Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996 21 LISTIR Ámótum sögnnnar Morgunblaðið/Kristinn 150 í prufur vegna Stone Free TONLIST Háskólabíó SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Verkefni eftir Haydn, Þorkel, Sibel- ius. Stjórnandi Petri Sakari. Einleik- ari Manela Wiesler. Föstudaginn 17. maí 1996. SINFÓNÍA nr. 22 í Es-dúr er ekki ein þeirra sinfónía höfundar sem maður oftast heyrir og þótt ein af fyrstu sinfóníum hans sé, sannar hún einnig auðuga sköpunargáfu Haydns. Nær því óskiljanleg er af- kastageta Haydns, 104 sinfóníur í vínarklassísku sinfóníuformi, aldrei klisj- ur, en barmafullar af skáldskap og endalaust nýjum hugmyndum, og þótt Haydn hafi lifað óvenju langa ævi hlýtur maður að standa agndofa frammi fyrir öllum þessum sköp- unarmætti og í viðbót við þessar 104 sinfóníur, ótölulegur fjöldi verka í stórum formum. Auk óvenjulegs hljóðfæravals í Es-dúr, sem út af fyrir sig gefur sinfóníunni sérkennilegan lit, var jafnvægið í strengjahópnum óvenjulegt, en tíu fyrstu fiðlur móti fjórum sellóum skapa sér- stakan blæ og veit undirritaður ekki hvort Haydn hefur fyrirskip- að svo eða er ákvörðun stjórnand- ans. Petri Sakari tókst að laða fram sérkenni þessarar sinfóníu og strengirnir sýndu sitt ágæti þótt síðasti þátturinn væri á efri mörkum hraða og Menuett-þáttur- inn of sætlega spilaður, að mati undirritaðs. íslenska verk kvöldsins var „Euridice-konsert fyrir Manuelu og hljómsveit“ eftir Þorkel Sigurbjörns- son. Að loknum furðuleg- um effektum sem frá djúpum blásturhljóðfær- um hljómsveitarinnar, hljóðum sem hefðu getað verið ættuð úr undirheim- um ekki síður en annars staðar, birtist Manuela út úr myrkrinu með flautuna sína, klædd hvítum eða silfruðum kjól (litir eru mér stundum vanda- mál) eins og Euridice í Hades eða engill frá himnum og leikur henn- ar við ljósamunstur Rarik-fram- leiðslunnar hófst. Manuela er þeim kostum búin að geta fengið flaut- una sína til að bregða sér í hin ýmsu líki og í kvöld söng flautan hennar mýkra og fallegar en und- irritaður hefur áður heyrt og féll þannig vel að verki Þorkels. Þessi Euridice-konsert Þorkels gerir sig mjög vel, sérlega fallegar stemmn- ingar svífa fyrir augu og eyru, því ljósaspil ljósameistarans fellur vel að því sem skrifað er milli takt- strikanna. Hvað langt einleikarinn getur leyft sér að ganga í lát- bragðsleik á sviðinu er viðkvæmur hlutur og stundum betra að láta vera en að eiga á hættu að ofgera og fannst mér Manuela þar vera á hættumörkum, en verki Þorkels spái ég langlífi. Öll Lemminkainen-svítan var á dagskrá eftir hlé. Þetta er mikil sinfónískur bálkur þar sem fyrsti þátturinn, um Lemminkainen og stúlkurnar frá Saari, er langinni- haldsríkastur af músik og vinnu- brögðum, þar sýndi hljómsveitin einnig frábæran leik, og strengirn- ir sýndu framúrskarandi samhæf- ingu í sveiflukenndum styrkleika- breytingum þáttarins, undir spili hljómsveitarinnar. í þessum kafla saknaði maður ekki hljómleysis konsertsalarins, en það sannar enn frekar að tími er kominn fyrir þjóð- ina að láta eitthvað víkja fyrir við- unandi tónlistarhúsi, hljómsveitin á það líka skilið. Petri Sakari leiddi hljómsveitina farsællega í gegn um krefjandi efnisskrá og virðist Sakari vera vaxandi stjórnandi, þó fer ég ekki ofan af því að með örlítið sparsamari hreyfingum fengi hann ennþá meira út úr hljómsveitinni. Ragnar Björnsson 150 MANNS komu til viðtals vegna aukahlutverka í nýjasta leikverki breska leikskáldsins Jims Cartwright, Stone Freé, sem heimsfrumsýning verður á í Borgarleikhúsinu 12. júlí. Á myndinni sjást þeir Breki Karlsson, framkvæmdastjóri sýningarinnar, og Magnús Geir Þórðarson, leikstjóri, ræða við umsækjanda en einnig var verið að ráða til starfa ljósamenn og aðra tæknimenn. í samtali við Morgunblaðið sagði Magnús Geir að mikill hugur væri í aðstandendum sýningarinnar en æfingar væru hafnar. „Fólk er almennt mjög spennt yfir verkinu en það er enn að taka breytingum; við erum í góðu sambandi við Cartwright úti sem vill fylgjast náið með því sem við erum að gera enda er hér um heimsfrumsýningu að ræða.“ Manuela Wiesler dDvandaour Sportaqe 10001 á ótrúiegu \| B B Kia Sportage 5 dyra h á otrulegu verði! Kia Sportage 3 dvra handskiptur 1.998.000 Kia Sportage 5 dvra sjálfskiptur: 2.141.000 Hátt og lágt drif Rafmagnsruður Samlæsmgar Útvarp með segulbandi Rafstýröir átispeglar Aflstvri Veltistýri Litaö gler HEKLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.