Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skoðanakönnun Félagsvísindastofn- unar fyrir Morgunblaðið Sjálfstæðis- flokkur bætir við sig fylgi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur bætt við sig fylgi frá því síð- astliðinn vetur, samkvæmt niður- stöðum skoðanakönnunar, sem Félagsvísindastofnun Háskóla ís- lands gerði fyrir Morgunblaðið í síðustu viku. Áf þeim, sem afstöðu taka, segjast 42,7% myndu styðja flokkinn í kosningum. í nóvember voru fylgismenn Sjálfstæðisflokks 38,3% og í þingkosningunum í fyrra fékk flokkurinn 37,1% at- kvæða. Fylgisaukning Sjálfstæðis- flokksins er reyndar ekki tölfræði- lega marktæk fremur en aðrar breytingar á fylgi flokkanna frá síðustu könnun Félagsvísinda- stofnunar. Fylgi Alþýðuflokksins breytist sáralítið, var 14,4% í nóv- ember en er nú 13,9%, heldur meira en í kosningunum. Fram- sóknarflokkurinn naut stuðnings 21,3% þeirra, sem tóku afstöðu í síðustu könnun en fær nú stuðning 20,3%, þremur prósentustigum minna en í þingkosningunum. Al- þýðubandalagið fær nú 16,3% fyigi en hafði 18,2% í nóvember og 14,3% í kosningunum. Kvennalist- inn er nálægt kjörfylgi sínu og nýtur nú fylgis 4,8% kjósenda sam- kvæmt könnuninni, en hafði stuðn- ing 5,4% í nóvember. Þjóðvaki fær nú 1,1% fylgi, hafði 1,7% í nóvem- ber og 7,2% í kosningunum. Fylgi Kvennalista mest á landsbyggðinni Þegar svör manna eru flokkuð eftir búsetu vekur það helzt at- hygli að Kvennalistinn hefur nú meira fylgi úti á landi (5,6%) en í Reykjavík (4,8%), en þetta var öfugt í kosningunum í fyrra og í skoðanakönnunum lengi þar á undan. Að öðru leyti er hlutfalls- legur styrkur flokkana í einstök- um landshlutum eins og við mátti búast í ljósi reynsiu undanfarinna ára. Þegar svör eru flokkuð eftir kyni sést að talsvert fleiri karlar en konur kjósa bæði Alþýðuflokk og Framsóknarflokk. Fylgi Sjálf- stæðisflokks er hins vegar nokkuð Könnun Félagsvísindastofnunar í maí 1996: Fylgjstjómmáfeflokk3, flokkað eftir aldri 18,5% [] 4,3% 11,1% 15,9% []] 6,6% | 0,7% 14,9% [] 5,5% 11,5% 16,5% [] 2,7% 11,4% 16,7% [] 4,6% J 0,9% Alþýðufl. Frams.fi. Sjálfstæðisflokkur Alþýðubl. Kvennal. Þjóðv. Sjálfstæðis- Könnun Félagsvísindastofnunar í maí 1996: fiokkur 42,7 py|gj stjórnmálaflokka í kosningum 1995 og í skoðanakönnun síðan Kosn. Nóv. Maf 1995 1995 1996 Annaö 0,9 0,4 0,4 Framsóknar- flokkur 23,3 21’320 3 AIÞýflubandala9 1|16,3 AIÞýðufl0kkur 14,3 lil lim 14^13,9 11,4 V ájmuíiixi Kvennalisti Þjóð- 7,2 vaki 4,9 5.4 4|8 Wl.1 Ö E3 jafnt hjá báðum kynjum. Fleiri konur kjósa Alþýðubandalagið en karlar og sama á við um Kvenna- listann, sem fær mikinn meiri- hluta stuðnings síns frá konum. Óákveðnir 6,7% Skekkjumörk eru víðari þegar svörin eru flokkuð eftir aldri. Þeg- ar litið er á þá skiptingu, kemur hins vegar í ljós að Alþýðuflokkur hefur mest fylgi hjá fólki á aldrin- um 35-44 ára, Framsóknarflokkur hjá 25-34 ára, Sjálfstæðisflokkur hjá yngsta kjósendahópnum, Al- þýðubandalagið hjá þeim elzta og Kvennalistinn hjá miðaldra kon- um. Könnunin fór fram dagana 11.-18. maí. Stuðzt var við slembi- úrtak úr þjóðskrá, sem náði til 1.500 manna á aldrinum 18-75 ára, af öllu landinu. Nettósvarhlut- fall, þ.e. þegar látnir, erlendir borgarar og þeir, sem búsettir eru erlendis, hafa verið dregnir frá úrtakinu, er 72,1%, sem telst ág- ætt í könnun af þessu tagi. Félags- vísindastofnun telur að úrtakið endurspegli þennan aldurshóp meðal þjóðarinnar allrar nokkuð vel. Spurt var hvað menn myndu kjósa ef alþingiskosningar yrðu á morgun. Þeir, sem sögðust ekki vita það, voru spurðir aftur hvað þeir teldu líklegast að þeir kysu. Segðust menn enn ekki vita, voru þeir enn spurðir hvort líklegra væri að þeir kysu Sjálfstæðisflokk- inn eða einhvern vinstri flokkanna og þeim, sem sögðust myndu kjósa vinstri flokka, deilt niður á þá í hlutfalli við svörin við fyrri spurn- ingum. Með þessu fer hlutfall óá- kveðinna úr 33% eftir fyrstu spum- inguna niður í 6,7%. Staða stjórnar- flokkanna sterk Staða stj ómarflokkanna er sterk, skrífar Olafur Þ. Stephensen. Samþykkt frumvarpanna um vinnumark- aðinn virðist lítt hafa dregíð úr fylgí við þá. STAÐA ríkisstjómarflokkanna er sterk, miðað við niðurstöður könnunar Félagsvís- indastofnunar. Samanlagt hafa þeir stuðn- ing 63% kjósenda, sem er meira en þeir fengu samanlagt í síðustu kosningum. Fyrsta árið eftir að ríkisstjómin tók við völdum hefði mátt útskýra útkomu af þessu tagi með því að stjómin hefði ekki hrint neinum breytingum í framkvæmd, sem vem- leg átök vora um, heldur siglt lygnan sjó. Þessi skýring á hins vegar ekki við eftir átök undanfarinna vikna, þar sem ríkis- stjómin hefur látið brjóta á framvörpunum um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna og um stéttarfélög og vinnudeilur. Þjóðvaki skólabókardæmi um sprengiframboð Þessi framvörp hafa verið gagnrýnd harð- lega af hálfu stjómarandstöðunnar og for- ystu verkalýðshreyflngarinnar, sem hefur haldið því fram að hún hefði mikinn meiri- hluta félagsmanna sinna á bak við sig. Skoð- anakönnun ÍM Gallup, sem birt var í síð- ustu viku, benti reyndar til annars. Þessi könnun Félagsvísindastofnunar sýnir að minnsta kosti að sé meirihluti kjósenda óánægður með ríkisstjómina og telji hana vega að grandvallarréttindum sínum, era menn ekki nógu illir til þess að ætla að hætta að kjósa stjórnarflokkana. Fylgi Þjóðvaka virðist nú stefna í að verða nokkuð stöðugt — rétt ofan við núllið. Þjóð- vaki er að verða skólabókardæmi um sprengiframboð, sem fær mikið fylgi í fyrstu skoðanakönnunum, miklu minna í kosning- unum sjálfum og missir svo allan stuðning á misserunum eftir kosningar. Fylgiskúrfa Þjóðvaka er farin að líkjast heljarstökki Bandalags jafnaðarmanna og Borgara- flokksins ískyggilega mikið. Almennt má segja að niðurstöður könnun- arinnar gefi til kynna styrka stöðu gamla fjögurra flokka kerfísins. Gömlu flokkarnir era allir nokkuð nálægt meðalfylgi sínu síð- i ustu sex áratugina eða svo. j Greining á niðurstöðum könnunarinnar leiðir fátt athyglisvert í ljós nema hvað fylgi ' Framsóknarflokksins í aldurshópnum 25-34 ára er talsvert mikið hærra en í öðrum ald- ursflokkum. Þetta er breyting frá síðasta ári, þegar skoðanakannanir sýndu frekar að flokkurinn væri sterkastur í yngsta kjós- endahópnum og kosningabarátta hans virt- ist höfða til þess hóps. Einnig hefur Kvennalistinn bætt við sig á landsbyggðinni, á kostnað fylgisins á 1 höfuðborgarsvæðinu. Þessar tölur ber þó | að taka með vissum fyrirvara, vegna þess i að skekkjan eykst eftir því sem úrtakið er brotið niður í smærri hópa. Lögmaður Færeyja í heimsókn EDMUND Joensen, lögmaður Fær- eyja, er ásamt eiginkonu sinni frú Edfríð Joensen væntanlegur til ís- lands í dag í heimsókn í boði forsæt- isráðherra, en með þeim í för er m.a. Sámal Petur í Grund, sam- gönguráðherra í færeysku lands- stjóminni. Heimsóknin hefst með viðræðu- fundi lögmannsins og samgöngu- ráðherra hans með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Blönd- al samgönguráðherra í stjómarráðs- húsinu við Lækjartorg síðdegis í dag. Á morgun og fímmtudag mun lögmaðurinn ásamt föruneyti sínu ferðast um Vestfirði í fylgd Hall: dórs Blöndal samgönguráðherra. í för sinni þangað mun lögmaðurinn m.a. heimsækja Flateyri og Súða- vík, en Færeyingar gáfu rausnarleg- ar gjafir til uppbyggingar á þessum stöðum í kjölfar snjóflóðanna þar. Heimsókn lögmanninns hingað til lands lýkur síðdegis á fimmtudag. Leiðrétting vegna auglýsinga Sl. sunnudag birtust hér í blaðinu tvær heilsíðuauglýsingar frá „Stuðn- ingsmönnum við frið“. Þau mistök urðu hins vegar við birtingu þeirra, að ekki var tekið fram, að um auglýsingar væri að ræða, eins og jafnan er gert, þegar Morgunblaðið birtir auglýsingar sem þessar. Þetta leiðréttist hér með. Lög sett um umgengni við nytjastofna sjávar ; ALÞINGI samþykkti í gær lög um umgengni um nytjastofna sjávar sem eiga að stuðla að því að nytja- stofnar verði nýttir með sjálfbæram hætti sem tryggi hámarksafrakstur til langs tíma. Samkvæmt lögunum er almenna reglan sú að bannað er að varpa fiski fyrir borð. Sjávarútvegsráð- herra getur þó ákveðið með reglu- gerð að sleppa skuli lifandi fiski sem er undir tiltekinni lengd og fæst í ákveðin veiðarfæri. Þá er heimilt að varpa fyrir borð afla sem er sýkt- ur, selbitinn eða skemmdur, og einn- ig fiskitegundum sem ekki era und- ir kvóta, enda hafí þær ekki verð- gildi. Oheimilt er, samkvæmt lögunum, að hefia veiðiferðir nema skip hafí veiðiheimildir af þeim tegundum sem líklegt er að náist í veiðiferð- inni, þar með talið líklegum með- afla. Þá er skylt að draga reglulega veiðarfæri úr sjó. Þá er í lögunum kveðið á um skyldur og ábyrgð þeirra sem koma að viktun, svo sem skipstjóra, öku- manna flutningstækja, starfsmanna aflavoga og kaupenda, til að tryggja að físki isé ekki landað framhjá vikt. Lögin gera ráð fyrir veiðileyfis- sviptingu og viktunarleyfíssvipt- ingu, ef brotið er gegn þeim, og að heimilt verði að beita fésektum og jafnvel varðhaldi og fangelsi ef brot eru stórfelld eða margítrekuð. Allur afli að landi Við lokaatkvæðagreiðslu var felld breytingartillaga frá Sighvati Björgvinssyni Alþýðuflokki, um að skipstjórar gætu valið hvaða hluta af afla skips skuli telja til kvóta þess, til að stuðla að því að allur afli sé færður að landi. Tillagan gerði ráð fyrir að sá afli sem ekki teldist til kvóta væri eign rannsóknastofnana sjávarútvegsins og Landhelgissjóðs og söluandvirðið rynni þangað að frádregnu gjaldi fyrir kostnað við flutning í land, geymslu og Iöndun aflans. Það gjald 1 rynni til útgerðar skips og kæmi til | hlutaskipta eins og annað aflaverð- , mæti. Pétur H. Blöndal Sjálfstæðisflokki skýrði frá því við fyrri umræðu um málið að hann hefði sent sjávarút- vegsnefnd samskonar hugmyndir til umræðu. Pétur sagði við atkvæða- greiðsluna í gær, að tillaga Sighvats væri ekki fullrædd og hefði ekki verið borin undir þá aðila sem ættu I að starfa eftir þessum reglum, og því sæti hann hjá við atkvæðagreiðsl- ) una. Einungis þingmenn Alþýðu- ] flokks og einn þingmaður Kvenna- lista greiddu tillögunni atkvæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.