Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. STEFNUMÖRKUN ASÍ AÐALATRIÐIÐ EITT BRÝNASTA verkefni þings Alþýðusambands íslands, sem hófst í Kópavogi í gærmorgun, og þeirrar forystu sem þar verður kjörin til þess að fara fyrir iaunþegahreyfingunni næstu fjög- ur árin, verður að móta stefnu samtakanna til framtíðar, á ígrundað- an og skynsamlegan hátt, þannig að launþegar landsins og forystu- menn þeirra aðlagi sig breyttum þjóðfélagsháttum, vinnubrögðum og stefnumiðum. Það er rétt sem Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, segir hér í Morgunblaðinu í fyrradag, að það er „aðalatriði að búa til stefnu- mörkunina því hitt, að finna fólk til að framfylgja stefnu sem við erum orðin einhuga um, getur ekki verið stórt vandamál. Stefnu- mörkunin er aðalatriðið." Með þessum orðum hittir forseti ASÍ naglann á höfuðið og því mega þingfulltrúar ekki falla í þá gryfju að láta deilur um það hveijir skuli skipa forystusveit samtakanna næstu fjögur árin villa sér sýn og koma í veg fyrir að mótuð verði stefna sem taki mið af gjörbreyttum aðstæðum og viðhorfum. Markmið það, sem fram kemur í tillögum miðstjórnar ASÍ um stefnu sambandsins í launamálum, að ná kaupmáttarstigi nágranna- þjóðanna í skilgreindum áföngum á næstu fimm árum, er góðra gjalda vert. En í þeim efnum er útilokað að horfa framhjá þeirri staðreynd, að slíku markmiði verður ekki náð, nema hér verði um framleiðniaukningu að ræða - slíku markmiði verður ekki náð, nema hér ríki stöðugleiki - slíku markmiði verður ekki náð, nema við búum við aukinn hagvöxt frá ári til árs. Raunveruleg aukning kaupmáttar næst ekki, nema ofangreind skilyrði verði fyrir hendi í efnahags- og atvinnulífi landsmanna. Því þarf launþegahreyfingin að horfast í augu við eigin ábyrgð í þessum efnum. Þessi markmið munu ekki nást, nema til komi samstaða og samvinna fyrirtækja og launþega um að hveiju skuli stefnt. Einhliða kröfugerð á hendur atvinnurekendum er gamaldags baráttuaðferð, sem mun engu skila i vasa launþega. Verkalýðshreyfingin hefur að undanförnu barizt hart gegn umbót- um á vinnulöggjöf. Sú barátta er á misskilningi byggð og sýnir, að forystusveit þessarar voldugu almannahreyfingar hefur ekki skynjað þær víðtæku og djúpstæðu breytingar, sem orðið hafa á viðhorfi fólks. í þeirri baráttu hafa ríkisstjórn og meirihluti Alþing- is stuðning almennings en ekki verkalýðshreyfingin. Það út af fyr- ir sig er umhugsunarefni fyrir þingfulltrúa á ASÍ-þingi. UT ANRÍKISÞ J ÓNU ST AN ENDURSKOÐUÐ STJÓRNSÝSLUENDURSKOÐUN Ríkisendurskoðunar á utanrík- isráðuneytinu er vonandi aðeins fyrsta úttektiri af þessu tagi á mikilvægu ráðuneyti innan stjórnarráðsins. Það er mikilvægt að Ríkisendurskoðun, sem er eitt bezta tæki Alþingis til að veita fram- kvæmdavaldinu aðhald, taki þannig fyrir fleiri ráðuneyti og stofnan- ir ríkisins. í skýrslu Ríkisendurskoðunar um utanríkisráðuneytið er að finna ýmsa gagnrýni á atriði, sem sennilega eru vandamál víðast hvar í stjórnkerfinu. Þetta á til dæmis við um gagnrýni stofnunarinnar á skort á skipulagi, festu og áætlanagerð innan ráðuneytisins. í skýrslunni kemur þó fram að fyrrverandi utanríkisráðherra hafi komið á ýmsum umbótum í starfsemi ráðuneytisins og að í tíð núver- andi ráðherra hafi formfesta aukizt í stjórnsýslu ráðuneytisins. Ríkisendurskoðun bendir líka á að fara megi betur með fé hins opinbera, bendir til dæmis á að embættisbústaðir íslenzka ríkisins eriendis séu of stórir og dýrir og að risnuútgjöld sendiherra séu að miklu leyti tilkomin vegna heimsókna íslenzkra stjórnmála- og embættismanna hjá þeim. Eflaust á gagnrýni af þessu tagi við víðar í ríkiskerfinu. Það, sem skapar utanríkisráðuneytinu ákveðna sérstöðu í stjórn- sýslunni, er hins vegar sú regla að embættismenn flytjist á milli starfsstöðva með reglulegu millibili. Ríkisendurskoðun segir starfs- mannaflutningana ekki ganga fyrir sig eins og skyldi. Hún bendir í fyrsta lagi á að munur á kjörum embættismanna í ráðuneytinu í Reykjavík og þeirra, sem starfi erlendis, sé svo mikill að það sé ekki eftirsóknarvert fyrir menn að koma heim frá útstöðvum og starfa að stefnumótun í höfuðstöðvum utanríkisþjónustunnar. Þetta er alvarlegur vandi og ber að fagna því að Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hyggst skipa sérstaka nefnd til að athuga málið. í öðru lagi segir Ríkisendurskoðun að sendiherrar hafi verið kall- aðir heim án þess að fyrir lægi hvaða verkefni ætti að fá þeim og að eðlilegt væri að þessir reynslumestu starfsmenn utanríkisþjón- ustunnar stýrðu aðalskrifstofum ráðuneytisins. Þetta er réttmæt gagnrýni ef menn gefa sér þá forsendu að allir sendiherrar hafi þá flóknu sérþekkingu, sem þarf til að takast á við sívaxandi verk- efni fagskrifstofa utanríkisráðuneytisins. Staðreyndin er hins vegar sú að aðstæður í alþjóðamálum hafa breytzt ótrúlega hratt á undan- förnum árum, sem hefur gert það að verkum að meiri þörf hefur verið á að ráða menn með sérþekkingu eða ákveðna reynslu í utan- ríkisþjónustuna. Slíkt kann að hafa ruglað hinn hefðbundna tröppu- gang embættismannakerfisins í utanríkisþjónustunni eitthvað, en ekki fer á milli mála að slíkar ráðstafanir hafa verið nauðsynlegar til að utanríkisþjónustan næði markmiðum sínum á árum, sem hafa verið einhver þau viðburðaríkustu í sögu íslenzkra utanríkismála. | ÞING ALÞÝÐUSAMBANDS fSLANDS Morgunblaðið/Þorkell TÆPLEGA 500 þingfulltrúar sækja þingið og eru þeir fulltrúar 203 verkalýðsfélaga og deilda innan Alþýðusambandsins. Forysta ASI verður kosin á morgun, en þingið stendur fram á föstudag. Hvatt til umræðu um sam- einingu launþegasamtaka Forseti ASÍ og formaður BSRB lögðu áherslu á nánari samskipti stéttar- félaga í setningarræðum sínum BENEDIKT Davíðsson, for- seti ASÍ, gagnrýndi ríkis- stjórnina og stjórnar- meirihlutann á Álþingi harðlega vegna frumvarpa ríkis- stjórnarinnar um breytingar á vinnulöggjöfinni í setningarræðu sinni á 38. þingi Alþýðusambands- ins, sem hófst í Kópavogi í gær- morgun. í ræðu sinni vakti Bene- dikt einnig máls á því hvort nú væri kominn tími til að samtök launþega á íslandi tækju til um- ræðu nánara samstarf eða samein- ingu. Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB, sem var meðal gesta á þinginu, tók í sama streng í ávarpi sínu. í ræðu sinni vék Benedikt að stöðu verkalýðshreyfingarinnar og sagði: „Aðför stjórnvalda að verka- lýðshreyfingunni síðustu mánuði hefur orðið til að endurvekja sam- starf milli þessara samtaka, sem að öðru leyti hefur verið lítið síð- ustu misseri. Við hljótum að spyrja okkur að því í framhaldinu hvort ekki sé nauðsynlegt að þessi sam- tök taki upp opinskáa umræðu um áherslur sínar og framtíðarsýn með það að markmiði að þau móti sér sameiginlega stefnu og treysti samstarf sitt á ýmsum sviðum eins og kostur er eða jafnvel samein- ist,“ sagði Benedikt. Ögmundur Jónasson tók undir orð Benedikts í ávarpi sínu um mögulega sameiningu og sagði að nú væri runnin upp sú stund að verkalýðshreyfingin léti af sundur- lyndi innan sinna raða. „Ef Alþýðu- samband íslands kæmist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að hefja viðræður um nánari samvinnu og jafnvel sameiningu samtaka þegar fram líða stundir, eins og Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusam- bandsins, vék að í sínu máli, þá lýsi ég þeim vilja að stuðla að slíkri umræðu, og æskilegast væri að mínum dómi að öll samtök á launa- markaði kæmu að slíkum samræð- um og það fyrr en síðar,“ sagði Ögmundur. Hörð gagnrýni á ríkisstjórnina í ræðu sinni skoraði Benedikt á þingið að árétta andstöðu verka- lýðshreyfingarinnar við stéttarfé- lagsfrumvarp ríkisstjórnarinnar með sérstakri samþykkt sem af- hent verði forsetum Alþingis. „Það er ekki nóg með það í þessu máli, að tillögur til breytinga á sam- skiptareglum á vinnumarkaði gangi þvert á það sem samtök okk- ar hafa gert tillögur um gagnvart stjórnvöldum og gagnaðilum, held- ur hefur málflutningur andstæð- inga okkar í þessu máli yerið ótrú- lega ósvífinn. Sjálfur félagsmála- ráðherrann hefur til dæmis misst út úr sér að það séu einungis tvær til þrjár persónur innan samtak- anna sem hafi eitthvað við frum- varp hans að athuga. Við höfum einnig verið vænd um það að vilja engar breytingar á samskiptaregl- um á vinnumarkaði, þrátt fyrir að á borðinu liggi tillögur frá for- mönnum landssambanda um nauð- synlegar breytingar. Margt vitlaust hefur verið sagt af talsmönnum stjórnarinnar um þetta mál og af lítilli þekkingu. Gott dæmi um það er þegar varaformaður félagsmála- nefndar Alþingis sagði að í þessu máli hafi verið haft gott samstarf við forystu ASÍ, en að það hafi verið landssamböndin sem stóðu í veginum. Hvað meinar konan eig- inlega, það voru einmitt formenn landssambandanna innan ASI, sem gerðu tillögur að bættum sam- skiptareglum á vinnumarkaði og voru í viðræðum við gagnaðila um þær þegar félagsmálaráðherrann ruddist fram á sviðið með laga- frumvarpið, sem sleit þeim viðræð- um. Hvers er að vænta þegar vara- formaður félagsmálanefndar talar á þennan hátt, veit hún ekki að formenn landssambanda ASÍ eru líka forysta ASÍ?“ sagði Benedikt. „Ég minni á að fyrir um 40 árum þegar svipað stóð á, beitti Alþýðu- sambandið sér fyrir mjög víðtæku félagspólitísku samstarfi sem skil- aði góðum árangri. Ég hef tekið eftir því að hin eindræga allsheijar- samstaða allrar verkalýðshreyfing- arinnar nú, gegn þessum frumvörp- um, hefur leitt til þess að stjórnar- andstaðan á Alþingi hefur talað þar einu máli, það er okkar máli, og fyrir það þökkum við. Við getum þess vegna spurt okkur. Er nú aftur að renna upp slíkt tímabil að verka- lýðshreyfingin í heild geti, eða eigi að beita sér sem frumkvæðisaðili fyrir svo víðtæku samstarfi sem þá?“ sagði Benedikt. „Við gerðum öll mistök“ Benedikt rakti í ræðu sinni að- dragandann að ákvörðun meirihluta launanefndar í nóvember að segja ekki upp kjarasamningum. Sagði hann að alvarlegri brestir hefðu komið upp innan verkalýðshreyfing- arinnar og launanefndin hefði klofn- að. „Sá lærdómur sem ég vil leyfa mér að draga af þessu ferli öllu og þeirri deilu sem upp kom, er að við gerðum öll mistök, mistök sem við verðum að læra af til þess að kom- ast hjá svona félagslega erfiðum ágreiningi í framtíðinni. Við verðum að sýna hvert öðru það umburðar- lyndi og þolinmæði að við getum eflt samstöðu okkar og styrk þó að ágreiningur sé um málsmeðferð. Það var trúlega rangt að hafa ekki farið í víðtækari fundaherferð um miðjan nóvember með mótaðan ramma til þess að kynna stjórnum aðildarfélaganna, þannig að hægt væri með þeim að leggja mat á hvaða kostir væru í stöðunni, leita eftir áliti þeirra um framhaldið og ná víðtækari samstöðu um niður- stöðuna,“ sagði hann. Kaupmáttur aldrei vaxið jafn mikið við lága verðbólgu í ræðu sinni sagði Benedikt að kaupmáttur dagvinnulauna hefði farið vaxandi frá í febrúar 1995 og væri nú orðinn hærri en hann var í ársbyijun 1990. Þessi árangur væri hins vegar ekki í sviðsljósinu. Staðreyndin er hins vegar sú að kaupmáttur launa hefur aldrei vax- ið jafn mikið við eins lágt verðbólgu- stig og þessir kjarasamningar tryggðu. Gera má ráð fyrir að kaup: máttur dagvinnulauna innan ASÍ vaxi að jafnaði um tæplega 6% á árunum 1995 og 1996 á sama tíma og verðbólga er nokkuð innan við 2%. Þessu til viðbótar eykst kaup- máttur vegna afnáms tvísköttunar lífeyrisiðgjalda og lægri verðtrygg- ingar lána vegna breyttrar samsetn- ingar lánskjaravísitölunnar," sagði Bendikt. Sagði hann að hlutur launafólks af þjóðarkökunni hefði aukist og gert væri ráð fyrir frek- ari hækkun á þessu ári bæði með kaupmáttaraukningu og vegna mik- illar fjölgunar starfa. „Ljóst er að mikil og erfið verk- efni bíða í samskiptunum við stjórn- völd og atvinnurekendur á næstu misserum. Mótun launastefnu sem markvisst treysti kjör þeirra hópa í samfélaginu sem hafa lægstu tekj- urnar og minnsta starfsöryggið er sameiginlegt verkefni allrar launa- mannahreyfingarinnar. Þá er mikil- vægt að samtök launafólks komi í veg fyrir að þróun á vinnumarkaði og breytingar á rekstrarformi fyrir- tækja leiði til innbyrðis átaka og sundurlyndis sem veikir stöðu okk- ar,“ sagði Benedikt. Grétar Þorsteinsson ílmgar framboð til forseta ASI GRÉTAR Þorsteinsson, for- maður Samiðnar, segist muni skoða alvarlega að bjóða sjg fram til emb- ættis forseta ASÍ ef ríkur vilji sé til þess meðal fulltrúa á þingi ASÍ að hann geri það. Óvissan um kjör forseta og forystu Alþýðusam- bandsins yfirskyggði önnur mál á fyrsta degi ASI-þingsins í gær og þurfti að ganga til leynilegrar at- kvæðagreiðslu á þinginu um tillögu um skipan kjörnefndar, sem sam- komulag hafði náðst um á sunnu- dag. „Ég sækist ekki eftir því að verða forseti Alþýðusambandsins. Ef það á hins vegar eftir að koma í ljós að það er ríkur vilji að ég skoði það þá mun ég gera það. Það er jafnframt jafnljóst að ef núverandi forseti gefur kost á sér þá styð ég hann,“ sagði Grétar þegar hann var spurður hvort hann sæktist eftir embætti forseta ASÍ. Grétar sagðist leggja mikla áherslu á að forseti ASÍ nyti víðtæks stuðnings og að góð samstaða skap- aðist milli þeirra sem mynda forystu- sveitina. Ekki er búist við að Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, gefi nein svör um það hvort hann gefur kost á sér til endurkjörs fyrr en kjörnefnd þingsins hefur komist að niðurstöðu um uppstillingu forseta og varafor- seta Álþýðusambandsins. Er ekki reiknað með að þau mál skýrist fyrr en á miðvikudag, en þá á kjör for- seta að fara fram skv, dagskrá þings- ins. Samkomulag náðist í nefndanefnd sl. sunnudagskvöld eftir langvinnar tilraunir til málamiðlunar um tillögu til þingsins um skipan 9 manna kjör- nefndar en hún á að gera tillögu um uppstillingu til forystu ASÍ á þing- Kjörnefndin að störfum. Morgunblaðið/Asdís inu. Skv. heimildum Morgunblaðsins tókst nefndanefnd að ná sam- komulagi um fulltrúa í nefndina í samræmi við þá venju að þrír fulltrúar væru Alþýðubandalags- menn, tveir Alþýðu- flokksmenn, tveir sjálf- stæðismenn og tveir framsóknarmenn. Óánægja vegna pólitískrar skipunar kjörnefndar Nokkurrar óánægju gætti með tillögu nefndanefndar þegar hún var lögð fram á þinginu í gær og komu fram tillögur til Grétar Þorsteinsson að úr sal um tvo fulltrúa til viðbótar, Kristján Gunnarsson, formann Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavík- ur, og Birgi H. Björg- vinsson, Sjómannafélagi Reykjavíkur. Eiríkur Stefánsson, Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Fáskrúðs- fjarðar, kvaddi sér hljóðs og gagnrýndi harðlega að gerð væri tillaga um kjörnefnd eftir pólitísk- um línum. Fullyrti hann að þetta væri í andstöðu við vilja almennra fé- lagsmanna. Lagði hann þingið gerði með sérstakri ályktun kröfu til þess að kjörnefndin starfaði á faglegum grunni en ekki eftir pólitískum flokkadráttum, eins og verið hefði á undanförnum áratug- um. Gengið var til skriflegrar atkvæða- greiðslu meðal þingfulltrúa um skip- an kjörnefndar og náðu allir fulltrú- ar, sem nefndanefnd hafði gert til- lögu um, kosningu. Úrslitin urðu þau **' að Guðrún Kr. Óladóttir, Starfs- mannafélaginu Sókn, fékk flest at- kvæði eða 409, Sigurður Ingvarsson, Árvakri, fékk 400 atkv., Konráð Al- freðsson, Sjómannafélagi Eyjafjarð- ar, 397, Ragna Bergmann, Verka- kvennafélaginu Framsókn, 392, Sól- veig Haraldsdóttir, Verslunarmanna- félagi Hafnarfjarðar, 391, Haraldur H. Jónsson, Félagi ísl. rafvirkja, 388, Guðmundur Hilmarsson Bíliðnafé- laginu, 338, Þórður Ólafsson, Verka- lýðs- og sjómannafélaginu Boðanum, 335, og Magnús L. Sveinsson, Verzl- unarmannafélagi Reykjavíkur, 300 atkvæði. Kristján Gunnarsson fékk 224 at- ^ kvæði og Birgir Björgvinsson 152 og náðu þeir ekki kjöri. Talið ósennilegt að kjörnefnd verði einliuga um uppstillingu Kjörnefnd mun nú undirbúa til- lögugerð sína til þingsins um uppstill- ingu forystu ASI, en skv. heimildum Morgunblaðsins eru litlar líkur taldar á því að nefndin verði einhuga um niðurstöðuna. Kjör forseta getur einnig ráðist af því hveijir verða í framboði til fyrsta og annars varafor- seta. Hervar Gunnarsson, annar varaforseti ASÍ, hefur einn gefið kost á sér til forseta en skv. upplýs- ingum blaðsins er talið næsta víst að til kosninga muni koma á milli frambjóðenda hver svo sem niður- staðan verður í kjörnefndinni. Harðar umræður um skattamál ASI á þingi Alþýðusambandsins í Kópavogi Sjómenn íhuga endurskoðun aðildar að ASI FÉLÖG innan Rafiðnaðar- sambands íslands og Sjó- mannasambands Islands ætla að endurskoða aðild sína að ASÍ verði skattgreiðslum sambandanna til ASÍ breytt. For- maður Rafíðnaðarsambandsins gagnrýndi forystu ASÍ á þingi þess í gær og sagði að hún hefði ekki gert neinar breytingar á rekstri sam- bandsins þrátt fyrir að tekin hefði verið ákvörðun um að lækka framlög landssambandanna til ASÍ. Miðstjórn ASÍ hefur lagt fram til- lögu á þipginu um að aðildarsam- bönd ASÍ greiði hlutfallsskatt til ASÍ, en í dag greiða samböndin nef- skatt til ASI. Mikil óánægja er með- al aðildarfélaga VMSI, Verslun- armanna og iðnverkamanna með þetta fyrirkomulag. Ástæðan er sú að félög, sem eru með mikið af fé- lagsmönnum með lágar tekjur, greiða hlutfallslega meira til ÁSÍ, en félög iðnaðarmanna og sjómanna, þar sem félagar eru almennt með háar tekjur. Sjómenn og rafiðnaðarmenn mjög óánægðir Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, sagði að Iðja hefði greitt um 24% af tekjum sínum í skatttekjur. Hann sagði að það yki enn meira á óréttlætið að greiða verður fullan nefskatt til ASÍ af launamönnum sem eru í hálfu starfi, en það kemur verr við félög verslunarmanna og verkamanna, en félög sjómanna. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar, tók undir þetta og sagði að Eining greiddi 8,7% af tekjum sínum til VMSÍ og 15% til ASÍ. Hann sagði þessa miklu skattheimtu standa félagsstarfi í Einingu fyrir þrifum. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, lýsti yfir harðri andstöðu við þessa breytingu. Hún hefði í för með sér að skatt- greiðslur Sjómannasambandsins til ASÍ ykjust um 50%. Hann benti á að áhrif félaganna innan ASÍ breyttust ekki við þessa skattkerfis- breytingu. Sævar sagði að mikil andstaða væri við þessa breytingu meðal félaga Sjómanna- sambandsins og að sum þeirra hefðu samþykkt að taka aðild sína að ASÍ til endurskoðunar ef tillagan yrði samþykkt. Guðmundur Gunnars- son, formaður Rafiðnaðarsambands- ins, sagði að tvö stærstu félögin inn- an Rafiðnaðarsambandsins hefðu samþykkt að endurskoða aðild að ASÍ, verði tillaga miðstjórnar sam- þykkt. Tap á rekstri ASÍ Gert er ráð fyrir yfir fjögurra milljóna króna halla á rekstri ASÍ á þessu ári í fjárhagsáætlun sem lögð hefur verið fyrir þing ASL Áætlunin gengur út frá þeim forsendum sem ASI starfar eftir í dag, þ.e. óbreytt- um nefskatti. ASÍ hefur verið rekið með halla tvö síðustu ár. Guðmundur Gunnarsson gagn- rýndi forystu ASÍ fyrir að reka sam- bandið með halla og gera engar ráðstafanir til að bregðast við sam- þykkt síðasta ASÍ-þings um óbreyttar skatttekjur. Með því að láta tekjur ASÍ ekki fylgja verðlags- þróun hefði þing ASÍ ætlast til þess að útgjöld yrðu skorin nið- ur. Guðmundur lagði fram tillögu á þinginu sem ger- ir ráð fyrir að nefskattur til ASÍ lækki um 5% ár- lega næstu fjögur árin og að þriggja manna nefmi verði falið að skoða rekstur ASÍ. Öllum hugmyndum um breytingar á skattkerfi ÁSl verði skotið á frest þangað til nefndin hafi skilað áliti. Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ, sagði að stjórnendur ASÍ hefðu gætt aðhalds í fjármálum sam- bandsins. ASÍ þyrfti hins vegar oft að bregðast við óvæntum aðstæð- um. Barátta og fundaherferð verka- lýðshreyfingarinnar gegn vinnu- markaðsfrumvörpum ríkisstjórnar- innar kostaði t.d. talsverða fjár- muni. Mjólkurfræðingar á leið úr ASÍ? Tillögur miðstjórnar ASÍ um að öll aðildarfélög sambandsins verði að ganga í landssamband og bein aðild verkalýðsfélaga að ASÍ verði óheimil var gagnrýnd af minni félögunum. Geir Jónsson, formaður Mjólkurfræð- ingafélagsins, sem á beina aðild að ASÍ, sagði að með þessari tillögu væri ASI að losa sig við þessi félög. Mjólkurfræðingum dytti ekki í hug að ganga í landssamband. Þeir myndu bjarga sér án ASÍ yrði þeim gert ókleift að starfa innan þess. Þórunn Sveinbjarnardóttir, for- maður Sóknar, tók í sama streng og sagði að tillaga miðstjórnar jafn- gilti brottrekstri úr ASÍ. Sókn á beina aðild að ASÍ, en er ekki aðili að landssambandi. Reglugerð um sjúkrasjóðina gagnrýnd >i Tillaga miðstjórnar um lágmarks- reglur um sjúkrasjóði stéttarfélag- anna innan ÁSÍ var harðlega gagn- rýnd af mörgum þingfulltrúum. Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði að þing ASÍ hefði ekkert um- boð til að setja reglur um starfsemi sjúkrasjóðanna. Það gæti hins vegar sett leiðbeinandi reglur um sjóðina og hvatti til að það yrði gert. Magn- ús sagði að samkvæmt reglunum gætu vinnuveitendur fengið aðild að sjúkrasjóðunum og náð þar ítökum. Reglugerðin bæri vott um að þeir sem sömdu hana þekktu ekki til starfsemi sjúkrasjóðanna. Guðmundur Gunnarsson sagði að samkvæmt reglugerðinni gæti launamaður verði aðili að sjúkrasjóði án þess að vera félagsmaður í verka- lýðsfélagi. Þetta væri hættulegt ákvæði og ynni gegn félögunum. Tillaga um að skattgreiðsl- urtilASÍ lækki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.