Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Maðurinn minn, faöir og fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar, GÍSLI GÍSLASON frá Viðey, Skúlagötu 64, lést i Landspítalanum að morgni 16. maí. Jóhanna Bjarnadóttir, Þórdis Gísladóttir, Guðrún Gísladóttir, Eyþór Jónsson, Kjartan Steinólfsson, Sigríður Þorláksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir mín og amma okkar, BJARGEY LILJA SIGVALDADÓTTIR, Fornhaga 19, Reykjavik, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 18. maí. Sólveig Ólafsdóttir, Lilja Bjargey Pétursdóttir, Anna Karen Þóroddsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELI'N JÓSEFSDÓTTIR, Reykjavikurvegi 34, Hafnarfirði, andaðist í Vífilsstaðaspítala aðfaranótt 20. maí. Birgir Óskarsson, Skúli Óskarsson, Rós Jóhannesdóttir, lllugi Óskarsson, Margrét Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. LAUFEYSVAVA BRANDSDÓTTIR + Laufey Svava Brandsdóttir var fædd í Reykja- vík 16. september 1908. Hún lést 15. maí síðastliðinn. Foreldrar Svövu voru Jóhanna Jó- hannsdóttir hús- móðir, ættuð úr Grafningi, og Brandur Jónsson sjómaður og síðar starfsmaður Slipp- félagsins í Reykja- vík, ættaður úr Skaftafellssýslu. Svava átti eina systur Míar- gréti, sem var gift Haraldi Guðmundssyni al- þingismanni. Mar- grét lést 1976. Utför Laufeyjar Svövu verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Svava ólst upp á al- þýðuheimili og byijaði ung að vinna. Hún vann nokkur ár í Bjömsbakaríi en tæp- lega hálfþrítug hóf hún störf hjá Landsíma ís- lands. Hún vann þar tæplega 50 ár til sjötugs. Mestan hluta starfs- t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR ÁRNASON frá Oddgeirshólum, andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, aðfaranótt 19. maí. Guðmunda Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir mín og tilvonandi eiginkona, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Káratanga, lést í Landspítalanum 18. maí. Fyrir hönd vandamanna, Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir, Valdimar Össurarson. t Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON leigubifreiðastóri frá Hermundarstöðum, Þverárhlíð, Borgarfirði, síðast tii heimilis f Mýrarási 3, Reykjavík, andaðist laugardaginn 18. maí. Ásta Jónsdóttir, Gylfi Þór Guðmundsson, Helga Guðmundsdóttir, Sigurvin J. Sigurvinsson, Lilja Guðný Guðmundsdóttir, Páll Emil Beck, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA GUNNARSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, lést í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 19. maí. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstu- daginn 24. maí kl. 14.00. Sigurður Helgason, Helgi Sigurðsson, Stefanía Sigmarsdóttir, Sigrún Erla Sigurðardóttir, Haukur Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFURGUÐLAUGSSON, Sogavegi 136, Reykjavík, andaðist 17. maí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. maí kl. 13.30. Laufey Ólafsdóttir, Friðbjörn Kristjánsson, Ari Ólafsson, Helga Ámundadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkæri drengurinn okkar, FANNAR ÖRN ARNUÓTSSON, Þórustöðum 4, Eyjafjarðarsveit, sem lést af slysförum 18. maí, verður jarðsunginn frá Glerár- kirkju föstudaginn 24. maí kl. 14.00. Jarðsett verður frá Kaupangskirkju. Anna Ringsted, Stefán Guðlaugsson, Arnljótur Ottesen, Lísa Jónasdóttir, Helena Arnljótsdóttir, Sölvi Jónsson, Jakobína Arnljótsdóttir, Finnbogi Hilmarsson, Gunnbjörn Arnljótsson, Jófríður, Guðlaug og Björgvin Stefánsbörn, Haraldur Ringsted, Jakobma Stefánsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir okk- ar og sonur, SIGURÐUR HJÁLMAR JÓNSSON skíðamaður frá ísafirði, til heimilis i'Hliðarhjalla 53, Kópavogi, lést þann 7. maí. Útförin hefur farið fram að Ökrurh á Mýrum í Borgarbyggð. Ólöf Sig. Davíðsdóttir, Jón Karl Sigurðsson, ívar Jónsson, Ásmundur Örn Harðarson, Hálfdán Helgi Harðarson, Lísbet Harðardóttir, Steingeröur Gunnarsdóttir, Jón Karl Sigurðsson. + Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn, GUNNAR HJÖRTUR BJARNASON, Vesturgötu 115B, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 23. maí kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna. Bjarni Einar Gunnarsson, Valgeröur Olga Lárusdóttir, Ása Katrín Bjarnadóttir, Ingibjörg Óladóttir, Lárus Engilbertsson, Gunnhildur Benediktsdóttir. tímans vann hún í endurskoðunar- deild. Svava var mjög samviskusöm í sínu starfi og stundaði það af mikilli trúmennsku. Svava og móðir hennar, Jóhanna Jóhannsdóttir, bjuggu tvær saman eftir lát Brands Jónssonar 1941 og þar til Jóhanna andaðist 1962. Oft var mjög gestkvæmt á heim- ili þeirra, þar sem bæði fjölskylda og vinafólk hittust og var vel tekið á móti öllum. Svava var fædd og uppalin í vest- urbænum og fáir þekktu gamla bæinn betur en hún. Það var mjög ánægjulegt að ganga með henni um götur vesturbæjarins og heyra lýsingar hennar á því, sem áður var. Svava lét sér mjög annt um syst- urbörn sín og síðar börn þeirra. Hún vildi varðveita tengsl innan fjölskyldunnar og þau voru mörg barnaboðin, sem hún hélt um dag- ana. í þessum hópi voru einnig börn vinkvenna hennar, en Svava ræktaði alla tíð samband og vináttu við æskuvinkonur sínar. Hún átti einnig auðvelt með að eignast vini meðal ungs fólks. Svava var sjór af fróðleik um fyrri tíð. Hún var mjög ættfróð, og hafði sérstaklega gott minni, mundi ýmsa hluti, sem höfðu gerst, þegar hún var bam að aldri. Við andlát Svövu hverfur ekki aðeins á braut kær móðursystir heldur rofna einnig tengsl við fyrri tíð. Við systurbörn Svövu kveðjum hana með góðum minningum og þökkum allt það sem hún hefur verið okkur. Haukur Haraldsson, Rebekka, Þóra og Jóhanna Haraldsdætur. Sjálfsagt er algengara að menn hafi mest lítið af ömmusystrum sín- um að segja á lífsleiðinni en það var öðm að heilsa með okkur bræð- urna. Svava frænka giftist aldrei og eignaðist ekki börn og yfirfærði greinilega sína miklu hlýju og þörf fyrir fjölskyldubönd á börn systur sinnar og allt þeirra barnastóð með þeim árangri að hún varð jafn sjálf- sagður hluti af tilverunni og for- eldri. Við vorum börn, urðum ungl- ingar og loks fullorðnir, í heimi sem sífellt er að breytast, en Svava frænka breyttist ekki hætishót og hélt sínu striki, allir gátu hvenær sem er „kíkt við á Birkimelnum" og treyst því að sérríkakan, kom- flekskökurnar, og eitthvað sem hlaut upphaflega að hafa verið upp- skrift að oblátum, væru á boðstólum í óbreyttri mynd frá 1960 og þar að auki ómældur skammtur með af frásögnum og einlægri ástúð og umhyggjusemi. Hún var skemmti- legur og sérstæður persónuleiki, glaðlynd, ákveðin, hreinskiptin og trygglynd, trúuð og kirkjurækin og Sjálfstæðisflokkurinn hafði rétt fyr- ir sér í öllum málum (nema Ráðhús- byggingunni, sem henni þótti al- ómöguleg). Fortíðin var henni ákaf- lega hugleikin og hún ljómaði þegar hún riijaði upp sögur úr fortíðinni og það var gaman að heyra þetta aldamótabarn segja frá og gera lif- andi fyrir okkur atburði sem áður voru dauður sögubókstafur. Kjarni lífsins fannst henni vera vinnan og hagaði hún sér eftir því og eins og sást best á því að vinnuveitendur hennar hjá Pósti og síma buðu henni skömmu fyrir starfslok að hætta að stimpla sig inn, enda sjálfsagt langþreyttir eftir hálfrar aldar starf að finna aldrei misfellu á stimpil- kortinu! Að leiðarlokum viljum við þakka sérstaklega Maríu Ásgeirsdóttur, nágranna og vini Svövu í áratugi, frábæra aðstoð og umhyggju sem sýndi vinarþel langt umfram það er gengur og gerist. Við þökkum Svövu frænku samferðina og þurf- um ekki annað en að hugsa örlétt til hennar til að hlýna um hjartaræt- ur, alla tíð. Hrafnssynir. • Fleiri minningargreinar um Luufeyju Svövu Braudsdóítur bíða hirtingar ogmunu birtast í biaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.