-
ur, þar sem verið var að ræða um
það hvort bóndi væri bústólpi eður
ei og hvórt réttlætanlegt væri að
ausa í þá peningum eins og gert
hafði verið fram að þeim tíma. Þá
stóð ekki á núverandi heilbrigðis-
ráðherra að koma bændum og
sauðkindinni til bjargar þar sem
hann fullyrti „að hver sú króna
sem bændur fengju, skilaði sér
tvöfalt til baka til ríkisins“. Ráð-
herrann gat reyndar ekki nefnt
neina tölfræði til stuðnings þess-
ari fullyrðingu, en sannfærandi
var hann.
Ég ætla að leyfa mér að full-
yrða eins og ráðherra að hver
króna sem fer í það að bæta heilsu
MS sjúklinga kemur margfalt til
baka; sjúkrahúslegum og fjarvist-
um frá vinnu vegna veikinda mun
fækka og einnig því starfsfólki
sem starfar við umönnun þessa
hóps. Það er algerlega óþolandi
að brotið sé á hópi sjúklinga sem
þessum, sem eiga erfítt með að
bera hönd fyrir höfuð sér, og að
loksins þegar vonarneisti hefur
verið tendraður, vonir þeirra um
lækningu með hjálp áðurnefnds
lyfs, sé hann kæfður samstundis
með óvissu og óeðlilegri mismunun
á því hveijir það fá og hveijir
ekki. Ég vona af öllu hjarta að
ráðherra nái áttum í þessu máli
og sýni MS sjúklingum a.m.k.
sama stuðning og hann veitti sauð-
kindinni forðum og geri sér grein
fyrir því, að með því að veita lyfíð
„öllum þeim sem það þurfa“, þá
sparar hann um leið stórfé í ríkis-
kassann þegar til lengri tíma er
litið og síðast en ekki síst, þá get-
ur hann átt þátt í því að bæta
heilsu og sálarheill fjölda fólks sem
hefur ekkert unnið til saka annað
en að veikjast af þessum erfíða
sjúkdómi. Ég bið heilbrigðisráð-
herrann auðmjúklega að svipta
MS sjúklinga ekki voninni (lyf-
inu), því hún er það eina sem þeir
eiga.
Höfundur er formaður MS félags
íslands.
Bónusdagar
Vegna mikillar aðsóknar verða vinsœlu
bónusdagarnir aftur í apríl.
Þrír œvintýradagary
á meðan húsrúm leyfir.
Verð kr. 4.950
Innifalið: Gisting í 3 nœtur. Morgunverður af
hlaðborði ogþríréttaður kvöldverður síðasta kvöldið.
Upplýsingar og bókanir á Hótel Örk.
Fyrstur kemur - fyrstur fœr
$3 HÓTEL ÖDK
v. _
Hveragerði. Sími 483 4700. Bréfsími 483 4775
Lykilllinn að íslenskri gestrisni
I GALTALÆ KJARSKOGI
Tilboð
óskast í skemmtiatriði,
dansleiki og önnur
dagskráratriði á stærstu
fjölskylduhátíð verslunar-
mannahelgarinnar 1996.
Tilboð skal senda fyrir 22. apríl nk.
í símbréfi (s. 551 0248) eða pósti merkt
Bindindismótinu í Galtarlækjarskógi,
Eiríksgötu 5,101 Reykjavík.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er,
að hluta eða öllu leyti, eða hafna öllum.
3ja vikna ferð - 2ja vikna verð 17. júni - 8. júlí
Eina, sem þú þarff aö gera, er að bóka og staSfesta ferSina fyrir 1 9. apríl
Pantaðu í síma
552 3200
Takmarka&ur sætofÍSW
Munið Atlasávísanimar
Sfraðgreiðsluverð meb sköttum
frá kr. 43.200 á mann,
2 fullorðnir og 2 börn í íbúð, 3 vikur á Los Gemelos II.
Örfá sæti laus til Benidorm
15. maí
Staðgreiðsluverð með sköttum
frá kr. 54.935 á mann,
2 fullorðnir í íbúð, 3 vikur á Los Gemelos II.
ATLAS
EUROCARD
FERÐASKRI FSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16 • SÍMI 552 3200 • FAX 552 9935